Ferill 265. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.


126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 958  —  265. mál.




Nefndarálit



um frv. til l. um framkvæmd samnings um allsherjarbann við tilraunum með kjarnavopn.

Frá allsherjarnefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Benedikt Bogason frá dómsmálaráðuneyti.
    Umsagnir bárust nefndinni frá Landhelgisgæslu Íslands.
    Með frumvarpinu er verið að fullnægja skuldbindingum Íslands samkvæmt samningi um allsherjarbann við tilraunum um kjarnavopn sem samþykktur var í New York 10. september 1996 og mælir allsherjarnefnd með því að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi

BREYTINGU:

    Við 1. gr. Í stað orðsins „tilraunasprengingar“ komi: tilraunir.
    
    Ögmundur Jónasson áheyrnarfulltrúi er samþykkur afgreiðslu málsins.
    Ólafur Örn Haraldsson, Jónína Bjartmarz og Sverrir Hermannsson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 20. mars 2001.



Þorgerður K. Gunnarsdóttir,


form., frsm.


Ásta Möller.


Katrín Fjeldsted.



Hjálmar Jónsson.


Lúðvík Bergvinsson.


Guðrún Ögmundsdóttir.