Ferill 583. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.


126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 921  —  583. mál.




Fyrirspurn



til menntamálaráðherra um námsstyrki.

Frá Steingrími J. Sigfússyni.



     1.      Í hversu mörgum tilfellum bárust athugasemdir við afgreiðslu námsstyrkjanefndar á umsóknum framhaldsskólanema um námsstyrki fyrir skólaárið 2000–2001?
     2.      Hversu mörgum úrskurðum um námsstyrki var breytt vegna athugasemda sem bárust námsstyrkjanefnd?
     3.      Telur ráðherra ástæðu til að endurskoða reglugerð nr. 746/2000, um jöfnun námskostnaðar?