Ferill 254. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.


126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 919  —  254. mál.




Breytingartillögur



við frv. til l. um lækningatæki.

Frá heilbrigðis- og trygginganefnd.



     1.      Við 3. gr.
                  a.      Í stað orðanna „hvort sem notað er“ í 1. mgr. 1. tölul. komi: notað.
                  b.      Á eftir orðunum „telst ekki lækningatæki“ í 3. mgr. 1. tölul. komi: þó getur það verið hluti af lækningatæki.
     2.      Fyrirsögn II. kafla orðist svo: Kröfur sem lækningatæki skulu uppfylla.
     3.      Við 10. gr.
                  a.      3. málsl. 1. mgr. orðist svo: Landlækni er heimilt að fela öðrum aðilum tiltekna hluta þess eftirlits.
                  b.      Í stað orðanna „varna hættu á tjóni“ í 1. málsl. 2. mgr. komi: forðast tjón.
     4.      Við ákvæði til bráðabirgða. Í stað orðanna „ESB-tilskipun 76/764“ í 1. mgr. komi: tilskipun ráðsins 76/764/EBE.
     5.      Við bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
              Lögin skulu sæta endurskoðun innan fimm ára frá gildistöku þeirra.