Ferill 491. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 883 — 491. mál.
Svar
menntamálaráðherra við fyrirspurn Svanfríðar Jónasdóttur um starfsgreinaráð.
1. Hvaða starfsgreinaráð hafa verið skipuð skv. 28. gr. laga um framhaldsskóla og hvaða starfsgreinar og/eða starfsgreinaflokkar heyra undir hvert þeirra?
Starfsgreinaráðin eru talin upp hér á eftir eins og þau hafa verið nefnd samkvæmt tillögu samstarfsnefndar um starfsnám á framhaldsskólastigi skv. 26. gr. laga um framhaldsskóla, nr. 80/1996, og skipan starfsgreina í starfsgreinaflokka skv. 27. gr. sömu laga.
Starfsgreinaráð fyrir farartækja- og flutningsgreinar. Bifreiðasmíði, bifvélavirkjun og bílamálun.
Starfsgreinaráð fyrir upplýsinga- og fjölmiðalagreinar. Bókband, ljósmyndun, grafísk miðlun/prentsmíði, prentun, bóksafnstækni, fjölmiðlatækni, nettækni og veftækni.
Starfsgreinaráð fyrir bygginga- og mannvirkjagreinar. Húsasmíði, húsgagnasmíði, málaraiðn, múraraiðn, pípulagnir, dúklögn og veggfóðrun.
Starfsgreinaráð fyrir hönnun, listir og handverk. Gull- og silfursmíði, handíð, hönnun, kjólasaumur, klæðskurður, skósmíði, söðlasmíði, tækniteiknun og úrsmíði.
Starfsgreinaráð fyrir matvæla- og veitingagreinar. Bakaraiðn, framreiðsla, hússtjórn, kjötiðn, matreiðsla, matartæknanám og slátrun.
Starfsgreinaráð fyrir málm-, véltækni- og framleiðslugreinar. Blikksmíði, rennismíði, stálsmíði, vélvirkjun, málmsuða og netagerð.
Starfsgreinaráð fyrir rafiðngreinar. Rafeindavirkjun, rafveituvirkjun, rafvélavirkjun, rafvirkjun og símsmíði.
Starfsgreinaráð fyrir persónulega þjónustu. Hársnyrtiiðn og snyrtifræði.
Starfsgreinaráð fyrir heilbrigðisþjónustugreinar og félagslega þjónustu. Lyfjatækni, læknaritun, nudd, sjúkraliðanám, tanntækni, tannsmíði og félagsliðanám.
Starfsgreinaráð fyrir sjávarútvegs- og siglingagreinar. Fiskiðn, skipstjórn og vélstjórn.
Starfsgreinaráð fyrir uppeldis- og tómstundagreinar. Störf á sviði íþróttaþjálfunar, uppeldis og tómstunda.
Starfsgreinaráð fyrir verslunar- og skrifstofustörf. Störf á sviði verslunar, skrifstofu og fjármála.
Starfsgreinaráð fyrir náttúrunýtingu. Störf á sviðið ferðamála, landbúnaðar og garðyrkju.
Starfsgreinaráð fyrir öryggisvörslu, björgun og löggæslu. Störf á sviði öryggisvörslu, björgunar og löggæslu.
2. Að hvaða verkefnum er hvert starfsgreinaráð aðallega að vinna núna?
Starfsgreinaráð fyrir farartækja- og flutningsgreinar. Unnið er að úttekt á námi í farartækja- og flutningsgreinum og að tillögu að skipan meistarnáms í bíliðngreinum.
Starfsgreinaráð fyrir upplýsinga- og fjölmiðlagreinar. Verið er að leggja lokahönd á tillögur að námskrá sérnáms á átta sérsviðum upplýsinga- og fjölmiðlagreina.
Starfsgreinaráð fyrir bygginga- og mannvirkjagreinar. Unnið er að endurskoðun grunnnáms í bygginga- og mannvirkjagreinum og að skilgreiningu á hæfniskröfum í múraraiðn.
Starfsgreinaráð fyrir hönnun, listir og handverk. Unnið er að skilgreiningu á starfssviði og mótun heildarstefnu um menntun á sviði hönnunar- og handverksgreina.
Starfsgreinaráð fyrir matvæla- og veitingagreinar. Verið er að undirbúa endurskoðun á námi í matreiðslu og framreiðslu.
Starfsgreinaráð fyrir málm-, véltækni- og framleiðslugreinar. Unnið er að tillögu að námskrá í málmsuðu, tillögu að skipulagi vinnustaðanáms í málmiðngreinum og verkefni um aðstöðu, aðbúnað og kennarakost skóla sem bjóða fram nám í málmiðngreinum
Starfsgreinaráð fyrir rafiðnaðargreinar. Unnið er að endurskoðun náms fyrir grunndeild rafiðna.
Starfsgreinaráð fyrir persónulega þjónustu. Unnið er að tillögu að námskrá fyrir snyrtibraut.
Starfsgreinaráð fyrir heilbrigðisþjónustugreinar og félagslega þjónustu. Unnið er að tillögu að námskrá fyrir hjúkrunar- og mótttökuritara og tillögu að skipulagi framhaldsnáms fyrir sjúkraliða.
Starfsgreinaráð fyrir sjávarútvegs- og siglingagreinar. Unnið er að skýrslu um skipan skipstjórnarnáms og skýrslu sem tekur til þarfagreiningar í vélstjórnarfræðslu.
Starfsgreinaráð fyrir uppeldis- og tómstundagreinar. Unnið er að tillögum um námskrá fyrir íþróttabraut, námsbraut í frístundafræðum og námsbraut fyrir aðstoðarfólk í leik- og grunnskólum.
Starfsgreinaráð fyrir verslunar- og skrifstofustörf. Í undirbúningi er að taka saman skýrslu um skipulag náms og þarfir fyrir nám á sviði verslunar-, skrifstofu- og fjármálastarfa.
Starfsgreinaráð fyrir náttúrunýtingu.Unnið að smíði gagnagrunns um nám á sviði ráðsins.
Starfsgreinaráð fyrir öryggisvörslu, björgun og löggæslu. Undirbúningur að námskrárgerð í framhaldi af skýrslu um störf og menntun á sviði björgunar, öryggisþjónustu og löggæslu.
3. Hvað af því sem starfsgreinaráðin hafa unnið að er komið til framkvæmda þannig að gefin hafi verið út námskrá í viðkomandi grein og/eða farið sé að vinna eftir námskrá sem gefin var út á grundvelli tillagna starfsgreinaráðs?
Farið er að kenna eftir námskrá fyrir grunnnám í málmiðngreinum, grunnnám í upplýsinga- og fjölmiðlagreinum, bíliðngreinum og skipstjórnargreinum.
4. Hvaða námskrár, unnar á grundvelli tillagna starfsgreinaráðs, eru væntanlegar fyrir næsta skólaár eða á næsta skólaári?
Nýjar námskrár eru væntanlegar fyrir eftirtaldar greinar: rafiðngreinar, þ.e. grunndeild rafiðna, rafvirkjun og rafvélavirkjun; nám í upplýsinga- og fjölmiðlagreinum, þ.m.t. sameiginlegt grunnnám og sérnám í bókasafnstækni, bókbandi, fjölmiðlatækni, grafískri miðlun/prentsmíði, ljósmyndun, prentun, nettækni og veftækni; netagerð; mámiðngreinar, þ.e. grunnnám í málmiðngreinum, blikksmíði, stálsmíði, vélvirkjun og rennismíði; snyrtigreinar, þ.e. snyrtibraut og hársnyrtigreinar; félagsliða; uppeldis- og tómstundagreinar, þ.e. námsbraut fyrir aðstoðarfólk í leik- og grunnskólum; námsbraut í frístundafræðum og námsbraut í íþróttafræðum og íþróttaþjálfun; málmsuðu (tilraunanámsbraut).
5. Á hvaða sviðum er mest uppbygging starfsnáms á grundvelli tillagna starfsgreinaráðanna?
Vísað er til þess sem að framan er sagt. Lengst er námskrárgerð komin í málmiðngreinum og upplýsinga- og fjölmiðlagreinum.
6. Hversu mikill hefur kostnaður menntamálaráðuneytis verið vegna þessa starfs og hvernig skiptist hann milli greina?
Eftirfarandi yfirlit tekur til greiðslna vegna verkefnasamninga við starfsgreinaráðin, greiðslna fyrir setu fulltrúa ráðuneytisins í starfsgreinaráðum og til fastaframlags til ráðanna.
| Starfsgreinaráð | 1999 | 2000 |
|
Bygginga- og mannvirkjagerð
|
1.787.000 | 1.499.000 |
|
Farartækja- og flutningsgreinar
|
318.000 | 489.000 |
|
Heilbrigðisþjónustugreinar og félagsleg þjónusta
|
494.000 | 1.428.000 |
|
Hönnun, listir og handverk
|
628.000 | 204.000 |
|
Matvæla- og veitingagreinar
|
1.533.000 | 189.000 |
|
Málm-, véltækni- og framleiðslugreinar
|
818.000 | 1.933.000 |
|
Náttúrunýting
|
472.000 | 1.178.000 |
|
Persónuleg þjónusta
|
318.000 | 1.353.000 |
|
Rafiðngreinar
|
1.068.000 | 3.347.000 |
|
Sjávarútvegs- og siglingagreinar
|
848.000 | 982.000 |
|
Uppeldis- og tómstundagreinar
|
805.000 | 676.000 |
|
Upplýsinga- og fjölmiðlagreinar
|
2.483.000 | 2.892.000 |
|
Verslunar- og skrifstofustörf
|
618.000 | 472.000 |
|
Öryggisvarsla, björgun, löggæsla
|
1.150.000 | 1.529.000 |
|
Samtals
|
13.340.000 | 18.171.000 |