Ferill 683. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.


126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 1217  —  683. mál.




Breytingartillögur



við frv. til l. um breyt. á tollalögum, nr. 55/1987, með síðari breytingum.

Frá efnahags- og viðskiptanefnd.



     1.      2. efnismgr. 1. gr. orðist svo:
                  Þau ríki sem skilgreind eru sem fátækustu þróunarríki heims eru talin upp í viðauka V með lögum þessum.
     2.      Við frumvarpið bætist ný grein sem verði 2. gr., svohljóðandi:
                  Við lögin bætist nýr viðauki sem verður viðauki V og orðast svo:
                  Samkvæmt skilgreiningu nefndar um framtak, auðveldun viðskipta og þróunarmál sem starfar á vettvangi ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um viðskipti og þróun teljast eftirtalin 48 ríki fátækustu þróunarríki heims: Afganistan, Angóla, Bangladess, Benín, Burma, Búrkína Fasó, Búrúndí, Bútan, Djíbútí, Erítrea, Eþíópía, Gambía, Gínea, Gínea- Bissá, Grænhöfðaeyjar, Haítí, Jemen, Kambódía, Kíribatí, Kongó, Kómoreyjar, Laos, Lesótó, Líbería, Madagaskar, Malaví, Maldíveyjar, Malí, Máritanía, Mið-Afríkulýðveldið, Miðbaugs-Gínea, Mósambík, Nepal, Níger, Rúanda, Salómonseyjar, Sambía, Samóa, Saó Tóme og Prinsípe, Síerra Leóne, Sómalía, Súdan, Tansanía, Tógó, Tsjad, Túvalú, Úganda og Vanúatú.