Ferill 624. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 999 — 624. mál.
Frumvarp til laga
um atvinnuréttindi útlendinga.
(Lagt fyrir Alþingi á 126. löggjafarþingi 2000–2001.)
I. KAFLI
Almenn ákvæði.
1. gr.
Gildissvið.
Íslenskir ríkisborgarar geta einnig borið skyldur samkvæmt lögunum.
2. gr.
Tilgangur.
Lögunum er einnig ætlað að tryggja réttaröryggi útlendinga sem koma til landsins í atvinnuskyni og kveða á um rétt útlendinga til atvinnu hér á landi að ákveðnum skilyrðum fullnægðum.
3. gr.
Orðskýringar.
1. Atvinnuleyfi: Leyfi sem félagsmálaráðherra veitir útlendingi til að starfa hér á landi eða atvinnurekanda til að ráða útlending í starf.
2. Tímabundið atvinnuleyfi: Tímabundið leyfi veitt atvinnurekanda til að ráða útlending til starfa.
3. Atvinnuleyfi til sérhæfðra starfsmanna: Tímabundið leyfi veitt útlendingi vegna sérhæfðra verkefna.
4. Óbundið atvinnuleyfi: Ótímabundið leyfi veitt útlendingi til að vinna á Íslandi.
5. Atvinnuleyfi vegna námsdvalar og vistráðningar: Atvinnuleyfi erlendra námsmanna í íslenskum skólum eða vegna samninga um vistráðningu á heimili.
6. Atvinnurekandi: Einstaklingur eða fyrirtæki sem er með atvinnurekstur hér á landi án tillits til þess hvernig rekstrarformi og eignarhaldi er háttað.
7. Útlendingur: Einstaklingur sem ekki hefur íslenskan ríkisborgararétt.
4. gr.
Framkvæmd laganna.
Vinnumálastofnun annast að öðru leyti framkvæmd laganna.
II. KAFLI
Atvinnuleyfi.
5. gr.
Almennt.
Leyfi samkvæmt lögum þessum er heimilt að binda skilyrðum öðrum en þeim er koma fram í lögum þessum og ráðherra telur nauðsynleg vegna mikilvægra almannahagsmuna.
Vinnumálastofnun skal gefa út atvinnuleyfi samkvæmt nánari ákvæðum sem sett skulu í reglugerð.
6. gr.
Óheimilt er hverjum manni, félagi eða stofnun, sem rekur atvinnu eða starfrækir fyrirtæki, hverju nafni sem það nefnist, að ráða útlending til starfa, hvort heldur er um langan tíma eða skamman, eða hlutast til um að útlendingur flytjist til landsins í því skyni án atvinnuleyfis.
Útlendingi er óheimilt að ráða sig í vinnu eða starfa sjálfstætt nema leyfi hafi verið veitt samkvæmt lögum þessum.
Útlendingar sem falla undir ákvæði 14. og 15. gr. eru undanþegnir ákvæðum 2. og 3. mgr.
7. gr.
Tímabundið atvinnuleyfi.
a. Að kunnáttumenn verði ekki fengnir innan lands, atvinnuvegi landsins skorti vinnuafl eða aðrar sérstakar ástæður mæli með leyfisveitingu. Áður en atvinnuleyfi er veitt ber atvinnurekanda að hafa leitað til svæðisvinnumiðlunar eftir vinnuafli, nema slík leit verði fyrirsjáanlega árangurslaus að mati Vinnumálastofnunar.
b. Að fyrir liggi umsögn stéttarfélags á staðnum í hlutaðeigandi starfsgrein eða viðkomandi landssambands. Umsögn skal liggja fyrir innan 14 daga frá móttöku umsagnaraðila á umsókn um atvinnuleyfi. Þó er heimilt í sérstökum tilvikum að víkja frá þessu skilyrði þegar ekki er til að dreifa stéttarfélagi eða landssambandi í hlutaðeigandi starfsgrein.
c. Að fyrir liggi undirskrifaður ráðningarsamningur til tiltekins tíma eða verkefnis sem tryggi starfsmanni laun og önnur starfskjör til jafns við heimamenn, sbr. lög um starfskjör launafólks og skyldutryggingu lífeyrisréttinda.
d. Að atvinnurekandi sjúkratryggi erlendan starfsmann þannig að hann njóti verndar til jafns við ákvæði almannatryggingalaga.
e. Að atvinnurekandi ábyrgist greiðslu á heimflutningi starfsmanns að starfstíma loknum ef starfsmaður verður óvinnufær um lengri tíma vegna veikinda eða slysa og ef um er að ræða ráðningarslit sem starfsmaður á ekki sök á. Í ráðningarsamningi komi fram til hvaða lands heimflutningur nær.
f. Að lagt hafi verið fram fullnægjandi heilbrigðisvottorð.
Heimilt er að veita tímabundið atvinnuleyfi vegna nánustu aðstandenda útlendings sem fengið hefur búsetuleyfi og óbundið atvinnuleyfi. Skilyrði er að áður hafi verið veitt dvalarleyfi samkvæmt ákvæðum laga um útlendinga um dvalarleyfi fyrir aðstandendur. Við veitingu leyfis samkvæmt þessari málsgrein er heimilt að víkja frá skilyrðum a- og e-liðar 1. mgr.
Félagsmálaráðherra getur með reglugerð sett nánari ákvæði um tímabundin atvinnuleyfi.
8. gr.
Atvinnuleyfi sem veitt er í fyrsta skipti skal eigi veitt til lengri tíma en eins árs. Heimilt er að framlengja það um allt að tvö ár í senn, enda séu uppfyllt skilyrði sem fram koma í a–c- liðum 1. mgr. 7. gr.
Heimilt er að veita útlendingi, sem er ríkisborgari í ríki sem hefur gert samning við íslensk stjórnvöld um atvinnuréttindi eða er aðili að alþjóðasamningum um félagsleg réttindi sem Ísland hefur fullgilt, leyfi til að stunda atvinnu á Íslandi í lengri tíma en greinir í 2. mgr.
9. gr.
Íslenskukennsla og samfélagsfræðsla.
10. gr.
Atvinnuleyfi til sérhæfðra starfsmanna.
Þjónustusamningur við fyrirtæki hér á landi skal liggja fyrir. Í samningnum skal m.a. koma fram að skilyrði viðskiptanna sé að starfsmaður hins erlenda fyrirtækis annist þjónustuna.
Leyfi samkvæmt þessari grein skal að jafnaði ekki veitt til lengri tíma en sex mánaða á grundvelli sama þjónustusamnings.
Atvinnuleyfi veitt samkvæmt þessari grein skal liggja fyrir áður en útlendingur kemur til landsins.
11. gr.
Óbundið atvinnuleyfi.
a. að hann hafi átt samfellt lögheimili á Íslandi í þrjú ár,
b. að hann hafi öðlast búsetuleyfi á Íslandi samkvæmt lögum um útlendinga,
c. að áður hafi verið veitt leyfi skv. 7. gr.
Víkja má frá ofangreindum skilyrðum ef um er að ræða erlendan maka Íslendings sem undanþeginn er kröfu um atvinnuleyfi samkvæmt síðari málslið a-liðar 14. gr. við skilnað eða andlát maka. Þegar um skilnað er að ræða þarf hjúskapur að hafa varað í a.m.k. tvö ár og hinn erlendi maki þarf að eiga og hafa átt samfellt lögheimili hér á landi í a.m.k. tvö ár.
Víkja má frá skilyrði c-liðar ef um er að ræða útlending sem verið hefur í námi hér á landi að lágmarki í þrjú ár og lokið því.
Heimilt er að veita útlendingi, sem hefur fengið landvist hér á landi sem flóttamaður, atvinnuleyfi samkvæmt þessari grein.
Leyfi samkvæmt þessari grein gildir meðan útlendingur hefur fasta búsetu hérlendis.
12. gr.
Atvinnuleyfi vegna námsdvalar.
Skilyrði fyrir veitingu leyfis samkvæmt þessari grein er framvísun innritunarvottorðs hlutaðeigandi skóla. Leyfi skal ekki veitt til lengri tíma en sex mánaða í senn. Heimilt er að framlengja atvinnuleyfi vegna námsdvalar gegn innritunarvottorði og vottorði um námsframvindu.
Skilyrði þess að atvinnuleyfi sé veitt á grundvelli þessarar greinar er að útlendingur hafi lagt fram fullnægjandi heilbrigðisvottorð.
Í reglugerð skal kveðið nánar um atvinnuleyfi vegna námsdvalar, þ.m.t. hámarksvinnustundafjölda.
13. gr.
Atvinnuleyfi vegna vistráðningar.
Skilyrði fyrir veitingu leyfis er að fyrir liggi skriflegur samningur milli aðila þar sem fram kemur m.a. gildistími samnings, hlunnindi að því er varðar fæði og húsnæði, daglegur vinnutími, daglegur og vikulegur hvíldartími, réttur til að stunda nám og ákvæði um sjúkra- og slysatryggingar. Fæði og húsnæði skal vera ókeypis.
Skilyrði þess að atvinnuleyfi sé veitt á grundvelli þessarar greinar er að útlendingur hafi lagt fram fullnægjandi heilbrigðisvottorð.
Óheimilt er að veita leyfi til ráðningar sama einstaklings skv. 1. mgr. til lengri tíma en eins árs.
Vinnumálastofnun skal gefa út nauðsynleg eyðublöð vegna samninga um vistráðningu. Á eyðublaðið skal prenta upplýsingar um ábyrgð þess sem ræður til sín útlending í vist, m.a. í sambandi við sjúkra- og slysatryggingar og önnur hlunnindi.
Vinnumálastofnun skal ákveða upphæð vasapeninga sem greiða skal útlendingi sem ráðinn hefur verið í vist skv. 1. mgr.
Vinnumálastofnun er heimilt að fela stofnun eða fyrirtæki alla milligöngu og eftirlit með ráðningum skv. 1. mgr.
Nánar skal kveða á um skilyrði þessa ákvæðis í reglugerð.
III. KAFLI
Undanþáguákvæði.
14. gr.
a. Útlendingar sem falla undir reglur um Evrópska efnahagssvæðið. Sama gildir um erlendan maka íslensks ríkisborgara og börn hans að 18 ára aldri.
b. Útlendingar sem hafa verið íslenskir ríkisborgarar frá fæðingu en hafa misst íslenskan ríkisborgararétt.
c. Útlendingar í einkaþjónustu sendimanna erlendra ríkja.
15. gr.
a. Vísindamenn og fyrirlesarar að því leyti sem varðar kennslu eða hliðstæða starfsemi.
b. Listamenn, að undanskildum hljóðfæraleikurum sem ráða sig til starfa á veitingahúsum.
c. Íþróttaþjálfarar.
d. Fulltrúar í viðskiptaerindum fyrir fyrirtæki sem ekki hafa útibú hérlendis.
e. Ökumenn fólksflutningabifreiða sem skráðar eru í erlendu ríki, enda hafi þeir komið með erlenda ferðamenn í bifreiðunum til landsins.
f. Blaða- og fréttamenn erlendra fjölmiðla sem eru í þjónustu fyrirtækja sem ekki hafa starfsstöð á Íslandi.
g. Starfsmenn, ráðgjafar og leiðbeinendur sem vinna að sérhæfðri samsetningu, uppsetningu, eftirliti eða viðgerð tækja.
Þeir sem koma fram á næturklúbbum eru ekki undanþegnir kröfu um atvinnuleyfi.
Ráðherra getur sett reglur sem skilgreina nánar einstök störf sem falla undir undanþágu samkvæmt þessari grein.
IV. KAFLI
Afturköllun atvinnuleyfis og viðurlög.
16. gr.
Afturköllun.
17. gr.
Viðurlög.
Dæma má lögaðila jafnt sem einstaklinga til greiðslu sekta vegna brota á lögum þessum. Um refsiábyrgð lögaðila fer samkvæmt II. kafla A almennra hegningarlaga.
Mál út af brotum gegn lögum þessum skulu sæta opinberri meðferð.
18. gr.
Heimflutningur.
V. KAFLI
Samráð Vinnumálastofnunar og Útlendingastofnunar.
19. gr.
Samráðsnefnd.
Samráðsnefndin skal skipuð fjórum mönnum og skipar hvor stofnunin tvo menn í nefndina. Skipunartími nefndarinnar er tvö ár. Samráðsnefndin velur formann úr hópi nefndarmanna. Skal formaður annast boðun funda og stjórn þeirra.
20. gr.
Útlendingastofnun skal í samráði við Vinnumálastofnun gefa út skírteini þar sem m.a. komi fram upplýsingar um dvalarleyfi og réttindi útlendingsins til að stunda vinnu á Íslandi. Þar skulu einnig vera nauðsynlegar persónuupplýsingar. Heimilt er að krefja umsækjanda um atvinnuleyfi um endurgjald fyrir skírteinið. Endurgjaldið skal ekki vera hærra en sem nemur kostnaði við útgáfu þess.
VI. KAFLI
Málsmeðferð.
21. gr.
Almennar reglur um málsmeðferð.
22. gr.
Málshraði.
Þegar fyrirsjáanlegt er að afgreiðsla máls muni tefjast ber að skýra aðila máls frá því. Skal þá upplýst um ástæðu tafanna og hvenær ákvörðunar er að vænta.
23. gr.
Leiðbeiningarskylda.
24. gr.
Kæruheimild.
Nú vill umsækjandi nýta sér kæruheimild og er kærufrestur fjórar vikur frá því að tilkynning barst um ákvörðun Vinnumálastofnunar. Að öðru leyti fer um kæru skv. VII. kafla stjórnsýslulaga um stjórnsýslukæru.
VII. KAFLI
Ýmis ákvæði og gildistaka.
25. gr.
Samstarfsnefnd.
Samstarfsnefndin skal kölluð saman:
a. vegna almennra álitamála varðandi útgáfu atvinnuleyfa,
b. þegar beiðnir berast til Vinnumálastofnunar um atvinnuleyfi fyrir hópa útlendinga.
26. gr.
Við gildistöku laganna falla úr gildi lög um atvinnuréttindi útlendinga, nr. 133/1994, með síðari breytingum.
Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.
I. Inngangur.
Í frumvarpinu er að finna reglur um rétt útlendinga hér á landi til atvinnu að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Frumvarpinu er einnig ætlað að tryggja réttaröryggi útlendinga sem koma til landsins í atvinnuskyni.
Frá gildistöku núgildandi laga hafa orðið miklar breytingar á íslenskum vinnumarkaði. Eftirspurn eftir erlendu vinnuafli hefur stóraukist sem rekja má til mikillar þenslu á vinnumarkaði síðustu ár. Þá hefur orðið sú breyting að þeir útlendingar sem hingað koma til vinnu dvelja hér lengur en áður var og reynir því oftar á rétt fjölskyldu þeirra til dvalar og atvinnu í landinu.
Í störfum nefndarinnar hefur sérstaklega verið litið til framkvæmdar núgildandi laga m.a. með tilkomu Vinnumálastofnunar og svæðisvinnumiðlana þar sem félagsmálaráðherra hefur falið Vinnumálastofnun að hafa með höndum veitingu atvinnuleyfa. Með frumvarpinu er m.a. verið að festa þessa framkvæmd í sessi.
Vegna þeirra breytinga sem orðið hafa féllu núgildandi lög í mörgu tilliti illa að aðstæðum í íslensku samfélagi. Í frumvarpinu hefur einnig verið tekið tillit til þeirrar almennu þróunar sem orðið hefur á löggjöf á sviði stjórnsýsluréttar, mannréttinda og í alþjóðlegu samstarfi.
Endurskoðun laga um atvinnuréttindi útlendinga hefur tekið nokkuð mið af frumvarpi til laga um útlendinga. Það á m.a. við um hugtakanotkun. Leitast hefur verið við að hafa samræmi á þessu sviði eins og unnt er. Dvalarleyfi og atvinnuleyfi eru nátengd, þannig að nauðsynlegt var að taka tillit til framangreinds frumvarps. Þá er í frumvarpinu kveðið á um samstarf Vinnumálastofnunar og Útlendingastofnunar. Eins er að finna ákvæði um útgáfu skírteinis vegna dvalar og atvinnuleyfis sem Útlendingastofnun skuli annast útgáfu á, enda er það til samræmis við núgildandi vinnulag þar sem slík útgáfa er í höndum útlendingaeftirlits samkvæmt samkomulagi.
Ákvæði um brottvísun í núgildandi lögum um atvinnuréttindi útlendinga er fellt út, enda er um brottvísun fjallað í 20. gr. frumvarps til laga um útlendinga, en forsenda dvalarleyfis vegna atvinnu er m.a. vissan um að atvinnuleyfi fáist.
II. Helstu nýmæli frumvarpsins.
I. Almenn ákvæði.
II. Atvinnuleyfi.
III. Undanþáguákvæði.
IV. Afturköllun atvinnuleyfis og viðurlög.
V. Samráð Vinnumálastofnunar og Útlendingastofnunar.
VI. Málsmeðferð.
VII. Ýmis ákvæði og gildistaka.
Helstu nýmæli frumvarpsins eru eftirfarandi:
1. Atvinnuleyfi til sérhæfðra starfsmanna.
2. Heimilt er að víkja frá skilyrði um umsögn stéttarfélags þegar ekki er til að dreifa stéttarfélagi eða landssambandi í hlutaðeigandi starfsgrein.
3. Atvinnurekandi skal samkvæmt frumvarpinu sjúkratryggja erlendan starfsmann sinn þar til hann nýtur verndar samkvæmt ákvæðum almannatryggingalaga.
4. Atvinnurekandi skal undir sérstökum kringumstæðum ábyrgjast greiðslu vegna heimflutnings starfsmanns.
5. Framkvæmd vegna útgáfu heilbrigðisvottorða verði breytt þannig að tekin verða gild erlend vottorð ef þau eru fullnægjandi samkvæmt reglugerð á grundvelli laganna og sóttvarnalaga, nr. 19/1997.
6. Í frumvarpinu er heimildarákvæði um að veita nánustu aðstandendum útlendings tímabundið atvinnuleyfi, enda hafi hann fengið búsetuleyfi og óbundið atvinnuleyfi.
7. Með frumvarpinu er, ef ríkar sanngirnisástæður eru fyrir hendi, heimilt að víkja frá þeirri meginreglu að tímabundið atvinnuleyfi skuli ætíð liggja fyrir áður en útlendingur kemur í fyrsta sinn til starfa hér á landi.
8. Í frumvarpinu er sérstakt ákvæði um íslenskukennslu og samfélagsfræðslu.
9. Í frumvarpinu er heimild til að víkja frá skilyrðum varðandi óbundið atvinnuleyfi þegar um er að ræða skilnað útlendings sem hefur verið giftur Íslendingi í a.m.k. tvö ár, enda hafi viðkomandi átt samfellt lögheimili á landinu í a.m.k. tvö ár.
10. Í frumvarpinu er heimilt að víkja frá skilyrðum varðandi óbundið atvinnuleyfi þegar um er að ræða andlát íslensks maka útlendings.
11. Frumvarpið kveður einnig á um að víkja megi frá því skilyrði við veitingu óbundins atvinnuleyfis að þegar liggi fyrir tímabundið atvinnuleyfi, ef um er að ræða útlending sem verið hefur í námi hér á landi að lágmarki í þrjú ár og lokið námi.
12. Í frumvarpinu eru skilyrði afturköllunar atvinnuleyfis tilgreind.
13. Í frumvarpinu er kveðið á um samráðsnefnd Vinnumálastofnunar og Útlendingastofnunar.
14. Í frumvarpinu er nýr kafli um málsmeðferð þar sem koma fram helstu meginreglur um málsmeðferðina og kæruheimild.
15. Lagt er til að skipuð verði samstarfsnefnd sem taki á almennum álitamálum varðandi útgáfu atvinnuleyfa og fjalli um beiðnir sem berast til Vinnumálastofnunar vegna atvinnuleyfa fyrir hópa.
Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.
Með 2. mgr. er lögð áhersla á að íslenskir ríkisborgarar geti einnig borið skyldur samkvæmt lögunum. Þar eru einkum hafðir í huga íslenskir atvinnurekendur sem sækja um atvinnuleyfi fyrir útlending.
Um 2. gr.
Samkvæmt 2. mgr. er lögunum ætlað að tryggja réttaröryggi útlendinga sem falla undir þau. Þannig eru í VI. kafla reglur um málsmeðferð sem meðal annars kveða á um leiðbeiningarskyldu, kæruheimild o.fl.
Um 3. gr.
Ákvæði um atvinnuleyfi til bráðabirgða var einnig í fyrri lögum um atvinnuréttindi útlendinga, nr. 26/1982. Það var sérstaklega hugsað til að koma til móts við atvinnurekendur sem þurftu af sérstökum ástæðum og með litlum fyrirvara að ráða til sín hópa útlendinga. Lítið sem ekkert hefur reynt á þetta ákvæði. Þegar hingað hafa komið hópar útlendinga sem þurft hafa atvinnuleyfi hefur reynst mögulegt að afgreiða erindið með útgáfu tímabundins atvinnuleyfis á nafn hvers og eins.
Ákvæði um atvinnurekstrarleyfi eða atvinnuréttarleyfi eins og það var kallað kom inn í lög með lögum nr. 26/1982. Ákvæðið var fellt úr lögum með lögum nr. 69/1993 vegna notkunarleysis. Ákvæði um atvinnurekstrarleyfi voru svo tekin upp í núgildandi lög, en ástæður þess voru tvíþættar. Talið var óeðlilegt að útlendingur sem hygðist stofna til rekstrar hér á landi ætti greiðari aðgang að atvinnulífi og vinnumarkaði en þeir sem réðu sig til almennra starfa. Enn fremur var það talið nauðsynlegt til að auðvelda eftirlitsaðilum, fyrst og fremst útlendingaeftirlitinu, að rækja lögbundið eftirlitsstarf. Í frumvarpi þessu er lagt til að ákvæði um atvinnurekstrarleyfi verði lögð niður á nýjan leik. Ástæður eru fyrst og fremst notkunarleysi sem fyrr, lítið hefur reynt á ákvæði þetta og hefur það jafnframt valdið nokkrum vanda í framkvæmd þar sem lítið er um viðmiðunarreglur sem hins vegar er að finna þegar kemur að útgáfu atvinnuleyfa. Þannig veita atvinnurekstrarleyfi í þeirri mynd sem þau eru í dag enga frekari möguleika á eftirliti umfram það sem útgáfa atvinnu- og dvalarleyfa gerir. Enn fremur má segja að þau rök sem haldið var fram þegar ákvæðið var tekið upp í lög um greiðari aðgang erlendra aðila sem hyggjast stunda sjálfstæðan atvinnurekstur eigi ekki við. Með því að ólíkar reglur gildi um sjálfstæðan atvinnurekstur og almenna launþega má miklu frekar segja að um mismunun sé að ræða. Eðlilegra er að fella niður sérstakt ákvæði um atvinnurekstrarleyfi þannig að ákvæði um atvinnuleyfi, auk reglna um dvalarleyfi, gildi með sama hætti um sjálfstæða atvinnurekendur og almenna launþega. Þannig mundi hlutafélag eða einkahlutafélag sem stofnað er af erlendum aðila búsettum hér á landi, að uppfylltum skilyrðum laga, sækja um atvinnuleyfi fyrir hönd hins erlenda starfsmanns með sama hætti og innlendir atvinnurekendur gera. Enn fremur er rétt að hafa í huga að í lögum um hlutafélög og einkahlutafélög er að finna reglur um rétt erlendra aðila til stofnunar hlutafélaga hér á landi, en með þeim kröfum má segja að felist ákveðið eftirlit með stofnun slíks atvinnurekstrar. Niðurfelling atvinnurekstrarleyfa á auk þess ekki að hafa áhrif á eftirlit útlendingaeftirlits þar sem erlendur aðili sem hyggst stofna til sjálfstæðs rekstrar verður eftir sem áður að uppfylla skilyrði laga um dvalarleyfi ásamt skilyrðum laga um atvinnuleyfi.
Með örfáum undantekningum gera innlend lög á sviði fjárfestinga- og atvinnurekstrar ráð fyrir því að erlendur aðili sem hefur fasta búsetu hérlendis skuli njóta sömu réttinda og innlendur aðili með fasta búsetu. Einnig er rétt að benda á að þróun tvíhliða og fjölþjóðlegra samninga á þessu sviði gengur í sömu átt. Hafa Íslendingar m.a. verið talsmenn þessa á alþjóðavettvangi. Það er í samræmi við þessar áherslur að erlendum aðilum verði veitt landskjararéttindi (e. national treatment) eins og afnám sérstaks atvinnurekstrarleyfis væri.
Um atvinnuleyfi til sérhæfðra starfsmanna er fjallað í athugasemdum við 7. gr. frumvarpsins.
Um 4. gr.
Samkvæmt 2. mgr. verður framkvæmd laganna að öðru leyti í höndum Vinnumálastofnunar.
Um 5. gr.
Um 6. gr.
Um 7. gr.
Fyrri málsliður a-liðar 1. mgr. er óbreyttur frá núgildandi lögum. Við greinina bætist hins vegar nýr málsliður þess efnis að atvinnurekandi skuli hafa leitað til svæðisvinnumiðlunar eftir vinnuafli, nema slík leit verði fyrirsjáanlega árangurslaus að mati Vinnumálastofnunar. Ákvæðið kemur í stað 4. mgr. 7. gr. núgildandi laga, en með lögum um vinnumarkaðsaðgerðir, nr. 13/1997, var svæðisvinnumiðlunum m.a. falið að annast skráningu atvinnulausra, miðla upplýsingum um atvinnuástand og atvinnuleysi og atvinnuhorfur.
Tveir fyrstu málsliðir b-liðar eru óbreyttir en við stafliðinn bætist málsliður sem heimilar í sérstökum tilvikum að vikið sé frá skilyrðinu. Ber að túlka þá heimild þröngt, enda þykir mikilvægt að fengin sé slík umsögn sem um ræðir í greininni. Þau tilvik sem gætu fallið undir undanþáguna hér eru m.a. leyfi vegna íþróttamanna, þjálfara og stjórnenda.
Ákvæði c-liðar er óbreytt frá fyrri málslið c-liðar 7. gr. núgildandi laga. Seinni málsliður þeirrar greinar er felldur niður en inn kemur nýr liður, e-liður, þar sem kveðið er á um ábyrgð atvinnurekanda á greiðslu heimflutnings erlends starfsmanns. Ákvæðið er lögfesting á núverandi framkvæmd laganna og felur í sér að atvinnurekandi sem fær leyfi til að ráða erlendan starfsmann til landsins beri ábyrgð á því að hann komist til heimalands síns þegar ráðningarsambandi lýkur. Vilji starfsmaður hins vegar ráða sig til annars atvinnurekanda þegar ráðningarsambandi lýkur en áfram á grundvelli tímabundins atvinnuleyfis þá getur upphaflegur atvinnurekandi samið við nýja atvinnurekandann um að ábyrgjast þennan heimflutning.
Í d-lið er nýmæli þess efnis að atvinnurekandi skuli sjúkratryggja erlendan starfsmann þannig að hann njóti verndar til jafns við ákvæði almannatryggingalaga. Er ákvæðinu fyrst og fremst ætlað að tryggja rétt starfsmannsins meðan biðtími bótaréttar samkvæmt ákvæðum almannatrygginga varir.
Þá er í f-lið skilyrði að lagt hafi verið fram heilbrigðisvottorð. Er gert ráð fyrir að heimilt verði að leggja fram vottorð frá heimalandi, enda verði sett reglugerð með stoð í lögunum og með stoð í sóttvarnalögum hvaða kröfur eru gerðar til heilbrigðisvottorðs með tilliti til almenns heilbrigðis og sóttvarna við komu til landsins.
2. mgr. greinarinnar er nýmæli. Ákvæðið heimilar að vikið sé frá almennum vinnumarkaðssjónarmiðum í a-lið þegar um er að ræða nánustu aðstandendur útlendings sem fengið hefur búsetuleyfi og óbundið atvinnuleyfi. Er þar vísað til skilgreininga frumvarps til laga um útlendinga á því hverjir geti talist til aðstandenda. Skilyrði er að dvalarleyfi hafi verið veitt samkvæmt ákvæðum þeirra laga um dvalarleyfi fyrir aðstandendur. Er einnig heimilt að víkja frá skilyrði um ábyrgð atvinnurekanda á heimflutningi við veitingu atvinnuleyfis samkvæmt þessari grein.
Um 8. gr.
Ákvæði 2. mgr. greinarinnar er hliðstætt ákvæði 2. mgr. 7. gr. núgildandi laga og 3. mgr. greinarinnar er samhljóða 5. mgr. 7. gr. núgildandi laga.
Um 9. gr.
Um 10. gr.
Almenn skilyrði c- til f-liðar 7. gr. gilda við veitingu atvinnuleyfa samkvæmt þessari grein og telst hið erlenda fyrirtæki atvinnurekandi.
Í 3. mgr. greinarinnar segir að atvinnuleyfi til sérhæfðra starfsmanna skuli að jafnaði ekki veitt til lengri tíma en sex mánaða á grundvelli sama þjónustusamnings. Þótti ástæða til að setja slíkt ákvæði í greinina til að koma í veg fyrir að með henni væri opnuð jafngreið eða jafnvel greiðari leið til atvinnuleyfis hér á landi en fæst með tímabundnu atvinnuleyfi skv. 7. gr.
Ákvæði 4. mgr. greinarinnar er til samræmis við skilyrði í 8. gr. frumvarpsins vegna tímabundins atvinnuleyfis.
Um 11. gr.
Það nýmæli kemur fram í 2. mgr. greinarinnar að heimilt er að víkja frá skilyrði um að áður hafi verið veitt tímabundið atvinnuleyfi ef um er ræða erlendan maka Íslendings sem undanþeginn hefur verið kröfu um atvinnuleyfi samkvæmt síðari málslið a-liðar 14. gr. vegna skilnaðar en skilyrði er að hjúskapur hafi varað í tvö ár. Er þar brugðist við því tilviki að forsenda brestur fyrir dvalarleyfi með rétti til atvinnuþátttöku sem útlendingur öðlast á grundvelli hjúskapar. Á sama hátt er heimilt að veita eftirlifandi maka Íslendings óbundið leyfi en þar er ekki sett skilyrði um lengd hjúskapar.
Ákvæði 3. mgr. er einnig nýmæli. Þar er á sama hátt og í 2. mgr. heimilað að víkja frá skilyrði um að áður hafi verið veitt tímabundið atvinnuleyfi þegar um er að ræða útlending sem hefur lokið þriggja ára námi hérlendis. Var talið óeðlilegt að í slíkum tilfellum þyrfti útlendingur sem hyggst starfa hér á landi, að loknu námi, að sækja um tímabundið atvinnuleyfi og vera þannig bundinn af umsókn atvinnurekanda. Er litið svo á að með vilja sínum til að dvelja hér áfram að loknu námi lýsi hann yfir áhuga sínum á að festa hér rætur líkt og þeir sem hér hafa dvalið á grundvelli tímabundins atvinnuleyfis í þrjú ár og sækja um óbundið atvinnuleyfi að því loknu.
Um 12. gr.
Ákvæði 3. mgr. er sambærilegt f-lið 7. gr. frumvarpsins. Er gert ráð fyrir að heimilt verði að leggja fram vottorð frá heimalandi, enda verði sett reglugerð, með stoð í lögunum og með stoð í sóttvarnalögum, um hvaða kröfur eru gerðar til heilbrigðisvottorðs með tilliti til almenns heilbrigðis og sóttvarna við komu til landsins.
Gert er ráð fyrir að í reglugerð sé kveðið nánar á um atvinnuleyfi samkvæmt þessari grein, þ.m.t. um hámarksvinnustundafjölda.
Um 13. gr.
Fjallað er um vistráðningar í 12. gr. í núgildandi lögum og eru í þessu frumvarpi gerðar nokkrar breytingar á þeirri grein. Aldursmörkum er breytt úr 17–30 ára í 18–26 ára. Neðri aldursmörkum er breytt til samræmis við lögræðisaldur og til samræmis við þá reynslu sem komin er á ákvæðið í núgildandi lögum er efri aldursmörkum breytt í 26 ár.
Í 2. mgr. er kveðið á um skilyrði fyrir veitingu leyfis samkvæmt greininni. Nýmæli er að sérstakt ákvæði skal vera í ráðningarsamningi um sjúkra- og slysatryggingar. Í núgildandi lögum er aftur á móti aðeins kveðið á um að gert skuli ráð fyrir slíkum upplýsingum í eyðublaði.
Ákvæði 3. mgr. er sambærilegt f-lið 7. gr. frumvarpsins. Er gert ráð fyrir að heimilt verði að leggja fram vottorð frá heimalandi, enda verði sett reglugerð, með stoð í lögunum og með stoð í sóttvarnalögum, um hvaða kröfur eru gerðar til heilbrigðisvottorðs með tilliti til almenns heilbrigðis og sóttvarna við komu til landsins. Að öðru leyti eru skilyrði óbreytt frá 1. mgr. 12. gr. núgildandi laga.
Ákvæði 4. mgr. er óbreytt frá 4. mgr. 11. gr. núgildandi laga.
Í stað félagsmálaráðuneytis skal Vinnumálastofnun nú gefa út nauðsynleg eyðublöð og ákveða upphæð vasapeninga.
Í 7. mgr. er nýmæli þess efnis að Vinnumálastofnun er heimilt að fela stofnun eða fyrirtæki alla milligöngu og eftirlit með ráðningum. Í Evrópuráðssamningnum er ákvæði þess efnis að stjórnvöld skuli tilnefna opinbera aðila, eða einkaaðila, til að sjá um málefni er varða vistráðningu. Í núgildandi lögum er gert ráð fyrir að félagsmálaráðuneytinu sé heimilt að veita stofnunum, fyrirtækjum og einstaklingum heimild til að hafa milligöngu um vistráðningar. Það ákvæði kemur hins vegar ekki í veg fyrir að einstaklingar sem ekki hafa sérstakt leyfi ráðuneytisins til milligöngu og eftirlits geti verið milligönguaðilar um slíkar ráðningar. Er hér því gert ráð fyrir að einungis umsóknir sem eru tilkomnar fyrir atbeina þess fyrirtækis eða stofnunar sem Vinnumálastofnun hefur falið að hafa milligöngu og eftirlit með ráðningum hljóti afgreiðslu.
Um 14. gr.
Ákvæði greinarinnar er að öðru leyti óbreytt frá 13. gr. núgildandi laga.
Um 15. gr.
Um 16. gr.
Um 17. gr.
Um 18. gr.
Um 19. gr.
Um 20. gr.
Um 21. gr.
Um 22. gr.
Um 23. gr.
Um 24. gr.
Um 25. gr.
Greinin kemur að hluta til í stað 20. gr. núgildandi laga en þar er kveðið á um að árlega skuli leitað álits helstu samtaka atvinnurekenda og launafólks. Hlutverk nefndarinnar verði víðtækt og varði almenn álitamál í tengslum við útgáfu atvinnuleyfa og einnig skal nefndin kölluð saman þegar beiðnir berast Vinnumálastofnun um atvinnuleyfi fyrir hópa útlendinga.
Um 26. gr.
Jafnframt er gert ráð fyrir að gildandi lög um atvinnuréttindi útlendinga, nr. 133/1994, með síðari breytingum, falli úr gildi.
Fylgiskjal.
Fjármálaráðuneyti,
fjárlagaskrifstofa:
Umsögn um frumvarp til laga um atvinnuréttindi útlendinga.