Ferill 493. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 779 — 493. mál.
Fyrirspurn
til viðskiptaráðherra um rétt unglinga til debetkorta.
Frá Jóhönnu Sigurðardóttur.
1. Hve margir 13–16 ára unglingar annars vegar og 16–18 ára hins vegar hafa nú til umráða debetkort hjá viðskiptabönkum og sparisjóðum?
2. Hver eru skilyrði fyrir rétti til debetkorta hjá þeim sem eru undir 16 ára annars vegar og 16–18 ára hins vegar, m.a. úttektarheimild, lágmarksinnstæða og ábyrgðarmenn? Þarf samþykki forráðamanna ófjárráða unglinga fyrir debetkortum þeirra?
3. Hver eru vaxtakjör og gjaldtökuheimildir á framangreindum debetkortum?
4. Er um að ræða rétt til yfirdráttarheimildar á debetkortum unglinga 16–20 ára og ef svo er, hve háar geta slíkar yfirdráttarheimildir orðið? Geta unglingar safnað slíkum yfirdráttarheimildum hjá mörgum innlánsstofnunum samtímis? Hver eru vaxtakjör og gjaldtaka á slíkum yfirdráttarheimildum?
5. Hver eru viðurlög við úttektum án innstæðu af debetkortum unglinga og hve mikið var um innstæðulausar úttektir af þessum debetkortum á sl. ári?
6. Hvernig er eftirliti háttað með debetkortum og er það eðlilegt að mati ráðherra að ófjárráða unglingar hafi rétt til debetkorta?
Skriflegt svar óskast.
Prentað upp.