Ferill 82. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 804  —  82. mál.




Svar


forsætisráðherra við fyrirspurn Péturs H. Blöndals um niðurgreiðslur erlendra skulda þjóðarinnar fyrir árið 2015.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
    Hvað líður athugun á grundvelli ályktunar Alþingis frá 13. maí 1997 um áætlun um niðurgreiðslur erlendra skulda þjóðarinnar fyrir árið 2015?

    Markviss lækkun erlendra skulda fellur vel að stefnu ríkisstjórnarinnar í efnahags- og ríkisfjármálum. Erlendar skuldir þjóðarbúsins endurspegla með einum eða öðrum hætti að sparnaður hefur ekki staðið undir þeim útgjöldum sem innlendir aðilar hafa stofnað til og því myndast halli á viðskiptum við útlönd.
    Ástæður fyrir slíku misvægi geta hins vegar verið margs konar allt eftir eðli viðskiptahallans hverju sinni. Þannig getur verið eðlilegt að stofna til erlendra skulda í því skyni að fjármagna fjárfestingar sem munu skila arði til þjóðarbúsins þegar fram í sækir þótt það leiði til þess að skuldastaðan versni tímabundið.
    Jafnframt skiptir máli hvort erlend skuldasöfnun stafar af auknum útgjöldum opinberra aðila eða einkaaðila. Hér áður fyrr mátti rekja megnið af erlendri skuldasöfnun til opinberra aðila. Sú stefna var vitaskuld varhugaverð og lýsti ákveðnum lausatökum í stjórn efnahagsmála og var því oftar en ekki ávísun á óstöðugleika í efnahagsmálum. Þessi tími er hins vegar liðinn. Nú er ríkissjóður rekinn með traustum afgangi ár eftir ár og viðskiptahallinn stafar þar með alfarið af ákvörðunum einkaaðila um að stofna til skulda sem hlýtur að endurspegla traust þessara aðila á efnahagsstefnu stjórnvalda.
    Að undanförnu hefur ríkt mjög gott efnahagsástand hér á landi. Hagvöxtur hefur verið í sögulegu hámarki, atvinnuleysi í lágmarki og verðbólgu hefur verið haldið í skefjum. Fjárfesting hefur aukist, eftir langvarandi stöðnun og samdrátt á fyrri hluta síðasta áratugar. Sömu sögu er að segja af einkaneyslu heimilanna. Óhjákvæmilegur fylgifiskur þessarar þróunar er að halli á viðskiptum við útlönd hefur aukist. Af þessum sökum hafa erlendar skuldir þjóðarbúsins farið vaxandi á allra síðustu árum.
    Þessi staða hefur kallað á aðhaldssama stefnu á sviði ríkisfjármála og peningamála með áframhaldandi efnahagsstöðugleika að markmiði. Einn af hornsteinum þeirrar stefnu hefur verið að treysta stöðu ríkissjóðs þannig að hann skilaði afgangi og stuðlaði að auknum þjóðhagslegum sparnaði. Þessi stefna hefur skilað þeim árangri að staða ríkisfjármála er nú sterkari en nokkru sinni fyrr. Skuldir fara lækkandi og dregið hefur úr umsvifum ríkisins í atvinnulífinu með stórfelldri einkavæðingu. Þannig hefur hrein skuldastaða ríkisins lækkað um meira en helming á síðustu fimm árum, eða úr 34½% af landsframleiðslu árið 1995 í 16–17% í ár. Þetta er umtalsverður árangur og leitun að öðru Evrópuríki sem náð hefur viðlíkum árangri. Þessu til viðbótar hefur verið markvisst unnið að því að styrkja fjárhagsstöðu lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins með beinum inngreiðslum í sjóðinn sem mun, þegar fram í sækir, draga úr þörfinni fyrir beint fjárframlag úr ríkissjóði til þess að standa undir lífeyrisgreiðslum. Loks má nefna að erlendar eignir Íslendinga, einkum í hlutabréfum, hafa stóraukist á undanförnum árum. Árið 1994 var nálega engin fjárfesting í erlendum hlutabréfum, en í septemberlok árið 2000 var hún komin í tæplega 180 milljarða króna.
    Jafnframt því að treysta stöðu ríkissjóðs hefur verið gripið til umfangsmikilla aðgerða til að treysta almennan sparnað í hagkerfinu. Þar ber hæst ráðstafanir í lífeyrismálum, aðgerðir í skattamálum og sölu ríkisfyrirtækja. Þessar aðgerðir hafa þegar skilað þeim árangri að sparnaður einstaklinga í frjálsa lífeyriskerfinu fer ört vaxandi, auk þess sem breytingar á skattlagningu fjármagnstekna hafa gjörbreytt aðstæðum á fjármagnsmarkaði og þar með breytt viðhorfum einstaklinga til sparnaðar til hins betra. Reyndar má telja að þær breytingar sem ríkisstjórnin beitti sér fyrir varðandi skattlagningu fjármagnstekna árið 1996, sem meðal annars urðu til þess að stórefla og hleypa nýju lífi í almenn verð- og hlutabréfaviðskipti, hafi átt talsverðan þátt í þeirri efnahagslegu uppsveiflu sem hér hefur verið undanfarin ár.
    Hröð uppbygging almennu lífeyrissjóðanna er án efa einn mikilvægasti hlekkurinn í því að byggja upp aukinn þjóðhagslegan sparnað þegar til lengdar lætur. Á undanförnum árum hafa lífeyrissjóðirnir í auknum mæli byggt upp eignir í útlöndum og skapað þannig mótvægi við þær erlendu skuldir sem einstaklingar og fyrirtæki hafa stofnað til. Fyrirsjáanlegt er að þessi þróun muni halda áfram og má ætla að þegar fram í sækir verði umtalsverður hluti af eignum lífeyrssjóðanna ávaxtaður erlendis.
    Nú um nokkurt skeið hefur verið unnið að gerð nýs þjóðhagslíkans, í samvinnu Þjóðhagsstofnunar, fjármálaráðuneytis og Seðlabanka, sem nota má við útreikninga og áætlanir sem taka til nokkurra ára í senn. Þetta líkan gefur færi á að bera saman og meta áhrif ýmissa leiða í efnahagsmálum, til dæmis á þróun erlendra skulda o.fl.
    Í þessu samhengi er þó mikilvægt að undirstrika að það markmið sem sett er fram í þeirri þingsályktunartillögu sem hér um ræðir fjallar um stefnumörkun til mjög langs tíma. Við þær aðstæður sem nú ríkja í efnahagsmálum þjóðarinnar þar sem skuldir einkaaðila í útlöndum hafa farið vaxandi á sama tíma og hið opinbera, þ.e. ríkið, hefur greitt niður skuldir í stórum stíl, hefur svigrúm ríkissjóðs til að greiða niður erlendar skuldir verið takmarkað. Við þessar aðstæður hefur því verið lögð meiri áhersla á að greiða niður innlendar en erlendar skuldir.
    Af því sem hér hefur verið rakið má draga þá ályktun að við ákvörðun um niðurgreiðslu erlendra, sem innlendra, skulda þurfi að horfa til fjölmargra atriða sem varða stöðu og horfur í efnahagsmálum, en ekki einungis til eins mælikvarða, eins og erlendrar skuldastöðu o.fl. Hagstjórn í nútímaþjóðfélagi þarf einfaldlega að taka fleiri póla í hæðina. Jafnframt ber að hafa í huga að erfitt og óklókt kann að vera að fastsetja ákveðnar viðmiðunarreglur, t.d. um niðurgreiðslu erlendra skulda á einhverju tilteknu tímabili, sem síðan kæmi í ljós að væru óraunhæfar og gætu engan veginn staðist. Hér er því að fjölmörgu að hyggja.