Ferill 516. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 812  —  516. mál.




Fyrirspurn


til viðskiptaráðherra um greiðslur vegna tjóna af völdum jarðskjálfta.

Frá Margréti Frímannsdóttur.


     1.      Hver er áætlaður mismunur á útgreiddum bótum vegna þeirra altjóna sem urðu á íbúðarhúsum í jarðskjálftunum á Suðurlandi 17. og 21. júní 2000 og raunverulegs endurbyggingarkostnaðar sömu eigna?
     2.      Verður þessi mismunur greiddur með ríkisframlagi eða viðlagatryggingu? Ef svo er, þá hvenær og verður tekið tillit til 5% sjálfsábyrgðar og kostnaðar við niðurrif og frágang þeirra íbúðarhúsa sem skemmdust?