Ferill 557. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 863  —  557. mál.




Fyrirspurn



til umhverfisráðherra um skýrslur um mat á umhverfisáhrifum.

Frá Halldóri Blöndal.



     1.      Hvað hefur Skipulagsstofnun ríkisins fjallað um margar skýrslur um mat á umhverfisáhrifum frá því að lög um mat á umhverfisáhrifum, nr. 63/1993, tóku gildi?
     2.      Hversu mikill kostnaður, á núgildandi verðlagi, hefur hlotist af
                  a.      gerð áðurnefndra matsskýrslna, sundurliðað eftir einstökum framkvæmdum,
                  b.      umfjöllun Skipulagsstofnunar um þær?


Skriflegt svar óskast.