Ferill 669. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 1047 — 669. mál.
Frumvarp til laga
um breyting á lögum nr. 29/1993, um vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl., með síðari breytingum.
(Lagt fyrir Alþingi á 126. löggjafarþingi 2000–2001.)
1. gr.
6. Vörugjald af bifreiðum til ökukennslu skal lagt á samkvæmt eftirfarandi töflu miðað við sprengirými aflvélar, mælt í rúmsentímetrum:
| Flokkur | Sprengirými aflvélar | Gjald í % |
| I | 0–2.000 | 10 |
| II | Yfir 2.000 | 13 |
Skilyrði fyrir því að bifreið til ökukennslu beri vörugjald samkvæmt þessum tölulið eru að kaupandi hennar hafi hlotið löggildingu sem ökukennari og hafi akstur hennar að aðalatvinnu.
7. Vörugjald af bifreiðum sem notaðar eru til ökukennslu og leigubifreiðaaksturs skal lagt á samkvæmt eftirfarandi töflu miðað við sprengirými aflvélar, mælt í rúmsentímetrum:
| Flokkur | Sprengirými aflvélar | Gjald í % |
| I | 0–2.000 | 10 |
| II | Yfir 2.000 | 13 |
Skilyrði fyrir því að bifreið sem nýtt er til ökukennslu og leigubifreiðaaksturs beri vörugjald samkvæmt þessum tölulið eru að kaupandi hennar hafi atvinnuleyfi til leiguaksturs fólksbifreiða og hafi hlotið löggildingu sem ökukennari og hafi þessi störf samanlagt að aðalatvinnu.
2. gr.
Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.
Í frumvarpinu er lagt til að vörugjald af bifreiðum til ökukennslu lækki til samræmis við vörugjald af leigubifreiðum til fólksflutninga og bílaleigubifreiðum. Sömu reglur giltu um lækkun gjalda af leigubifreiðum og kennslubifreiðum fyrir árið 1987, sbr. reglur nr. 234/1980, um lækkun aðflutningsgjalda af bifreiðum til atvinnubifreiðastjóra og ökukennara. Með lögum nr. 29/1993, um vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl., var sett heimild til að lækka vörugjald af leigubifreiðum niður í allt að 30%, sem síðar hefur verið lækkað enn frekar og er vörugjald af leigubifreiðum nú 10% eða 13% eftir sprengirými aflvélar. Vörugjald af bifreiðum til ökukennslu hefur hins vegar haldist það sama og af fólksbílum. Í úrskurði nr. 10/1999 komst samkeppnisráð að þeirri niðurstöðu að reglur um lækkun vörugjalds af bifreiðum til leiguaksturs gætu haft þau áhrif, a.m.k. í vissum tilvikum, að aðilar sem sinna kennslu til ökuréttinda gætu haft af því hag að sækja um leyfi til leiguaksturs og fengið þar með vörugjöld lækkuð af bifreiðum sínum. Frumvarpið gerir jafnframt ráð fyrir að þeir sem stundi bæði leigubifreiðaakstur og ökukennslu og hafi til þess réttindi geti talið fram tekjur af þessum störfum saman þannig að skilyrði um aðalatvinnu séu uppfyllt.
Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.
Jafnframt er lögð til breyting sem lýtur að þeim aðilum sem stunda bæði leigubílaakstur og ökukennslu. Rétt þykir að þeir aðilar njóti lækkunar hafi þeir greinarnar að aðalatvinnu samanlagt en ekki aðalatvinnu af báðum greinunum enda gæti slíkt leitt til mismununar.
Um 2. gr.
Fylgiskjal.
Fjármálaráðuneyti,
fjárlagaskrifstofa:
Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 29/1993,
um vörugjald af bifreiðum, eldsneyti o.fl., með síðari breytingum.