Ferill 607. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.


126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 977  —  607. mál.




Fyrirspurn



til menntamálaráðherra um fjölda nemenda í framhaldsskólum.

Frá Guðmundi Hallvarðssyni.



     1.      Hve stór hluti nemenda úr grunnskóla skráir sig til náms í framhaldsskóla?
     2.      Hve margir þeirra (í hundraðshlutum eftir menntabraut) velja:
                  a.      bóknám,
                  b.      starfsnám?
     3.      Hve stór hluti nemenda hættir námi án formlegrar útskriftar af viðurkenndri námsbraut?
     4.      Hverjar eru sambærilegar tölur annars staðar á Norðurlöndum?