Ferill 706. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 1123 — 706. mál.
Fyrirspurn
til dómsmálaráðherra um akstur og hvíldartíma ökumanna í innanlandsflutningum.
Frá Gísla S. Einarssyni.
1. Hefur verið lagt mat á þann mismun sem er á afkastamöguleikum vöruflutninga- og fólksflutningafyrirtækja á Íslandi, sbr. reglugerð nr. 8/1996, lög nr. 68/1996, sbr. lög nr. 3/1987, og reglugerð nr. 309/1996, og þeirra fyrirtækja í öðrum EES-ríkjum sem starfa samkvæmt samsvarandi lögum og reglum?
2. Hefur verið gerð athugun á því hvaða ívilnanir er unnt að veita vegna séríslenskra aðstæðna, svo sem smæðar, veðurfarsaðstæðna og gjörólíks vegakerfis? Ef svo er, hverjar eru þær?
3. Til hvaða aðgerða hefur verið gripið til að mæta árstíðabundnum aðstæðum, svo sem fiskflutningum að vetri og sumri, með hliðsjón af að reglugerðir og lög hafa leitt til þrenginga í rekstri á Íslandi í þessari atvinnugrein miðað við Evrópulöndin, sérstaklega hvað varðar einstaklinga í rekstri?
4. Telur ráðherra ekki ástæðu til að nýta til fullnustu þau sérákvæði sem gefast vegna íslenskra aðstæðna, m.a. með heimild til áritunar ökurita?
Skriflegt svar óskast.