Ferill 709. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 1136 — 709. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á ábúðarlögum, nr. 64/1976, með síðari breytingum.
Frá landbúnaðarnefnd.
1. gr.
2. málsl. 1. mgr. 41. gr. laganna fellur brott.2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Greinargerð.
Frumvarp þetta er lagt fram í þeim tilgangi að leiðrétta mistök sem urðu við setningu laga nr. 21/2000, um breytingu á ábúðarlögum, nr. 64/1976, með síðari breytingum. Skv. 4. gr. frumvarpsins skyldi 41. gr. laganna hljóða svo:
„Úttektarmenn skulu framkvæma mat á eignum og endurbótum fráfarandi ábúanda sem háðar eru kaupskyldu landeiganda skv. 16. gr. Við matið skulu úttektarmenn leggja til grundvallar raunvirði eigna og endurbóta fráfarandi ábúanda að teknu tilliti til ástands og viðhalds þeirra.
Landbúnaðarráðherra setur með reglugerð nánari reglur um útreikning raunvirðis og eigna og endurbóta og framkvæmd mats skv. 1. mgr. að öðru leyti.“
Samkvæmt 2. málsl. 1. mgr. 41. gr., sbr. 4. gr. frumvarpsins, skyldi við mat á eignum fráfarandi ábúanda miða við raunvirði eigna. Var við meðferð frumvarpsins á Alþingi samþykkt breytingartillaga sem landbúnaðarráðuneyti lagði fyrir landbúnaðarnefnd þar sem 2.–6. mgr. 41. gr. laganna skyldi orðast svo:
„Við mat á eignum skulu úttektarmenn leggja til grundvallar efnisleg verðmæti eigna. Mat skal vera nývirði eigna að frádregnum eðlilegum afskriftum reiknað til staðgreiðslu. Nývirði er kostnaður sem því mundi fylgja á matsdegi að smíða nýja eign sem komið gæti að öllu leyti í stað hinnar metnu. Afskriftir eru verðrýrnun eigna sem rekja má til aldurs, hrörnunar, slits, úreldingar og minnkaðs notagildis.
Við mat á þeim endurbótum skal leggja til grundvallar ástand og viðhald eigna að teknu tilliti til aldurs þeirra og eðlilegs slits af notkun.
Úttektarmenn skulu leggja mat á afleiðingar þess að viðhaldi eigna hafi ekki verið sinnt með fullnægjandi hætti eða að gallar eða slit hafi orðið vegna óeðlilegrar notkunar eigna.
Aðrir þættir skulu ekki hafa áhrif á mat á endurbótum á eignum fráfarandi ábúanda.
Landbúnaðarráðherra setur nánari reglur um framkvæmd mats að öðru leyti og kostnað við það að fenginni umsögn Bændasamtaka Íslands.“
Prentað upp.
Samkvæmt breytingartillögunni skyldi við mat á eignum fráfarandi ábúanda miða við nývirði eigna. Áfram stóð þó 1. mgr. 41. gr., sbr. 4. gr. frumvarpsins. Þar sem sú málsgrein var látin standa óbreytt áfram eru í frumvarpinu tvenns konar viðmiðanir um hvernig beri að meta eignir fráfarandi ábúanda við ábúðarlok. Skv. 2. málsl. 1. mgr. 41. gr. ber að miða við raunvirði eigna en skv. 2. mgr. sömu greinar ber að miða við nývirði eigna. Með frumvarpi þessu er gert ráð fyrir að felldur verði brott 2. málsl. 1. mgr. 41. gr. en samkvæmt því verður óumdeilt að eftir það ber að miða mat á eignum fráfarandi ábúanda við nývirði. Að öðru leyti þarfnast frumvarpið ekki skýringa.