Ferill 694. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 1075 — 694. mál.
Skýrsla
um könnun Ríkisendurskoðunar á kaupum ríkisstofnana á ráðgjöf og annarri sérfræðiþjónustu.
Frá fjárlaganefnd.
Með vísan til 26. gr. þingskapa hefur nefndin tekið til athugunar könnun Ríkisendurskoðunar á kaupum ríkisstofnana á ráðgjöf og annarri sérfræðiþjónustu. Stofnunin gerði grein fyrir könnun sinni í skýrslu sem kom út í maí 2000 undir heitinu „Sérfræðiþjónusta“. Könnunin takmarkaðist við þá ráðgjöf sem ríkisaðilar í A-hluta ríkisreiknings keyptu í afmarkaðan tíma og fól að jafnaði í sér athugun á tilteknum vandamálum, aðstoð við þróun á nýjum kerfum eða nýjum möguleikum innan stofnunar, greiningu, ráðleggingu eða sérstakar rannsóknir.
Við meðferð málsins fékk nefndin á sinn fund fulltrúa frá Ríkisendurskoðun.
I.
– Kostnaður ríkisstofnana vegna kaupa á sérfræðiþjónustu hækkaði úr 1,1 milljarði kr. á árinu 1994 í rúma 2,0 milljarða kr. á árinu 1998 (á verðlagi 1998). Nemur hækkunin tæpum 85%. Kostnaðaraukningin var mest milli áranna 1994 og 1995 eða 32%.
– Kostnaður ríkisstofnana vegna ráðgjafar, eins og hún er skilgreind í könnuninni, nam 1.301 millj. kr. á árinu 1998 eða sem nam um 64% alls sérfræðikostnaðar það ár. Flest ráðgjafarverkefnin voru fremur smá í sniðum, t.d. fengu aðeins 13,5% ráðgjafa greiddar 500 þús. kr. eða meira á árinu 1998 fyrir störf sín og aðeins 2,6% fengu greiddar 3 millj. kr. eða meira.
– Ríkisstofnanir virðast ekki fara eftir neinum samræmdum reglum eða leiðbeiningum við kaup á ráðgjöfinni. Ýmist er það æðsti stjórnandi stofnunar eða einstakir yfirmenn sem velja ráðgjafann, semja við hann, segja til um hvort hrinda eigi tillögum hans í framkvæmd og meta árangur starfa hans. Þá kom fram að stofnanir telja að ávinningur af starfi ráðgjafa sé að jafnaði fremur mikill, en hafa verður í huga að matið er oftast á hendi þess sem einnig tók ákvörðun um kaupin, stjórnaði vinnunni og kom tillögunum í framkvæmd.
– Ástæðan fyrir kaupum á ráðgjafarþjónustu var oftast sú að viðkomandi stofnun bjó ekki yfir þeirri sérfræðiþekkingu sem eftir var leitað ellegar að þörf var á mati eða áliti óháðra aðila. Vakin var athygli á því að tæplega 37% stofnana sögðu ástæðu fyrir kaupum á sérfræði- eða ráðgjafarþjónustu hafa verið þá að starfsmenn voru of tengdir tilteknu vandamáli eða verkefni sem leysa þurfti úr.
– Verkefni ráðgjafa var oft og tíðum óskilgreint. Verklýsing var því gjarnan ónákvæmari eða opnari en ella, einkum þó um þann tíma sem verja skyldi til verksins.
– Þrátt fyrir ákvæði í lögum, reglugerðum og stjórnvaldsfyrirmæli ýmiss konar um að beita skuli útboðum heyrir til undantekninga að aflað sé tilboða frá fleiri en einum ráðgjafa. Útboð á ráðgjöf, hæfnismat eða verðsamkeppni meðal ráðgjafa er nær óþekkt innan ríkisgeirans nema þegar um er að ræða verklegar framkvæmdir.
– Innan við helmingur þeirra stofnana sem könnunin náði til gerði skriflegt samkomulag við þá ráðgjafa sem fyrir þær unnu. Jafnframt komu fram vísbendingar um að umsjón með vinnu ráðgjafa hafi ekki verið nægjanlega markviss.
II.
Mat á þörf fyrir ráðgjöf. Brýnt er að þeim ríkisaðila sem hyggst fá aðstoð ráðgjafa verði gert að móta skýra verk- eða markmiðslýsingu vegna hins áformaða verkefnis.
Val á ráðgjafa. Sá ráðgjafi sem valinn er hverju sinni verður að uppfylla sanngjarnar og eðlilegar kröfur um gæði og verð. Mikilvægt er að mæla fyrir um þá meginreglu að ganga skuli frá samningi um þjónustuna með formlegum og skýrum hætti.
Stjórnun og eftirlit. Leggja verður áherslu á að verkkaupi sé í eins nánu sambandi eða samstarfi við ráðgjafann og eðli verkefnisins gefur tilefni til hverju sinni. Leggja ber áherslu á að verkkaupi fylgist grannt með því að viðfangsefnið sé unnið á skilvirkan og markvissan hátt innan umsamins verktíma og fjárhagsáætlunar.
Mat á árangri ráðgjafar. Mæla þarf fyrir um að meta skuli með formlegum hætti á hvern hátt niðurstaða ráðgjafa hefur verið notuð og hvort hún hafi skilað þeim árangri sem vænst var. Slíkt mat getur einnig leitt til þess að kaup á ráðgjöf til lausnar ákveðnum viðfangsefnum verði hagað á annan hátt í framtíðinni.
III.
Reglum þessum er ætlað að stuðla að því að hagkvæmustu kosta sé jafnan leitað. Auk þess er rétt að hafa í huga að útboðsaðferðin tryggir best jafnræði milli aðila og að valið fari fram á sanngjarnan og málefnalegan hátt. Þá er útboðsaðferðin líkleg til þess að tryggja betur en ella hlutleysi og trúverðugleika ráðgjafarinnar og efla þannig traust á henni.
Að mati nefndarinnar benda niðurstöður könnunar Ríkisendurskoðunar ótvírætt til þess að gera þurfi mikla bragarbót í þessum efnum. Greinilegt er að herða þarf á reglum og fyrirmælum og kveða skýrar á um þær meginskyldur sem á ríkisaðilum hvíla þegar þjónustukaup eru annars vegar. Fyrir liggur að nefnd á vegum fjármálaráðuneytisins hefur unnið að gerð tillagna að reglum á þessu sviði um nokkurt skeið. Fjárlaganefnd hvetur til þess að nefndin hraði störfum sínum og skili fjármálaráðherra sem fyrst tillögum sínum til úrbóta.
Nefndin tekur undir hugmyndir þær sem fram koma í skýrslu Ríkisendurskoðunar um þau atriði sem leggja ber áherslu á í nýjum reglum og leiðbeiningum um kaup ríkisstofnana á ráðgjafarþjónustu. Hvetur hún fjármálaráðherra til þess að taka bæði þessar tillögur og væntanlegar tillögur nefndar þeirrar sem hefur verið að skoða þessi mál til gaumgæfilegrar athugunar og beita sér í framhaldinu fyrir því að settar verði skýrar og aðgengilegar reglur og leiðbeiningar á þessu sviði.
Alþingi, 2. apríl 2001.
Jón Kristjánsson,
form., frsm.
Einar Oddur Kristjánsson.
Einar Már Sigurðarson.
Árni Johnsen.
Gísli S. Einarsson.
Hjálmar Jónsson.
Jón Bjarnason.
Arnbjörg Sveinsdóttir.
Ísólfur Gylfi Pálmason.
Össur Skarphéðinsson.
Kristján Pálsson.