Ferill 510. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 953 — 510. mál.
Nefndarálit
um frv. til l. um breyt. á l. nr. 80/1966, um kísilgúrverksmiðju við Mývatn, með síðari breytingum.
Frá meiri hluta iðnaðarnefndar.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Þorgeir Örlygsson og Svein Þorgrímsson frá iðnaðarráðuneyti, Gunnar Örn Gunnarsson frá Kísiliðjunni hf. og Gylfa Arnbjörnsson, Hákon Björnsson og Jón Sveinsson frá Allied EFA hf.
Frumvarpið gerir ráð fyrir að íslenska ríkinu verði veitt heimild til að selja 51% hluta sinn í Kísiliðjunni hf. við Mývatn. Söluandvirði hluta ríkisins er áætlað 62 m.kr. og á að renna til atvinnuuppbyggingar á svæðinu. Gert er ráð fyrir að allar undanþágur núverandi verksmiðju frá lögum falli brott með lögfestingu ákvæða frumvarpsins.
Ástæður þess að nú er ráðist í sölu á Kísiliðjunni eru þær að mikill kostnaður er fyrirséður samfara því að á næstu árum kunni að verða nauðsynlegt að dæla kísilgúr úr Syðriflóa. Þá hefur markaðssvæði núverandi framleiðslu Kísiliðjunnar dregist mjög saman og endurnýjun tækja liggur nú fyrir. Einnig hefur launakostnaður hækkað en söluverð afurða hins vegar lækkað um 1,5% á ári síðastliðin 10 ár.
Samningar hafa verið gerðir um kaup fyrirtækjanna Allied EFA hf. og Allied Resource Corporation á verksmiðjunni. Fyrirtækin kaupa aðgang að þeirri reynslu og grunngerð sem til staðar eru í verksmiðjunni og á svæðinu. Jafnframt tryggja þau sölu á núverandi framleiðslu hennar þar til kísilgúrframleiðslu verður hætt. Væntanlegir eigendur verksmiðjunnar hyggjast síðan breyta henni þannig að í framtíðinni verði framleitt þar kísilduft með nýjum eiginleikum sem selt verður á nýjum mörkuðum. Kísilduftið mun m.a. verða notað sem íblöndunarefni í matvæla- og lyfjaiðnaði. Meiri hlutinn telur að þarna skapist möguleikar á meiri verðmætasköpun en verið hefur og bendir jafnframt á að við sölu á Kísiliðjunni er tryggt að atvinna í sveitarfélaginu verður samfelld þar til hin fyrirhugaða kísilduftsverksmiðja tekur til starfa.
Meiri hlutinn bendir á að orkukostnaður við framleiðslu Kísiliðjunnar hefur verið mikill og mun verða það áfram. Hins vegar er Kísiliðjan eina fyrirtækið hér á landi sem notar jarðgufu til iðnaðarnota, en hún er mjög hagkvæm.
Loks vekur meiri hlutinn athygli á því að í Evrópu, Kanada og Bandaríkjum Norður- Ameríku eru veittir stofnstyrkir til erlendra fjárfesta sem vilja byggja upp ný fyrirtæki. Í umfjöllun nefndarinnar um málið kom fram að fjárfestar telja Ísland standa höllum fæti hvað þetta varðar.
Prentað upp.
Meiri hlutinn leggur til að frumvarpið verði samþykkt.
Guðjón Guðmundsson var fjarverandi við afgreiðslu málsins.
Pétur H. Blöndal skrifar undir álitið með fyrirvara og áskilur sér rétt til að leggja fram og styðja breytingartillögu við málið.
Alþingi, 27. mars 2001.
Hjálmar Árnason,
form., frsm.
Bryndís Hlöðversdóttir.
Drífa Hjartardóttir.
Árni R. Árnason.
Ísólfur Gylfi Pálmason.
Svanfríður Jónasdóttir.
Pétur H. Blöndal,
með fyrirvara.