Ferill 353. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 876 — 353. mál.
Svar
heilbrigðisráðherra við fyrirspurn Ástu R. Jóhannesdóttur um öryrkja og örorkubætur.
1. Hversu margir öryrkjar eru bundnir hjólastólum?
Hjá Tryggingastofnun ríkisins (TR) liggja ekki fyrir upplýsingar um hve margir öryrkjar eru bundnir hjólastólum. Í skrá TR yfir öryrkja er ekki tekið fram hvort þeir noti hjólastól eða önnur hjálpartæki og við úthlutun hjólastóla er ekki skráð hvort viðkomandi sé öryrki eður ei. Greiðsluþátttaka TR í hjálpartækjum er í mörgum tilvikum önnur fyrir öryrkja og ellilífeyrisþega en aðra, en svo er ekki varðandi hjólastóla. TR greiðir þá alltaf að fullu.
2. Hvað voru margir hjólastólaöryrkjar án örorkubóta um sl. áramót?
Upplýsingar um þetta liggja ekki fyrir. Hér er væntanlega átt við þá sem fengið hafa metna örorku, en fá ekki örorkubætur vegna tekna. Fyrir liggur hversu marga þetta á við almennt, sbr. svör við 4. og 5. lið fyrirspurnarinnar, en ekki sérstaklega hve margir þeirra eru í hjólastól, sbr. svar við 1. lið.
3. Er kunnugt um hve margir þeirra sem misst hafa útlim eða útlimi voru án örorkubóta á sama tíma?
Á sama hátt er ekki kunnugt um hve margir þeirra sem misst hafa útlim eða útlimi eru án örorkubóta.
4. Hvað voru margir 75% öryrkjar án örorkubóta á sama tíma?
Af þeim sem áttu í gildi meira en 75% örorkumat fengu 8.674 lífeyri en 369 engan örorkulífeyri.
5. Hve margir 65% öryrkja voru þá á bótum?
Af þeim sem áttu í gildi 50% eða 65% örorkumat fengu 1.185 greiddan örorkustyrk, en 256 engan örorkustyrk. Ekki er gerður greinarmunur á 65% og 50% örorkumati í tölvukerfi TR og því ekki hægt að svara varðandi 65% öryrkja eina sér.
6. Er meira farið eftir tekjum en hreyfigetu við úthlutun bifreiðastyrkja til öryrkja og hvert er eftirlitið með störfum úthlutunarnefndarinnar?
Svarið er neitandi. Hvort tveggja er skoðað, hreyfigeta og tekjur. Um tekjurnar gilda ákveðnar reglur sem samþykktar eru af tryggingaráði en skilyrði varðandi hreyfihömlun koma fram í reglugerð nr. 170/1987, með síðari breytingum. Eftirlit með úthlutunarnefndinni annast tryggingaráð.