Ferill 513. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 809 — 513. mál.
Fyrirspurn
til heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra um viðhald sjúkrahúsbygginga.
Frá Margréti Frímannsdóttur.
1. Hvers vegna hefur ráðherra ekki sett reglugerð í samræmi við ákvæði lokamálsliðar 3. mgr. 34. gr. laga nr. 97/1990, um heilbrigðisþjónustu?
2. Við hvaða reglur hefur verið stuðst fram að þessu við mat á því hvað telst til meiri háttar viðhalds sjúkrahúsbygginga?