Ferill 542. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 845  —  542. mál.




Frumvarp til laga



um breytingu á lögum nr. 46/1980, um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum.

(Lagt fyrir Alþingi á 126. löggjafarþingi 2000–2001.)



1. gr.


    Ákvæði c-liðar 2. mgr. 2. gr. laganna fellur brott.

2. gr.

    Á eftir 13. gr. laganna kemur ný grein, 13. gr. A, svohljóðandi:

    Atvinnurekandi skal gera skriflegt mat um áhættu í störfum, áætlun um forvarnir og ráðstafanir um öryggi og heilsuvernd starfsmanna á vinnustað, sbr. 66. gr., samkvæmt reglum Vinnueftirlits ríkisins í samráði við fulltrúa starfsmanna, sbr. II. kafla laga þessara. Áhættumatið skal taka til allra þeirra þátta í vinnuumhverfinu sem geta skapað áhættu fyrir öryggi og heilsu starfsmanna. Meta skal áhættu og lýsa hvernig henni verður mætt, svo sem með skipulagi vinnunnar, fræðslu, þjálfun, vali á tækjum, efnum eða efnablöndum, notkun öryggis- eða hlífðarbúnaðar, innréttingum á vinnustað eða öðrum forvörnum.
    Atvinnurekandi skal gera nauðsynlegar ráðstafanir til að unnið sé að vernd og forvörnum innan fyrirtækis. Ef áhættumat, sbr. 1. mgr., áætlun um forvarnir eða ráðstafanir vegna heilsuverndar starfsmanna á vinnustað, sbr. 66. gr., krefjast sérþekkingar sem atvinnurekandi eða starfsmenn hans hafa ekki yfir að ráða skal atvinnurekandinn leita aðstoðar til þess hæfra aðila.
    Áhættumat skal vera aðgengilegt í fyrirtækinu fyrir stjórnendur fyrirtækisins, starfsmenn þess og Vinnueftirlit ríkisins.
    Endurskoða skal áhættumat þegar breytingar á vinnuumhverfi breyta forsendum þess.
    Stjórn Vinnueftirlits ríkisins setur nánari reglur um framkvæmd þessa ákvæðis, þar á meðal um áhættumat, gerð og frágang skjala sem tengjast því, hæfi ráðgefandi aðila skv. 2. mgr., forvarnir með hliðsjón af eðli og stærð fyrirtækja og um úrlausn ágreiningsefna. Reglurnar skulu staðfestar af ráðherra.

3. gr.

    Við 24. gr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Nemar og lærlingar teljast einnig til starfsmanna, jafnvel þótt þeir inni af hendi vinnu án endurgjalds, enda sé vinna þeirra liður í skipulögðu námi.

4. gr.

    Á eftir orðunum „eða of mikils álags“ í a-lið 38. gr. laganna kemur: eða hvernig dregið verði úr áhrifum andlega eða líkamlega einhæfra starfa og starfa sem unnin eru með fyrir fram ákveðnum hraða.


5. gr.

    IX. kafli laganna, er hefur fyrirsögnina Hvíldartími, frídagar og hámarksvinnutími, orðast svo:

    a. (52. gr. A.)
    Í kafla þessum hafa eftirtalin hugtök neðangreinda merkingu:
     1.      Vinnutími: Tími sem starfsmaður er við störf, til taks fyrir atvinnurekandann og innir af hendi störf sín eða skyldur, þ.e. virkur vinnutími.
     2.      Hvíldartími: Tími sem ekki telst til vinnutíma.
     3.      Næturvinnutími: Tímabil sem ekki er skemmra en sjö klukkustundir og nær frá miðnætti til klukkan fimm að morgni. Um nánari afmörkun tímabilsins fer samkvæmt samkomulagi samtaka aðila vinnumarkaðarins.
     4.      Næturvinnustarfsmaður:
                  a.      Starfsmaður sem venjulega vinnur a.m.k. þrjár klukkustundir af daglegum vinnutíma sínum á næturvinnutíma og/eða
                  b.      starfsmaður sem ætlast er til að inni af hendi tiltekinn hluta af ársvinnuframlagi sínu á næturvinnutíma samkvæmt samkomulagi samtaka aðila vinnumarkaðarins.
     5.      Vaktavinna: Vinna sem skipt er niður á mismunandi vinnutímabil/vaktir samkvæmt ákveðnu fyrirkomulagi þar sem starfsmaður vinnur á mismunandi vöktum á tilteknu tímabili sem mælt er í dögum eða vikum.
     6.      Vaktavinnustarfsmaður: Starfsmaður sem vinnur vaktavinnu.

    b. (52. gr. B.)
    Ákvæði þessa kafla taka ekki til:
     1.      Þeirra sem starfa við flutning á vegum og falla undir reglugerð dómsmálaráðuneytisins um aksturs- og hvíldartíma ökumanna o.fl., sbr. þó ákvæði 53. gr. A og 54. og 58. gr.
     2.      Lækna í starfsnámi, þ.e. læknanema með tímabundið lækningaleyfi og kandídata. Einnig lækna án sérfræðiviðurkenningar í samræmi við reglur er heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið setur, að fenginni umsögn læknadeildar Háskóla Íslands. Ákvæði 53. gr. A og 54., 57. og 58. gr. skulu þó gilda um þá sem falla undir þennan lið.
     3.      Æðstu stjórnenda og þeirra sem stöðu sinnar vegna ráða vinnutíma sínum sjálfir.
     4.      Sérstakra aðstæðna sem tengjast starfsemi hins opinbera, svo sem nauðsynlegri öryggisstarfsemi og brýnum rannsóknarhagsmunum á sviði löggæslu, vinnu sem tengist starfsemi almannavarna og eftirlitsstörfum vegna snjóflóðavarna.

    c. (53. gr. A.)
    Vinnutíma skal haga þannig að á hverjum 24 klukkustundum, reiknað frá byrjun vinnudags, fái starfsmenn a.m.k. 11 klukkustunda samfellda hvíld.
    Með samkomulagi samtaka aðila vinnumarkaðarins er heimilt að stytta samfelldan hvíldartíma í allt að átta klukkustundir ef eðli starfs eða sérstakir atvinnuhættir gera frávik nauðsynleg.
    Heimilt er að víkja frá ákvæði 1. mgr. verði truflun á starfsemi vegna ytri aðstæðna, svo sem vegna veðurs eða annarra náttúruafla, slysa, orkuskorts, bilana í vélum, tækjum eða öðrum búnaði eða annarra tilsvarandi ófyrirséðra atburða, að því marki sem nauðsynlegt er til að koma í veg fyrir verulegt tjón þar til regluleg starfsemi hefur komist á að nýju.
    Sé daglegur hvíldartími styttur samkvæmt heimild 2. og 3. mgr. skal starfsmaður fá samsvarandi hvíld síðar. Ef því verður ekki við komið skal starfsmaðurinn þess í stað fá viðeigandi vernd.

    d. (53. gr. B.)
    Starfsmaður á rétt á hléi ef daglegur vinnutími hans er lengri en sex klukkustundir. Um framkvæmd þessa ákvæðis, svo sem um hve langt hléið skal vera, fer samkvæmt samkomulagi samtaka aðila vinnumarkaðarins.

    e. (54. gr.)
    Á hverju sjö daga tímabili skal starfsmaður fá a.m.k. einn vikulegan frídag sem tengist beint daglegum hvíldartíma skv. 53. gr. A.
    Sé til þess sérstök þörf vegna eðlis hlutaðeigandi starfa er heimilt með samningum samtaka aðila vinnumarkaðarins að fresta vikulegum frídegi þannig að starfsmaður fái samsvarandi hvíldartíma síðar og að jafnaði innan 14 daga. Þar sem sérstakar ástæður gera slík frávik nauðsynleg má þó ákveða með samkomulagi á vinnustað að fresta vikulegum hvíldartíma þannig að í stað vikulegs frídags komi tveir samfelldir frídagar á hverjum tveimur vikum.

    f. (55. gr.)
    Hámarksvinnutími starfsmanna á viku að yfirvinnu meðtalinni skal ekki vera umfram 48 klukkustundir að meðaltali á hverju fjögurra mánaða tímabili.
    Heimilt er með samkomulagi samtaka aðila vinnumarkaðarins að reikna hámarksvinnutíma starfsmanna út frá viðmiðunartímabili sem má vera allt að sex mánuðir.
    Ef fyrir liggja hlutlægar eða tæknilegar ástæður eða vegna sérstaks eðlis hlutaðeigandi starfa er samtökum aðila vinnumarkaðarins heimilt að ákveða með samningum að hámarksvinnutími starfsmanna skuli reiknaður út frá viðmiðunartímabili sem er allt að 12 mánuðir, að gættum meginreglum laga þessara um öryggis- og heilsuvernd starfsmanna.
    Aðeins virkur vinnutími, sbr. 1. tölul. 52. gr. A, skal talinn við meðaltalsútreikninga skv. 1.–3. mgr. Árlegt launað lágmarksorlof samkvæmt lögum og veikindaforföll skulu ekki talin með við meðaltalsútreikningana.

    g. (56. gr.)
    Vinnutími næturvinnustarfsmanna skal að jafnaði ekki vera lengri en átta klukkustundir á hverju 24 klukkustunda tímabili.
    Heimilt er með samkomulagi samtaka aðila vinnumarkaðarins að lengja vinnutíma næturvinnustarfsmanna þannig að hann verði að jafnaði allt að 48 vinnustundir á viku. Skal þá skipuleggja vinnuna þannig að vinnutíminn verði sem reglulegastur.
    Um viðmiðunartímabil og viðmið við útreikning á meðalvinnutíma næturvinnustarfsmanna fer skv. 55. gr.
    Næturvinnustarfsmenn sem gegna sérstaklega áhættusömum störfum eða störfum sem fela í sér mikið líkamlegt eða andlegt álag skulu ekki vinna lengur en átta klukkustundir á hverju 24 klukkustunda tímabili.
    Stjórn Vinnueftirlits ríkisins skal setja reglur, sem staðfestar eru af ráðherra, um hvað teljist sérstaklega áhættusöm störf eða störf sem fela í sér mikið líkamlegt eða andlegt álag, sbr. 4. mgr.

    h. (57. gr.)
    Næturvinnustarfsmenn sem eiga við heilsufarsvandamál að stríða sem sannanlega verður rakið til vinnutíma skulu þegar kostur er færðir til í dagvinnustörf sem henta þeim.

    i. (58. gr.)
    Atvinnurekendur skulu hafa til reiðu upplýsingar um vinnutíma starfsmanna í samræmi við ákvæði laga þessara.
    Atvinnurekendum er skylt að láta Vinnueftirliti ríkisins í té upplýsingar sem nauðsynlegar eru vegna eftirlits með framkvæmd laga þessara um vinnutíma, þar með taldar upplýsingar um fjölda næturvinnustarfsmanna og vinnutíma þeirra.

6. gr.

    Við 1. mgr. 62. gr. laganna bætist nýr liður, svohljóðandi: Vinnu þar sem hætta er á ofbeldi nema ungmennin starfi með fullorðnum.

7. gr.

    66. gr. laganna orðast svo:
    Heilsuvernd starfsmanna skal að því leyti sem ekki er unnt að veita hana innan fyrirtækis falin þeirri heilsugæslustöð eða sjúkrahúsi sem næst liggur og/eða auðveldast er að ná til eða öðrum viðurkenndum þjónustuaðila sem fengið hefur leyfi Vinnueftirlits ríkisins til að annast heilsuvernd starfsmanna í samræmi við reglur sem settar eru af stjórn þess. Heilsuvernd starfsmanna sem veitt er innan fyrirtækis skal byggjast á áhættumati skv. 13. gr. A í samræmi við reglur stjórnar Vinnueftirlits ríkisins.
    Hvert fyrirtæki skal gera skriflegan samning á grundvelli fyrirliggjandi áhættumats, sbr. 13. gr. A, um fyrirkomulag og framkvæmd heilsuverndar starfsmanna, ef ekki er unnt að veita hana innan þess. Ef heilsuverndin er veitt innan fyrirtækis að hluta eða öllu leyti skal liggja fyrir skrifleg áætlun um framkvæmd hennar. Vinnueftirlit ríkisins skal sjá um að slíkir samningar og áætlanir séu gerðar og hlutast til um að skorið sé úr ágreiningi er upp kann að koma milli heilsugæslustöðvar, sjúkrahúss, annarra þjónustuaðila, atvinnurekanda og starfsmanna.
    Fyrirtæki með fimm starfsmenn eða færri eru undanþegin skyldu skv. 2. mgr., enda sé ekki um að ræða áhættusöm störf eða störf sem fela í sér mikið líkamlegt eða andlegt álag, sbr. reglur skv. 5. mgr. 56. gr.

8. gr.

    67. gr. laganna orðast svo:
    Starfsmenn skulu eiga kost á heilsufarsskoðun á kostnað atvinnurekanda áður en þeir eru ráðnir til starfa, meðan þeir eru í starfi og þegar við á eftir að þeir eru hættir störfum, enda séu starfsskilyrði þeirra slík að heilsutjón geti hlotist af og ástæða sé til þess að ætla að á þann hátt megi koma í veg fyrir eða hefta atvinnusjúkdóma og atvinnutengda sjúkdóma.
    Í reglum sem stjórn Vinnueftirlits ríkisins setur að fenginni umsögn landlæknis skal nánar kveðið á um í hverju heilsufarsskoðun skuli fólgin, tíðni eftirlits og hvaða mælingar og aðrar rannsóknir skuli framkvæma. Taka skal tillit til starfsumhverfis. Heimilt er að setja slíkar reglur fyrir einstakar starfsgreinar.

9. gr.

    1. mgr. 68. gr. laganna orðast svo:
    Vinnueftirlit ríkisins skal hafa í þjónustu sinni lækni sem hefur sérfræðimenntun er tengist starfinu.

10. gr.

    Í stað orðanna „tvo stjórnarmenn tilnefnda af Vinnuveitendasambandi Íslands, einn stjórnarmann tilnefndan af Vinnumálasambandi samvinnufélaganna“ í 1. mgr. 74. gr. laganna kemur: þrjá stjórnarmenn tilnefnda af Samtökum atvinnulífsins, einn stjórnarmann tilnefndan af Bandalagi háskólamanna, einn stjórnarmann tilnefndan af fjármálaráðuneytinu.

11. gr.

    77. gr. laganna orðast svo:
    Til þess að standast kostnað af framkvæmd laga þessara fær Vinnueftirlit ríkisins í sinn hlut hlutdeild í tryggingagjaldi, sbr. lög um tryggingagjald.
    Hlutfall þetta skal ákveðið með reglugerð fyrir eitt ár í senn, með hliðsjón af fjárhagsáætlun Vinnueftirlits ríkisins og í samráði við stjórn stofnunarinnar, ásamt leiðréttingu vegna tekjuafgangs eða tekjuhalla næsta reikningsárs á undan.
    Aðrar tekjur stofnunarinnar eru skrásetningar- og eftirlitsgjöld skv. 2. mgr. 49. gr. og gjöld fyrir aukaþjónustu skv. 4. mgr. 80. gr.

12. gr.

    Í stað 2. mgr. 86. gr. laganna koma tvær málsgreinar, svohljóðandi:
    Atvinnurekanda ber jafnframt að tryggja að starfsmenn geti sjálfir, ef öryggi þeirra eða annarra er stefnt í bráða hættu, gripið til viðeigandi ráðstafana til að komast hjá afleiðingum hættunnar þegar ekki er unnt að ná sambandi við yfirmann eða starfsmann sem falin hefur verið öryggisvarsla eða öryggistrúnaðarstarf.
    Aðgerðir skv. 1. eða 2. mgr. gera þá aðila sem þar greinir ekki ábyrga fyrir því tjóni sem fyrirtækið kann að verða fyrir vegna stöðvunar eða fráhvarfa starfsmanna af vinnustað þar sem hið bráða hættuástand var talið ríkja og er óheimilt að láta þá gjalda fyrir ákvörðun sína á nokkurn hátt.

13. gr.

    87. gr. laganna orðast svo:
    Ef ákvæði laga þessara, eða reglna sem settar eru með stoð í þeim, eru brotin og ekki er farið að fyrirmælum Vinnueftirlits ríkisins á grundvelli þeirra getur það ákveðið að sá eða þeir sem fyrirmælin beinast að greiði dagsektir þar til farið verður að þeim. Ákvörðun um dagsektir skal tilkynnt bréflega á sannanlegan hátt þeim sem hún beinist að.
    Dagsektir skulu nema 10.000–100.000 krónum á sólarhring. Við ákvörðun um fjárhæð dagsekta er heimilt að taka tillit til þess hve aðkallandi umbæturnar eru og hversu stór og umsvifamikill viðkomandi atvinnurekstur er.
    Dagsektir renna í ríkissjóð.
    Aðili getur kært ákvörðun Vinnueftirlits ríkisins um beitingu dagsekta til stjórnar Vinnueftirlitsins innan sjö daga frá því að honum var tilkynnt um ákvörðunina. Stjórn Vinnueftirlitsins skal kveða upp úrskurð eins fljótt og unnt er og eigi síðar en eftir einn mánuð. Málskot til stjórnar Vinnueftirlitsins frestar aðför.
    Innheimta má dagsektir með fjárnámi samkvæmt ákvæðum aðfararlaga.

14. gr.

    Lög þessi, sem m.a. eru sett með hliðsjón af tilskipun 93/104/EB um ákveðna þætti er varða skipulag vinnutíma, tilskipun 89/391/EBE um lögleiðingu ráðstafana er stuðla að bættu öryggi og heilsu starfsmanna á vinnustöðum og tilskipun 94/33/EB um vinnuvernd barna og ungmenna, öðlast þegar gildi.

Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.


I. Inngangur.

    Með frumvarpi þessu eru lagðar til breytingar á ákvæðum laga nr. 46/1980, um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum. Helstu breytingar sem felast í frumvarpinu eru eftirfarandi:
     1.      Lagt er til að lögfestar verði meginreglur tilskipunar ráðsins 93/104/EB frá 23. nóvember 1993 um ákveðna þætti er varða skipulag vinnutíma (hér eftir nefnd vinnutímatilskipunin). Þannig verði teknar upp meginreglur tilskipunarinnar um daglegan hvíldartíma, hlé á vinnu, vikulegan frítíma, hámarksvinnutíma á viku, vinnutíma næturvinnustarfsmanna og rétt þeirra til heilsufarsskoðunar.
     2.      Nokkrar breytingar eru lagðar til með hliðsjón af ákvæðum í tilskipun ráðsins 89/391/ EBE frá 12. júní 1989 um lögleiðingu ráðstafana er stuðla að bættu öryggi og heilsu starfsmanna á vinnustöðum. Í þeim felst m.a. skylda vinnuveitanda til að gera eða láta gera áhættumat sem taki til þeirra þátta í vinnuumhverfinu sem geta skapað áhættu fyrir öryggi og heilsu starfsmanna.
     3.      Lagðar eru til nokkrar breytingar á ákvæði laganna um heilsuvernd starfsmanna. Þannig verði heilsuvernd starfsmanna ekki takmörkuð við þjónustu heilsugæslustöðva eða sjúkrahúsa eins og samkvæmt gildandi lögum. Þá er gert ráð fyrir að heilsuvernd starfsmanna geti verið veitt að hluta eða öllu leyti innan fyrirtækis.
     4.      Lagðar eru til nokkrar breytingar á ákvæðum laganna til viðbótar við það sem að framan greinir, svo sem á ákvæðum um dagsektir, stjórn Vinnueftirlits ríkisins, tekjur Vinnueftirlitsins o.fl. Þá er lögð til smávægileg breyting með hliðsjón af tilskipun ráðsins 94/33/EB um vinnuvernd barna og ungmenna.

II. Vinnutímatilskipunin.
1. Almennt.

    Vinnutímatilskipunin var samþykkt af sameiginlegu EES-nefndinni 28. júní 1996, sbr. ákvörðun nefndarinnar nr. 42/96. Tilskipunin var birt í EES-viðbæti Stjórnartíðinda Evrópusambandsins (ESB) 14. nóvember 1996 (51. hefti, bls. 14), og telst hluti af XVIII. viðauka samningsins um Evrópska efnahagsvæðið. Tilskipunin byggist á a-lið 118. gr. Rómarsáttmálans (nú 138. gr. samkvæmt Amsterdam-sáttmálanum) sem kveður á um að ESB skuli með útgáfu tilskipana setja lágmarkskröfur til að stuðla að umbótum, einkum að því er varðar vinnuumhverfi til að tryggja aukna öryggis- og heilsuvernd starfsmanna. Í formála tilskipunarinnar er vísað til þessa ákvæðis og sáttmála bandalagsins um félagsleg grundvallarréttindi launafólks ( The Community Charter of the Fundamental Social Rights of Workers) sem samþykkt var af hálfu 11 aðildarríkja þess á fundi leiðtogaráðs ESB í Strassborg 9. desember 1989. Í stofnskránni er m.a. tekið fram að innri markaður bandalagsins verði að leiða til bættra lífskjara og starfsskilyrða launafólks. Því markmiði eigi m.a. að ná með umbótum sem varða lengd og skipulag vinnutíma.
    Í formála tilskipunarinnar er einnig vísað til tilskipunar 89/391/EBE en sú tilskipun hefur að geyma almennar meginreglur um forvarnir gegn áhættu við störf og verndun öryggis og heilsu starfsmanna við vinnu. Enn fremur segir að með fyrirmælum um lágmarkskröfur varðandi skipulag vinnutíma sé stuðlað að bættum starfsskilyrðum launafólks í Evrópusambandinu.

2. Gildissvið og meginreglur vinnutímatilskipunarinnar.

    Vinnutímatilskipunin gildir um daglegan og vikulegan lágmarkshvíldartíma, árlegt orlof, um hlé og hámarksvinnutíma á viku og tiltekna þætti í tengslum við næturvinnu, vaktavinnu og vinnumynstur.
    Tilskipunin gildir um alla starfsemi, hvort sem hún er á vegum opinberra aðila eða einkaaðila, í skilningi 2. gr. tilskipunar 89/391/EBE, sbr. þó 17. gr. tilskipunarinnar, að undanskildum loft-, járnbrautar-, vega-, sjó- og vatnaflutningum og flutningum á skipgengum vatnaleiðum, veiðum á sjó, annarri vinnu á sjó og starfsemi tengdri námi lækna. Í tilvísun til 2. gr. tilskipunar 89/391/EBE felst að ákvæði vinnutímatilskipunarinnar gilda ekki í þeim tilvikum þegar sérstakar aðstæður tengdar tiltekinni starfsemi hins opinbera, svo sem her eða lögreglu eða tiltekinni starfsemi á sviði almannavarna, stangast ótvírætt á við hana.
    Meginreglur vinnutímatilskipunarinnar eru þær að aðildarríkjum er skylt að tryggja starfsmönnum rétt á eftirfarandi:
     a.      11 klukkustunda samfelldum daglegum hvíldartíma,
     b.      hvíldarhléi ef daglegur vinnutími er lengri en sex klukkustundir,
     c.      samfelldum 24 klukkustunda hvíldartíma í viku hverri sem tengist daglegum hvíldartíma, sbr. a-lið,
     d.      að virkur vikulegur vinnutími sé takmarkaður og að meðalvinnustundafjöldi fari ekki yfir 48 klukkustundir, að yfirvinnu meðtalinni,
     e.      árlegu fjögurra vikna launuðu orlofi,
     f.      að venjulegur vinnutími næturvinnustarfsmanns fari ekki að jafnaði yfir átta klukkustundir á hverju 24 klukkustunda tímabili og að þetta viðmið sé hámark ef starfi fylgir mikið andlegt eða líkamlegt álag,
     g.      ókeypis heilsufarsskoðun næturvinnustarfsmanna og, sé þess kostur, tilfærslu í dagvinnustörf ef rekja má heilsufarsvandamál þeirra til næturvinnu.
    Tilskipunin hefur enn fremur að geyma nánari ákvæði er varða heilsuvernd og öryggi næturvinnustarfsmanna og vaktavinnustarfsmanna. Þá kveður hún á um að gera skuli viðeigandi ráðstafanir vegna þeirra starfsmanna sem vinna eftir ákveðnu mynstri.
    Meginreglur vinnutímatilskipunarinnar eru ekki án undantekninga. Fráviksheimildir tilskipunarinnar byggjast m.a. á því að skipulag vinnutíma í ákveðnum starfsgreinum er eða kann að vera með þeim hætti að æskilegt sé að heimila ákveðinn sveigjanleika við beitingu framangreindra meginreglna. Ef aðildarríki nýta þessar undanþágur ber þeim að gæta að meginreglum tilskipunarinnar um öryggis- og heilsuvernd starfsmanna og gæta þess að starfsmenn fái samsvarandi hvíld í staðinn.
    Rétt er að benda á að reglur tilskipunarinnar fela í sér lágmarksréttindi til að tryggja öryggi og heilsu starfsmanna.

3. Undanþegnar starfsgreinar.

    Nokkrar starfsgreinar eru sem fyrr segir sérstaklega undanþegnar gildissviði vinnutímatilskipunarinnar en þær eru:
     a.      flutningur á landi, sjó, í lofti, með járnbrautarlestum og á skipgengum vatnaleiðum,
     b.      veiðar og önnur vinna á sjó,
     c.      læknar í starfsnámi.
    Vinnutímatilskipuninni var breytt með tilskipun 2000/34/EB frá 22. júní 2000 þar sem framangreindir hópar voru færðir undir gildissvið hennar, að farmönnum undanskildum. Í tilskipun 2000/34/EB er þó gert ráð fyrir að margvíslegar undanþáguheimildir frá reglum vinnutímatilskipunarinnar gildi enn varðandi þessa hópa. Reglur um vinnutíma farmanna er að finna í tilskipun ráðsins 1999/63/EB varðandi samninginn um skipulag vinnutíma á farskipum sem gerður var af Evrópusamtökum skipaeigenda (ESCA) og Sambandi flutningaverkamanna. Auk þess gildir um þetta efni tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 1999/95/EB frá 13. desember 1999 um framkvæmd ákvæða um vinnutíma á skipum sem fara um hafnir í bandalaginu. Þá má geta tilskipunar nr. 2000/79/EB frá 27. nóvember 2000 um vinnutíma í flugi sem byggist á samningum samtaka aðila vinnumarkaðarins á Evópuvísu í þessari atvinnugrein frá í mars 2000.
    Hrinda þarf ákvæðum tilskipunar 2000/34/EB í framkvæmd hér á landi fyrir 1. ágúst 2003 auk þess sem aðildarríkjum hennar er veitt heimild til að hrinda ákvæðum um vinnutíma lækna í starfsnámi í framkvæmd á lengra tímabili. Gera má ráð fyrir að tilskipunin verði felld undir EES-samninginn í lok árs 2000 eða byrjun árs 2001. Ekki er lagt til að ákvæði hennar verði tekin upp með frumvarpi þessu.
    Með hliðsjón af gildissviði laga nr. 46/1980, um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, sem taka almennt ekki til starfsemi á sjó og í lofti, er ekki mælt sérstaklega fyrir um undanþágur varðandi slíka starfsemi í frumvarpi þessu.
    Hvað varðar flutninga á vegum er í gildi reglugerð ráðsins nr. 3820/85/EBE, um samhæfingu tiltekinnar löggjafar á sviði félagsmála er varða flutninga á vegum, sem m.a. fjallar um vinnutíma. Þessar reglur voru teknar upp í íslenskan rétt með reglugerð nr. 136/1995 um aksturs- og hvíldartíma ökumanna o.fl. í innanlandsflutningum og við flutning innan Evrópska efnahagssvæðisins, með síðari breytingum. Reglugerðin var gefin út af dómsmálaráðuneytinu með heimild í umferðarlögum, nr. 50/1987, sbr. lög nr. 44/1993, og tók gildi 1. maí 1995. Reglugerð nr. 3820/85/EBE er ekki einvörðungu byggð á sjónarmiðum um heilsuvernd og öryggi ökumanna heldur er markmið hennar jafnframt að stuðla að samræmingu samkeppnisskilyrða í allri flutningastarfsemi, sem og bættu umferðaröryggi.
    Þar sem ökumenn sem falla undir reglugerð nr. 136/1995, með síðari breytingum, hafa ekki verið undanskildir meginreglum núgildandi laga um daglega lágmarkshvíld og vikulegan frídag sem tengist daglegum hvíldartíma er lagt til að þær meginreglur gildi áfram um þá en að ekki verði mælt fyrir um vinnutíma þeirra að öðru leyti í frumvarpinu. Sama á við um lækna í starfsnámi. Hugtakið læknar í starfsnámi er skilgreint í frumvarpinu sem læknanemar með tímabundið lækningaleyfi og kandídatar, einnig læknar án sérfræðiviðurkenningar í samræmi við reglur sem heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið setur, að fenginni umsögn læknadeildar Háskóla Íslands.

4. Áhrif vinnutímatilskipunarinnar.

    Það hefur reynst vandasamt að meta áhrif vinnutímatilskipunarinnar á íslenskan vinnumarkað. Tilskipunin sjálf mælir ekki fyrir um hvernig vinnutími skuli mældur en hún kveður þó á um að á fimm ára fresti skuli aðildarríkin gefa skýrslu um það hvernig gangi að uppfylla ákvæði tilskipunarinnar. Af því má leiða að nauðsynlegt sé fyrir aðildarríkin að mæla vinnutíma með ákveðnum hætti í samræmi við kröfur tilskipunarinnar. Hér á landi sér Hagstofa Íslands um að mæla vinnutíma. Mæling Hagstofunnar byggist á sömu aðferðum og í öðrum ríkjum Evrópska efnahagssvæðisins.
    Þegar Ísland er borið saman við önnur ríki ESB kemur í ljós að Íslendingar vinna lengstan vinnutíma en Hollendingar stystan. Athyglisvert er að á síðasta áratug hafa svo til engar breytingar orðið á vinnutíma launafólks hér á landi. Árið 1997 var venjulegur vinnutími á Íslandi 41,3 klukkustundir en meðaltal í ríkjum ESB var þá 36,8 klukkustundir. Þá vinna yfir 40% launafólks í fullu starfi meira en 48 klukkustundir á viku að jafnaði og rúmlega 52% meira en 46 klukkustundir á viku. Er það talsvert hærra hlutfall en í öðrum ríkjum Evrópska efnahagssvæðisins. Fleiri tölur mætti nefna því til stuðnings að vinnutímatilskipunin hefur væntanlega talsverð áhrif á íslenskan vinnumarkað og mun meiri en í öðrum ríkjum Evrópska efnahagssvæðisins. Þess ber þó að geta að framangreindar tölur gefa aðeins vísbendingu um áhrif tilskipunarinnar.

III. Breytingar frá gildandi löggjöf um vinnutíma.

    Flest ákvæði um vinnutíma hér á landi er að finna í kjarasamningum samtaka aðila vinnumarkaðarins en þó eru nokkur ákvæði um þetta efni í gildandi löggjöf. Löggjöf um vinnutíma byggist einkum á því að vernda starfsmenn gegn óhóflega löngum vinnutíma með því að tryggja þeim lágmarkshvíld. Ákvæði um vinnutíma er að finna í lögum nr. 88/1971, um 40 stunda vinnuviku, nr. 53/1921, um hvíldartíma háseta á íslenskum botnvörpuskipum, nr. 59/1995, um áhafnir íslenskra kaupskipa, og sjómannalögum, nr. 35/1985.
    Helstu ákvæði um vinnutíma og hvíldartíma er að finna í IX. kafla laga nr. 46/1980 um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum. Er þar annars vegar mælt fyrir um lágmarkshvíldartíma á sólarhring og hins vegar um vikulegan frídag en jafnframt veittar ákveðnar heimildir til frávika frá þessum reglum. Með lögum nr. 52/1997 var ákvæði 52. gr. laga nr. 46/1980 breytt til samræmis við ákvæði vinnutímatilskipunarinnar um 11 klukkustunda lágmarkshvíld á sólarhring en ákvæðið mælti áður fyrir um 10 klukkustunda lágmarkshvíld.
    Með þessu frumvarpi er í fyrsta lagi lagt til að reglur IX. kafla laga nr. 46/1980 um lágmarkshvíld og vikulegan frídag verði útfærðar með öðrum hætti en nú með hliðsjón af efni vinnutímatilskipunarinnar. Í öðru lagi er lagt til að fleiri efnisreglum er snerta vinnutíma verði bætt við kaflann. Í þriðja lagi er lagt til að í stað þess að Vinnueftirlit ríkisins veiti undanþágur frá vinnutímaákvæðunum verði nánari útfærsla þeirra, innan ramma laganna, í höndum samtaka aðila vinnumarkaðarins. Gert er ráð fyrir að samtökin hafi verulegt svigrúm til samninga innan þess ramma sem vinnutímatilskipunin mælir fyrir um.

IV. Kjarasamningar aðila vinnumarkaðarins og aðdragandi frumvarps.

    Í a-lið 1. mgr. 18. gr. vinnutímatilskipunarinnar er kveðið á um að stjórnvöld í aðildarríkjum Evrópusambandsins skuli samþykkja nauðsynleg lög og stjórnsýslufyrirmæli til að fara að tilskipuninni eigi síðar en 23. nóvember 1996 eða fullvissa sig um í síðasta lagi þann dag að samtök aðila vinnumarkaðarins hafi með samningi gert nauðsynlegar ráðstafanir þeim til framkvæmdar, enda bera aðildarríkin fulla ábyrgð á að ákvæðum þessarar tilskipunar sé ætíð fullnægt.
    Með hliðsjón af efni tilskipunarinnar og venjum hér á landi um samráð stjórnvalda og samtaka aðila vinnumarkaðarins fól félagsmálaráðherra með bréfi, dags. 2. júní 1995, samráðsnefnd félagsmálaráðuneytisins og samtaka aðila vinnumarkaðarins, vegna framkvæmdar samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, að gera úttekt á áhrifum þess að tilskipunin tæki gildi á Evrópska efnahagssvæðinu (EES). Í nefndinni sitja fulltrúar félagsmálaráðuneytis, utanríkisráðuneytis og fjármálaráðuneytis, Alþýðusambands Íslands, Samtaka atvinnulífsins, Bandalags starfsmanna ríkis og bæja, Bandalags háskólamanna og Sambands íslenskra sveitarfélaga.
    Með bréfi, dags. 2. febrúar 1996, skilaði nefndin ráðherra skýrslu um málið þar sem mælt var með því að samtökum aðila vinnumarkaðarins yrði gefið svigrúm til að ná samkomulagi sín á milli og freista þess þannig að aðlaga reglur tilskipunarinnar að aðstæðum á íslenskum vinnumarkaði. Félagsmálaráðherra féllst á að þessi leið yrði farin hér á landi og sömdu samtök aðila vinnumarkaðarins sín á milli um upptöku þessara reglna með kjarasamningum, sbr. auglýsingu félagsmálaráðuneytis nr. 285/1997 um gildistöku tilskipunar Evrópusambandsins nr. 93/104/EB frá 23. nóvember 1993 um ákveðna þætti er varða skipulag vinnutíma. Í auglýsingunni, sem birtist í B-deild Stjórnartíðinda, segir að ákveðið hafi verið að höfðu samráði við helstu samtök atvinnurekanda og launafólks að hrinda ákvæðum hennar í framkvæmd hér á landi með kjarasamningum. Í auglýsingunni er vísað til eftirfarandi kjarasamninga þessu til staðfestingar:
     1.      Vinnuveitendasamband Íslands og Alþýðusamband Íslands (samningur undirritaður 30. desember 1996).
     2.      Fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs, Reykjavíkurborg og launanefnd sveitarfélaga annars vegar og Alþýðusamband Íslands, Bandalag háskólamanna, Bandalag starfsmanna ríkis og bæja og Kennarasamband Íslands hins vegar (samningur undirritaður 23. janúar 1997).
     3.      Alþýðusamband Íslands og Vinnumálasambandið (samningur undirritaður 10. apríl 1997).
    Í auglýsingunni segir jafnframt að í samræmi við 1. gr. laga nr. 55/1980, sbr. 5. gr. laga nr. 69/1993, um starfskjör launafólks og skyldutryggingu lífeyrisréttinda, séu laun og önnur starfskjör, sem aðildarsamtök vinnumarkaðarins semja um, lágmarkskjör. Af því leiði að ákvæði tilskipunar 93/104/EB hafi tekið gildi með kjarasamningunum og teljist vera lágmarkskjör á íslenskum vinnumarkaði.
    Framangreindir kjarasamningar, sem hér á eftir verða nefndir vinnutímasamningarnir, öðluðust gildi hér á landi á fyrri hluta árs 1997. Vinnutímasamningarnir þrír eru í öllum meginatriðum samhljóða. Í þeim er að finna meginreglur tilskipunarinnar um daglegan og vikulegan hvíldartíma, ákvæði um vinnutíma næturvinnustarfsmanna o.fl., auk þess sem kveðið er á um sérstakar fráviksheimildir frá þessum meginreglum.
    Í bréfi EES-samráðsnefndarinnar um reglur á sviði félagsmála, sem fylgdi með framangreindri skýrslu nefndarinnar til ráðherra um áhrif gildistöku vinnutímatilskipunarinnar hér á landi, dags. 2. febrúar 1996, kom fram að nefndin teldi eðlilegt að gefa samtökum aðila vinnumarkaðarins nokkurt svigrúm til að ná samkomulagi sín á milli. Þannig mundu þau freista þess að laga reglur tilskipunarinnar að þeim aðstæðum sem eru fyrir hendi á íslenskum vinnumarkaði en í framhaldinu af því væri rétt að huga að breytingum á vinnutímaákvæðum laga nr. 46/1980. Þetta var áréttað með erindi Alþýðusambands Íslands og Vinnuveitendasambands Íslands til félagsmálaráðherra í upphafi árs 1998 þar sem sú tillaga var lögð fram að ráðherra léti fara fram heildarendurskoðun á þeim ákvæðum í lögum nr. 46/1980 sem lúta að skipulagi vinnutíma með það fyrir augum að lögfesta meginreglur vinnutímatilskipunarinnar. Jafnframt var þess óskað að með lögum yrðu staðfestar heimildir samtaka aðila vinnumarkaðarins til að semja um frávik frá einstökum ákvæðum laganna að uppfylltum ákveðnum rammaákvæðum. Var m.a. bent á að ákvæði vinnutímatilskipunarinnar ganga í nokkrum tilvikum lengra en lög nr. 46/1980, svo sem varðandi hvíldartíma og frítíma, auk þess sem kveðið er á um lengd vinnutíma.
    Í framhaldi af fyrrgreindu bréfi ASÍ og VSÍ var fulltrúum samtaka aðila vinnumarkaðarins í EES-samráðsnefnd félagsmálaráðuneytisins falið að gera tillögur að lagabreytingum með hliðsjón af ákvæðum vinnutímatilskipunarinnar og gildandi kjarasamningum. Ekki náðist samkomulag meðal nefndarmanna en fulltrúar Alþýðusambands Íslands, Bandalags háskólamanna, Bandalags starfsmanna ríkis og bæja og fjármálaráðuneytisins lögðu þó fram sameiginlegar tillögur sem m.a. var höfð hliðsjón af við samningu frumvarps þessa.
    Við vinnslu frumvarpsins var það sent ýmsum aðilum til umsagnar og sendu eftirtaldir umsögn til ráðuneytisins: Alþýðusamband Íslands, Bandalag háskólamanna, Bandalag starfsmanna ríkis og bæja, Kennarasambandið, fjármálaráðuneytið, dómsmálaráðuneytið, Félag íslenskra flugumferðarstjóra, launanefnd sveitarfélaga, stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga, Læknafélag Íslands og Reykjavíkurborg.

V. Heilsuvernd starfsmanna.

    Tillögur frumvarpsins um breytingar á ákvæðum laganna um heilsuvernd starfsmanna eru að nokkru leyti byggðar á tillögum nefndar á vegum stjórnar Vinnueftirlits ríkisins frá því í júní 1999.
    Í lögum nr. 46/1980 er mælt fyrir um að fyrirtæki skuli koma á fót heilsuvernd starfsmanna og semja við heilsugæslustöð eða sjúkrahús um framkvæmdina. Lagt er til að fyrirtækjum verði einnig unnt að fela sérstökum þjónustuaðilum að annast heilsuvernd starfsmanna og þjónustan geti verið veitt að hluta eða öllu leyti innan fyrirtækjanna. Þessu til viðbótar er lagt er til að heilsuvernd starfsmanna byggist á skriflegu áhættumati, sbr 2. gr. (13. gr. A) frumvarpsins.
    Markmið heilsuverndar starfsmanna eru eftirfarandi:
     a.      Að fyrirbyggja óþægindi, sjúkdóma og slys sem rekja má til atvinnu fólks,
     b.      að auka þekkingu atvinnurekenda og launafólks á áhættuþáttum í vinnuumhverfi,
     c.      að draga úr fjarvistum starfsmanna og atvinnurekenda vegna veikinda og slysa með því að auka öryggi, viðhalda heilsu á vinnustað og aðlaga störfin að þeim sem gegna þeim.
    Þessum markmiðum verður helst náð með eftirfarandi:
     a.      Áhættumati,
     b.      fræðslu og ráðgjöf,
     c.      heilsufarsskoðunum.
    Áhættumat, sbr. 2. gr. frumvarpsins (13. gr. A) felur í sér greiningu og mat á vinnuumhverfi og skal taka til allra þeirra þátta í vinnuumhverfinu sem geta stofnað öryggi og heilsu starfsmanna í hættu. Það felur í sér skoðun á þáttum eins og samskiptum og stjórnunarháttum, líkamlegu og andlegu álagi, hávaða og lýsingu, innanhússlofti, öryggismálum, meðferð hættulegra efna, mengun, geislun og aðstæðum fyrir tiltekna starfshópa, svo sem ungmenni, eldri starfsmenn, barnshafandi konur o.fl. Meta skal áhættu og lýsa hvernig henni verður mætt, svo sem með skipulagi vinnunnar, fræðslu, þjálfun, vali á tækjum, efnum eða efnablöndum, notkun öryggis- eða hlífðarbúnaðar, innréttingum á vinnustað eða öðrum forvörnum.
    Fræðslan getur tekið til ýmissa atriða, svo sem mannlegra samskipta, streitustjórnunar, álagssjúkdómavarna, mengunarvarna, meðferðar hættulegra efna, hávaðavarna, lýsingar og innilofts, slysavarna, skyndihjálpar auk fleiri þátta. Ráðgjöfin snýr t.d. að vinnuskipulagi og hönnun vinnuumhverfis, skipulagi og framkvæmd innra starfs í fyrirtækjum, ráðgjöf um aðgerðir og úrbætur í framhaldi af greiningu og mati á vinnuumhverfi og vinnuskipulagi og um leiðir til að virkja starfsmenn, stjórnendur og eigendur í vinnuvernd.
    Heilsufarsskoðanir þurfa að taka mið af áhættumati, sem og þeim reglum sem eru í gildi um þetta efni. Heilsufarsskoðanir eru alfarið í höndum heilbrigðisstarfsmanna og skulu taka mið af áhættuþáttum í umhverfi.
    Þrátt fyrir að ákvæði laga nr. 46/1980 um heilsuvernd starfsmanna hafi ekki komið til almennrar framkvæmdar hafa ýmis fyrirtæki og stofnanir hér á landi keypt þjónustu sem felur í sér heilsuvernd á vinnustað í einhverju formi. Þannig hafa fyrirtæki sem kennd eru við „stóriðju“, svo sem Álverið í Straumsvík, Járnblendiverksmiðjan á Grundartanga, Kísiliðjan við Mývatn, Steinullarverksmiðjan á Sauðárkróki og Áburðarverksmiðjan, öll haft heilsuvernd á vinnustað í einhverju formi. Ýmsir hafa veitt þessa þjónustu, þ.e. heilsugæslustöðvar, sjúkrahús og sjálfstætt starfandi einstaklingar. Eftir því sem best er vitað hafa þó fáar heilsugæslustöðvar séð sér fært að sinna heilsuvernd á vinnustað með formlegum hætti. Þó er vitað um undantekningar hjá nokkrum heilsugæslustöðvum sem hafa sinnt heilsuvernd starfsmanna.
    Ljóst er að hæfniskröfur til þeirra sem koma að heilsuvernd starfsmanna eru aðrar og ná til fleiri en þeirra sem vinna í almennri heilbrigðisþjónustu. Er því eðlilegt að takmarka ekki þessa starfsemi við heilbrigðisstofnanir. Í því sambandi má benda á að fyrirtæki hér á landi hafa ólíkar þarfir fyrir heilsuvernd á vinnustað eftir atvinnugreinum, stærð fyrirtækja, umfangi og viðfangsefnum. Til að mæta þörfum atvinnulífsins mætti þannig sjá fyrir sér mismunandi rekstrarform heilsuverndar á vinnustað. Með þeim breytingum sem hér eru lagðar til geta einka- eða sameignarfyrirtæki annast hana. Hafi slík fyrirtæki ekki sérfræðinga með þekkingu á öllum fagsviðum heilsuverndar á vinnustað gætu þau haft ákveðið fagnet þannig að stjórnendur þjónustunnar tryggi að öll fagsviðin séu til staðar þegar á þarf að halda.

VI. Tilskipun nr. 89/391/EBE.

    Tilskipun ráðsins nr. 89/391/EBE um lögleiðingu ráðstafana er stuðla að bættu öryggi og heilsu starfsmanna á vinnustöðum er frá 12. júní 1989 og er hluti af XVIII. viðauka við EES- samninginn. Tilskipunin felur í sér auknar skyldur atvinnurekenda og starfsmanna sem miða að því að færa eftirlit með vinnuumhverfinu inn í fyrirtækin og gera það að hluta af eðlilegri starfsemi fyrirtækjanna. Markmið tilskipunarinnar er, sbr. 1. mgr. 1. gr., að gera ráðstafanir til að stuðla að því að öryggi og heilsa starfsmanna á vinnustöðum verði bætt. Þau markmið falla að markmiðum laga nr. 46/1980 en þau eru, sbr. 1. gr. laganna, að tryggja:
     a.      öruggt og heilsusamlegt starfsumhverfi sem jafnan sé í samræmi við félagslega og tæknilega þróun í þjóðfélaginu,
     b.      skilyrði fyrir því að innan vinnustaðanna sjálfra sé hægt að leysa öryggis- og heilbrigðisvandamál í samræmi við gildandi lög og reglur og ráðleggingar aðila vinnumarkaðarins og ráðleggingar og fyrirmæli Vinnueftirlits ríkisins.
    Í lögum nr. 46/1980 er með ýmsum hætti gert ráð fyrir að atvinnurekandi og starfsmenn hans vinni sameiginlega að öryggismálum og heilsuvernd. Í II. kafla laganna er þetta útfært með ýmsum hætti í samræmi við stærð fyrirtækja.
    Þær breytingar sem lagðar eru til í frumvarpi þessu fela í sér nánari útfærslu á því hvernig öryggis- og heilsuverndarstarf eigi að fara fram innan fyrirtækjanna.
    Tilskipun 89/391/EBE gerir ráð fyrir að ráðstafanir um forvarnir sem gerðar eru í kjölfar áhættumats verði felldar inn í alla starfsemi fyrirtækisins eða stofnunarinnar á öllum þrepum og tryggi þannig starfsmönnum betri vernd með tilliti til öryggis og heilsu. Tilskipun 89/391/ EBE er rammatilskipun Evrópusambandsins á sviði vinnuverndar og hafa margar tilskipanir sem vísa til hennar verið innleiddar hér á landi og gilda þær á sérstökum fagsviðum eða miða að vernd ákveðinna áhættuhópa. Þessar reglur eiga það sammerkt að atvinnurekandi skal láta framkvæma áhættumat í samstarfi við þá sem annast öryggismál innan fyrirtækja. Slíkt áhættumat miðar að því að gera ráðstafanir til þess að eyða áhættunni eða draga úr henni með skipulögðum hætti.
    Tilskipuninni hefur verið hrint í framkvæmd að hluta hér á landi með reglugerðum samgönguráðuneytisins. Er þar um að ræða reglugerð nr. 785/1998 um lágmarkskröfur er varða öryggi, hollustuhætti og heilsu við vinnu um borð í fiskiskipum, reglugerð nr. 786/1998 um ráðstafanir er stuðla að bættu öryggi og heilsu starfsmanna um borð í skipum og reglugerð nr. 680/1999 um ráðstafanir er stuðla að bættu öryggi og heilsu flugverja. Stjórn Vinnueftirlits ríkisins vinnur nú að gerð reglna á grundvelli laga nr. 46/1980 sem ætlað er að tryggja fulla framkvæmd tilskipunarinnar hér á landi.

Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.

    Lagt er til að ákvæði c-liðar 2. mgr. 2. gr. falli brott. Ákvæði þessu hefur ekki verið beitt og verður að telja eðlilegt að um afmörkun þess hvort störf í heimahúsum falli undir gildissvið laganna fari eftir hugtakanotkun og markmiðum þeirra að öðru leyti, svo sem um það hverjir teljast starfsmenn og hvað telst starfsemi í skilningi þeirra.

Um 2. gr.

    Í ákvæðinu er mælt fyrir um þá meginskyldu atvinnurekanda að framkvæma og tryggja að fyrir hendi sé skriflegt áhættumat sem hefur að geyma greiningu á áhættuþáttum í starfsumhverfinu sem varða öryggi og heilsu starfsmanna, sbr. 6. gr. og a-lið 1. mgr. 9. gr. tilskipunar 89/391/EBE. Í greininni er einnig að finna meginefni þess sem greina skal frá í matinu og er það í samræmi við 6. gr. tilskipunarinnar, einkum 2. og 3. mgr. Matinu skulu samkvæmt ákvæðinu fylgja áætlun um forvarnir og ráðstafanir um heilsuvernd starfsmanna á vinnustað, sbr. 66. gr.
    Í 2. mgr. er mælt fyrir um að atvinnurekandi skuli leita aðstoðar þar til hæfra aðila ef áhættumat, gerð áætlunar um forvarnir eða ráðstafanir vegna heilsuverndar starfsmanna, sbr. 66. gr., krefjast sérþekkingar sem atvinnurekandi eða starfsmenn hans hafa ekki yfir að ráða.
    3. mgr. kveður á um þá skyldu að hafa áhættumatið aðgengilegt í fyrirtækinu fyrir stjórn fyrirtækisins, starfsmenn þess og Vinnueftirlit ríkisins. Er það í samræmi við a-lið 3. mgr. 10. gr. tilskipunarinnar.
    Í 4. mgr. er fjallað um endurskoðun matsins, sbr. c-lið 3. mgr. 6. gr. og 2. mgr. 1. mgr. 6. gr. tilskipunarinnar. Gert er ráð fyrir að áhættumatið verði endurskoðað þegar breytingar á vinnuumhverfi breyta forsendum þess.
    Samkvæmt 5. mgr. skal stjórn Vinnueftirlits ríkisins setja nánari reglur, sem staðfestar skulu af ráðherra, um gerð áhættumats, gerð og frágang skjala sem tengjast því, um hæfi ráðgefandi aðila og um forvarnir. Er það í samræmi við 2. mgr. 9. gr. tilskipunar 89/391/EBE. Þá er einnig lagt til að í reglunum verði mælt fyrir um úrlausn ágreiningsefna og er þá átt við ágreining sem kann að koma upp á milli atvinnurekenda, starfsmanna og þeirra sem veita þjónustu varðandi gerð áhættumats.

Um 3. gr.

    Samkvæmt 24. gr. laga nr. 46/1980 á orðið starfsmaður í lögunum við um hvern þann sem vinnur launuð störf í annarra þjónustu. Lagt er til að hugtakið nái einnig til nema og lærlinga án tillits til þess hvort þeir gegna launuðum störfum. Auk þess er gert ráð fyrir að starf á viðkomandi vinnustað sé liður í skipulögðu námi viðkomandi nema eða lærlings. Er þá átt við að fyrir liggi með formlegum hætti hvernig hlutaðeigandi nám tengist viðkomandi vinnustað. Breytingin byggist á ákvæði a-liðar 3. gr. tilskipunar 89/391/EBE. Benda má á að í X. kafla laganna er beinlínis gert ráð fyrir að þau taki til unglinga í starfsnámi, sbr. t.d. 2. mgr. 62. gr. Mikilvægt þykir að skýrt verði að þessi hópur falli undir lögin en nemar og lærlingar eru oft í sérstakri áhættu gagnvart óhöppum á vinnustað sökum ungs aldurs og reynsluleysis.

Um 4. gr.

    Ákvæði þetta er í samræmi við 13. gr. vinnutímatilskipunarinnar en þar er kveðið á um að vinnuveitandi sem skipuleggur vinnu eftir ákveðnu mynstri skuli taka tillit til þeirrar meginreglu að aðlaga skuli vinnuna að starfsmanninum. Markmið þessa er einkum að lina áhrif einhæfra starfa og þeirra starfa sem unnin eru með fyrir fram ákveðnum hraða.

Um 5. gr.

    Fyrirsögn IX. kafla laga nr. 46/1980 er Hvíldartími og frídagar. Til samræmis við efnisinnihald breytinga sem lagðar eru til með frumvarpi þessu er lagt til að orðinu hámarksvinnutími verði bætt við fyrirsögnina.
    Um a-lið (52. gr. A).
    Í ákvæðinu er að finna upptalningu á meginhugtökum frumvarpsins og skilgreiningar þeirra í samræmi við 2. gr. vinnutímatilskipunarinnar.
    Hugtakið vinnutími, sbr. 1. tölul. er skilgreint sem virkur vinnutími, þ.e. sá tími sem starfsmaður er við störf, er til taks fyrir atvinnurekandann og innir af hendi störf sín eða skyldur. Vinnuhlé, neysluhlé og sérstakir frídagar falla ekki undir þessa skilgreiningu á vinnutíma þótt greiðslur komi fyrir, enda er miðað við virkan vinnutíma en ekki greiddan.
    Sem dæmi um tíma sem ekki telst til virks vinnutíma eru kaffi- og matartímar, ferðir til og frá vinnu, jafnvel þótt sá tími sé greiddur, bakvaktir, kallvaktir, gæsluvaktir og þess háttar, svo lengi sem starfsmaður er ekki kallaður til starfa. Sé starfsmaður hins vegar kallaður til starfa skal telja þann tíma sem hann er við vinnu til virks vinnutíma. Launaður biðtími eða vinnuhlé þar sem ekki er krafist vinnuframlags er ekki virkur vinnutími. Gildir þá einu hvort starfsmaður dvelst á vinnustað eða ekki, svo fremi sem hann er ekki við vinnu. Hér er t.d. átt við lengri hlé, svo sem eyður í stundaskrá kennara. Framangreint á einnig við um ferðir til og frá vinnustað eða reglubundinni starfsstöð.
    Hugtakið hvíldartími er sá tími sem ekki telst til vinnutíma.
    Hugtakið næturvinnutími er skilgreint í 3. tölul. sem tímabil sem skal ekki vera skemmra en sjö klukkustundir og nær yfir tímabilið frá miðnætti til klukkan fimm að morgni, sbr. 3. mgr. 2. gr. vinnutímatilskipunarinnar. Í því felst að næturvinnutími getur t.d. verið frá kl. 22.00 til kl. 05.00 eða kl. 24.00 til kl. 07.00. Ákvæðið gerir ráð fyrir að um nánari afmörkun tímabilsins fari samkvæmt samningum samtaka aðila vinnumarkaðarins. Í vinnutímasamningunum hefur næturvinnutími verið skilgreindur sem tímabilið frá kl. 23.00 til kl. 06.00.
    Næturvinnustarfsmaður er, sbr. 4. tölul. og í samræmi við 4. mgr. 2. gr. tilskipunarinnar, annars vegar starfsmaður sem venjulega vinnur a.m.k. þrjár klukkustundir af daglegum vinnutíma sínum á næturvinnutíma og hins vegar starfsmaður sem ætlast er til að inni af hendi tiltekinn hluta af ársvinnuframlagi sínu á næturvinnutíma, samkvæmt nánari útfærslu í samningum samtaka aðila vinnumarkaðarins. Þannig hefur hugtakið næturvinnustarfsmaður verið skilgreint með þeim hætti í vinnutímasamningunum að um sé að ræða starfsmann sem venjulega vinni a.m.k. þrjár klukkustundir af daglegum vinnutíma sínum á næturvinnutímabili eða fastráðinn starfsmann sem unnið hefur reglulega minnst þrjár klukkustundir á næturvinnutímabili í einn mánuð. Undir þessa skilgreiningu getur þannig fallið árstíðabundin næturvinna og vaktavinna þar sem skipst er á að vinna dag- og næturvinnu. Sú regla sem miðað er við í þessu efni í samningum samtaka aðila vinnumarkaðarins er að til þess að geta talist næturvinnustarfsmaður skuli 40% af reglulegu vinnuframlagi vera innt af hendi á næturvinnutímabili á ári.
    Í 5. tölul. er vaktavinna skilgreind, í samræmi við 5. mgr. 2. gr. tilskipunarinnar, sem vinna sem einkennist af því að henni er skipt niður í mismunandi vinnutímabil/vaktir samkvæmt ákveðnu fyrirkomulagi þar sem starfsmaður vinnur á mismunandi vöktum á tilteknu tímabili sem mælt er í dögum eða vikum.
    Hugtakið vaktavinnustarfsmaður er í 6. tölul. skilgreint í samræmi við 6. mgr. 2. gr. vinnutímatilskipunarinnar og þarfnast ekki skýringar.
    Um b-lið (52. gr. B).
    Greinin byggist á 3. mgr. 1. gr. vinnutímatilskipunarinnar þar sem mælt er fyrir um undanþágur frá gildissviði hennar.
    Í 1. tölul. er lagt til að ákvæði IX. kafla laga nr. 46/1980 taki almennt ekki til þeirra sem starfa við flutninga á vegum og falla nú undir ákvæði reglugerðar dóms- og kirkjumálaráðuneytisins nr. 136/1995, um aksturs- og hvíldartíma ökumanna o.fl., í innanlandsflutningum og við flutning innan Evrópska efnahagssvæðisins.
    Þar sem ökumenn sem falla undir reglugerð nr. 136/1995, með síðari breytingum, hafa ekki verið undanskildir frá gildandi meginreglum laga nr. 46/1980, um daglega lágmarkshvíld og vikulegan frídag sem tengist daglegum hvíldartíma, er lagt til að þær meginreglur gildi áfram um þá, sbr. 1. tölul. Sama á við um lækna í starfsnámi og án sérfræðiviðurkenningar, sbr. 2. tölul. Í báðum tilvikum er lagt til að upplýsingaskylda vinnuveitanda skv. 58. gr. gildi um þessa hópa starfsmanna.
    Í 2. tölul. eru læknar í starfsnámi undanþegnir gildissviði kaflans. Í fyrsta lagi falla þar undir læknanemar með tímabundið lækningaleyfi, í öðru lagi þeir sem hafa lokið embættisprófi í læknisfræði en hafa ekki fengið lækningaleyfi og í þriðja lagi læknar án sérfræðiviðurkenningar. Þar sem nauðsynlegt er að skilgreina nánar hvaða læknar án sérfræðiviðurkenningar geta talist vera í starfsnámi er lagt til að sú skilgreining fari eftir reglum er heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið setur að fenginni umsögn læknadeildar Háskóla Íslands. Ekki er mælt fyrir um skyldu ráðuneytisins til samráðs að öðru leyti en eðlilegt hlýtur að teljast að það leiti jafnframt álits samtaka lækna áður en það setur þessar reglur. Gert er ráð fyrir að reglur heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins verði til takmörkunar á hvaða læknar án sérfræðiviðurkenningar skuli teljast læknar í starfsnámi, einkum hvað varðar tímamörk. Til viðbótar við upplýsingaskyldu vinnuveitanda skv. 58. gr. er lagt til að ákvæði 57. gr. um tilfærslu næturvinnustarfsmanna sem eiga við heilsufarsvandamál að stríða gildi um lækna í starfsnámi.
    Ákvæði 3. tölul. er byggt á a-lið 1. mgr. 17. gr. tilskipunarinnar. Er þar kveðið á um að aðildarríkjum sé heimilt, að teknu tilhlýðilegu tilliti til almennra meginreglna um öryggis- og heilsuvernd starfsmanna, að víkja frá meginreglum tilskipunarinnar þegar lengd vinnutíma verður ekki mæld og/eða fyrir fram ákveðin, einnig vegna sérstakra eiginleika umræddra starfa eða ef starfsmenn geta sjálfir ákveðið vinnutímann, einkum þegar um er að ræða starfsmenn sem gegna stjórnunarstörfum eða annað starfsfólk sem hefur umboð til að taka sjálfstæðar ákvarðanir. Á þessum grundvelli er lagt til að ákvæði kaflans taki ekki til æðstu stjórnenda eða annarra þeirra sem ráða vinnutíma sínum sjálfir. Er hér annars vegar átt við forstjóra og/eða framkvæmdastjóra fyrirtækis sem samkvæmt skipuriti fyrirtækis taka sjálfir ákvarðanir um skipulag vinnutíma starfsmanna en eru stöðu sinnar vegna ekki bundnir af þeim reglum. Hins vegar er átt við þá starfsmenn sem stöðu sinnar vegna innan fyrirtækis ráða vinnutíma sínum sjálfir eða hafa verulegt frjálsræði varðandi skipulagningu vinnunnar, svo sem þá sem vinna störf sín heima við. Þá mundi ákvæðið í mörgum tilvikum eiga við um þá sem starfa í fjölskyldufyrirtæki, sbr. b-lið 1. mgr. 17. gr. vinnutímatilskipunarinnar, svo sem við landbúnað.
    Ákvæði 4. tölul. byggist á 2. og 3. mgr. 2. gr. tilskipunar 89/391/EBE, sbr. 3. mgr. 1. gr. vinnutímatilskipunarinnar. Hér er lagt til að ákvæði kaflans gildi ekki um sérstakar aðstæður sem tengjast tiltekinni starfsemi hins opinbera. Þar undir falla þau tilvik sem talin eru upp í 2. mgr. 1. gr. vinnutímasamningsins milli fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs, Reykjavíkurborgar og launanefndar sveitarfélaga og Alþýðusambands Íslands, Bandalags háskólamanna, Bandalags starfsmanna ríkis og bæja og Kennarasambands Íslands. Í samningnum eru undanskildar gildissviði þeirra sérstakar aðstæður sem tengjast starfsemi hins opinbera, svo sem nauðsynleg öryggisstarfsemi og brýnir rannsóknarhagsmunir á sviði löggæslu, vinna sem tengist starfsemi almannavarna og eftirlitsstörf vegna snjóflóðavarna.
    Til skýringar skal tekið fram að í 4. tölul. felst að ákvæði IX. kafla eiga ekki við þegar hlutaðeigandi starfsmaður er bundinn af þessum tilteknu starfsskyldum en þar fyrir utan gilda lögin um starfsmanninn og vinnuveitanda hans.
    Um c-lið (53. gr. A).
    Í 1. mgr. er kveðið á um að vinnutíma skuli haga þannig að á hverju 24 klukkustunda tímabili, þ.e. sólarhring, reiknað frá byrjun vinnudags, fái starfsmenn a.m.k. 11 klukkustunda samfellda hvíld. Er það í samræmi við núgildandi ákvæði 1. mgr. 52. gr. laga nr. 46/1980 eins og henni var breytt með 1. gr. laga nr. 52/1997. Með byrjun vinnudags í skilningi 1. mgr. er átt við venjulegt upphaf vinnu viðkomandi starfsmanns. Ef reglulegt upphaf vinnudags er t.d. kl. 08.00 skal miða við það tímamark. Hafi starfsmaður á hinn bóginn fastan vinnutíma sem hefst t.d. kl. 20.00 skal sólarhringurinn miðast við það tímamark . Eðlileg meginregla er að hvíldin komi að jafnaði í kjölfar vinnulotu og á næturvinnutíma ef því verður við komið.
    Í 2. mgr. er lagt til að heimilt verði að stytta samfelldan hvíldartíma í allt að átta klukkustundir með samningum samtaka aðila vinnumarkaðarins, enda byggist það á sérstöku eðli starfs eða atvinnuháttum sem gera slík frávik nauðsynleg. Undir ákvæðið mundu t.d. geta fallið þau tilvik sem greinir í sambærilegu ákvæði 52. gr. laga nr. 46/1980, þ.e. vaktavinna, störf að landbúnaði og björgun verðmæta frá skemmdum, svo sem sjávarafla. Í vinnutímasamningunum er stytting hvíldartímans heimiluð með þessum hætti við vaktaskipti á skipulegum vöktum og við björgun verðmæta frá skemmdum.
    Í 3. mgr. er mælt fyrir um að í undantekningartilvikum verði heimilt að fresta samfelldri hvíld að því marki sem nauðsynlegt er til að koma í veg fyrir verulegt tjón og þar til regluleg starfsemi hefur komist á að nýju. Undir það falla atvik þar sem truflun verður á starfsemi vegna ytri aðstæðna eða ófyrirséðra atburða. Er það í samræmi við núgildandi 1. mgr. 53. gr. laga nr. 46/1980 og er samsvarandi ákvæði jafnframt að finna í vinnutímasamningunum. Þá er ákvæðið í samræmi við heimildir 2. og 3. mgr. 17. gr. vinnutímatilskipunarinnar, sbr. einnig 4. mgr. 5. gr. tilskipunar 89/391/EBE.
    Til samræmis við skilyrði 17. gr. vinnutímatilskipunarinnar er í 4. mgr. mælt fyrir um að starfsmaður skuli fá samsvarandi hvíld síðar ef heimildir 2. og 3. mgr. til að stytta daglegan hvíldartíma eru nýttar. Ef því verður af hlutlægum ástæðum ekki komið við skal starfsmaðurinn þess í stað fá viðeigandi vernd. Gert er ráð fyrir að um nánari útfærslu ákvæðisins fari samkvæmt kjarasamningum samtaka aðila vinnumarkaðarins.
    Um d-lið (53. gr. B).
    Ákvæðið er í samræmi við 4. gr. vinnutímatilskipunarinnar sem segir að aðildarríkin skuli gera nauðsynlegar ráðstafanir til að tryggja að allir starfsmenn eigi rétt á hvíldarhléi ef daglegur vinnutími er lengri en sex klukkustundir. Skv. 4. gr. tilskipunarinnar skal kveðið nánar á um hléið, svo sem hve langt það skal vera og við hvaða forsendur skal miða í samkomulagi milli samtaka aðila vinnumarkaðarins eða í innlendri löggjöf.
    Í vinnutímasamningunum er ákvæðið útfært þannig að starfsmenn skuli eiga rétt á 15 mínútna hléi ef daglegur vinnutími er lengri en sex klukkustundir. Er þetta ákvæði almennt uppfyllt með matar- og kaffitímaákvæðum kjarasamninga, enda þótt einstaka frávik kunni að finnast frá því.
    Um e-lið (54. gr.).
    Í ákvæðinu er lagt til að í 1. mgr. verði lögfest meginregla 5. gr. vinnutímatilskipunarinnar um að á hverju sjö daga tímabili skuli starfsmaður fá a.m.k. einn vikulegan frídag, þ.e. 24 klukkustundir, sem tengist daglegum hvíldartíma sem mælt er fyrir um í 3. gr. tilskipunarinnar, sbr. c-lið 5. gr. (53. gr. A) frumvarpsins. Er það í samræmi við gildandi 1. mgr. 55. gr. laga nr. 46/1980.
    Í 2. mgr. er með hliðsjón af 17. gr. tilskipunarinnar mælt fyrir um heimild samtaka aðila vinnumarkaðarins til að semja um að fresta megi vikulegum frídegi með skipulögðum hætti ef sérstakar aðstæður gera slík frávik nauðsynleg. Þannig er, með hliðsjón af heimildarákvæði 3. mgr. 17. gr. vinnutímatilskipunarinnar, lagt til að í undantekningartilvikum og vegna sérstaks eðlis hlutaðeigandi starfa sé heimilt að ákveða með samkomulagi samtaka aðila vinnumarkaðarins að fresta vikulegum frídegi þannig að starfsmaðurinn fái samsvarandi hvíldartíma sem að jafnaði skal veittur innan 14 daga. Þurfa þá þau skilyrði tilskipunarinnar um að hlutlægar og tæknilegar ástæður liggi að baki að vera fyrir hendi. Þá þykir einnig nauðsynlegt að kveða á um heimild atvinnurekanda til að fresta töku vikulegs frídags að því tilskildu að fyrir liggi samkomulag á viðkomandi vinnustað. Er með því átt við samkomulag milli atvinnurekanda og hlutaðeigandi starfsmanna. Í þessu sambandi má benda á að þær aðstæður geta komið upp á vinnustað að það henti starfsmanni betur að vinna óslitið lengur en í sjö daga samfleytt og fá síðan a.m.k. tvo samfellda frídaga. Eðlilegt er að hann geti þannig átt um það nokkurt val í samkomulagi við vinnuveitanda sinn. Þó er það ávallt skilyrði að starfsmaðurinn fái a.m.k. tvo samfellda frídaga á hverjum tveimur vikum í staðinn.
    Um f-lið (55. gr.).
    Í ákvæðinu, sem er nýmæli, er lagt til að lögfest verði meginregla 6. gr. vinnutímatilskipunarinnar um 48 klukkustunda hámarksvinnutíma á viku að yfirvinnu meðtalinni, miðað við fjögurra mánaða tímabil, sbr. 16. gr. tilskipunarinnar.
    Með hliðsjón af heimildarákvæði 4. mgr. 17. gr. tilskipunarinnar er í 2. mgr. lagt til að samtök aðila vinnumarkaðarins hafi heimild til að ákveða með samningum að viðmiðunartímabil við útreikning vikulegs hámarksvinnutíma geti verið allt að sex mánuðir. Þó er að ákveðnum skilyrðum uppfylltum heimilað í 3. mgr. að í samningum sé kveðið á um 12 mánaða viðmiðunartímabil. Ef miðað er við sex mánaða viðmiðunartímabil má þannig skipta árinu í tvö tímabil, þ.e. fyrri og seinni árshelming, og skal þá meðalvinnuvika vera að hámarki 48 vinnustundir á hvorum árshelmingi. Skilyrði þess að heimilt verði að reikna hámarksvinnutímann út frá 12 mánaða viðmiðunartímabili er að fyrir liggi hlutlægar eða tæknilegar ástæður eða að um sé að ræða sérstakt eðli viðkomandi starfa. Tilvik sem þarna geta fallið undir eru t.d. árstíðabundnir toppar eða uppgrip í vinnu og lægðir þess á milli. Einnig sveiflur í starfsemi sem orsakast af aflabrögðum, veðurfarsaðstæðum og e.t.v. markaðsaðstæðum. Þá geta atriði eins og mannfæð í fámennum byggðarlögum og erfiðleikar við mönnun tiltekinna starfa átt undir ákvæðið. Ávallt skal þó gæta meginreglna laga nr. 46/1980 um öryggis- og heilsuvernd starfsmanna. Samningar samtaka aðila vinnumarkaðarins sem hafa verið gerðir á grundvelli hliðstæðs ákvæðis í vinnutímasamningunum eru a.m.k. fyrir hendi varðandi bræðslur og virkjanir.
    Til áréttingar er sérstaklega tekið fram að aðeins virkur vinnutími skuli talinn við meðaltalsútreikninga samkvæmt ákvæðinu. Í samræmi við 16. gr. vinnutímatilskipunarinnar er jafnframt mælt fyrir um að árlegt launað lágmarksorlof samkvæmt lögum og veikindaforföll skuli ekki talin með eða vera hlutlaus við meðaltalsútreikningana.
    Um g-lið (56. gr.).
    Ákvæðið, sem er nýmæli, er í samræmi við meginreglu 8. gr. vinnutímatilskipunarinnar um vinnutíma næturvinnustarfsmanna þar sem segir í 1. mgr. að venjulegur vinnutími næturvinnustarfsmanns skuli að jafnaði ekki vera lengri en átta klukkustundir á hverju 24 klukkustunda tímabili.
    Í 2. mgr. er lagt til að heimilt verði með samkomulagi samtaka aðila vinnumarkaðarins að lengja venjulegan vinnutíma næturvinnustarfsmanna þannig að hann verði að jafnaði allt að 48 vinnustundir á viku. Skal þá skipuleggja vinnuna þannig að vinnutíminn verði sem reglulegastur. Heimild þessi byggist á ákvæði 3. mgr. 17. gr. tilskipunarinnar.
    Í 3. mgr. er lagt til að samtök aðila vinnumarkaðarins hafi heimild til að ákveða með samningum sex eða tólf mánaða viðmiðunartímabil við útreikning hámarksvinnutíma næturvinnustarfsmanna með sama hætti og skv. 55. gr.
    Ákvæði 4. mgr. er í samræmi við 2. mgr. 8. gr. tilskipunarinnar þar sem segir að næturvinnustarfsmenn, sem gegni sérstaklega áhættusömum störfum eða störfum sem mikið líkamlegt eða andlegt álag fylgir, skuli að hámarki vinna átta tíma á hverju 24 klukkustunda tímabili sem þeir eru við næturvinnu. Samkvæmt ákvæðinu skulu áhættusöm störf eða störf sem mikið líkamlegt eða andlegt álag fylgir skilgreind í innlendri löggjöf og/eða réttarvenju eða heildarsamningum eða samningum milli samtaka aðila vinnumarkaðarins, að teknu tilliti til hliðarverkana og áhættu sem fylgir næturvinnu. Í 5. mgr. er gert ráð fyrir að mælt verði fyrir um, í reglum Vinnueftirlits ríkisins sem staðfestar verði af ráðherra, hvaða störf falli hér undir. Sem dæmi um slík störf má nefna erfið umönnunarstörf, vinnu við sprengiefni og önnur hættuleg efni, vinnu í mikilli hæð, stjórn stórvirkra vinnuvéla o.s.frv.
    Um h-lið (57. gr.).
    Í ákvæðinu er lagt til að tekin verði upp regla b-liðar 1. mgr. 9. gr. vinnutímatilskipunarinnar þar sem segir að næturvinnustarfsmenn sem eiga við heilsufarsvandamál að stríða, sem ljóst er að eiga rætur að rekja til þess að þeir vinna næturvinnu, skuli þegar kostur er færðir í dagvinnustörf sem henta þeim.
    Um i-lið (58. gr.).
    Í 1. mgr. er lagt til að vinnuveitendum verði skylt að hafa til reiðu upplýsingar í fyrirtækjum sínum um vinnutíma starfsmanna. Slík skylda hefur ekki verið fyrir hendi að lögum en er nauðsynleg til að Vinnueftirliti ríkisins verði unnt að sinna skyldum sínum um eftirlit með framkvæmd laganna.
    Ákvæði 2. mgr. byggist m.a. á 11. gr. tilskipunarinnar sem mælir fyrir um að gerðar skuli nauðsynlegar ráðstafanir til að tryggja að vinnuveitandi sem hefur að jafnaði starfsmenn í næturvinnu veiti lögbærum yfirvöldum upplýsingar um það sé farið fram á slíkt. Er hér lagt til að kveðið verði á um almenna upplýsingaskyldu vinnuveitanda gagnvart Vinnueftirliti ríkisins um þau atriði sem nauðsynleg eru vegna eftirlits með framkvæmd reglna þessara um vinnutíma, þar á meðal um fjölda næturvinnustarfsmanna og vinnutíma þeirra.
    

Um 6. gr.

    Með lögum nr. 52/1997 var ákvæðum X. kafla laga nr. 46/1980 breytt til samræmis við tilskipun 94/33/EB um vinnuvernd barna og ungmenna. Í reglugerð nr. 426/1999 er síðan kveðið nánar á um framkvæmd ákvæða X. kafla laganna. Í 13. gr. reglugerðarinnar segir að ekki megi ráða ungmenni til vinnu þar sem líkamlegum eða andlegum þroska þeirra er sérstök hætta búin nema þau starfi með fullorðnum eða þeim sem náð hafa 18 ára aldri. Eigi þetta sérstaklega við um störf í söluturnum, myndbandaleigum, á skyndibitastöðum, bensínstöðvum og sambærilegum stöðum. Nýjum lið sem bætt er við ákvæði 1. mgr. 62. gr., sem tekur til vinnu þar sem hætta er á ofbeldi, er ætlað að styrkja lagastoð framangreindrar 13. gr. Er það í samræmi við ákvæði 7. gr. tilskipunar 94/33/EB þar sem segir m.a. að aðildarríkin skuli sjá til þess að börn og ungmenni séu varin fyrir öllum hættum sem öryggi þeirra, heilsu og þroska eru búnar og rekja má til ungs aldurs þeirra og reynsluleysis, grandvaraleysis þeirra gagnvart þeirri hættu sem er eða kann að vera fyrir hendi eða þess að þau hafa ekki náð fullum þroska. Undanþágur frá þessari reglu eru þó heimilar að því tilskildu að öryggi þeirra og heilbrigði sé tryggt með því að láta vinnuna fara fram undir eftirliti hæfs einstaklings, sbr. 3. tölul. 7. gr. tilskipunarinnar.

Um 7. gr.

    Lagt er til að fyrirtækjum verði heimilt að gera samning við aðra þjónustuaðila en heilsugæslustöðvar eða sjúkrahús um heilsuvernd starfsmanna, að því leyti sem ekki er unnt að veita hana innan fyrirtækis, en í gildandi lögum er aðeins gert ráð fyrir að heilsuvernd starfsmanna verði falin heilsugæslustöð eða sjúkrahúsi. Byggist þetta einkum á því að hæfniskröfur til þeirra aðila sem koma að heilsuvernd starfsmanna eru aðrar en í almennri heilbrigðisþjónustu og ná til fleiri en þeirra sem þar vinna. Gert er ráð fyrir að heilsuvernd starfsmanna byggist á áhættumati, sbr. 2. gr. frumvarpsins (13. gr. A), en því til viðbótar felist hún í fræðslu og ráðgjöf og heilsufarsskoðunum. Þegar heilsuvernd starfsmanna er unnin að hluta eða öllu leyti innan fyrirtækis er lagt til að atvinnurekandi skuli sjá til þess að gerð verði skrifleg áætlun um framkvæmd hennar, heilsuverndin lúti þeim reglum sem Vinnueftirlit ríkisins hefur sett og að faglegt sjálfstæði sé vel tryggt.
    Gert er ráð fyrir að Vinnueftirlit ríkisins veiti þjónustuaðilum leyfi til að annast heilsuvernd starfsmanna og setji reglur um skilyrði leyfisveitingar. Þannig verða leyfisveitingar að tryggja að þjónustuaðilar búi yfir þekkingu til að veita þessa þjónustu. Leyfisveitingar geta eftir atvikum verið takmarkaðar við ákveðna tegund starfsemi. Mikilvægt er að leyfi Vinnueftirlitsins byggist á þeim forsendum að starfsemi þjónustuaðilanna sé sjálfstæð gagnvart starfsmönnum og stjórnendum og að þeir fari með upplýsingar í samræmi við reglur um meðferð trúnaðarskjala.
    Í 3. mgr. er lagt til að fyrirtæki með fimm starfsmenn eða færri verði undanþegin skyldu til að gera skriflegan samning um heilsuvernd starfsmanna eða skriflega áætlun um framkvæmd hennar enda sé ekki um að ræða áhættusöm störf eða störf sem fela í sér mikið líkamlegt eða andlegt álag, samkvæmt nánari skilgreiningu í reglum Vinnueftirlits ríkisins. Á þeim fyrirtækjum hvílir eftir sem áður skylda til að gera skriflegt áhættumat og áætlun um forvarnir og ráðstafanir um öryggi og heilsuvernd á vinnustað, sbr. 2. gr. frumvarpsins (13. gr. A).

Um 8. gr.

    Ákvæði 1. mgr. er í megindráttum sama efnis og gildandi 1. mgr. 67. gr. Þar er þó mælt fyrir um að stjórn Vinnueftirlits ríkisins skuli í samráði við heilbrigðisyfirvöld setja reglur um að starfsmenn skuli gangast undir læknisskoðun áður en þeir eru ráðnir til starfa, meðan þeir eru í starfi og þegar við á eftir að þeir eru hættir störfum. Á það við ef starfsskilyrði eru/hafa verið slík að mati stjórnarinnar að heilsutjón geti hlotist af, enda sé ástæða til að ætla að á þann hátt megi koma í veg fyrir atvinnusjúkdóma. Ákvæði þetta hefur ekki komist til framkvæmdar. Í 1. mgr. er í stað reglna Vinnueftirlits ríkisins lagt til að mælt verði með fortakslausum hætti fyrir um rétt starfsmanna til heilsufarsskoðunar sér að kostnaðarlausu ef starfsskilyrði eru með framangreindum hætti. Þá er lagt til að til viðbótar við atvinnusjúkdóma verði vísað til atvinnutengdra sjúkdóma þar sem fyrrgreinda hugtakið felur í sér of þröngt viðmið. Undir ákvæðið fellur sú skylda sem mælt er fyrir um í a-lið 1. mgr. 9. gr. vinnutímatilskipunarinnar þar sem segir að næturvinnustarfsmenn eigi rétt á heilbrigðiseftirliti sér að kostnaðarlausu áður en ráðning fer fram og með reglulegu millibili þaðan í frá.

Um 9. gr.

    Lagðar eru til þær breytingar að í stað þess skilyrðis að læknir í þjónustu Vinnueftirlits ríkisins skuli vera sérmenntaður embættislæknir eða hafa jafngilda menntun til starfsins skuli hann hafa sérþekkingu sem tengist starfinu. Með reglugerð nr. 305/1997 um veitingu lækningaleyfa og sérfræðileyfa var sérfræðiheitið embættislækningar fellt niður en upp tekið heitið heilbrigðisstjórnun. Í því felst að viðkomandi hafi lokið námi í heilbrigðisfræði, stjórnun heilbrigðisstofnana eða skyldum greinum. Er því eðlilegt að núgildandi krafa um hæfni læknis Vinnueftirlitsins sé tekin út og lögð áhersla á að hann hafi sérþekkingu á þeim sviðum sem stofnunin starfar á.
    

Um 10. gr.

    Með hliðsjón af sameiningu Vinnuveitendasambands Íslands og Vinnumálasambandsins í Samtök atvinnulífsins er lagt til að í 1. mgr. 74. gr. komi fram að í stað tveggja fulltrúa Vinnuveitendasambandsins og eins frá Vinnumálasambandinu tilnefni Samtök atvinnulífsins þrjá fulltrúa í stjórn Vinnueftirlits ríkisins. Þá er lagt til að Bandalag háskólamanna og fjármálaráðuneytið tilnefni hvort sinn fulltrúann í ljósi breytts hlutverks Vinnueftirlits ríkisins og aukinnar áherslu á forvarnarstarf innan fyrirtækja og stofnana.


Um 11. gr.

    Í 77. gr. gildandi laga er mælt fyrir um að fyrirtæki greiði sérstök iðgjöld til að standa straum af framkvæmd laganna sem innheimt skulu ásamt slysatryggingagjaldi, sbr. lög um almannatryggingar. Breytingar þær sem lagðar eru til helgast af því að með lögum nr. 113/1990, um tryggingagjald, var vinnueftirlitsgjald þetta fellt niður og þess í stað komið á tryggingagjaldi sem launagreiðendur inna af hendi og skiptist annars vegar í atvinnutryggingagjald og hins vegar almennt tryggingagjald. Skv. 1. tölul. 2. mgr. 3. gr. laga nr. 113/1990 skal tekjum af almennu tryggingagjaldi ráðstafað þannig að Vinnueftirlit ríkisins fái í sinn hlut sem nemi allt að 0,08% af gjaldstofni skv. III. kafla laganna. Hlutfall þetta skal ákveðið með reglugerð sem félagsmálaráðuneytið setur í samráði við stjórn stofnunarinnar fyrir eitt ár í senn. Hlutfall Vinnueftirlits ríkisins í almennu tryggingagjaldi var þannig ákvarðað 0,048% fyrir árið 2001.


Um 12. gr.

    Lagðar eru til breytingar á 86. gr. laga nr. 46/1980 í samræmi við ákvæði 8. gr. tilskipunar 89/391/EBE. Ný 2. mgr. byggist þannig á b-lið 3. mgr. 8. gr. tilskipunarinnar þar sem fram kemur að vinnuveitandi skuli grípa til aðgerða og gefa fyrirmæli svo að starfsmenn geti samstundis lagt frá sér vinnu og/eða forðað sér af vinnustað á annan öruggari stað ef um bráða og óhjákvæmilega hættu er að ræða. Í núgildandi 2. mgr. 86. gr. laganna kemur fram að aðgerðir starfsmanna samkvæmt ákvæðinu skuli ekki gera þá ábyrga fyrir tjóni sem fyrirtækið kann að verða fyrir. Því til viðbótar er lagt til í nýrri 3. mgr. að skýrt verði mælt fyrir um að óheimilt sé að láta starfsmennina gjalda á nokkurn hátt fyrir ákvarðanir sínar samkvæmt ákvæðinu. Er það í samræmi við ákvæði 4. mgr. 8. gr. tilskipunarinnar.

Um 13. gr.

    Í gildandi 87. gr. laganna er að finna heimild til að leggja dagsektir á fyrirtæki í stað lokunar ef stöðvun starfsemi virðist geta haft þau áhrif að eyðilegging á verðmætum eða þjóðhagslegt tjón geti hlotist af. Ákvæðið hefur reynst haldlítið sem fullnustuúrræði. Þannig eru heimildinni sett mikil takmörk með því að einskorða hana við tilvik þar sem ekki er hægt að stöðva starfsemi vegna hættu á eyðileggingu á verðmætum eða þjóðhagslegu tjóni. Þá er framkvæmd dagsektanna ekki nægilega útfærð í lögunum og hefur því ekki haft tilætluð varnaðaráhrif.
    Með hliðsjón af framansögðu er hér lagt til að heimild Vinnueftirlitsins til að leggja á dagsektir verði styrkt þannig að unnt verði að knýja á um úrbætur á grundvelli krafna og tilmæla sem sett hafa verið fram. Skv. 1. mgr. er ákvæðinu ætlað að nýtast sem fullnustuúrræði ef ekki er farið að fyrirmælum Vinnueftirlitsins samkvæmt lögunum.
    Í 2.–5. mgr. er að finna nánari ákvæði um dagsektirnar. Meðal annars er lagt til að þær renni í ríkissjóð. Þá er kveðið á um kæruheimild til stjórnar Vinnueftirlitsins, fjárhæð og aðfararhæfi dagsektanna.

Um 14. gr.

    Greinin þarfnast ekki skýringa.


Fylgiskjal.


Fjármálaráðuneyti,
fjárlagaskrifstofa:


Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 46/1980,
um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum.

    Með frumvarpinu er í fyrsta lagi lagt til að lögfestar verði meginreglur tilskipunar ráðs Evrópusambandsins 93/104/EB um ákveðna þætti er varða skipulag vinnutíma. Gert er ráð fyrir að teknar verði upp meginreglur tilskipunarinnar um daglegan hvíldartíma, hlé á vinnu, vikulegan frítíma, hámarksvinnutíma á viku, vinnutíma næturvinnustarfsmanna og rétt þeirra til heilsufarsskoðunar. Í öðru lagi er gert ráð fyrir að lögleiddar verði ráðstafanir er stuðla að bættu öryggi og heilsuvernd starfsmanna á vinnustöðum með hliðsjón af tilskipun ráðsins 89/391/EBE. Í ákvæðum tilskipunarinnar felst m.a. skylda vinnuveitanda til að gera áhættumat sem taki til þeirra þátta í vinnuumhverfi sem geti skapað áhættu við störf. Í frumvarpinu er því lagt til að atvinnurekandi skuli gera skriflegt áhættumat um störf, áætlun um forvarnir og ráðstafanir til verndar öryggis og heilsuverndar starfsmanna á vinnustað. Jafnframt skal atvinnurekandi gera nauðsynlegar ráðstafanir til að unnið sé að vernd og forvörnum innan fyrirtækis. Ef aðstæður innan fyrirtækis krefjast sérþekkingar sem atvinnurekandi eða starfsmenn hans hafa ekki yfir að ráða skal leita aðstoðar til þess hæfra aðila. Þá er lagt er til að heilsuvernd starfsmanna taki mið af því áhættumati sem fyrir liggur og hún falin heilsugæslustöð, sjúkrahúsi eða viðurkenndum þjónustuaðila með skriflegum samningi að því leyti sem ekki er unnt að veita hana innan fyrirtækis. Lagt er til að undanþegin þessu ákvæði verði fyrirtæki með fimm starfsmenn eða færri enda sé ekki um áhættusöm störf að ræða. Í gildandi lögum er aðeins heilsugæslustöðvum og sjúkrahúsum heimilt að veita slíka þjónustu. Í þriðja lagi eru lagðar til smávægilegar breytingar með hliðsjón af tilskipun ráðsins 94/33/EB um vinnuvernd barna og ungmenna.
    Í lögum nr. 46/1980, um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, er m.a. kveðið á um að atvinnurekandi skuli tryggja að gætt sé fyllsta öryggis og góðs aðbúnaðar og hollustuhátta á vinnustað. Með setningu þeirra laga var lögð áhersla á að eftirlit með framkvæmd laganna væri sem mest flutt inn á vinnustaðina sjálfa og almenn skylda lögð á fyrirtæki að koma á fót heilsuvernd starfsmanna. Skipuleg heilsuvernd starfsmanna í fyrirtækjum hefur hins vegar ekki komist til framkvæmda nema að óverulegu leyti. Með frumvarpi þessu er gert ráð fyrir að eldri ákvæðum um heilsuvernd starfsmanna verði hrint í framkvæmd og að ýmsu leyti kveður frumvarpið á um nánari útfærslu á eldri ákvæðum um þetta efni. Erfitt er því að meta nákvæmlega áhrif nýmæla frumvarpsins á útgjöld ríkissjóðs. Jafnframt mun framkvæmd ráðast af nánari reglum sem frumvarpið mælir fyrir um að settar skuli.
    Ekki er gert ráð fyrir að lögleiðing tilskipunar 93/104/EB hafi í för með sér umtalsverðan kostnað fyrir ríkissjóð en ákvæðum hennar hefur að verulegu leyti verið hrint í framkvæmd með kjarasamningum, sbr. auglýsingu félagsmálaráðuneytis nr. 285/1997 um gildistöku tilskipunar Evrópusambandsins 93/104/EB. Gera má hins vegar ráð fyrir að útgjöld ríkisstofnana aukist tímabundið um 60–80 m.kr. í kjölfar lögleiðingar ákvæða í tilskipun 89/391/ EBE um áhættumat og til árlegrar endurskoðunar þessara áætlana og fræðslu eru áætlaðar um 10 m.kr. Þá er gert ráð fyrir að útgjöld ríkisstofnana vegna heilsuverndar starfsmanna á vinnustað geti numið allt að 60 m.kr. á ári. Vakin er athygli á að útgjöld munu að miklu leyti ráðast af reglum sem lagt er til að Vinnueftirlit ríkisins setji að fengnum þeim heimildum sem lagðar eru til í frumvarpinu. Aukinn umsýslukostnaður Vinnueftirlits ríkisins, sérstaklega vegna heilsuverndar starfsmanna á vinnustað, er áætlaður um 8 m.kr. á fyrsta ári, þar af 5 m.kr. vegna fjölgunar sérfræðings ásamt rekstrarkostnaði og um 3 m.kr. vegna kynningar, af þeim eru 2 m.kr. tímabundnar. Á öðru ári er gert ráð fyrir að annar sérfræðingur verði ráðinn til eftirlits í umdæmum sem eykur útgjöld eftirlitsins um aðrar 5 m.kr. Gera má því ráð fyrir að árlegur heildarkostnaður ríkisins við framkvæmd laganna geti numið 1‰ af launakostnaði ríkisins. Hvorki er tekið mið af hugsanlegum ábata af framangreindum ráðstöfunum né áhrifum þeirra á atvinnulífið í heild.