Ferill 693. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 1074 — 693. mál.
Skýrsla
um athugun Ríkisendurskoðunar á rammasamningum Ríkiskaupa.
Frá fjárlaganefnd.
Með vísan til 26. gr. þingskapa hefur nefndin tekið til athugunar skýrslu Ríkisendurskoðunar, sem kom út í maí 2000, um rammasamninga Ríkiskaupa. Ríkisendurskoðun gerir grein fyrir umfangi rammasamninganna í skýrslu sinni og leggur mat á þann árangur sem náðst hefur við innkaup ríkisstofnana í skjóli þessa samningakerfis.
Við meðferð málsins fékk nefndin á sinn fund fulltrúa frá Ríkisendurskoðun og Ríkiskaupum.
I.
Eins og rakið er í skýrslu Ríkisendurskoðunar ýttu Ríkiskaup rammasamningakerfinu úr vör með það að markmiði að koma á fót einföldu og þægilegu kerfi til innkaupa á skrifstofu- og rekstrarvörum fyrir opinberar stofnanir og fyrirtæki. Kerfinu er ætlað að tryggja þessum aðilum hagkvæm kjör á markaðinum hverju sinni og draga úr kostnaði þeirra við innkaup. Rammasamningakerfið er talið geta haft ótvíræða kosti, sérstaklega fyrir minni aðila. Að jafnaði er það talið fela í sér tímasparnað og stuðla að hagstæðu verði. Áskrifendum að kerfinu hefur fjölgað jafnt og þétt og er nú svo komið að fjölmargir ríkisaðilar eru áskrifendur að því.
Heildarinnkaup samkvæmt rammasamningum jukust um 32% á milli áranna 1997 og 1998 og um 9% á milli 1998 og 1999. Þrátt fyrir fjölgun áskrifenda og umtalsverða aukningu á innkaupum samkvæmt samningunum er staðan enn sú að ríkisaðilar kaupa meiri hluta þeirrar vöru og þjónustu sem þeir þarfnast án þess að nota rammasamninga enda þótt samningar séu til um viðkomandi vöru og þjónustu. Í þeim vöruflokkum sem athugun Ríkisendurskoðunar náði til var hlutfall innkaupa samkvæmt rammasamningum á bilinu 16–61%, en hlutfallið var mjög breytilegt eftir vöruflokkum. Þannig má nefna að aðeins um 16% af kaupum á sendibifreiðaþjónustu eru gerð samkvæmt rammasamningum og um 30% af kaupum á þjónustu leigubifreiða.
Lágt hlutfall innkaupa samkvæmt rammasamningum er að hluta talið skýrast af því að ríkisaðilar hafi náð sambærilegum eða betri kjörum en rammasamningarnir kveða á um. Þetta á ekki síst við um stærri kaupendur sem vegna mikillar veltu og sérþekkingar þeirra sem annast innkaup fyrir þeirra hönd hafa getað tryggt sér bestu kjör við innkaupin. Ýmsar aðrar ástæður eru og taldar valda því að ríkisaðilar nýta sér ekki rammasamningana meira en raun ber vitni. Má þar t.d. nefna vanafestu í innkaupum sem oft er réttlætt með því að þjónusta ákveðins söluaðila sé betri en almennt gerist á markaðinum eða að viðkomandi vara sé betri en sambærilegar vörur sem rammasamningakerfið tekur til. Að mati Ríkisendurskoðunar réðust staðhæfingar af þessu tagi stundum fremur af huglægu mati kaupenda en af beinni samanburðarkönnun þeirra sjálfra. Loks er ljóst að sumir ríkisaðilar geta ekki nýtt sér alla rammasamninga þótt fullur vilji sé fyrir hendi. Til dæmis eiga ríkisaðilar úti á landi óhægt um vik að nýta sér rammasamninga við þjónustufyrirtæki sem eru á Reykjavíkursvæðinu. Má hér nefna þjónustu leigubifreiða, sendibifreiða og bifreiðaviðgerðir.
Þó að könnun Ríkisendurskoðunar bendi ótvírætt til þess að rammasamningakerfið hafi skilað ríkisaðilum ávinningi leiddi hún í ljós eitt og annað sem betur má fara í framkvæmd. Í því sambandi er einkum bent á eftirfarandi atriði:
– Dæmi voru um að seljendur skiluðu ekki upplýsingum til Ríkiskaupa um sölu samkvæmt rammasamningum eins og þeim ber ótvírætt að gera samkvæmt skýru ákvæði samninganna. Þetta hefur leitt til þess að umsamin þóknun Ríkiskaupa skilar sér ekki auk þess sem upplýsingar um innkaup samkvæmt rammasamningum eru ekki alls kostar réttar.
– Rammasamningakerfið virðist ekki tryggja seljendum, sem taka þátt í því, nægjanlega aukin viðskipti sem m.a. er ætlað að réttlæta umsamda verðlækkun. Ótvírætt er að seljandi ætlast til þess að fá aukin viðskipti gegn því að bjóða lægra verð. Ef samningarnir tryggja seljendum ekki meiri viðskipti hlýtur slíkt þegar til lengdar lætur að draga úr áhuga seljenda á þátttöku í samningunum. Mun þegar vera farið að bera á vísbendingum um að áhugi þeirra fari minnkandi.
– Dæmi voru um að starfsmenn seljenda vissu ekki um rammasamningana eða að engin ábending hefði komið fram í sölukerfum viðkomandi seljanda um gildandi rammasamning og það verð sem gilti um kaup samkvæmt honum.
II.
– Bæta þarf upplýsingagjöf og eftirfylgni með framkvæmd rammasamninga. Í því sambandi þarf að tryggja að Ríkiskaup hafi á hverjum tíma áreiðanlegar og sundurgreindar upplýsingar um öll viðskipti sem eru gerð á grundvelli þeirra. Jafnframt ætti að leita skýringa frá stofnunum sem ekki nota kerfið við innkaup.
– Sérhver ríkisaðili þarf að marka sér innkaupastefnu sem kveður á um hvernig haga skuli innkaupum og setja sér innkaupareglur á grundvelli hennar. Reglurnar kveði m.a. á um hvernig standa skuli að vali á birgjum, hverjir skuli annast innkaup og hvernig hátta beri eftirliti með að reglunum sé fylgt.
– Fylgja þarf eftir ákvæðum laga og reglugerða um innkaup ríkisins um skyldu stofnana til að beina viðskiptum til aðila sem rammasamningar hafa verið gerðir við.
– Efla þarf fræðslu hjá stofnunum um innkaup og hvetja til þess að stofnanir notfæri sér rammasamningakerfið. Ríkiskaup, ráðuneytin og Ríkisendurskoðun þurfa að koma að þeirri vinnu.
– Kynningargögn sem kaupendum standa til boða þurfa að vera þannig úr garði gerð að ekki sé hætta á að rammasamningar verði túlkaðir á annan veg en til var ætlast í upphafi. Hér er átt við að ljóst sé hvaða vörur og þjónusta eru ekki innifalin í viðkomandi samningi þegar um er að ræða sambærilega vöruflokka.
– Ein leið til að tryggja meiri notkun rammasamninga gæti verið sú að koma á virku tengiliðakerfi milli ríkisaðila og Ríkiskaupa. Hægt er að hugsa sér að valinn hópur ríkisaðila, sem mundi skuldbinda sig til að kaupa inn samkvæmt rammasamningum, ætti náið samstarf og færi hann í samráði við Ríkiskaup yfir hvernig til hefði tekist, legði mat á samninga, verð, vörur og þjónustu og önnur atriði sem máli skipta.
III.
Eins fram kemur í könnun Ríkisendurskoðunar er full ástæða til þess að huga að endurbótum á framkvæmd rammasamningakerfisins til þess að það nái frekar tilgangi sínum. Nefndin tekur undir tillögur um að bæta upplýsingagjöf og eftirfylgni með framkvæmd rammasamninga, mörkun innkaupastefnu og setningu innkaupareglna hjá ríkisaðilum á grundvelli hennar. Á sama hátt þarf greinilega að efla fræðslu hjá stofnunum um innkaup og hvetja til þess að stofnanir notfæri sér rammasamningakerfið. Loks þarf að vekja athygli stofnana á þeirri lagaskyldu sem á þeim hvílir varðandi innkaup. Nefndin hvetur Ríkiskaup, ráðuneytin og Ríkisendurskoðun til þess að beita sér fyrir endurbótum af þessu tagi á rammasamningakerfinu.
Alþingi, 2. apríl 2001.
Jón Kristjánsson,
form., frsm.
Einar Oddur Kristjánsson.
Einar Már Sigurðarson.
Árni Johnsen.
Gísli S. Einarsson.
Hjálmar Jónsson.
Jón Bjarnason.
Arnbjörg Sveinsdóttir.
Ísólfur Gylfi Pálmason.
Össur Skarphéðinsson.
Kristján Pálsson.