Ferill 685. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.


126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 1064  —  685. mál.




Frumvarp til laga



um breyting á lögum nr. 144/1994, um ársreikninga, með síðari breytingum.

(Lagt fyrir Alþingi á 126. löggjafarþingi 2000–2001.)


1. gr.

    9. tölul. 2. mgr. 1. gr. laganna orðast svo:
     9.      ársreikningaskrá: skrá sem starfrækt er í því skyni að taka á móti, geyma og birta ársreikninga skilaskyldra félaga.

2. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 4. gr. laganna:
a.     Í stað orðsins „félagaskrá“ í 4. tölul. 1. mgr. kemur: ársreikningaskrá.
b.     Í stað orðsins „Félagaskrá“ í 1. og 2. málsl. 2. mgr. kemur: Ársreikningaskrá.

3. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 69. gr. laganna:
a.     Í stað orðsins „félagaskrá“ í 1., 2. og 3. mgr. kemur: ársreikningaskrá.
b.     Á eftir 3. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
         Ráðherra ákveður aðsetur ársreikningaskrár.


4. gr.

    Í stað orðsins „félagaskrá“ í 70. gr. laganna kemur: ársreikningaskrá.

5. gr.

    Í stað orðsins „félagaskrá“ í 1. mgr. 71. gr. laganna kemur: ársreikningaskrá.

6. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 73. gr. laganna:
a.     1. mgr. orðast svo:
         Útibússtjórar í útibúum erlendra félaga, sem skráð eru hér á landi, skulu í síðasta lagi átta mánuðum eftir lok reikningsárs senda staðfest endurrit ársreiknings eða samstæðureiknings félagsins til ársreikningaskrár ásamt reikningsskilum útibúsins.
b.     Í stað orðsins „félagaskrá“ í 2., 3. og 4. mgr. kemur: ársreikningaskrá.


7. gr.

    Í stað orðsins „félagaskrá“ í 1. og 2. mgr. 74. gr. laganna kemur: ársreikningaskrá.


8. gr.

    Í stað orðsins „félagaskrá“ í 1. og 2. mgr. 75. gr. laganna kemur: ársreikningaskrá.


9. gr.

    Í stað orðsins „félagaskrá“ í 1., 2., 3. og 4. mgr. 76. gr. laganna kemur: ársreikningaskrá.

10. gr.

    Í stað orðsins „félagaskrá“ í 1. mgr. 77. gr. laganna kemur: ársreikningaskrá.

11. gr.

    78. gr. laganna orðast svo:
    Ársreikningaskrá skal gera úrtakskannanir og athuganir á ársreikningum, samstæðureikningum og skýrslum stjórna í því skyni að sannreyna að þessi gögn séu í samræmi við ákvæði þessara laga. Hún getur krafist þeirra upplýsinga hjá hverju félagi sem nauðsynlegar eru í þessu sambandi.
    Í því skyni að sannreyna hvort félög uppfylli ákvæði laganna um stærðarmörk til að mega skila samandregnum ársreikningum og samstæðureikningum hefur ársreikningaskrá heimild til að fá aðgang að eftirfarandi upplýsingum hjá ríkisskattstjóra:
    1.    Veltufjárhæðum úr virðisaukaskattsskrám eða heildarveltu samkvæmt ársreikningi eða skattframtali.
    2.     Samtölu eigna samkvæmt eignarhlið ársreiknings eða skattframtali.
    3.     Fjölda starfsmanna samkvæmt uppgjöri til staðgreiðslu.

12. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi og gilda við skil á ársreikningum vegna rekstrarársins 2000.

Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.


    Í lögum um ársreikninga, nr. 144/1994, eru ítarleg ákvæði um félagaskrá. Í 9. tölul. 2. mgr. 1. gr. laganna er félagaskrá skilgreind sem hver sú stofnun sem með lögum er fengið það hlutverk að skrásetja félög og afla og geyma gögn um stofnun félaga og starfsemi þeirra. Samkvæmt 1. mgr. 69. gr. laganna er félögum sem lögin taka til skylt að senda félagaskrá ársreikninga ásamt skýrslu stjórnar, áritun endurskoðanda eða skoðunarmanna og upplýsingar um það hvenær ársreikningurinn var samþykktur. Eru þessi ákvæði í samræmi við skuldbindingar Íslands samkvæmt EES-samningnum, sbr. 4. tilskipun ráðsins (78/660/EBE), þar sem fram kemur að í hverju ríki skuli vera stofnun sem taki við ársreikningum félaga og hafi með höndum eftirlit með því að ákvæði laganna um gerð og birtingu ársreikninga séu virt. Með reglugerð nr. 134/1996, um skil og birtingu ársreikninga, og reglugerð nr. 749/1997, um skil og birtingu ársreikninga á árinu 1998, var ríkisskattstjóra falið að annast þau störf félagaskrár, sem varða móttöku, geymslu og birtingu ársreikninga, úrtakskannanir og athuganir. Með reglugerð nr. 801/1998, um ársreikningaskrá, skil og birtingu ársreikninga, var sérstakri ársreikningaskrá falið sama hlutverk og ríkisskattstjóra hafði verið falið með fyrri reglugerðum. Með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur, sem kveðinn var upp í málinu nr. 2507/2000, var niðurstaðan hins vegar sú að þar sem félagaskrá í skilningi ársreikningslaga hefði ekki verið sett á stofn með lögum, væri í lögum um ársreikninga ekki að finna fullnægjandi lagastoð fyrir ársreikningaskrá. Í ljósi þessa er með frumvarpi þessu lagt til að veitt verði fullnægjandi lagastoð fyrir starfrækslu ársreikningaskrár, í samræmi við skuldbindingar Íslands samkvæmt EES-samningnum. Jafnframt er með frumvarpi þessu styrktur grundvöllur ársreikningaskrár til eftirlits og athugunar á ársreikningum með upplýsingaöflun frá skattyfirvöldum vegna heimildar félaga til að skila samandregnum ársreikningi.

Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.

    Í þessari grein er ársreikningaskrá skilgreind.

Um 2.–5. gr.

    Með þessum ákvæðum eru einungis gerðar þær breytingar að í stað félagaskrár kemur ársreikningaskrá. Þá er bætt við ákvæði þar sem fjármálaráðherra er veitt heimild til að ákveða aðsetur ársreikningaskrár.

Um 6. gr.

    Í a-lið greinarinnar eru lagðar til orðalagsbreytingar á 1. mgr. 73. gr. laga um ársreikninga og er því ekki um efnisbreytingar að ræða. Í stað tilvísunarinnar „sem skráð eru hjá félagaskrá“ kemur: sem skráð eru hér á landi.
    Í b-lið greinarinnar er lagt til að ársreikningaskrá komi í stað félagaskrár.

Um 7.–10. gr.

    Með þessum ákvæðum eru gerðar þær breytingar að ársreikningaskrá kemur í stað félagaskrár. Þarfnast þessi ákvæði ekki frekari skýringa.

Um 11. gr.

    1. mgr. ákvæðisins er samhljóða gildandi ákvæði ársreikningslaga að öðru leyti en því að í stað félagaskrár kemur ársreikningaskrá.
    Við ákvæðið bætist ný málsgrein þar sem styrktur er grundvöllur ársreikningaskrár til eftirlits og athugunar á ársreikningum með upplýsingaöflun frá skattyfirvöldum vegna heimildar félaga til að skila samandregnum ársreikningi.

Um 12. gr.

    Lögin öðlast þegar gildi en taka jafnframt til skila á ársreikningum vegna rekstrarársins 2000.


Fylgiskjal.

Fjármálaráðuneyti,
fjárlagaskrifstofa:


Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 144/1994,
um ársreikninga, með síðari breytingum.

    Í frumvarpinu eru lagðar til nokkrar breytingar á lögum nr. 144/1994, um ársreikninga, sem miða einkum að því að treysta lagagrundvöll fyrir ársreikningaskrá. Ekki er um að ræða efnislegar breytingar á framkvæmd laga um ársreikninga og er því ekki gert ráð fyrir að frumvarpið hafi áhrif á útgjöld ríkissjóðs verði það óbreytt að lögum.