Ferill 688. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.


126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 1067  —  688. mál.




Frumvarp til laga



um breytingu á lögum um skráningu og mat fasteigna, nr. 6/2001.

(Lagt fyrir Alþingi á 126. löggjafarþingi 2000–2001.)


1. gr.

    Við 31. gr. laganna bætast tvær nýjar málsgreinar sem verða 2. og 3. mgr. og orðast svo:
    Fasteignamat ríkisins getur að eigin frumkvæði endurmetið einstakar eignir í því skyni að tryggja samræmt mat hliðstæðra eigna.
    Berist beiðni um endurmat fasteignar frá öðrum en eiganda og Fasteignamat ríkisins telur ástæðu til breytinga skal eiganda tilkynnt um þá breytingu sem fyrirhugað er að gera á fasteignamati. Vilji eigandi ekki una þeirri breytingu skal veita honum a.m.k. fjögurra vikna frest til að tilkynna það með sannanlegum hætti til Fasteignamats ríkisins. Að öðrum kosti tekur breytt fasteignamat gildi að liðnum fresti.

2. gr.

    2. málsl. 32. gr. laganna orðast svo: Málsmeðferð samkvæmt þessari grein og endurmat einstakra eigna skal fara eftir 31. gr. laganna.

3. gr.

    Við 35. gr. laganna bætist ný málsgrein sem verður 4. mgr. og orðast svo:
    Skráðu matsverði fasteigna skal breytt í fasteignaskrá í samræmi við framangreinda stuðla og skal það verð talið fasteignamatsverð frá og með 31. desember til jafnlengdar næsta ár nema sérstakt endurmat komi til.

4. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.


    Tilgangur frumvarps þessa um breytingu á lögum um skráningu og mat fasteigna, nr. 6/2001, er aðallega að samræma útgáfu árlegrar fasteignamatsskrár þeim breytingum á lögum nr. 4/1995 um tekjustofna sveitarfélaga sem samþykktar voru á Alþingi 29. nóvember 2000. Í frumvarpinu felst einnig að leitast er við að tryggja betur andmælarétt fasteignaeigenda og að skapa betra samræmi í fasteignamati.
    Eigandi, sveitarfélag og fjármálaráðuneyti geta samkvæmt gildandi lögum óskað eftir því að Fasteignamat ríkisins endurmeti eign fasteignamati. Stofnuninni sjálfri er hins vegar ekki heimilt að taka eign til endurmats að eigin frumkvæði en í frumvarpinu er lagt til að hún fái slíka heimild. Þar er m.a. miðað við fordæmi sem er í lögum um brunatryggingar, nr. 48/1994, þar sem samsvarandi heimild er orðuð svo: „Fasteignamat ríkisins getur endurmetið skyldutryggðar húseignir þegar stofnunin sér ástæðu til. Húseiganda skal tilkynnt um fyrirhugaða breytingu á mati. Vilji húseigandi ekki una breyttu mati samkvæmt þessari málsgrein skal hann tilkynna það með sannanlegum hætti innan fjögurra vikna frá dagsetningu tilkynningar um matið. Komi ekki fram athugasemdir tekur hið nýja brunabótamat gildi að fjórum vikum liðnum frá dagsetningu tilkynningar Fasteignamats ríkisins.“ Þessi heimild er mikilvæg bæði hvað varðar endurmat brunabótamats og fasteignamats til að stofnunin geti samræmt mat þar sem hún verður ósamræmis vör, t.d. íbúða í sama fjöleignarhúsi eða hliðstæðra eininga í atvinnuhúsnæði. Jafnframt skapar þetta stofnuninni svigrúm til endurmats þar sem fasteignamat er í ósamræmi við gangverð eða þegar endurmeta þarf eignir vegna sérstakra aðstæðna, svo sem náttúruhamfara.
    Jafnframt er lagt til í frumvarpinu að þegar beiðni um endurmat berst Fasteignamati ríkisins frá öðrum en fasteignareiganda og stofnunin telur forsendur vera til breytinga á fasteignamati þá skuli hún hafa frumkvæði að því að tilkynna eiganda um fyrirhugaða breytingu. Eiganda skal veittur kostur á að koma að sjónarmiðum sínum, sbr. meginreglu stjórnsýslulaga um andmælarétt. Berist athugasemdir frá honum innan tilskilins frests skal taka afstöðu til þeirra áður en endanleg ákvörðun um breytt fasteignamat er tekin.
    Í lögum um breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995, með síðari breytingum var m.a. kveðið á um að stofn til álagningar fasteignaskatts á allar fasteignir skuli vera fasteignamat þeirra 31. desember og að Fasteignamat ríkisins skuli gefa út skrá um gildandi fasteignamat þann dag ár hvert sem notuð er til álagningar fasteignagjalda. Samkvæmt lögum nr. 6/2001 skal Fasteignamat ríkisins gefa út fasteignamatsskrá 1. desember ár hvert þar sem nýtt framreiknað fasteignamat er birt opinberlega. Frumvarpið miðar að því að sameina útgáfudag þessara tveggja skráa og hafa hann 31. desember. Það fyrirkomulag kemur í veg fyrir rugling sem kann að skapast vegna tveggja skráa sem innihalda sömu efnisatriði nema hvað varðar fasteignir sem breytast í mati í desember ár, hvert auk þess sem slíkt fyrirkomulag er ódýrara þar sem um verður að ræða eina útgáfu í stað tveggja að óbreyttum lögum. Það er einnig í samræmi við aðra upplýsingagjöf á sviði fjárhagsmálefna að miða við stöðu í árslok frekar en 1. desember. Einnig skapar þessi breyting aukið svigrúm til ákvörðunar framreiknings fasteignamats ár hvert þar sem útgáfa fasteignamatsskrár verður einum mánuði seinna en nú er.

Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.


Um 1. gr.

    Til þess að ná samræmi í fasteignamati, t.d. íbúða í sama fjölbýlishúsi eða hliðstæðra eininga í atvinnuhúsnæði, er mikilvægt að Fasteignamat ríkisins hafi heimild til að endurmeta einstakar fasteignir þegar stofnunin telur ástæðu til. Jafnframt því að mæla fyrir um slíka heimild er lögð til sú málsmeðferð að stofnunin tilkynni fasteignareiganda um fyrirhugaða breytingu á fasteignamati og honum sé veittur kostur á að koma að sjónarmiðum sínum áður en ákvörðun um breytt mat er tekin, sbr. meginreglu stjórnsýslulaga um andmælarétt. Berist athugasemdir frá honum innan tilskilins frests skal taka afstöðu til þeirra áður en endanleg ákvörðun um breytt fasteignamat er tekin. Hliðstætt ákvæði hefur verið í gildi varðandi brunabótamat og hefur gefist vel.

Um 2. gr.


    Lagt er til að sú málsmeðferð skuli viðhöfð sem mælt er fyrir um í 1. gr. frumvarpsins í þeim tilvikum þegar fjármálaráðuneytið eða sveitarfélag gerir kröfu um endurmat fasteigna samkvæmt 32. gr. laganna. Í henni felst að fasteignareiganda skuli send tilkynning um fyrirhugaða breytingu og veittur frestur til athugasemda.

Um 3. gr.

    Þann 29. nóvember sl. voru samþykkt á Alþingi lög um breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995, með síðari breytingum. Þar er m.a. kveðið á um að stofn til álagningar fasteignaskatts á allar fasteignir skuli vera fasteignamat þeirra 31. desember. Samkvæmt lögum nr. 6/2001 gefur Fasteignamat ríkisins út skrá 1. desember þar sem nýtt framreiknað fasteignamat er birt opinberlega og samkvæmt framangreindri breytingu á lögum nr. 4/1995 skal stofnunin gefa út aðra skrá til sveitarfélaga 31. desember sem notuð er til álagningar fasteignagjalda. Í þeirri skrá koma fram allar breytingar sem hafa orðið í desembermánuði. Seinni breytingin sem hér er lögð til lýtur að því að einungis verði gefin út ein skrá með nýju framreiknuðu fasteignamati sem gildi frá og með 31. desember. Gert er ráð fyrir að niðurstöður framreiknings fasteignamats liggi fyrir í lok nóvember ár hvert og ekkert ætti að vera því til fyrirstöðu að kynna sveitarfélögum framreikningsstuðla á þeim tíma.
    Seinkun á gildistöku nýs fasteignamats úr 1. des. í 31. des. hefur það í för með sér að fasteignamat, sem gekk í gildi 1. desember 2000, mun gilda í 13 mánuði.

Um 4. gr.

    Greinin skýrir sig sjálf.


Fylgiskjal.

Fjármálaráðuneyti,
fjárlagaskrifstofa:


Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 6/2001,
um skráningu og mat fasteigna, með síðari breytingum.

    Tilgangur þessa frumvarps er aðallega að samræma útgáfu árlegrar fasteignamatsskráar við þær breytingar sem gerðar voru á lögum nr. 4/1995, um tekjustofna sveitarfélaga, sem samþykktar voru á Alþingi 29. nóvember árið 2000. Samkvæmt gildandi lögum um skráningu og mat fasteigna ber Fasteignamati ríkisins að gefa út fasteignamatsskrá 1. desember ár hvert en í lögum um tekjustofna sveitarfélaga er hins vegar kveðið á um að stofn til álagningar fasteignaskatts skuli vera skrá um fasteignamat miðað við 31. desember. Frumvarpið miðar að því að sameina birtingu fasteignamatsins þannig að gefin verði út ein skrá 31. desember ár hvert. Í frumvarpinu er einnig lagt til að Fasteignamat ríkisins fái heimild til að endurmeta einstakar fasteignir til að tryggja samræmi við mat hliðstæðra fasteigna um leið og leitast er við að treysta andmælarétt eigenda fasteigna.
    Hér er ekki um að ræða miklar efnislegar breytingar á núverandi skipan mála og má fremur ætla að nokkur sparnaður verði af sameiningu á útgáfu fasteignamatsskráa en að útgjöld ríkissjóðs aukist verði frumvarpið að lögum.