Ferill 15. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.


126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 1202  —  15. mál.




Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á l. nr. 49/1999, um Orkusjóð.

Frá iðnaðarnefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið. Umsagnir bárust frá Orkustofnun, Samtökum sveitarfélaga í Norðurlandskjördæmi vestra, Eyþingi, Samtökum sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, Landsvirkjun, Þjóðhagsstofnun, Seðlabanka Íslands og Orkuveitu Reykjavíkur.
    Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að Orkusjóði verði gert kleift að styrkja hitaveitur til þess að stækka dreifikerfi sín. Þetta hefur sérstaklega gildi þar sem auðveldlega er hægt að stækka dreifikerfi hitaveitna en notendur eru of fáir til að bera stofnkostnað við veitu. Nefndin telur að með þessu móti kunni að skapast möguleikar á uppbyggingu í atvinnulífi sem vert sé að kanna.
    Nefndin leggur til að málinu verði vísað til ríkisstjórnarinnar.
    Árni R. Árnason var fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 8. maí 2001.



Hjálmar Árnason,


form., frsm.


Guðjón Guðmundsson.


Árni Steinar Jóhannsson.



Bryndís Hlöðversdóttir.


Svanfríður Jónasdóttir.


Ísólfur Gylfi Pálmason.



Drífa Hjartardóttir.


Pétur H. Blöndal.














Prentað upp.