Ferill 392. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 841  —  392. mál.




Svar



iðnaðarráðherra við fyrirspurn Kristjáns L. Möllers um flutning fjarvinnsluverkefna og starfa út á land.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
    Hvaða fjarvinnsluverkefni og hversu mörg störf á vegum ráðuneyta, stofnana og fyrirtækja í eigu ríkisins voru flutt út á land árið 2000? Svar óskast sundurliðað eftir ráðuneytum, stofnunum og fyrirtækjum, svo og eftir stöðum sem verkefnin og störfin voru flutt til.


    Fyrirspurnin var send einstökum ráðuneytum og þau beðin að taka saman þær upplýsingar sem óskað var eftir. Átti það jafnt við um upplýsingar um störf og fjarvinnsluverkefni á vegum ráðuneytanna sem flutt voru út á land á árinu 2000 og á vegum stofnana og fyrirtækja sem starfa á þeirra vegum. Svar iðnaðarráðherra byggist alfarið á svörum sem bárust frá ráðuneytunum.
     Dóms- og kirkjumálaráðuneyti svarar því til að það hafi ekki flutt verkefni eða störf út á land á síðastliðnu ári. Félagsmálaráðuneyti greinir frá því að 8–9 störf hafi orðið til á landsbyggðinni á vegum stofnana ráðuneytisins á árinu og að auki tvö ársverk vegna samninga um móttöku flóttamanna. Enn fremur hafi atvinnutækifæri skapast á landsbyggðinni árið 2000 með ýmsum samningum að tilstuðlan ráðuneytisins. Fjármálaráðuneyti greinir frá því að engin fjarvinnsluverkefni hafi verið flutt út á land árið 2000. Forsætisráðuneyti svarar því til að engin verkefni eða störf á vegum ráðuneytisins eða undirstofnana þess hafi verið flutt út á land á nýliðnu ári. Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti upplýsir að ekki hafi verið um skipulegan flutning fjarvinnsluverkefna út á land að ræða af hálfu ráðuneytisins eða stofnana þess. Iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti flutti starfsemi Orkusjóðs til Akureyrar í upphafi árs 2000. Við sjóðinn starfar einn maður. Á árinu var jafnframt ákveðið að flytja prentun á fréttabréfi ráðuneytisins til Sauðárkróks. Landbúnaðarráðuneyti upplýsir að engin fjarvinnsluverkefni eða störf tengd þeim hafi verið flutt út á land á síðastliðnu ári. Menntamálaráðuneyti tiltekur ekki störf sem hafi verið flutt frá ráðuneytinu, en fram kemur að fjarvinnsluverkefni er unnið á vegum Þjóðminjasafns á landsbyggðinni. Í svari samgönguráðuneytisins kemur ekki fram hvort störf hafa verið flutt út á land árið 2000. Sjávarútvegsráðuneyti greinir frá því að ekki hafi verið um að ræða flutning starfa hjá ráðuneytinu eða stofnunum þess á árinu. Umhverfisráðuneyti svarar því til að Náttúrufræðistofnun Íslands hafi flutt eitt starf til Akureyrar á árinu 2000. Utanríkisráðuneyti greinir frá því að engin fjarvinnsluverkefni og engin störf hafi verið flutt út á land á vegum ráðuneytisins, stofnana þess eða fyrirtækja á vegum þess á nýliðnu ári.
    Samkvæmt upplýsingum frá ráðuneytunum hafa 13–14 störf orðið til á landsbyggðinni á síðasta ári. Á Norðurlandi vestra hafa orðið til 6–7 störf og á Norðurlandi eystra um sjö störf.

Nánari greinargerð um svör ráðuneyta.
     Dóms- og kirkjumálaráðuneyti svarar því til að ráðuneytið hafi ekki flutt verkefni eða störf út á land á síðastliðnu ári. Ráðuneytið bendir hins vegar á að starfsemi þess er dreifð um landið og ýmis skráningarvinna því samfara. Sérstaklega er bent á að við sýslumannsembættið á Selfossi var unnið við stórt skráningarverkefni í tengslum við Landskrá fasteigna og var störfum við embættið fjölgað tímabundið af þeim sökum. Jafnframt er greint frá því að verið er að undirbúa sams konar verkefni við fleiri sýslumannsembætti.
     Félagsmálaráðuneyti gerir grein fyrir flutningi starfa í ítarlegu svari. Þar kemur fram að á síðustu missirum hafa að minnsta kosti 63 ný störf skapast á landsbyggðinni á vegum ráðuneytisins og 20 til viðbótar með ýmsum samningum. Af þessum störfum hafa 8–9 orðið til árið 2000 og að auki tvö ársverk í kjölfar samninga um móttöku flóttamanna. Þá eru einnig tilgreind atvinnutækifæri vegna samnings um þjónustu við Íbúðalánasjóð og samnings um rannsókn á áhrifum og afleiðingum sameiningar sveitarfélaga. Reiknað er með að 2001 verði a.m.k. átta stöðugildi á landsbyggðinni á vegum ráðuneytisins, ýmist með flutningi verkefna eða beinlínis með uppsetningu starfsstöðva. Í svari ráðuneytisins er gerð grein fyrir skiptingu þessara starfa milli einstakra stofnana þess. Þar kemur fram að fjórir starfsmenn voru ráðnir til Jafnréttisstofu á síðasta ári. Hjá Íbúðalánasjóði fjölgaði um þrjú stöðugildi árið 2000, þar af um eitt stöðugildi vegna flutnings verkefna frá Reykjavík. Gert er ráð fyrir að starfsmönnum Íbúðalánasjóðs á Sauðárkróki fjölgi um tvo á þessu ári vegna flutnings verkefna við þjónustuver sjóðsins. Einnig að störf gætu skapast vegna samnings sjóðsins við Fjárvaka, í samstarfi við fjögur önnur fyrirtæki, en þrjú þessara fimm fyrirtækja eru í Skagafirði og eitt á Akureyri. Á árinu var ekki um flutning verkefna eða stöðugilda að ræða hjá Vinnueftirliti ríkisins. Vinnueftirlitið er með starfsstöðvar í öllum landshlutum og nýlega hefur starfsemi á sviði endurnýjunar vinnuvélaréttinda og skráning tilkynntra vinnuslysa verið flutt til umdæmisskrifstofanna. Í athugun er að koma upp gagnagrunni um vinnuslys og atvinnusjúkdóma við eina af umdæmisskrifstofunum. Tvö útibú hafa verið stofnuð í tengslum við svæðisvinnumiðlanirnar á Blönduósi og Akureyri. Árið 2000 hófu tvö útibú starfsemi, annað á Sauðárkróki með einum starfsmanni í 66,7% stöðugildi og hitt á Húsavík með einum starfsmanni í 50% stöðugildi. Ákveðið hefur verið að opna útibú í Vestmannaeyjum með einum starfsmanni í 100% stöðugildi og auka stöðuhlutfall útibúsins á Sauðárkróki í 100%.
    Félagsmálaráðuneytið hefur árlega gert samninga við einstök sveitarfélög um móttöku flóttamanna. Hver samningur hefur að meðaltali verið að fjárhæð 25 millj. kr, en að auki hefur Rauði kross Íslands lagt fram um 10 millj. kr. í tengslum við hvern samning. Á síðasta ári var gerður samningur við Siglufjarðarkaupstað um móttöku flóttamanna, en gert er ráð fyrir að hver samningur leiði af sér um tvö ársverk. Þá hefur einnig verið ákveðið að Nýbúamiðstöð taki til starfa á Vestfjörðum á yfirstandandi ári og er reiknað með tveimur starfsmönnum í upphafi.
     Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti upplýsir að ekki hafi verið um skipulegan flutning fjarvinnsluverkefna út á land að ræða af hálfu ráðuneytisins eða stofnana þess. Hins vegar hafi verið unnið að því að efla og styrkja þjónustu á landsbyggðinni. Þar er í fyrsta lagi bent á að með stofnun Heilbrigðisstofnunar Austurlands hafi eitt stöðugildi við bókhalds- og launaskráningu færst frá Reykjavík til Fjarðabyggðar. Í öðru lagi er bent á að í samkomulagi ráðuneytisins varðandi rekstrarleyfi og starfrækslu gagnagrunns á heilbrigðissviði, sem undirritaður var í janúar 2000, lýsi leyfishafi því yfir að hann stefni að og vinni að því „að hluti af starfsemi hans, dótturfélaga hans og/eða samstarfsaðila fari fram utan höfuðborgarsvæðisins“. Ráðuneytið gerir grein fyrir því að reiknað sé með að til verði fjöldi nýrra starfa á grundvelli samningsins og vegna samnings sem gerður hefur verið um nýja upplýsingadeild í tengslum við þessi áform. Þá kemur einnig fram að níu heilbrigðisstofnanir til viðbótar hafi skrifað undir samkomulag við Íslenska erfðagreiningu um vinnslu á heilbrigðisupplýsingum í desember síðastliðnum. Í þriðja lagi upplýsir ráðuneytið að þjónusta heilbrigðisstofnana úti á landi hafi verið aukin, þannig að nú þurfi sjúklingar í minna mæli að leita þjónustu sérfræðinga í Reykjavík. Í þessu sambandi eru nefndir samningar Heilbrigðisstofnunarinnar á Sauðárkróki um ferliþjónustu við sjúklinga í héraðinu, uppbygging fjarlækninga og aukning á ferliverkum á sjúkrahúsum á landsbyggðinni. Þá er einnig tilgreint að við stofnun Lyfjastofnunar ríkisins, 1. nóvember 2000, hafi forstjóra verið falið að beita sér fyrir því að starfsemi stofnunarinnar færi fram að hluta utan höfuðborgarsvæðisins og að á vegum Landlæknisembættisins sé unnið að því að ýmis skráningarvinna og úrvinnsla upplýsinga fari fram utan höfuðborgarsvæðisins.
     Iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti tók ákvörðun sumarið 2000 um að flytja höfuðstöðvar Byggðastofnunar til Sauðárkróks. Gert er ráð fyrir að starfsemi stofnunarinnar verði flutt fyrir 1. júní á þessu ári. Þegar ákvörðunin var tekin störfuðu 15 manns hjá stofnuninni í Reykjavík í 13 stöðugildum. Þá hefur ráðuneytið látið gera úttekt á möguleikum þess að flytja verkefni sem unnin eru á vegum stofnana sem starfa á verksviði ráðuneytanna út á land. Var þessi úttekt unnin í samræmi við 6. tölul. þingsályktunar um stefnu í byggðamálum fyrir árin 1998–2001, en þar segir: „Skilgreind verði eftir föngum þau verkefni einstakra ráðuneyta, stofnana og opinberra fyrirtækja sem unnt er að sinna á landsbyggðinni. Hvert ráðuneyti fyrir sig leggi fram tillögur þar að lútandi sem meðal annars geri ráð fyrir að möguleikar upplýsingatækninnar verði nýttir til hins ýtrasta.“ Við gerð nýrra samninga um árangursstjórnun við stofnanir ráðuneytanna er stefnt að því að setja stofnununum markmið í þessum efnum en við gerð samninganna verður m.a. byggt á niðurstöðum framangreindrar úttektar. Þá hefur verið ákveðið að skipa viðræðunefnd ríkisins og Akureyrarbæjar til að fjalla um sameiningu Rafmagnsveitna ríkisins og Norðurorku. Verði af sameiningu fyrirtækjanna er gert ráð fyrir að höfuðstöðvar sameinaðs fyrirtækis verði á Akureyri.
     Samgönguráðuneytið greinir frá ákvörðun um að rekstur strandstöðvaþjónustu við skip við Íslandsstrendur verði fluttur út á land. Gert er ráð fyrir fjórum til sex stöðugildum við þjónustuna. Siglingastofnun Íslands hefur sett af stað nokkuð umfangsmikið verkefni tengt flokkun og skráningu skannaðra teikninga í útibúi sínu á Ísafirði. Jafnframt hefur verið ákveðið að þar verði unnið að skipulagi og úrvinnslu skyndiskoðana fiskiskipaflotans. Um er að ræða tæpt stöðugildi. Ákveðið hefur verið að Rannsóknarnefnd sjóslysa verði staðsett í Stykkishólmi. Gert er ráð fyrir að nefndin verði með aðsetur í flugstöðinni á Stykkishólmsflugvelli. Við nefndina er eitt og hálft stöðugildi á ársgrundvelli. Ákveðið hefur verið að Vegagerðin flytji skiptiborð og hluta af upplýsingaþjónustu við vegfarendur til Ísafjarðar. Til athugunar er að öll símsvörun fyrir samgönguráðuneytið og aðrar stofnanir þess verði flutt vestur þegar reynsla er komin á verkefnið. Að ósk samgönguráðherra hefur Vegagerðin gert áætlun um eflingu starfsemi sinnar á landsbyggðinni. Er þar bæði um að ræða flutning verkefna frá Reykjavík út á land og staðsetningu nýrra starfa á landsbyggðinni. Vegagerðin lítur á þetta sem þróunarverkefni sem standa muni yfir í allmörg ár. Þau störf sem um er að ræða eru á sviði upplýsingaþjónustu, eftirlits af ýmsu tagi, gagnasöfnunar, gagnavinnslu, símsvörunar, umferðarmála og veghönnunar. Sum þessara starfa krefjast tæknimenntunar en önnur almennrar menntunar. Umdæmisskrifstofur Vegagerðarinnar eru á Selfossi, í Borgarnesi, á Ísafirði, Sauðárkróki, Akureyri og Reyðarfirði og á þessum stöðum er þungi starfseminnar í hverju umdæmi. Miðað er við að nýju störfin verði til á þessum stöðum og þá einkum þeim sem fjær eru höfuðborginni. Fram til ársins 2002 stefnir Vegagerðin að því að efna til fjögurra til sex nýrra starfa á ári á landsbyggðinni eða alls tólf til átján starfa. Er þá átt við störf flutt úr Reykjavík og ný störf hjá Vegagerðinni.
    Á vegum Íslandspósts hf. hefur aðalskiptiborð og þjónustuver fyrirtækisins fyrir einstaklinga verið flutt til Akureyrar, pökkun fyrstadagsumslaga verið flutt til Ísafjarðar, frímerkjavarsla í Borgarnes, vinna við ársmöppur í Búðardal og unnið er að flutningi smávörulagers fyrirtækisins til Blönduóss. Þessar ákvarðanir þýða um það bil átta til tíu ársverk sem flutt eru út á land. Svarað er í upplýsingasíma Landssímans, 118, á fjórum stöðum á landinu. Það er í Reykjavík, á Ísafirði, Akureyri og Egilsstöðum. Stjórn fyrirtækisins hefur nýverið samþykkt að fjölga um 20–30 störf við 118 á landsbyggðinni á þessu ári.
     Menntamálaráðuneyti greinir frá því að það hafi stuðlað að fjarkennslu og að í því sambandi hafi víða verið komið upp símenntunarmiðstöðvum. Því megi segja að starfsemi menntastofnana hafi í vaxandi mæli færst út á landsbyggðina. Ráðuneytið greinir einnig frá verktakasamningi sem Þjóðminjasafnið gerði við fyrirtækið Landvist á Húsavík á grundvelli fjárveitingar í fjárlögum ársins 2000 og styrkveitinga frá Húsavíkurbæ og iðnaðarráðuneyti. Samningurinn er um tölvuskráningu í skráningarkerfið Sarp á handskráðum gögnum Þjóðminjasafnsins og er unnið áfram að verkefninu í samráði við Landvist í samræmi við fjárlög 2001.
     Utanríkisráðuneyti tekur fram að meginþungi starfseminnar sé erlendis og að verkefni undirstofnana þess á Keflavíkurflugvelli séu staðbundin. Þá er einnig nefnt að verkefni stofnana á vegum ráðuneytisins, svo sem Ratsjárstofnunar, séu þegar víða um land á viðkomandi ratsjárstöðvum. Jafnframt kemur fram að ráðuneytið er með í stöðugri athugun hvaða möguleikar eru fyrir hendi varðandi flutning verkefna og starfa og er í því sambandi nefndar þýðingar, vefsíðugerð og viðhald.