Ferill 728. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.


126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 1199  —  728. mál.




Fyrirspurn



til heilbrigðisráðherra um styrkingu Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri.

Frá Þuríði Backman.



     1.      Mun ráðherra beita sér fyrir því að komið verði á fót kennslu í dreifbýlislækningum við Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri?
     2.      Mun ráðherra beita sér fyrir fleiri stöðugildum sérfræðinga við Fjórðungssjúkrahúsið til að sinna m.a. farþjónustu?
     3.      Hefur verið samið við lækna Fjórðungssjúkrahússins um þjónustu við sjúkraflug og ef svo er ekki, hvenær má vænta þess að það verði gert svo að bakvaktir lækna verði tryggðar við hina nýju miðstöð sjúkraflugs á Akureyri?


Skriflegt svar óskast.