Ferill 419. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 765  —  419. mál.




Svar



viðskiptaráðherra við fyrirspurn Jóhönnu Sigurðardóttur um málefni Búnaðarbankans og stjórnenda hans.

    Ráðherra telur rétt að skýra í upphafi skyldu Búnaðarbanka Íslands hf. til að gefa upplýsingar um viðskiptamálefni sín sem hlutafélagsbanka.
    Samkvæmt 27. gr. laga nr. 113/1996, um viðskiptabanka og sparisjóði, fer viðskiptaráðherra með yfirstjórn ríkisviðskiptabanka, ásamt bankaráði, svo sem fyrir er mælt í lögunum. Skv. 28. gr. sömu laga getur ráðherra hvenær sem er krafið bankaráð upplýsinga um rekstur og hag ríkisviðskiptabanka.
    Samsvarandi ákvæði er ekki að finna um hlutafélagsbanka, sem Búnaðarbanki Íslands hf. er. Um þá segir einungis í 30. gr. fyrrnefndra laga að hluthafafundur fari með æðsta vald í málefnum hlutafélagsbanka samkvæmt því sem lög og samþykktir bankans ákveða. Þá er kveðið á um í 31. gr. laganna að bankaráð fari með málefni hlutafélagsbanka milli hluthafafunda. Loks segir í 97. gr. laganna að viðskiptaráðherra fari með framkvæmd laganna og að honum sé heimilt að kveða á um framkvæmd þeirra í reglugerð. Ekki eru nánari ákvæði um skyldu hlutafélagsbanka til að veita viðskiptaráðherra gögn. Í 9. gr. laganna segir hins vegar að ákvæði laga um hlutafélög gildi um hlutafélagsbanka, nema annað sé boðið í lögum um viðskiptabanka og sparisjóði. Því er vert að taka til skoðunar hvort lög um hlutafélög, nr. 2/1995, kveði nánar á um umrædd atriði.
    Í 91. gr. laga um hlutafélög, nr. 2/1995, er eftirfarandi ákvæði um rétt hluthafa til upplýsinga á hluthafafundi:
    „Þegar hluthafi krefst þess og slíkt má verða án tjóns fyrir félagið að mati félagsstjórnar skulu félagsstjórn og framkvæmdastjóri leggja fram á hluthafafundi upplýsingar um þau málefni, sem skipta máli um mat á ársreikningi félagsins og stöðu þess að öðru leyti eða áhrif geta haft á afstöðu hluthafa til mála, er ákvörðun á að taka um á fundinum. Upplýsingaskyldan á einnig við um samband félagsins við félög innan sömu samstæðu.
    Ef upplýsingar eru ekki tiltækar á hluthafafundi skulu hluthafar innan fjórtán daga þar frá eiga aðgang að skriflegum upplýsingum hjá félaginu og einnig skulu þær sendar þeim hluthöfum er þess hafa óskað.“
    Af framangreindum ákvæðum verður að álykta að stjórn sé ekki skylt að veita upplýsingar til hluthafa á öðrum vettvangi en kveðið er á um í ákvæðinu. Hins vegar getur hluthafafundur í heild óskað eftir öllum þeim upplýsingum sem hann telur nauðsynlegar og er stjórn félagsins þá skylt að gefa þær, jafnvel þótt hún telji að þær geti leitt til tjóns fyrir félagið.
    Með hliðsjón af fyrrgreindu er Búnaðarbanka Íslands hf. ekki skylt að veita viðskiptaráðherra upplýsingar um viðskiptamálefni bankans utan hluthafafundar, þó svo að ráðherra óski eftir þeim.
    Einnig verður að hafa í huga að þær upplýsingar sem ráðherra fær sem hluthafi teljast ekki ætíð opinberar, í skilningi 54. gr. stjórnarskrárinnar, en þar segir:
    „Heimilt er alþingismönnum, með leyfi Alþingis, að óska upplýsinga ráðherra eða svars um opinbert málefni með því að bera fram fyrirspurn um málið eða beiðast um það skýrslu.“
    Höfð hefur verið hliðsjón af framangreindum sjónarmiðum við gerð þessa svars.
    Til þess að unnt væri að svara fyrirspurn þessari óskaði ráðherra eftir upplýsingum og sjónarmiðum frá Búnaðarbanka Íslands hf. um fyrstu sex liði fyrirspurnarinnar. Í svari Búnaðarbanka Íslands hf. kom fram að bankinn liti svo á að í fyrirspurninni væri farið fram á upplýsingar sem hlutafélagi væri ekki skylt að svara. Þá vísaði bankinn einnig til skýrslu Stefáns Más Stefánssonar prófessors um aðgang að upplýsingum um hlutafélög í eigu ríkisins sem forsætisráðuneyti lét vinna á árinu 1997. Með tilliti til þess að mál þessi hefðu verið fyrirferðamikil í fjölmiðlum teldi bankinn eigi að síður rétt að veita ráðherra svör við því sem kom fram í bréfinu.
    Framangreind niðurstaða og sú staðreynd að mörg þeirra mála sem spurt er um eru í vinnslu hjá stjórnvöldum án þess að endanleg úrlausn hafi verið fengin hefur áhrif á svar við fyrirspurninni. Skýrt skal einnig tekið fram að það er ekki hlutverk ráðherra að kveða á um það hvort lög eða reglur hafi verið brotin í málum sem enn eru til rannsóknar hjá þar til bærum yfirvöldum.
    
     1.      Gengu til baka kaup starfsmanna Búnaðarbankans á hlutabréfum í Decode árið 1999 sem brutu í bága við verklagsreglur bankans og Fjármálaeftirlitið taldi að ættu að ganga til baka? Ef svo er ekki, hvers vegna?
    Hinn 31. janúar 2000 sendi Fjármálaeftirlitið frá sér fréttatilkynningu, þar sem fram kom að það hefði þann dag beint athugasemdum til stjórna sex fjármálafyrirtækja vegna framkvæmdar á verklagsreglum um viðskipti starfsmanna og stjórnenda þeirra. Athugasemdirnar hefðu varðað brot á reglum um bann við viðskiptum með óskráð verðbréf og eftir atvikum öðrum ákvæðum viðkomandi verklagsreglna. Fjármálaeftirlitið hefði falið stjórnum þessara fyrirtækja að taka málið til frekari athugunar, tryggja úrbætur og leggja mat á aðgerðir að öðru leyti. Hefði Fjármálaeftirlitið óskað eftir sjónarmiðum og skýringum stjórnanna vegna málsins. Á grundvelli þeirra yrði tekin ákvörðun um hvort þörf sé frekari aðgerða.
    Í Morgunblaðinu, 8. febrúar 2000, kom fram að eitt þeirra fyrirtækja sem Fjármálaeftirlitið hefði gert athugasemdir við væri Búnaðarbanki Íslands hf.
    Í annarri fréttatilkynningu Fjármálaeftirlitsins, dags. 25. febrúar 2000, sagði að Fjármálaeftirlitinu hefðu borist skýringar stjórna þessara fyrirtækja. Hefði Fjármálaeftirlitið í framhaldi af því fært fram frekari sjónarmið og eftir atvikum beint frekari athugasemdum til einstakra fyrirtækja. Þá kom einnig fram í fréttatilkynningunni að Fjármálaeftirlitið teldi eðlilegt að verðbréfakaup sem fælu í sér brot á verklagsreglum yrðu látin ganga til baka þar sem því yrði við komið. Í því sambandi kynni að þurfa að taka tillit til þess hvort viðskiptin hefðu átt sér stað með samþykki stjórnenda viðkomandi fyrirtækis. Fjármálaeftirlitið tók sérstaklega fram að það teldi óeðlilegt að stjórnendur lánastofnana og fyrirtækja í verðbréfaþjónustu og þeir sem bæru ábyrgð á framkvæmd verklagsreglna innan þeirra nytu hagnaðar af þeim viðskiptum sem þeir kynnu að hafa átt og ekki samræmdust gildandi verklagsreglum.
    Í fyrrgreindu bréfi Búnaðarbanka Íslands hf. vegna þessarar fyrirspurnar kemur fram að bankinn hafi tilkynnt Fjármálaeftirlitinu á síðasta ári um afgreiðslu sína á máli starfmanna bankans sem varðaði kaup þeirra á óskráðum hlutabréfum. Að sögn bankans hafa honum ekki borist athugasemdir frá eftirlitinu vegna afgreiðslunnar.

     2.      Var staðið eðlilega að útboði bankans og sölu á hlutabréfum í bankanum í ársbyrjun 2000 og voru ákvæða laga og reglna um innherjaviðskipti brotin við kaup einstakra starfsmanna og lífeyrissjóðs bankans á bréfunum, en aðkomuviðvörun um að hagnaður bankans yrði meiri en um gat í útboðslýsingu var gefin út nokkrum dögum eftir að útboði lauk og höfðu hlutabréf í bankanum hækkað um nálægt 20%? Hverjar urðu lyktir þess máls og hver bar ábyrgð á hvernig sölu á hlutabréfum til aðila innan bankans var hagað?
    Hinn 10. janúar 2000 óskaði Verðbréfaþing Íslands eftir upplýsingum um tilefni aðkomuviðvörunar í ljósi nýlega útgefinnar útboðslýsingar. Búnaðarbanki Íslands hf. svaraði erindinu með bréfi, dags. 11. janúar 2000. Þar kom fram að þær breyttu forsendur sem leiddu til aukins hagnaðar í bankanum mætti fyrst og fremst rekja til gengishagnaðar vegna hlutabréfaeignar bankans. Væri þessi aukning í samræmi við efni útboðslýsingar Búnaðarbankans, dags. 13. desember 1999, en þar segði að sveifla á hlutabréfamarkaði sem næmi 20% kynni að breyta stöðu bankans um 500 millj. kr. til hins betra eða verra. Í yfirlýsingu Verðbréfaþings Íslands vegna málsins kom fram að þingið tæki skýringar Búnaðarbankans gildar og teldi ekki efni til frekari aðgerða vegna þess hvernig bankinn rækti upplýsingaskyldu sína að þessu sinni.
    Fyrirkomulag sölunnar var ákveðið af framkvæmdanefnd um einkavæðingu í samráði við viðskiptaráðuneytið. Framkvæmdanefnd um einkavæðingu gerði ekki athugasemdir við framkvæmd fyrrgreinds máls.

     3.      Hver er staða mála nú varðandi eignarhluta Búnaðarbankans í Pharmaco hf., en Fjármálaeftirlitið sendi ríkislögreglustjóra beiðni um rannsókn vegna gruns um að bankinn hefði haft innherjaupplýsingar um félagið undir höndum? Er ástæða til að ætla að í því tilviki hafi bankinn brotið ákvæði laga um verðbréfaviðskipti?
    Hinn 5. janúar sl. barst viðskiptaráðherra tilkynning frá Fjármálaeftirlitinu þar sem fram kom að það væri mat Fjármálaeftirlitsins að Búnaðarbanki Íslands hf. og Hlutabréfasjóður Búnaðarbankans hf. hefðu búið yfir trúnaðarupplýsingum um Pharmaco hf. í skilningi 2. mgr. 26. gr. laga nr. 13/1996, um verðbréfaviðskipti, og að rökstudd ástæða væri til að ætla að viðskipti þeirra með hlutabréf í Pharmaco hf. hefðu verið brot gegn 1. tölul. 1. mgr. 27. gr., sbr. 29. gr. laga nr. 13/1996. Fjármálaeftirlitið teldi því óhjákvæmilegt að greina Ríkislögreglustjóra frá framangreindu og framsenda embættinu málið til ákvörðunar um frekari málsmeðferð.
    Framangreind tilkynning var send viðskiptaráðherra, með vísan til 2. mgr. 12. gr. laga nr. 87/1998, um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi, þar sem viðskiptaráðherra fer með stjórnsýsluvald er varðar lánastofnanir og fyrirtæki í verðbréfaþjónustu, sbr. auglýsingu um staðfestingu forseta Íslands á reglugerð um Stjórnarráð Íslands, nr. 96/1969. Í kjölfarið fór hún fram á það með bréfi til ríkislögreglustjóra, dags. 8. janúar sl., að rannsókn málsins yrði hraðað svo sem kostur væri.
    Viðskiptaráðherra hefur ekki haft frekari fregnir af gangi rannsóknar málsins og hún hefur enga heimild að lögum til að krefjast þeirra.
    Þar sem málið er enn hjá ríkislögreglustjóra og ekki liggur fyrir ákvörðun um ákæru né dómur gengið er ekkert hægt að fullyrða um niðurstöðu málsins eða hvort sekt verður sönnuð.

     4.      Hvaða lög og reglur má ætla að hafi verið brotin í tengslum við kaup og sölu Búnaðarbankans á hlutabréfum í Ágæti hf. sem Búnaðarbankinn eignaðist meiri hluta í árið 1999?
    Í ákvörðun samkeppnisráðs nr. 3/2001, frá 2. febrúar 2001, kom fram að ráðið teldi að Búnaðarbankinn hefði „gróflega brotið gegn upplýsingaskyldu sinni gagnvart samkeppnisyfirvöldum og vísvitandi haldið frá þeim upplýsingum“ í tengslum við mál það er varðaði kaup Banana ehf. á 95,03% hlut Grænmetis ehf. í Ágæti hf. Upplýsingaskylda þessi styðst við 39. gr. samkeppnislaga, nr. 8/1993. Einnig kemur fram í álitinu að samkvæmt 2. mgr. 57. gr. samkeppnislaga, nr. 8/1993, skuli aðilar sem gefi rangar skýrslur fyrir samkeppnisyfirvöldum sæta refsingu skv. XV. kafla almennra hegningarlaga.
    Í sama áliti lagði samkeppnisráð fyrir Samkeppnisstofnun að hefja nýja rannsókn á sölu Búnaðarbankans á Ágæti hf. árið 1999 í þeim tilgangi að meta efnislega lögmæti viðskiptanna og hvort ástæða sé fyrir samkeppnisyfirvöld til íhlutunar vegna þeirra. Ekki kemur fram í álitinu hvaða lög og reglur Samkeppnisstofnun skuli hafa til hliðsjónar í þeirri rannsókn sinni.

     5.      Hafa stjórnendur Búnaðarbankans leiðrétt þann mikla mun sem var á bifreiðastyrkjum til karla og kvenna innan bankans í sömu og sambærilegu stöðum sem kærunefnd jafnréttismála úrskurðaði árið 1998 að bryti í bága við jafnréttislög?
    Í áliti kærunefndar jafnréttismála í máli nr. 03a/1998, skipting akstursgreiðslna eftir kyni innan Búnaðarbanka Íslands, kom fram að munur á greiðslum eftir kyni hefði einkum verið í þremur flokkum, þ.e. hjá skrifstofu- og afgreiðslustjórum, deildarstjórum og sérfræðingum. Í flokki skrifstofu- og afgreiðslustjóra hefðu bifreiðastyrkir til kvenna verið að jafnaði 75% af bifreiðastyrkjum til karla. Í flokki deildarstjóra hefðu bifreiðastyrkir til kvenna verið að jafnaði 64% af bifreiðastyrkjum til karla. Í flokki sérfræðinga hafi bifreiðastyrkir til kvenna verið að jafnaði 82% af bifreiðastyrk til karla. Þá kom fram að skv. 2. mgr. 6. gr. jafnréttislaga bæri atvinnurekanda að sýna kærunefnd fram á að aðrar ástæður en kyn hefðu legið til grundvallar ákvörðun hans. Þrátt fyrir ítrekaðar óskir kærunefndar þar um hefði bankinn ekki getað skýrt á fullnægjandi hátt þann mun sem er á bifreiðastyrkjum til kynjanna, en bankinn hélt því fram að þrátt fyrir sama starfsheiti væri um mismunandi verkefni og ábyrgðarsvið að ræða. Kærunefnd komst því að þeirri niðurstöðu að bankinn hefði ekki fullnægt skyldu sinni skv. 2. mgr. 6. gr. jafnréttislaga. Sá afgerandi munur sem væri á bifreiðastyrkjum til kynjanna innan bankans teldist því brjóta í bága við jafnréttislög.
    Í svari Búnaðarbanka Íslands hf. vegna þessarar fyrirspurnar kemur fram að starfsmenn hans fái bifreiðastyrki eftir því hvaða störfum þeir gegna. Enginn greinarmunur sé gerður á kynjum í því sambandi. Viðskiptaráðuneyti hefur ekki frekari upplýsingar um málið.

     6.      Hvaða viðurlög geta átt við í hverju þeirra mála sem um er getið í 1.–5. lið? Hver ber ábyrgð á að lög og reglur í hverju tilviki fyrir sig voru brotin og hafa komið upp fleiri mál tengd Búnaðarbankanum sl. fimm ár en hér hafa verið talin upp sem varðað geta brot á ákvæðum laga og reglna? Ef svo er, hvaða mál eru það?
    Að því er varðar innherjaviðskipti skal nefnt að samkvæmt 2. mgr. 62. gr. laga um verðbréfaviðskipti, nr. 13/1996, varða brot gegn ákvæðum IV. kafla laganna, sem fjalla um innherjaviðskipti, sektum eða fangelsi allt að tveimur árum. Jafnframt er heimilt að gera upptækan með dómi beinan eða óbeinan hagnað sem hlotist hefur með broti gegn ákvæðum IV. kafla.
    Um viðurlög við brotum gegn upplýsingaskyldu aðila til samkeppnisyfirvalda er fjallað í 57. gr. samkeppnislaga, nr. 8/1993. Þar segir í 2. mgr. að sá sem gefi aðilum, sem annast framkvæmd laganna, rangar skýrslur skuli sæta refsingu skv. XV. kafla almennra hegningarlaga. Í XV. kafla almennra hegningarlaga, nr. 19/1940, kemur m.a. fram í 146. gr. að gefi maður opinberu stjórnvaldi ranga yfirlýsingu um málefni, sem honum er skylt að gefa upplýsingar um, þá skuli hann sæta sektum eða fangelsi allt að fjórum mánuðum.
    Samkvæmt lögum um jafna stöðu karla og kvenna, nr. 28/1991, sem voru í gildi þegar álit kærunefndar jafnréttismála í máli nr. 03a/1998 var gefið út, var kveðið á um skaðabótaskyldu þess sem af ásettu ráði eða vanrækslu bryti gegn lögunum. Hins vegar má geta þess að samkvæmt núgildandi lögum um jafna stöðu karla og kvenna, nr. 96/2000, skulu brot gegn þeim lögum einnig varða sektum.
    Hvað varðar spurningu um hver beri ábyrgð á meintum brotum er minnt á að það er ekki í verkahring ráðherra að skera úr um hver er ábyrgur, ef um brot er að ræða.
    Ráðuneytið hefur ekki frekari upplýsingar en opinberar eru, um að fleiri mál „hafi komið upp“ sem varðað geti brot á ákvæðum laga og reglna af hendi Búnaðarbanka Íslands hf. Ítrekað er að bankanum er ekki skylt að gefa slíkar upplýsingar til ráðuneytisins. Ráðuneytið hefur því ekki frekari vitneskju um ásakanir á hendur Búnaðarbanka Íslands hf. en komið hefur fram í fjölmiðlum.

     7.      Hver eru viðbrögð ráðherra við margítrekuðum brotum bankans á lögum og reglum? Hefur ráðherra áminnt bankaráð eða stjórnendur bankans fyrir þessi brot? Ef svo er, í hvaða tilvikum og með hvaða hætti telur ráðherra að þessi aðilar eigi að sæta ábyrgð vegna þessara mála?
    Í fyrstu skal það ítrekað að það er ekki hlutverk ráðherra að kveða á um hvort um „margítrekuð brot“ er að ræða. Minnt er á að hvorki Búnaðarbanki Íslands hf. né starfsmenn hans hafa hlotið dóm fyrir brot gegn lögum eða reglum í umræddum málum.
    Hins vegar hefur ráðherra lýst yfir áhyggjum sínum af fréttum af málefnum Búnaðarbanka Íslands hf. og kallað eftir skýringum í einstökum tilvikum sem hluthafi. Einnig beitti ráðherra sér fyrir breytingum á lögum um verðbréfaviðskipti sem urðu að lögum í maí sl. og lutu að aðskilnaði einstakra starfssviða fjármálafyrirtækja og verklagsreglum um viðskipti starfsmanna og stjórnenda.
    Þá hefur ráðherra lýst yfir því að hann líti alvarlegum augum fréttir um ákvörðun samkeppnisráðs í ofangreindu máli nr. 3/2001 og ákvörðun Fjármálaeftirlits að vísa máli er varðar meint innherjaviðskipti Búnaðarbankans til ríkislögreglustjóra. Ráðherra hefur í kjölfarið óskað eftir því við ríkislögreglustjóra að rannsókn málsins verði hraðað svo sem kostur er.
    Enn er minnt á að málin eru í lögákveðnum farvegi og það er ekki lögbundið hlutverk ráðherra að rannsaka þau. Hann hefur því ekki farið fram á frekari gögn eða stundað rannsókn á málum sem þegar eru í rannsókn hjá þar til bærum aðilum. Í því sambandi verður að hafa í huga að um hlutafélagsbanka er að ræða sem er á markaði og að Búnaðarbanka Íslands hf. er ekki skylt að veita ráðherra gögn í sama mæli og eftirlits- og rannsóknaraðilum.
    Hins vegar er minnt á umfjöllun um Búnaðarbanka Íslands hf. sem hlutafélagsbanka, þar sem m.a. kemur fram að bankaráð fari með málefni hlutafélagsbanka á milli aðalfunda, en hlutahafafundur fari með æðsta vald í málefnum hlutafélagabanka. Í ljósi þess hefur ráðherra ekki vald til að áminna bankaráð eða stjórnendur bankans fyrir meint brot bankans. En ráðherra fer með eignarhlut ríkisins í Búnaðarbanka Íslands hf. og hefur því afgerandi áhrif á þær ákvarðanir sem teknar eru á hluthafafundi.