Ferill 510. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.


126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 954  —  510. mál.




Nefndarálit


um frv. til l. um breyt. á l. nr. 80/1966, um kísilgúrverksmiðju við Mývatn, með síðari breytingum.

Frá minni hluta iðnaðarnefndar.


    Minni hlutinn setur fyrirvara varðandi kísilgúrnám í Mývatni að aflokinni vinnslu í Ytriflóa og einnig varðandi uppbyggingu nýrrar verksmiðju með annars konar vinnsluferli. Það mál þarf að taka til sérstakrar athugunar, bæði hvað varðar verksmiðjuna sjálfa og hráefnisöflun til hennar.
    Að öðru leyti er minni hlutinn samþykkur því að stefna beri að sölu á hluta ríkissjóðs í Kísiliðjunni hf. við Mývatn.

Alþingi, 27. mars 2001.


Árni Steinar Jóhannsson.