Ferill 680. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 1059 — 680. mál.
Frumvarp til laga
um úrvinnslugjald.
(Lagt fyrir Alþingi á 126. löggjafarþingi 2000–2001.)
I. KAFLI
Almenn ákvæði.
1. gr.
Markmið.
Markmið laga þessara er að skapa hagræn skilyrði fyrir endurnotkun og endurnýtingu úrgangs í þeim tilgangi að draga úr magni úrgangs sem fer til endanlegrar förgunar.
2. gr.
Gildissvið.
Lög þessi gilda um eftirtalda efnisflokka umbúða: Pappír, pappa, karton og aðrar pappírsumbúðir, glært umbúðaplast, landbúnaðarplast og samsettar pappaumbúðir. Þá gilda lögin jafnframt um hjólbarða, ökutæki og vinnuvélar. Í lögum þessum verður framangreint nefnt vara og er það skilyrði að hægt verði að endurnota og/eða endurnýta vöruna eftir að hún er orðin að úrgangi.
Undir lög þessi fellur ekki sorphreinsun sveitarfélaga.
3. gr.
Skilgreiningar.
Í lögum þessum er merking orða og orðasambanda sem hér segir:
1. Endurnýting: Hvers konar nýting úrgangs, önnur en endurnotkun.
2. Endurnotkun: Endurtekin notkun úrgangs í óbreyttri mynd.
3. Hjólbarðar: Hjólbarðar fyrir flugvélar, reiðhjól, ökutæki og vinnuvélar.
4. Meðhöndlun úrgangs: Söfnun, geymsla, böggun, flokkun, flutningur, endurnotkun, endurnýting, pökkun og förgun úrgangs, þ.m.t. eftirlit með slíkri starfsemi og umsjón með förgunarstöðum eftir að þeim hefur verið lokað.
5. Móttökustöð: Staður og aðstaða þar sem tekið er við úrgangi til geymslu til lengri eða skemmri tíma, til umhleðslu, flokkunar eða annarrar meðhöndlunar. Þaðan fer úrgangurinn til förgunar eða nýtingar, eða honum er fargað á staðnum.
6. Samsettar pappaumbúðir: Umbúðir samsettar úr pappa og öðru efni, t.d. áli eða plasti, sem einkum eru notaðar fyrir drykkjar- og matvöru.
7. Söfnunarstöð (gámastöð): Staður og aðstaða þar sem tekið er við úrgangi frá almenningi og/eða smærri fyrirtækjum. Þaðan fer hann til endurnotkunar og endurnýtingar eða er fluttur til móttökustöðva.
8. Úrgangur: Hvers kyns efni eða hlutir sem einstaklingar eða lögaðilar ákveða að losa sig við eða er gert að losa sig við á tiltekinn hátt og falla undir gildissvið laganna.
9. Úrvinnsla úrgangs: Söfnun, geymsla, böggun, flokkun, flutningur, endurnotkun, endurnýting, pökkun og förgun úrgangs.
10. Vinnuvélar: Tæki sem knúið er af aflvél og hægt er að vinna með við nánar tiltekin störf.
11. Ökutæki: Bifreiðir, bifhjól, torfærutæki, dráttarvélar, eftirvagnar bifreiða og dráttarvéla sem gerðir eru fyrir meira en 750 kg heildarþyngd, hjólhýsi og tjaldvagnar.
II. KAFLI
Stjórn og skipan.
4. gr.
Yfirstjórn.
Umhverfisráðherra fer með yfirstjórn mála sem lög þessi fjalla um.
5. gr.
Nefnd um úrvinnslu úrgangs.
Ráðherra skipar nefnd um úrvinnslu úrgangs til fjögurra ára í senn og annast hún framkvæmd laga þessara og fer með stjórn og umsýslu úrvinnslugjalds. Nefndin fer jafnframt með stjórn spilliefnagjalds, sbr. lög um spilliefnagjald, nr. 56/1996, og annast framkvæmd þeirra laga. Nefndin skal gera áætlun um hvernig standa skal að úrvinnslu úrgangs samkvæmt lögum þessum. Nefndin skal hafa samráð við hagsmunaaðila um skilgreiningu markmiða hvað einstök viðfangsefni varðar og leggur tillögur fyrir ráðherra til staðfestingar.
Í nefndinni eiga sæti níu menn og skulu tveir tilnefndir af Sambandi íslenskra sveitarfélaga og einn af hverjum eftirtalinna aðila: Samtökum atvinnulífsins, Samtökum iðnaðarins, Samtökum verslunar og þjónustu og Alþýðusambandi Íslands. Enn fremur skal einn skipaður sameiginlega af Landssambandi íslenskra útvegsmanna og Samtökum fiskvinnslustöðva. Ráðherra skipar tvo nefndarmenn og skal annar vera formaður. Varamenn skulu tilnefndir og skipaðir með sama hætti. Nefndin velur sér varaformann úr hópi aðalmanna. Ráðherra ákveður þóknun nefndarmanna fyrir setu í nefndinni.
Í reglugerð sem ráðherra setur samkvæmt tillögum nefndar um úrvinnslu úrgangs skal kveða nánar á um hlutverk og starfshætti nefndarinnar.
III. KAFLI
Gjald, gjaldtaka o.fl.
6. gr.
Vörur sem heimilt er að leggja gjald á.
Heimilt er að leggja sérstakt gjald, úrvinnslugjald, sbr. 7. gr., á þær vörur sem fluttar eru til landsins og eru framleiddar hér á landi og falla undir lög þessi. Við flokkun til gjaldskyldu skal fylgt flokkunarreglum tollalaga og gilda ákvæði þeirra laga jafnframt um úrskurðarvald í ágreiningsmálum um tollflokkun vöru.
7. gr.
Úrvinnslugjald.
Úrvinnslugjald skal standa undir kostnaði vegna reksturs söfnunarstöðva, flutnings frá söfnunarstöðvum til endurnýtingar, móttöku og annarrar úrvinnslu úrgangs. Jafnframt skal gjaldið standa undir greiðslu kostnaðar vegna starfsemi nefndar um úrvinnslu úrgangs. Ráðherra er heimilt í reglugerð að fenginni tillögu nefndar um úrvinnslu úrgangs að kveða á um að hluta úrvinnslugjalds megi nýta sem skilagjald til þess sem skilar tilteknum úrgangi til viðurkenndrar móttökustöðvar.
Upphæð úrvinnslugjalds skal vera eftirfarandi:
1. Efnisflokkar umbúða, sbr. 2. gr., allt að 150 kr. á hvert kg.
2. Hjólbarðar, allt að 40 kr. á hvert kg.
3. Ökutæki og vinnuvélar, allt að 20.000 kr. á hvert tæki.
Nefnd um úrvinnslu úrgangs skal skipta ofangreindum vörum í flokka eftir því sem við á. Ráðherra skal samkvæmt tillögu nefndar um úrvinnslu úrgangs kveða með reglugerð á um upphæð úrvinnslugjalds á vörur í hverjum flokki og nánar um ráðstöfun gjaldsins. Nefndin skal miða tillögur sínar við áætlun um kostnað við úrvinnslu úrgangs á grundvelli útreikninga, útboða eða verksamninga. Nefnd um úrvinnslu úrgangs skal þegar unnt er bjóða út verkþætti úrvinnslu úrgangs. Þetta skal gert fyrir landið allt eða einstök landsvæði. Tekjur og gjöld í hverjum flokki skulu standast á. Hver flokkur skal vera fjárhagslega sjálfstæður.
8. gr.
Varsla gjalds.
Nefnd um úrvinnslu úrgangs semur við þar til bæran aðila um vörslu og ávöxtun úrvinnslugjalds. Ársreikningar nefndarinnar skulu endurskoðaðir af Ríkisendurskoðun og birtir í B-deild Stjórnartíðinda.
9. gr.
Frjálst samkomulag.
Fyrirtækjum og atvinnugreinum er heimilt að semja sín á milli um ráðstafanir til að auka endurnýtingu og endurnotkun úrgangs. Ráðherra getur þá undanþegið vörur gjaldtöku samkvæmt lögum þessum. Ráðherra skal staðfesta slíka samninga að fenginni umsögn nefndar um úrvinnslu úrgangs og Hollustuverndar ríkisins. Hollustuvernd ríkisins skal hafa eftirlit með framkvæmd slíkra samninga.
10. gr.
Gjalddagi og innheimta.
Gjald af innfluttum gjaldskyldum vörum skal innheimt ásamt aðflutningsgjöldum.
Gjald vegna gjaldskyldrar vöru, framleiddrar hér á landi, skal leggja á við sölu hennar frá framleiðanda til kaupanda og hefur það ekki þýðingu með hvaða hætti greiðsla kaupanda fer fram. Hvert uppgjörstímabil er þrír mánuðir, janúar, febrúar og mars, apríl, maí og júní, júlí, ágúst og september, október, nóvember og desember.
Gjaldi vegna úrvinnslu úrgangs af innlendri framleiðslu skal skila ásamt framleiðsluskýrslu í því formi sem nefnd um úrvinnslu úrgangs ákveður og eigi síðar en á gjalddaga. Gjalddagi er fimmti dagur annars mánaðar eftir lok uppgjörstímabils. Aðilum sem keypt hafa hráefni eða efni til gjaldskyldrar framleiðslu sinnar og greitt af því gjald vegna úrvinnslu úrgangs er heimilt að draga þá upphæð frá við endanleg skil gjaldsins, samkvæmt reglum sem nefndin setur. Ráðherra skal samkvæmt tillögu nefndar um úrvinnslu úrgangs ákveða með reglugerð með hverjum hætti skal undanþiggja vörur gjaldi eða endurgreiða gjald í þeim tilvikum þegar vara kemur ekki til úrvinnslu hér á landi.
11. gr.
Álag.
Ef úrvinnslugjald er ekki greitt á gjalddaga skal aðili sæta álagi til viðbótar gjaldinu. Sama gildir ef framleiðsluskýrslu skv. 3. mgr. 10. gr. hefur ekki verið skilað.
Álag skv. 1. mgr. skal vera 1% af þeirri fjárhæð sem vangreidd er fyrir hvern byrjaðan dag eftir gjalddaga, þó ekki hærra en 10%.
Sé gjaldið ekki greitt innan eins mánaðar frá gjalddaga skal greiða dráttarvexti af því sem gjaldfallið er. Um ákvörðun og útreikning dráttarvaxta fer eftir vaxtalögum.
IV. KAFLI
Ýmis ákvæði.
12. gr.
Viðurlög.
Brot gegn lögum þessum varða sektum nema þyngri refsing liggi við samkvæmt öðrum lögum.
13. gr.
Ágreiningur um framkvæmd laganna.
Rísi ágreiningur um framkvæmd laga þessara og reglugerða settra samkvæmt þeim er heimilt að vísa málinu til fullnaðarúrskurðar ráðherra. Þetta gildir þó ekki um ágreining á grundvelli 6. gr. Um kærurétt og málsmeðferð fer eftir ákvæðum stjórnsýslulaga.
14. gr.
Gildistaka.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.
Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er meðal annars fjallað um úrvinnslu úrgangs og segir þar: „Hrint verði af stað umhverfisátaki, þar sem einstaklingar, fyrirtæki og sveitarfélög verði hvött til að endurnýta efni og flokka úrgang.“ Hafa verður í huga að flokkun úrgangs er ekki markmið í sjálfu sér heldur verðmætasköpun úr þeim úrgangi sem til fellur og því verður að safna honum saman aðgreindum.
Í upphafi árs 2000 skipaði umhverfisráðherra nefnd til að gera tillögur um aðgerðir sem stuðlað gætu að aukinni endurnýtingu úrgangs og tillögur um lagasetningu í því skyni. Nefndinni er ætlað fram til ársins 2003 að fara yfir þær skuldbindingar sem Ísland hefur tekið á sig með aðild að EES-samningnum hvað varðar úrvinnslu úrgangs og hvernig innleiða beri þær reglur. Frumvarp þetta er unnið af framangreindri nefnd í samráði við umhverfisráðuneytið. Lagt er til að sérstakt gjald verði lagt á tilteknar vörur til að hægt sé að endurnýta eða endurnota þann úrgang sem af þeim hlýst. Um er að ræða ökutæki, vinnuvélar, hjólbarða og eftirtalda efnisflokka umbúða: Pappír, pappa, karton og aðrar pappírsumbúðir, glært umbúðaplast, landbúnaðarplast og samsettar pappaumbúðir. Við undirbúning frumvarpsins var m.a. haft samráð við Samband íslenskra sveitarfélaga, Samtök atvinnulífsins, Samtök iðnaðarins, Samtök verslunar og þjónustu, Landssamband íslenskra útvegsmanna, Samtök fiskvinnslustöðva og Hollustuvernd ríkisins.
Á síðasta áratug hafa miklar breytingar átt sér stað í sorphirðumálum hér á landi. Aukinn áhugi á umhverfismálum hefur leitt af sér auknar kröfur einstaklinga, sveitarfélaga og atvinnulífs til þess að vörur hafi ekki skaðleg áhrif á umhverfið og að markvisst sé tekið á málum er varða úrgang. Segja má að lyft hafi verið grettistaki í þessum málum á síðustu árum. Aðild Íslands að EES-samningnum hefur í för með sér ýmsar skyldur á sviði sorphirðumála sem leysa verður með stjórnvaldsaðgerðum. Líta verður á kostnað við endurnýtingu, endurnotkun og förgun úrgangs sem eðlilegan kostnað við framleiðslu og notkun vörunnar. Tilgangur með því frumvarpi sem hér er lagt fram er að setja fram eins hagkvæmar lausnir á framkvæmd úrgangsmála og kostur er þar sem aðilar sem bera ábyrgð á málaflokknum, þ.e. einstaklingar, sveitarfélög og atvinnulífið hafi frumkvæði og samvinnu um málið. Lagt er til að starfseminni sé búið lagalegt umhverfi og sérstök nefnd þeirra sem að málinu koma sjái um framkvæmd laganna í samræmi við lög nr. 56/1996, um spilliefnagjald, en mjög góð reynsla er af framkvæmd þeirra laga.
Sett hafa verið lög sem hafa sama markmið og frumvarp þetta, þ.e. að draga úr magni úrgangs sem fer til urðunar og skapa hagræn skilyrði fyrir endurnotkun og endurnýtingu hans. Fyrstu lög sem sett voru í þessa veru voru lög nr. 52/1989, um ráðstafanir gegn umhverfismengun af völdum einnota umbúða fyrir drykkjarvörur. Síðar voru svo sett lög um spilliefnagjald, nr. 56/1996. Þar er um að ræða rammalöggjöf um afmarkaðan fjölda vöruflokka sem innihalda vörur sem geta orðið að spilliefnum. Spilliefnanefnd sér um framkvæmd laganna og vörslu spilliefnagjalds. Spilliefnagjald er lagt á viðkomandi vörur í innflutningi og á gjaldið að standa undir kostnaði við förgun vöruafganga viðkomandi vöruflokka. Hér er um þjónustugjald að ræða þar sem tekjur og gjöld í hverjum vöruflokki skulu standast á. Hvaða lögaðili sem er getur tekið að sér framkvæmd á einum eða fleiri verkþáttum gegn fyrirframákveðnu gjaldi, enda hafi viðkomandi tilskilin leyfi. Hugmyndin að baki laga um spilliefnagjald er að skapa hagrænt umhverfi fyrir atvinnurekstur sem starfar við söfnun, flutning, endurnýtingu og förgun á spilliefnaúrgangi. Að mestu hefur tekist að ná tökum á skilum spilliefna eftir setningu laganna.
Í frumvarpi þessu er gert ráð fyrir að farin verði sama leið og í lögum um spilliefnagjald og lagt til að reynslan af því verði nýtt til að skapa hagræn skilyrði fyrir úrvinnslu ökutækja, vinnuvéla, hjólbarða og þeirra efnisflokka umbúða sem taldir eru upp í 2. gr. Við innflutning og framleiðslu vöru á að greiða gjald af viðkomandi vöru, hafi verið tekin ákvörðun um að leggja úrvinnslugjald á hana. Gjaldið á að standa undir kostnaði við úrvinnslu úrgangs sem af vörunni leiðir. Nefnd um úrvinnslu úrgangs sem lagt er til að starfi samkvæmt lögunum semur við ríkissjóð um innheimtu gjaldsins gegn þóknun og við þar til bæran aðila um vörslu og ávöxtun þess. Á síðari stigum er reiknað með að neytandi vörunnar greiði úrvinnslugjaldið til baka í vöruverði. Úrvinnsla úrgangs skal fara fram í náinni samvinnu við viðkomandi sveitarfélög og aðra hagsmunaaðila. Hlutverk ríkisvaldsins er að skapa hagræn skilyrði sem nauðsynleg eru til að hrinda aðgerðunum í framkvæmd.
Samkvæmt frumvarpinu er heimilt að leggja gjald á vörur sem falla undir frumvarp þetta til þess að standa straum af kostnaði við úrvinnslu þess umbúðaúrgangs sem af þeim leiðir. Viðkomandi umbúðaúrgangi verður þá hægt að skila til móttökustöðva án greiðslu sérstaks móttökugjalds. Álögðu gjaldi verður varið til þess að greiða kostnað sem hlýst af endurvinnslu og annarri endurnýtingu umbúðaúrgangs eða förgun hans. Reglugerð nr. 609/1996, um meðferð umbúða og umbúðaúrgangs, tekur til allra umbúða sem settar hafa verið á markað. Reglugerðin var sett til að lögfesta tilskipun 94/62/EB, sem er hluti EES-samningsins. Markmiðið er að samhæfa ráðstafanir aðildarríkjanna við meðhöndlun umbúða og umbúðaúrgangs til að koma í veg fyrir eða draga úr áhrifum þeirra á umhverfið. Meðhöndlun umbúða skal fyrst og fremst miða að því að koma í veg fyrir myndun úrgangs, endurnota skal umbúðaúrgang sé þess kostur en endurvinna umbúðir og endurnýta umbúðaúrgang ella til að draga sem mest úr brennslu eða urðun. Til að uppfylla markmið 8. gr. reglugerðar nr. 609/ 1996, sem mælir fyrir um hversu hátt hlutfall umbúðaúrgangs skuli endurnýttur og endurnotaður fyrir 1. júlí 2001, er lagt til að lagt verði úrvinnslugjald á þá efnisflokka umbúða sem taldir eru upp í 2. gr. Lög nr. 52/1989, um ráðstafanir gegn umhverfismengun af völdum einnota umbúða fyrir drykkjarvörur, ná aðeins til lítils hluta þeirra umbúða sem falla undir framangreinda reglugerð. Þar er kveðið á um að lagt skuli skilagjald á innfluttar drykkjarvörur í einnota umbúðum úr stáli, áli, gleri eða plastefni. Sama gjald skal lagt á drykkjarvörur sem framleiddar eru eða átappaðar hér á landi og seldar í sams konar umbúðum.
Þá er lagt til að heimilt sé að leggja úrvinnslugjald á ökutæki, vinnuvélar og hjólbarða. Tilskipun 2000/53/EB, um ónýt ökutæki, hefur öðlast gildi hjá Evrópusambandinu en er ekki enn orðin hluti af EES-samningnum. Markmið hennar er að draga sem mest úr úrgangi sem fellur til við endurvinnslu ökutækja. Tilskipunin gerir ráð fyrir að sett verði á fót samræmt kerfi sem sinni móttöku, meðhöndlun og endurnýtingu ökutækja. Auk þess eru í tilskipuninni sett markmið fyrir endurnýtingu ökutækja. Lagt er til að gjald sé lagt á ökutæki við innflutning og að þeir fjármunir sem þannig eru innheimtir séu notaðir til að greiða fyrir söfnun og endurvinnslu ökutækjanna. Auk þess er gert ráð fyrir að hluti af gjaldinu geti verið skilagjald sem eigandi fær þegar hann kemur ökutæki sínu í endurvinnslu. Í þessu sambandi má nefna að í Noregi er lagt á jafnvirði um 13.000 ísl. kr. á innflutta bíla og skilagjald fyrir bílflak er um 15.000 kr. Jafnframt er lagt til að lagt verði úrvinnslugjald á hjólbarða. Samkvæmt tilskipun um urðun úrgangs, 1999/31/EB, sem væntanlega verður hluti af EESsamningnum innan skamms, verður bannað að urða hjólbarða á næstu árum. Því er nauðsynlegt að auka endurnýtingu á hjólbörðum hérlendis.
Í frumvarpinu er að finna skilgreiningar á því hvað er átt við með ökutækjum, vinnuvélum og hjólbörðum.
Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.
Í greininni kemur fram markmið laganna. Meginmarkmið þeirra er að skapa hagræn skilyrði fyrir endurnotkun og endurnýtingu úrgangs í þeim tilgangi að draga úr mengun og minnka það magn úrgangs sem fer til urðunar. Verði frumvarp þetta að lögum má gera ráð fyrir að endurnýting og endurnotkun úrgangs sem frumvarpið tekur til aukist verulega. Tilgangur frumvarpsins er að finna leið til þess að ná tökum á því vandamáli sem vaxandi úrgangsmagn neysluþjóðfélagsins hefur í för með sér. Hér er og farin leið svokallaðrar mengunarbótareglu (Polluter Pays Principle), þ.e. að sá sem til úrgangs stofnar greiði fyrir endurnýtingu, endurnotkun eða förgun þess úrgangs.
Um 2. gr.
Hér er kveðið á um gildissvið frumvarpsins en það tekur til eftirtaldra efnisflokka umbúða: Pappírs, pappa, kartons og annarra pappírsumbúða, glærs umbúðaplasts, landbúnaðarplasts og samsettra pappaumbúða. Þá taka lögin til hjólbarða, ökutækja og vinnuvéla. Þessir úrgangsflokkar eru hugsaðir sem fyrsta skref til að draga úr magni úrgangs en þegar reynsla er fengin af frumvarpi þessu, verði það að lögum, og þegar frekari vinna og sundurgreining hefur farið fram varðandi umfang annarra úrgangsflokka, t.d. rafeindatækja, munu væntanlega fleiri úrgangsflokkar bætast við og verða felldir undir lög um úrvinnslugjald. Til að taka af öll tvímæli er tekið fram í greininni að sorphreinsun sveitarfélaga falli ekki undir gildissvið frumvarpsins.
Um 3. gr.
Í greininni eru skilgreiningar á helstu orðum og orðasamböndum sem notuð eru í frumvarpinu og unnið hafa sér sess á þessu sviði. Lögð hefur verið áhersla á að samræma orðanotkun við gildandi lög og reglugerðir.
Um 4. gr.
Hér er kveðið á um að umhverfisráðherra fari með yfirstjórn þeirra mála sem frumvarpið fjallar um.
Um 5. gr.
Greinin kveður á um að nefnd um úrvinnslu úrgangs skuli fara með stjórn og umsýslu úrvinnslugjalds og framkvæmd frumvarpsins sem og stjórn spilliefnagjalds. Því þarf að leggja fram frumvarp til laga um breytingu á lögum um spilliefnagjald, nr. 56/1996. Þar verður lagt til að í stað spilliefnanefndar komi nefnd um úrvinnslu úrgangs, en hana skipi níu aðilar sem fari með stjórn spilliefnagjalds og framkvæmd laga um spilliefnagjald, auk þeirra verkefna sem að framan eru talin. Hér er lagt til að sama nefnd fari með stjórn úrvinnslugjalds og spilliefnagjalds og framkvæmd framangreindra laga. Hagkvæmara þykir að sama nefndin sjái um framkvæmd laga um spilliefnagjald og laga um úrvinnslugjald, verði frumvarp þetta að lögum. Nefndin mundi fjalla um úrvinnslu úrgangs og framkvæmdin við þessa úrvinnslu kemur til með að lúta svipuðum starfsháttum og verklagsreglum. Víðara starfssvið nefndarinnar kallar á fulltrúa fleiri hagsmunaaðila. Því er lagt til að í nefndina komi fulltrúi frá Samtökum verslunar og þjónustu og annar fulltrúi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga þannig að gætt verði bæði hagsmuna höfuðborgarsvæðis og landsbyggðar. Nefndinni er ætlað víðtækt samstarf við hagsmunaaðila og við aðila vinnumarkaðarins og samtök sveitarfélaga. Lagt er til að sett verði reglugerð um hlutverk nefndarinnar og starfshætti.
Um 6. gr.
Í greininni kemur fram hvaða vörur yrði heimilt að leggja á úrvinnslugjald, þ.e. þær vörur sem lögin tækju til, verði þetta frumvarp að lögum, sbr. 2. gr. frumvarpsins. Heimilt yrði að leggja gjaldið bæði á innfluttar vörur og innlenda framleiðslu. Það er innflytjandi viðkomandi vöru eða framleiðandi sem skal greiða úrvinnslugjaldið við innflutning og framleiðslu vörunnar.
Um 7. gr.
Greinin kveður á um undir hvaða kostnaði úrvinnslugjald skuli standa. Gjaldinu skal verja til að standa straum af kostnaði við söfnun og flutning úrgangs, kostnaði við móttöku og meðhöndlun sem og endurnýtingu eða endurnotkun vörunnar. Gjaldið skal og standa undir kostnaði við störf nefndar um úrvinnslu úrgangs, þ.m.t. kynningu og fræðslu vegna framkvæmdar frumvarpsins verði það að lögum, aðkeyptri sérfræðiþjónustu og upplýsingaöflun.
Úrvinnslugjald er þjónustugjald fyrir þá efnisþætti sem taldir eru upp hér að framan. Tengslin milli úrvinnslugjalds, þeirrar þjónustu sem gjaldinu er ætlað að standa undir og greiðanda gjaldsins eru þau að greiðandi tekst á hendur ákveðnar skuldbindingar sem fela það í sér að varan sem gjald er lagt á fær ákveðna þjónustu eftir notkun, þ.e. úrvinnslu þess úrgangs sem af vörunni hlýst. Með úrvinnslugjaldi er keypt sú þjónusta sem til þarf og er hún greidd við innflutning eða framleiðslu vörunnar. Gjaldið skal einvörðungu standa undir þeirri þjónustu og ekki vera hærra en nemur kostnaði við þjónustuna. Vara getur farið á milli manna áður en til þjónustunnar kemur. Rafgeymi sem hefur meðallíftíma 5 ár kann t.d. vera skilað til móttökustöðvar af öðrum en upphaflegum kaupanda. Frumvarpið gerir því ráð fyrir að þeim sem setur vöru á markað sem lagt hefur verið á úrvinnslugjald verði jafnframt gert að greiða kostnaðinn við úrvinnslu úrgangs vörunnar. Þar sem úrvinnsla er eðli máls samkvæmt ekki tímabær um leið og vöru er komið í umferð er gjaldið greitt fyrir fram. Við meðhöndlun úrgangs ber að fara að ákvæðum reglugerðar nr. 805/1999, um úrgang, og er í 6. gr. þeirrar reglugerðar lagt bann við því að skilja eftir, flytja, dreifa eða geyma úrgang á þann hátt að valdið geti skaða, mengun eða lýtum á umhverfinu.
Kveðið er á um hámark gjaldsins en jafnframt að gjöld og tekjur skuli standast á. Erfitt er að festa upphæð gjalds nema ákveðnar upplýsingar liggi áður fyrir. Þannig verður gjaldið að byggjast á áætlun á innflutnings- og framleiðslumagni vörunnar sem er breytilegt milli ára og innan árs. Magn úrgangs verður einnig að áætla og þar með kostnað við úrvinnslu hans. Nefnd um úrvinnslu úrgangs er ætlað að gera nákvæmari áætlanir og útreikninga varðandi álagningu gjaldsins hvað viðvíkur úrvinnslu viðkomandi úrgangsefna og byggja kostnaðarmat sitt á útboðum eða verksamningum þar sem því verður við komið. Gert er ráð fyrir að upphæð gjaldsins verði ákvörðuð í reglugerð samkvæmt tillögum nefndarinnar. Eftir því sem unnt er skal nefndin bjóða út einstaka þætti úrvinnslunnar, svo sem flutninga, söfnun, móttöku, endurnýtingu eða endurnotkun. Ef ekki þykir grundvöllur til útboðs getur nefndin samið við einstaka aðila um framkvæmd ákveðinna þátta eða gert tillögu um gjald fyrir hana þar sem það á við. Nefndin skal hafa að leiðarljósi að ná sem bestum árangri með sem minnstum tilkostnaði.
Lagt er til að heimilt verði að nýta hluta úrvinnslugjalds til að greiða skilagjald til þess sem skilar tilteknum úrgangi til viðurkenndrar móttökustöðvar. Má hugsa sér að slíkt verði m.a. notað þegar um umbúðir er að ræða, t.d. fernur, og einnig um ökutæki og vinnuvélar.
Lagt er til að hámarksgjald fyrir efnisflokka umbúða verði 150 kr. á hvert kg og á það við um öll umbúðaefni. Í reynd verður gjaldið mishátt eftir kostnaði við endurnýtingu umbúðaefnis. Í tilvikum þar sem umbúðir eru samsettar úr fleiri en einu efni verður endanlegt gjald vegið meðaltal af nauðsynlegu gjaldi fyrir hvert umbúðaefni fyrir sig. Sem dæmi má nefna að séu umbúðir 80% pappi og 20% plast yrði gjaldið samtala 80% af nauðsynlegu gjaldi fyrir pappa og 20% af nauðsynlegu gjaldi fyrir plast. Til samanburðar er fróðlegt að skoða gjald fyrir umbúðir sem merktar eru Græna punktinum í Þýskalandi. Það er samsett úr annars vegar gjaldi á þyngdareiningu og hins vegar gjaldi á rúm- eða flatarmál. Gjaldið á þyngdareiningu er 9,4 kr. á hvert kg fyrir gler, 14,5 kr á hvert kg fyrir pappír og pappa, 20,3 kr. á hvert kg fyrir járn, 54,3 kr. á hvert kg fyrir ál, 107,1 kr. á hvert kg fyrir plast, 61,7 kr. á hvert kg fyrir samsettar drykkjarvöruumbúðir og 76 kr. á hvert kg fyrir samsettar umbúðir, t.d. jógúrtdósir með álloki. Rúm- og flatarmálsgjaldið er 3,6–43,4 kr. á einingu. Þessar krónutölur eru miðaðar við gengi þýska marksins 1 DEM = 36,30 ísl. kr. Lagt er til að hámarksgjald fyrir hjólbarða verði 40 kr. á hvert kg. Endanleg álagning verður hugsanlega stykkjagjald sem fer eftir þyngd hjólbarðans. Þá er lagt til að hámarksgjald fyrir ökutæki og vinnuvélar verði 20.000 kr. á hvert tæki. Gjaldið verður væntanlega hærra fyrir vinnuvélar en ökutæki þar sem kostnaðarsamara er að endurnýta þær.
Um 8. gr.
Í greininni er kveðið á um að nefnd um úrvinnslu úrgangs semji við þar til bæran aðila um ávöxtun og vörslu úrvinnslugjalds. Ríkisendurskoðun skal endurskoða reikninga nefndarinnar og skulu þeir birtir í B-deild Stjórnartíðinda.
Um 9. gr.
Hér er lagt til að fyrirtæki eða atvinnugreinar geti gert með sér samninga um endurnýtingu og endurnotkun úrgangs til að ná markmiðum frumvarpsins. Slíkir samningar skulu staðfestir af ráðherra en nefnd um úrvinnslu úrgangs og Hollustuvernd ríkisins skulu gefa umsögn um þá. Ráðherra getur þá undanþegið viðkomandi vörur úrvinnslugjaldi. Dæmi um slíka samninga er samningur sem olíufélögin hafa gert um söfnun, flutninga og eyðingu svartolíuúrgangs. Samningar sem hér er mælt fyrir um eru vel þekktir í nágrannalöndum okkar.
Um 10. gr.
Greinin kveður á um með hvaða hætti úrvinnslugjald skuli innheimt og gjalddaga þess. Innlendur framleiðandi skal skila framleiðsluskýrslu þegar gjaldið er innt af hendi.
Um 11. gr.
Í greininni er kveðið á um álag sem lagt skal á sé úrvinnslugjald ekki greitt á gjalddaga eða hafi framleiðsluskýrslu ekki verið skilað. Ákvæði um álag er í samræmi við lög um virðisaukaskatt, nr. 50/1988, sbr. 27. gr. þeirra laga.
Um 12. gr.
Kveðið er á um refsingu fyrir brot gegn ákvæðum laganna. Varðar brot sektum nema þyngri refsing liggi við samkvæmt öðrum lögum.
Um 13. gr.
Hér er kveðið á um rétt aðila til að kæra til ráðherra ágreining vegna framkvæmdar laganna og reglugerða settra samkvæmt þeim. Í ágreiningsmálum um tollflokkun vöru skal fara eftir ákvæðum tollalaga, nr. 55/1987, sbr. 6. gr. Ákvæði stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, gilda um kærurétt og málsmeðferð.
Um 14. gr.
Greinin þarfnast ekki skýringa.
Fylgiskjal I.
Greinargerð starfshóps um endurnýtingu úrgangs.
Inngangur
Starfshópur um endurnýtingu úrgangs sem unnið hefur að lagafrumvarpi um úrvinnslugjald hefur í meðfylgjandi greinargerð dregið saman helstu forsendur og ýmsar upplýsingar sem gengið var út frá við vinnu starfshópsins.
Meðfylgjandi skýringarmynd sýnir rásir úrgangs.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Umbúðaúrgangur
Samkvæmt frumvarpinu verður lagt gjald á vörur og þrjá efnisflokka umbúða til þess að standa straum af kostnaði vegna úrvinnslu þess umbúðaúrgangs sem af þeim leiðir. Viðkomandi umbúðaúrgangi verður þá hægt að skila til móttökustöðva án greiðslu sérstaks móttökugjalds. Álagt gjald fer til þess að greiða þann kostnað sem hlýst af endurvinnslu og annarri endurnýtingu umbúðaúrgangs eða förgun hans.
Lagaumhverfi
Reglugerð nr. 609/1996, um meðferð umbúða og umbúðaúrgangs, tekur til allra umbúða sem settar hafa verið á markað. Umbúðareglugerðin var sett til að lögfesta umbúðatilskipun Evrópusambandsins nr. 94/62/EB sem er hluti EES-samningsins. Lög nr. 52/1989, um ráðstafanir gegn umhverfismengun af völdum einnota umbúða fyrir drykkjarvörur, taka aðeins til skilgreinds hluta þeirra umbúða sem falla undir umbúðareglugerðina.
Umbúðatilskipunin
Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 94/62/EB, um umbúðir og umbúðaúrgang, tók gildi 31. desember 1994 með birtingu í Stjórnartíðindum EB og varð hluti EES-samningsins ári síðar, 31. desember 1995. Samkvæmt ákvæðum samningsins skyldi tilskipunin lögfest hér á landi fyrir 1. júlí 1996. Um leið bar að fella úr gildi tilskipun ráðsins 85/339/EBE, um umbúðir fyrir drykkjarvörur.
Tilgangur tilskipunarinnar er að samræma aðgerðir aðildarríkjanna við meðhöndlun umbúða og umbúðaúrgangs og koma í veg fyrir eða draga úr áhrifum þeirra á umhverfið. Markmiðið er að samhæfa ráðstafanir aðildarríkjanna við meðhöndlun umbúða og umbúðaúrgangs til að koma í veg fyrir eða draga úr áhrifum þeirra á umhverfið í öllum aðildarríkjunum og þriðju löndum. Meðhöndlun umbúða skal fyrst og fremst miða að því að koma í veg fyrir myndun úrgangs, endurnota skal umbúðaúrgang sé þess kostur en endurvinna umbúðir og endurnýta umbúðaúrgang ella til að draga sem mest úr brennslu eða urðun.
Gildissvið tilskipunarinnar tekur til allra umbúða í skilningi tilskipunarinnar sem settar hafa verið á markað í aðildarríkjum og alls umbúðaúrgangs. Undir umbúðir í skilningi tilskipunarinnar falla söluumbúðir (grunnumbúðir), safnumbúðir (annars stigs umbúðir) og flutningsumbúðir (þriðja stigs umbúðir), þó ekki ílát til farmflutninga á vegum, með skipum eða flugvélum.
Í tilskipuninni eru sett fram eftirfarandi skammtímamarkmið:
1. Fimm árum eftir gildistöku tilskipunarinnar skulu minnst 50% og mest 65% af þyngd umbúðaúrgangs endurnýtt.
2. Innan þessa tíma og innan þessa skammtímamarkmiðs skulu minnst 25% og mest 45% af þyngd allra pökkunarefna í umbúðaúrgangi endurunnin með minnst 15% af þyngd fyrir hvert umbúðahráefni.
3. Ráðið mun ákveða hvaða hundraðshluti umbúðaúrgangs skal endurunninn og endurnýttur tíu árum eftir gildistöku tilskipunarinnar.
Umbúðareglugerðin
Til lögfestingar framangreindri tilskipun Evrópusambandsins setti umhverfisráðherra í nóvember 1996 reglugerð nr. 609/1996, um meðferð umbúða og umbúðaúrgangs. Markmið reglugerðarinnar er m.a. að draga úr magni umbúða sem er fargað, minnka heildarrúmmál umbúða, koma í veg fyrir myndun umbúðaúrgangs og stuðla að endurnotkun umbúða og endurnýtingu umbúðaúrgangs.
Reglugerðin tekur til allra umbúða sem settar hafa verið á markað. Aðeins eftirfarandi notkunarsvið umbúða falla undir hugtakið umbúðir:
. söluumbúðir eða grunnumbúðir (fyrsta stigs umbúðir),
. safnumbúðir (annars stigs umbúðir),
. flutningsumbúðir (þriðja stigs umbúðir). (Gámar til vöruflutninga eru ekki taldir til flutningsumbúða.)
Eftir 1. júlí 1999 má aðeins setja á markað umbúðir sem eru í samræmi við þær kröfur sem fram koma í reglugerðinni.
Umbúðir skulu auðkennast með merki sem segir til um efnisgerð þeirra.
Styrkur þungmálma í umbúðum skal ekki fara yfir ákveðin mörk.
Setja skal upp áætlun um hvernig komið verði í veg fyrir myndun umbúðaúrgangs og hvernig umbúðir verði endurnotaðar.
Í 8. gr. reglugerðar eru tilgreind markmið reglugerðarinnar með endurnýtingu og endurvinnslu umbúðaúrgangs:
„Eftir 1. júlí 2001 skal minnst 50% og mest 65% af þyngd umbúðaúrgangs endurnýtt.
Innan þeirra marka og á sama tíma, og um getur í 1. mgr., skal minnst 25% og mest 45% af þyngd allra umbúðaefna í umbúðaúrgangi endurunnið, þar af minnst 15% af þyngd allra umbúðaefna í umbúðaúrgangi fyrir hverja tegund umbúðaefnis.
Orkuvinnsla úr umbúðaúrgangi og lífræn endurvinnsla umbúðaúrgangs eru aðferðir til endurnýtingar.“
Til að ná þessum markmiðum reglugerðarinnar og til að setja upp áætlun þar að lútandi skipar umhverfisráðherra umsjónarnefnd. Hún á að hafa lokið störfum eigi síðar en í nóvember 1997.
Koma skal upp og varðveita gagnagrunn um umbúðir og umbúðaúrgang úr gleri, plasti, pappír/pappa (þ.m.t. samsettar pappaumbúðir), málmi, viði, og öðrum efnum að því er varðar fyrsta, annars og þriðja stigs umbúðir eins og fram kemur í viðaukum með reglugerðinni.
Hollustuvernd ríkisins skal sjá um að setja upp og varðveita gagnagrunn um umbúðir og umbúðaúrgang.
Umsjónarnefnd
Umsjónarnefnd skipuð samkvæmt ákvæðum 9. gr. reglugerðar nr. 609/1996 tók til starfa í mars 1997 og átti að ljúka störfum eigi síðar en í nóvember 1997. Hún var skipuð fulltrúum umhverfisráðuneytis, Hollustuverndar ríkisins, Vinnumálasambandsins, Samtaka iðnaðarins, Vinnuveitendasambands Íslands og Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Umsjónarnefndin gerði grein fyrir störfum sínum á tilsettum tíma. Hafði hún þá tekið saman og kortlagt magn umbúðaúrgangs sem til féll á landinu 1995 og skipt því upp í eftirfarandi sjö efnisflokka, sbr. reglugerð 609/1996, um umbúðir og umbúðaúrgang.
1. Pappír, pappi, karton (PPK)
. Pappír
. Pappi
. Karton og aðrar pappírsumbúðir
2. Plastumbúðir
. Landbúnaðarplast
. Drykkjarflöskur
3. Glerumbúðir
. Drykkjarflöskur
4. Málmumbúðir
5. Samsettar pappaumbúðir (mjólkur- og safafernur o.þ.h.)
6. Umbúðir úr timbri
7. Umbúðir úr spunaefnum (textíl)
Umhverfisráðherra fór þess á leit við umsjónarnefndina að hún héldi áfram störfum til að freista þess að leita úrræða til að ná fram markmiðum laganna. Hefur síðan verið unnið að gerð módels sem haldið gæti utan um hagræna stýringu á endurnýtingu umbúðaúrgangs. Það er byggt á sömu hugmyndafræði og fram kemur í lögum um spilliefnagjald, þ.e. að gjald er tekið af umbúðum við innflutning vöru eða sölu á innlendri framleiðslu og greitt aftur við förgun þess umbúðaúrgangs sem til fellur. Hönnun þessa módels er nú á lokastigi.
Einnota drykkjarvöruumbúðir
Lög nr. 52/1989, um ráðstafanir gegn umhverfismengun af völdum einnota umbúða fyrir drykkjarvörur, ná aðeins til skilgreinds hluta þeirra umbúða sem falla undir umbúðareglugerðina. Lögin kveða á um að lagt skuli skilagjald á innfluttar drykkjarvörur í einnota umbúðum úr málmi, gleri eða plastefni. Sama gjald skal lagt á drykkjarvörur sem framleiddar eru eða átappaðar hér á landi og seldar í sams konar umbúðum. Til viðbótar skilagjaldi skal með sama hætti leggja á umsýsluþóknun.
Iðnaðarráðherra beitir sér fyrir stofnun hlutafélags sem tekur að sér umsýslan skilagjaldsins, svo og söfnun og endurvinnslu einnota umbúða sem falla undir lögin. Hlutafélagið Endurvinnslan hf., sem starfrækt hefur verið frá 1989, hefur einkarétt á þessari starfsemi og fær umsýsluþóknun skilagjaldsins til að standa undir rekstrinum, auk skilagjalds af þeim umbúðum sem ekki er skilað.
Rekstur Endurvinnslunnar hf. hefur fram að þessu staðið undir sér á framangreindum forsendum. Vegna þeirra breytinga sem orðið hafa á rekstrarumhverfinu undanfarið hafa forráðamenn fyrirtækisins farið fram á breytingu á framangreindum lögum til að bæta rekstrarskilyrðin. Breytingar sem orðið hafa á rekstrarumhverfi Endurvinnslunnar hf. felast einkum í breytingu á tegundum umbúða í umferð, áherslubreytingu í söfnun umbúðaúrgangs, breyttum verðlagsforsendum innan lands og lækkun á markaðsverði afurðanna erlendis.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Leiðir að markmiðum
Eins og fram kemur hér að framan er í 8. gr. reglugerðar tilgreint hvaða markmiðum skuli ná fyrir 1. júlí 2001, nánar tiltekið að 50–65% umbúðaúrgangs verði endurnýtt, 25–45% allra umbúðaefna endurunnin, þó ekki lægra hlutfall en 15% í hverri umbúðategund.
Í töflu 2 hér á eftir, sem er einfölduð mynd af töflu 1, er staða mála í endurnýtingu umbúðaúrgangs sýnd eins og hún var 1995. Ekki er völ á nýrri tölum en ætla má að ástandið 1995 enduspegli að miklu leyti núverandi ástand.
Tafla 2. Endurnýting umbúðaúrgangs 1995.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Úr töflunni má lesa að endurnýtingin árið 1995 nær aðeins 20% í stað 50–65%, endurvinnsla nær aðeins 19% í stað 25–45% og upp á vantar í þremur umbúðategundum, plasti, PPK og samsettum pappaumbúðum að tilskildum 15% sé náð.
Til að ná settum markmiðum í endurnýtingu umbúðaúrgangs eru eftirfarandi leiðir hugsanlegar:
Plast
Lagt yrði förgunargjald á landbúnaðarplast í innflutningi til að tryggja skil til endurvinnslu þess með framleiðslu á brettakubbum, girðingastaurum o.fl. í huga. Gjaldið yrði einnig notað til að skapa fjárhagslegt umhverfi fyrir slíka endurvinnslu.
Gjald yrði lagt á innflutning á glæru umbúðaplasti sem notað er í flutningsumbúðir fyrir innlenda framleiðslu. Einnig yrði lagt á slíkar flutningsumbúðir sem berast til landins með innfluttum vörum, enda er verið að skoða hugmyndir að endurvinnslu á glæru plasti.
PPK
Lagt verði gjald á umbúðapappa sem berst með innfluttum vörum. Rekinn verður áróður fyrir flokkun pappa frá almennum úrgangi. Álagt gjald greiði fyrir flokkun og söfnun á slíkum úrgangi. Pappinn verði síðan endurunninn eða endurnýttur.
Samsettar pappaumbúðir
Rekinn verði áróður fyrir flokkun og söfnun á fernum undan mjólk, safa o.fl. til að auka skil þeirra á söfnunarstaði sveitarfélaganna. Fernurnar yrðu endurunnar eða endurnýttar.
Með framangreindum breytingum tæki tafla 2 á sig eftirfarandi mynd:
Tafla 3. Endurnýting umbúðaúrgangs með framangreindum breytingum.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér hefur markmiðum reglugerðar fyrir endurvinnslu- og endurnýtingu umbúðaúrgangs verið fullnægt. Ef tekið er mið af kostnaðartölum nágrannalandanna má ætla að kostnaður við þessar aðgerðir verði um 469 millj. kr., eins og fram kemur í eftirfarandi töflu.
Tafla 4. Áætlaður kostnaður.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Það skal tekið fram að öll úrvinnsla umbúðaúrgangs er flókið ferli og framangreindir uppsláttarreikningar því bundnir allnokkurri óvissu.
Ökutæki
Til að draga úr umhverfisvanda af völdum ökutækjaflaka hefur undanfarin ár verið unnið að tillögu að nýrri tilskipun um förgun flakanna. Markmið hennar er að draga sem mest úr úrgangi sem fellur til við endurvinnslu ökutækja. Tilskipunin gerir ráð fyrir að sett verði á fót heildstætt kerfi móttöku, meðhöndlunar og endurnýtingar ökutækja. Samkvæmt tilskipuninni er gert ráð fyrir að þessu kerfi verði komið á frá og með janúar 2001. Auk þess eru í tilskipuninni sett markmið fyrir endurvinnsluhlutföll ökutækja.
Engin úttekt hefur verið gerð á því hversu mörg ökutækjaflök eru í hirðuleysi víðs vegar um landið. Hins vegar er vitað að æði víða er samsafn ónýtra ökutækja og vinnuvéla, sem og annarra tækja.
Vísbending um vandann er fjöldi afskráðra ökutækja annars vegar og fjöldi ökutækja sem fara í endurvinnslu hjá þeim aðilum sem taka á móti brotajárni og flytja út hins vegar.
Myndin hér á eftir sýnir fjölda nýskráðra og afskráðra ökutækja annars vegar og mat á fjölda ökutækja sem hafa verið meðhöndluð af endurvinnsluaðilum hins vegar. Með í tölunum eru fólks-, hóp- og sendi- og vörubifreiðir auk dráttarvéla. Erfitt er að bera saman tölur um afskráð ökutæki og þau sem eru endurunnin á sama ári þar sem uppsafnaður vandi fyrri ára er verulegur. Þess ber einnig að geta að nokkuð er um að ökutæki séu afskráð án þess að þau séu ónýt og þau síðan endurskráð seinna. Aðeins tveir aðilar taka á móti ökutækjaflökum til endurvinnslu og eru báðir á höfuðborgarsvæðinu. Því má ætla að vandinn sé meiri á landsbyggðinni en á höfuðborgarsvæðinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Endurvinnsla á ökutækjaflökum stendur undir sér miðað við meðalheimsmarkaðsverð á brotajárni. Hins vegar er ekki unnt að leggja í mikinn kostnað við að safna þeim saman. Myndin sýnir skiptingu afskráðra ökutækja eftir landshlutum.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Sveitarfélög á landsbyggðinni hafa lagt mismikla vinnu í að safna þessum flökum saman og koma þeim til endurvinnslu. Nauðsynlegt er að tryggja fjármagn til að ná frekari árangri.
Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að gjald sé lagt á ökutæki við innflutning og að þeir fjármunir sem þannig eru innheimtir séu notaðir til að greiða fyrir söfnun og endurvinnslu á ökutækjunum. Auk þess er gert ráð fyrir að hluti af gjaldinu geti verið skilagjald sem eigandi ökutækis fær þegar hann kemur því í endurvinnslu.
Í Noregi er lagt á um 13.000 kr. gjald á innflutta bíla, en greitt skilagjald fyrir bílflak er um 15.000 kr. Miðað við þessar upphæðir og fjölda skráninga og afskráninga 1998 hefði innheimt gjald 1998 verið um 220 millj. kr. og greitt skilagjald um 140 millj. kr. Hér er hvorki gert ráð fyrir misháu gjaldi eftir stærð ökutækis né vanda fyrri ára. Auk þess ber að hafa í huga að verulegar sveiflur eru í innflutningi á ökutækjum og þar af leiðandi fjölda ökutækja sem berst til endurvinnslu en gera má ráð fyrir að meðalaldur ökutækja sé um 10 ár eins og myndin hér á eftir sýnir. Þess vegna er ekki líklegt að innheimt gjald og útgreitt skilagjald standist alltaf á.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hjólbarðar
Innflutningur hjólbarða
|
Nýir gúmmíhjólbarðar fyrir bíla, meðaltal fyrir árin 1997–1999 |
Magn, kg | Meðalþyngd, kg | Magn, stk. | CIF-meðalverð, kr/kg |
| Innfluttir | 1.822.000 | 6 | 303.000 | 335 |
| Innfluttir sólaðir | 404.000 | 6 | 67.300 | 227 |
| Innfluttir til sólningar | 656.000 | 6 | 109.400 | 95 |
| Aðrir nýir hjólbarðar | 95.700 | 6 | 16.000 | 350 |
| Nýir gúmmíhjólbarðar fyrir almenningsvagna og vörubíla, meðaltal fyrir árin 1997–1999 | ||||
| Innfluttir nýir | 489.700 | 40 | 12.250 | 314 |
| Aðrir hjólbarðar, t.d. fyrir reiðhjól,bifhjól, flugvélar. | ||||
| Reiðhjól | 3.471 | 0,75 | 4.628 | 623 |
| Bifhjól | 6.919 | 2 | 3.460 | 630 |
| Flugvélahjólbarðar | 7.950 | 1.115 | ||
| Nýir bílar | 1.000.000 | 100.000 | ||
| Samtals: | 4.485.740 | 616.038 | ||
Árlegur innflutningur á hjólbörðum er um 4.500 tonn. Má ætla að svipað magn falli til árlega af ónýtum eða notuðum hjólbörðum á ári. Stærsti hluti þessara hjólbarða er urðaður en eitthvað fer til brennslu eða endurvinnslu. Kostnaður við urðun og brennslu er 10–15 kr. á kg sem samsvarar ef allt fer í þennan farveg 45–70 millj. kr. Sá hluti sem fer til endurvinnslu er áætlaður um 10%, sem samsvarar um 450 tonnum, og fer einkum í sólningu og framleiðslu á ýmsum gúmmíhlutum. Um 15% af heildarinnflutningi hjólbarða er innflutningur á notuðum hjólbörðum sem að hluta til eru notaðir til sólningar.
Væntanleg er löggilding á tilskipun Evrópusambandsins um urðun þar sem lagt er bann við urðun á hjólbörðum á næstu árum. Þetta gefur ærna ástæðu til að endurskoða stöðu þessara mála með aukna endurvinnslu og endurnýtingu á hjólbörðum hérlendis í huga.
Í þessu sambandi virðist orkunýting á einn eða annan hátt skipta mestu máli. Í nágrannalöndum okkar er stór hluti af ónýtum og notuðum hjólbörðum notaður sem orkugjafi í sementsverksmiðjum.
Einnig má benda á að með flokkun á notuðum hjólbörðum sem falla til hérlendis má ætla að innflutningur á notuðum hjólbörðum til sólningar verði óþarfur.
Í flestum endurnýtingarleiðum er flokkun og kurlun hjólbarða nauðsynleg, misgróf eftir leiðum.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Heildarkostnaður
Gróft mat á heildarkostnaðarauka vegna þeirra aðgerða sem frumvarpið tekur til er 500–600 millj. kr. eins og fram kemur í töflunni hér á eftir.
| Í millj. kr. | Kostnaður samkvæmt frumvarpi | Núverandi urðunarkostnaður | Kostnaðarauki |
| Umbúðir | 469 | 150 | 319 |
| Ökutæki og vinnuvélar | 300 | 1001 | |
| Hjólbarðar | 180 | 53 | 127 |
| Samtals | 949 | 203 | 546 |
Fylgiskjal II.
Fjármálaráðuneyti,
fjárlagaskrifstofa:
Umsögn um frumvarp til laga um úrvinnslugjald.
Með setningu reglugerðar nr. 609/1996, um meðferð umbúða og umbúðaúrgangs, var lögfest umbúðatilskipun Evrópusambandsins nr. 94/62. Reglugerðin og tilskipunin tilgreina ákveðin markmið, bæði í endurvinnslu og endurnýtingu umbúðaúrgangs, sem ná skal innan fimm ára frá gildistöku þeirra. Þeim markmiðum hafa Íslendingar enn ekki náð hvað varðar plastumbúðir, pappaumbúðir og samsettar pappaumbúðir.
Í fylgiskjali með frumvarpinu, greinargerð starfshóps um endurnýtingu úrgangs, er bent á þær leiðir til að ná settum markmiðum í endurvinnslu og endurnýtingu umbúðaúrgangs, að úrvinnslugjald verði lagt á landbúnaðarplast, glært umbúðaplast sem notað er í flutningsumbúðir og umbúðapappa sem berst með innfluttum vörum og vörum framleiddum innanlands, ásamt því að rekinn verði áróður fyrir flokkun á pappa frá öðrum úrgangi og söfnun á fernum undan drykkjarvörum til að auka skil þeirra á söfnunarstaði.
Nefnd umhverfisráðherra um endurnýtingu úrgangs, sem unnið hefur að samningu frumvarpsins í samvinnu við umhverfisráðuneytið, vinnur nú að heildarúttekt á stöðu úrgangsmála í landinu og gerð úrvinnsluáætlunar. Það er mat nefndarinnar að kostnaður við að ná framangreindum markmiðum í endurvinnslu og endurnýtingu umbúðaúrgangs geti orðið nálægt 470 m.kr. á ári. Úrvinnslugjaldi á umbúðir er ætlað að afla þeirra fjármuna. Á móti kemur að atvinnulífið greiðir nú þegar í kringum 100 m.kr. á ári fyrir losun á umbúðasorpi, miðað við núgildandi gjaldskrá Sorpu og sama magn. Sú gjaldtaka mundi falla niður við upptöku úrvinnslugjalds.
Í greinargerðinni kemur einnig fram að væntanleg sé löggilding á tilskipun Evrópusambandsins um urðun þar sem kveðið er á um bann við urðun hjólbarða á næstu árum. Einnig segir þar að unnið sé að gerð nýrrar tilskipunar um förgun ökutækjaflaka með það að markmiði að draga sem mest úr úrgangi sem til falli við endurvinnslu þeirra og að sett verði á fót heildstætt kerfi sem sinni móttöku, meðhöndlun og endurnýtingu ökutækja. Því er í frumvarpinu einnig gert ráð fyrir að heimilt verði að leggja úrvinnslugjald á hjólbarða, ökutæki og vinnuvélar til að standa undir kostnaði við aukna endurvinnslu og endurnýtingu þeirra.
Árlega eru um 4.500 tonn af hjólbörðum flutt til landsins og ætla má að svipað magn falli árlega til sem úrgangur. Stærstur hluti ónýtra hjólbarða hefur lengst af verið urðaður en eitthvað hefur þó farið til brennslu og endurvinnslu. Sorpa hefur að vísu ekki urðað ónýta hjólbarða undanfarin þrjú ár, heldur safnað í fjall. Mat nefndarinnar er að kostnaður við úrvinnslu hjólbarða yrði um 180 m.kr. á ári. Miðað við núverandi gjaldskrá er árlegt móttökugjald þessa magns hjólbarða í kringum 40 m.kr. Þess ber þó að geta að líkur eru á að gjaldskráin muni hækka um mitt þetta ár og gjaldtakan fari þá í um 70 m.kr. á ári. Þessi gjaldtaka mundi falla niður við upptöku úrvinnslugjalds.
Árlega eru nýskráð að meðaltali ríflega 13.700 ökutæki hér á landi og er þá miðað við meðaltal áranna 1986–1999. Á höfuðborgarsvæðinu og stærstu þéttbýlisstöðum fer nú þegar fram söfnun bílhræja til endurnýtingar og niðurrifs og stendur sú starfsemi fjárhagslega undir sér. Verði á hinn bóginn gerðar auknar kröfur um endurvinnslu, endurnýtingu og tilhögun slíkrar starfsemi má búast við að þeim fylgi aukinn kostnaður. Erfitt er að meta á þessu stigi hver sá kostnaður yrði en frumvarpið gerir ráð fyrir að heimilt verði að leggja allt að 20.000 kr. úrvinnslugjald á hvert tæki. Úrvinnslugjald sem lagt yrði á ökutæki og vinnuvélar gæti því orðið í kringum 300 m.kr. að meðaltali á ári. Frumvarpið gerir ráð fyrir að heimilt verði að nýta hluta úrvinnslugjalds sem skilagjald. Ekki er ólíklegt að hluti úrvinnslugjalds á ökutæki og vinnuvélar verði nýttur til þess og í greinargerðinni er reiknað með að 2/3 hlutar úrvinnslugjalds á ökutæki og vinnuvélar verði nýttir sem skilagjald.
Niðurstaðan er því sú, verði frumvarpið óbreytt að lögum, að úrvinnslugjald á varning þann er frumvarpið nær til gæti orðið u.þ.b. 950 m.kr. á ári, en þar af verði um 200 m.kr. nýttar sem skilagjald. Á móti kemur að atvinnulífið greiðir nú þegar í kringum 140–170 m.kr. á ári í móttökugjöld. Þau gjöld mundu falla niður.
Hvað áhrif úrvinnslugjalds á afkomu ríkissjóðs varðar er til þess að líta að í frumvarpinu er mælt fyrir um að gjaldið skuli standa undir öllum kostnaði við framkvæmd laganna og að tekjur og gjöld skuli standast á. Ríkissjóður mun því ekki bera beinan kostnað við framkvæmd laganna heldur mun kostnaður ráðast af verðlagsáhrifum gjaldsins og notkun ríkisins á gjaldskyldum varningi.