Ferill 732. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.


126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 1232  —  732. mál.




Frumvarp til laga



um breytingu á lögum um almannatryggingar og lögum um félagslega aðstoð.

(Lagt fyrir Alþingi á 126. löggjafarþingi 2000–2001.)



I. KAFLI
Breyting á lögum um almannatryggingar, nr. 117/1993,
með síðari breytingum.

1. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 10. gr. laganna:
     a.      Á eftir orðinu „tekjutryggingar“ í 1. mgr. kemur: tekjutryggingarauka.
     b.      Við 2. málsl. 2. mgr. bætist: og tekjur öryrkja af atvinnu metnar að 60 hundraðshlutum við útreikning á tekjutryggingu.

2. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 11. gr. laganna:
     a.      Við 1. mgr. bætist nýr málsliður er orðast svo: Heimilt er þó að miða lífeyri beggja hjóna, sem bæði fá lífeyri, við búsetutíma þess sem á lengri réttindatíma.
     b.      3. mgr. fellur brott.

3. gr.

    Á eftir 7. mgr. 17. gr. laganna koma tvær nýjar málsgreinar er orðast svo:
    Ef einhleypingur hefur eingöngu tekjur frá lífeyristryggingum skal hann til viðbótar við heimilisuppbót samkvæmt lögum um félagslega aðstoð eiga rétt á tekjutryggingarauka, 14.062 kr. á mánuði. Tekjur lífeyrisþega eins og þær eru skilgreindar í 10. gr., sbr. 10. mgr., skerða tekjutryggingaraukann um 67%.
    Hjón, sem annað eða bæði eru lífeyrisþegar, eða lífeyrisþegi sem er í sambýli við annan einstakling 18 ára eða eldri, eiga rétt á tekjutryggingarauka, 10.548 kr. á mánuði hvort um sig. Tekjur lífeyrisþega eins og þær eru skilgreindar í 10. gr., sbr. 10. mgr., skerða tekjutryggingaraukann um 67% og skal við útreikning tekjutryggingarauka leggja til grundvallar helming sameiginlegra tekna hjóna.

II. KAFLI
Breyting á lögum um félagslega aðstoð, nr. 118/1993,
með síðari breytingum.

4. gr.

    Orðin „sérstök heimilisuppbót“ í 1. mgr. 1. gr. laganna falla brott.

5. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 9. gr. laganna:
     a.      2. mgr. fellur brott.
     b.      Orðin „og sérstök heimilisuppbót“ í fyrirsögn greinarinnar falla brott.

6. gr.

    Lög þessi öðlast gildi 1. júlí 2001.

Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.


    Frumvarp þetta er samið í heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu á grundvelli skýrslu vinnuhóps sem hafði það hlutverk að endurskoða almannatryggingakerfið og samspil þess við skatt- og lífeyrissjóðakerfið. Álit vinnuhópsins er birt með frumvarpinu sem fylgiskjal. Megintilgangur frumvarpsins er að bæta kjör þeirra sem eru með lægstar tekjur, hækka bætur til hjóna og breyta meðferð atvinnutekna öryrkja.
    Vinnuhópurinn telur að í grundvallaratriðum sé lífeyriskerfi landsmanna traust. Það hvíli á þremur meginstoðum, skyldubundnum atvinnutengdum lífeyrissjóðum, almannatryggingum og frjálsum lífeyrissparnaði. Lífeyrissjóðirnir séu og verði þungamiðja kerfisins en auk þess myndi almannatryggingar og frjáls sparnaður (þ.m.t. viðbótarlífeyrissparnaður) aðrar meginstoðir kerfisins. Hlutverk almannatrygginga sé að vera öryggisnet sem byggist ekki á skilgreindum rétti til lífeyris heldur taki mið af framfærslu.
    Brýnt er að öryggisnetið tryggi sæmilega afkomu án þess að draga um of úr vilja manna til að spara eða til þess að vinna sé þess kostur.
    Í áliti vinnuhópsins eru lagðar fram tillögur sem falla í þrjá meginflokka, hækkun bóta til þeirra sem minnst hafa, jöfnun lífeyris milli hjóna og einhleypra og breytta meðferð atvinnutekna öryrkja.
    Helstu breytingar samkvæmt frumvarpinu eru eftirfarandi:
     –      Grunnlífeyrir hjóna hækkar úr 90% af lífeyri einhleypings í 100%.
     –      Sérstök heimilisuppbót, tekjutryggingarauki samkvæmt frumvarpinu, hækkar.
     –      Skerðing tekjutryggingarauka vegna tekna lækkar úr 100% í 67%.
     –      Skilyrði til að njóta tekjutryggingarauka eru rýmkuð og m.a. gerð óháð hjúskaparstöðu.
     –      Eingöngu 60% atvinnutekna öryrkja koma til skerðingar á tekjutryggingu og heimilisuppbót.
    Í áliti vinnuhópsins er gert ráð fyrir að frítekjumark tekjutryggingar til ellilífeyrisþega verði hækkað og að sérstakt frítekjumark vegna greiðslna úr lífeyrissjóði verði lagt niður. Í 3. mgr. 18. gr. laga um almannatryggingar, nr. 117/1993, er gert ráð fyrir að heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra setji reglugerð um frítekjumark lífeyristekna og um tekjutryggingu og frekari uppbætur og eru drög að reglugerðum birt sem fylgiskjöl með frumvarpinu.

Fylgiskjal I.















Á L I T
vinnuhóps um endurskoðun almannatrygginga
og samspil þess við skattkerfið og lífeyrissjóði


























Maí 2001

Inngangur


    Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar segir m.a. um helstu markmið ríkisstjórnarinnar:
            „Að endurskoða almannatryggingakerfið svo og samspil þess við skattkerfið og lífeyrissjóðakerfið með það að markmiði að umfang og kostnaður við stjórnsýslu verði sem minnstur og framkvæmd verði einfölduð og samræmd til hagsbóta fyrir bótaþega. Áhersla skal lögð á að tryggja sérstaklega hag þeirra öryrkja, fatlaðra og aldraðra sem lægstar tekjur hafa.“
    Þann 18. október 1999 skipaði forsætisráðherra vinnuhóp til að undirbúa ákvörðun í þessu máli og lýsa þeim leiðum sem helst eru færar til að ná ofangreindum markmiðum.
    Í vinnuhópinn skipuðu:
            Ólafur Davíðsson, ráðuneytisstjóri, sem er formaður, án tilnefningar,
            Bolli Þór Bollason, skrifstofustjóri, tilnefndur af fjármálaráðherra,
            Jón Sæmundur Sigurjónsson, hagfræðingur, tilnefndur af heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra,
            Steingrímur Ari Arason, framkvæmdastjóri, tilnefndur af fjármálaráðherra,
            Þórir Haraldsson, aðstoðarmaður ráðherra, tilnefndur af heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra.
    Ritari vinnuhópsins var Guðmundur Gylfi Guðmundsson hagfræðingur. Guðmundur G. Þórarinsson verkfræðingur starfaði með hópnum. Sigurður Snævarr forstöðumaður á Þjóðhagsstofnun og Stefán Þór Jansen tölvunarfræðingur Þjóðhagsstofnunar hafa lagt fram mikið efni til skýrslunnar og annast alla útreikninga.
    Í janúar síðastliðnum beindi ríkisstjórnin þeim tilmælum til vinnuhópsins að hann legði sérstaka áherslu á aðgerðir til að koma til móts við þá lífeyrisþega sem búa við lökust kjör. Jafnframt beindi ríkisstjórnin því til vinnuhópsins að samráð yrði haft við Landssamband aldraðra, Öryrkjabandalag Íslands og aðila vinnumarkaðarins. Þessir aðilar hafa fylgst með starfi vinnuhópsins og þeim kynntar megintillögur hans.


1. Helstu atriði í áliti starfshópsins


    Starfshópurinn telur að í grundvallaratriðum sé lífeyriskerfi landsmanna traust. Það hvílir á þremur meginstoðum; lögbundnum lífeyrissjóðum, almannatryggingum og frjálsum lífeyrissparnaði. Hér er um að ræða allstyrkar stoðir og í sameiningu ná þær vel flestum þeim markmiðum sem setja má lífeyriskerfi án þess að valda óhóflegum kostnaði. Lífeyrissjóðirnir og hinn frjálsi lífeyrissparnaður greiða lífeyri sem byggir á iðgjaldagreiðslum hinna tryggðu og stuðla þannig að því að tryggja ævitekjur þeirra. Lífeyrir almannatrygginga myndar öryggisnet og bætir einkum kjör þeirra sem einhverra hluta vegna eiga lítil lífeyrisréttindi. Öryggisnetið verður að vera nægjanlegt til að tryggja ákveðnar lágmarkstekjur, án þess að það slævi vilja manna til að spara eða til þess að vinna sé þess kostur.
    Starfshópurinn leggur hér fram tillögur sem falla í fjóra meginflokka; hækkun bóta þeirra sem minnst hafa, hækkun bóta til hjóna, möguleika á frestun á töku lífeyris og sérstaka meðferð á atvinnutekjum öryrkja.

Veruleg hækkun á sérstakri heimilisuppbót
     *      Sérstök heimilisuppbót sem í dag er 7.409 kr. á mánuði verði hækkuð í 14.062 kr. Lagt er til að sérstök heimilisuppbót verði hér eftir nefnd tekjutryggingarauki og verður það gert í þessu áliti.
     *      Skerðing tekjutryggingarauka vegna tekna verði lækkuð úr 100% í 67%.
     *      Þá verði skilyrði til að njóta þessa bótaflokks rýmkuð og öllum lífeyrisþegum gefinn kostur á honum í stað þess að hann gangi eingöngu til einhleypra sem eru einir um heimilisrekstur. Hjón fá með þessu rétt til tekjutryggingarauka að fjárhæð 10.548 kr. á hvort hjóna eða 21.096 kr. ef bæði eru lífeyrisþegar.
     *      Einhleypum ellilífeyrisþega sem á rétt á heimilisuppbótum eru í dag tryggðar lágmarkstekjur að fjárhæð 72.659 kr. á mánuði, en við hækkun tekjutryggingarauka yrðu honum tryggðar 79.312 kr. í tekjur. Lágmarkstekjur örorkulífeyrisþega hækka samsvarandi úr 73.546 kr. í 80.200 kr. á mánuði.

Breyting á frítekjumarki ellilífeyrisþega
     *      Frítekjumark tekjutryggingar ellilífeyrisþega verði hækkað úr 22.380 kr. á mánuði í 32.512 kr. Sérstakt frítekjumark vegna greiðslna úr lífeyrissjóði verði hins vegar lagt niður. Er þetta gert til einföldunar og til samræmis við fyrirkomulag hjá örorkulífeyrisþegum.
     *      Sérstakt frítekjumark hjóna vegna lífeyrissjóðs er í dag 7.093 kr. á hvort þeirra. Til þess að gæta samræmis felur tillagan í sér að almennt frítekjumark þeirra hækki um meira en því nemur eða um 10 þús. kr.

Lífeyrir hjóna hækkar mikið
     *      Grunnlífeyrir hjóna hækki úr 90% af lífeyri einhleypings í 100%.
     *      Hjónum sem bæði eru ellilífeyrisþegar eru nú tryggðar lágmarkstekjur 48.261 kr. á mánuði á hvort þeirra eða sem nemur 66% af bótum einhleypings. Með hækkun grunnlífeyris og því að gefa þeim kost á tekjutryggingarauka samtals að fjárhæð 21.096 kr. á mánuði verða lágmarkstekjur hvors þeirra 60.651 kr. á mánuði sem eru 76,5% af tryggðum lágmarkstekjum einhleypings.

Sveigjanleg starfslok
     *      Ellilífeyrisþegum verði gefinn kostur á að fresta töku lífeyris almannatrygginga til allt að 72 ára aldurs, gegn hækkun allra bótaflokka um 0,5% á mánuði.

Úrbætur fyrir öryrkja
     *      Lagt er til að til skerðingar á tekjutryggingu öryrkja komi aðeins 60% atvinnutekna þeirra. Er þetta gert m.a. til að örva öryrkja til atvinnuþátttöku. Með þessari breytingu hækka bætur til öryrkja með atvinnutekjur mjög verulega.

Samræming frítekjumarks grunnlífeyris
     *      Lagt er til að frítekjumark grunnlífeyris verði 105.930 kr. á mánuði fyrir alla lífeyrisþega og hefur það í för með sér nokkra hækkun fyrir flesta hópa.

Bættur hagur lífeyrisþega
    Í þessum tillögum felast aukin útgjöld ríkissjóðs sem nema um 1.350 milljónum króna á ári. Til þess að sýna áhrifin á hag lífeyrisþega eru hér tekin nokkur dæmi, en ítarlegri umfjöllun er að finna síðar í álitinu.

Nokkur dæmi
Dæmi 1.
    A er einhleypur ellilífeyrisþegi. Hann hefur engar tekjur og býr í eigin íbúð ásamt systur sinni sem er útvinnandi. Hann fær ekki heimilisuppbót vegna þessa sambýlis. Frá Tryggingastofnun fær hann í dag 50.103 kr. á mánuði en fengi samkvæmt tillögunni 60.651 kr. á mánuði, sem er hækkun um 21%.

Dæmi 2.
    B er einhleypur ellilífeyrisþegi, sem vinnur hálfan daginn og fær 50 þús. kr. á mánuði. Bætur frá almannatryggingum eru í dag 46.878 kr. á mánuði en verða 53.618 kr. Hækkunin er 6.739 kr. á mánuði eða 14,4%.

Dæmi 3.
    C er einhleypur öryrki með engar tekjur aðrar en frá Tryggingastofnun. Hann á rétt á heimilisuppbót og fullum öðrum bótum. Í dag nema bætur hans 73.546 kr. á mánuði en verða 80.199 kr. sem er hækkun um 9%.

Dæmi 4.
    D er einhleypur öryrki og er í hlutastarfi og fær 50 þús. kr. í laun á mánuði. Hann fær frá Tryggingastofnun 55.305 kr. á mánuði en samkvæmt tillögunni fengi hann 66.137 kr. og er það 19,6% hækkun. Nú býðst honum fullt starf og eru launin 100 þús. kr. á mánuði. Í dag mundu bætur hans verða 22.340 kr. en tillagan mundi færa honum 48.712 kr. á mánuði sem er hækkun um 118%.

Dæmi 5.
    Hjónin E og F eru bæði ellilífeyrisþegar. Hann vinnur hluta úr degi og fær 50.000 kr. í mánaðarlaun, en hún er heimavinnandi húsmóðir og hefur aldrei unnið utan heimilis. Greiðslur almannatrygginga til þeirra eru í dag 94.164 kr. á mánuði en verða 100.206 kr. Hann á engan rétt í lífeyrissjóði og hefur hug á að hætta að vinna. Geri hann það í dag verða greiðslur Tryggingastofnunar 96.522 kr. á mánuði en með tillögunum munu þær hækka upp í 121.302 kr. sem er hækkun um 25,7%.

Dæmi 6.
    G er öryrki og er kvæntur H, sem er með 200 þús. kr. í laun á mánuði. G er með 50 þús. kr. í laun. Hann fær í dag 24.953 kr. á mánuði frá Tryggingastofnun en með tillögunni yrðu bæturnar 29.453 og er það hækkun um 18%.


2. Tekjur lífeyrisþega


2.1     Ellilífeyrisþegar
    Tekjur og aðstæður ellilífeyrisþega eru afar mismunandi. Öðru fremur ræðst fjárhagsstaða þeirra af þremur þáttum:.
     *      réttindum í lífeyrissjóðum,
     *      atvinnuþátttöku,
     *      eignatekjum.
     Lífeyrisréttindi
    Allt frá árinu 1974 hefur launþegum verið skylt að greiða í lífeyrissjóði og frá 1980 hefur lagaskyldan einnig tekið til þeirra sem stunda sjálfstæðan atvinnurekstur. Árið 1999 fengu 85% ellilífeyrisþega greiðslur úr lífeyrissjóði. Meðal lífeyrisþega á áttræðisaldri er hlutfallið enn hærra eða um 90%. Hlutfallið er áberandi lægst meðal elstu og yngstu ellilífeyrisþeganna. Meðal yngri lífeyrisþeganna, þ.e. þeirra sem eru yngri en sjötugir, fá 71% greiðslur úr lífeyrissjóðum, en þessi hópur er í miklum mæli enn í vinnu. Elsti hópurinn, þ.e. áttræðir og eldri, hefur hins vegar ekki átt kost á að greiða í lífeyrissjóð í sama mæli og hinir yngri.

     Atvinnuþátttaka
    Atvinnuþátttaka eldra fólks er óvenju mikil á Íslandi og á sér ekki hliðstæður meðal annarra iðnvæddra þjóða. Atvinnuþátttaka 55–64 ára í aðildarríkjum OECD var þannig aðeins 51,6% árið 1999 en 87,1% hér á landi. Þá er athyglisvert að atvinnuþátttaka Íslendinga á aldrinum 65–74 ára er hærri en meðal annarra Evrópuþjóða á aldrinum 55–64 ára. Réttur til lífeyris almannatrygginga stofnast við 67 ára aldur en í mörgum lífeyrissjóðum fæst fullur lífeyrir ekki fyrr en við 70 ára aldur. Mjög margir halda því áfram fullri vinnu fram til sjötugs. Þriðjungur ellilífeyrisþega er með atvinnutekjur, en 61% ellilífeyrisþega sem eru undir sjötugu.

     Fjármagnstekjur
    Fjármagnstekjur hafa vaxið verulega á Íslandi í kjölfar breytinga á fjármagnsmarkaði og frjálsari vaxtamyndun. Árið 1999 töldu 76% ellilífeyrisþega fram fjármagnstekjur og námu þær að meðaltali um 19 þús. kr. á mánuði. Hafa verður þó í huga að breytileiki er mjög mikill. Frá og með árinu 1996 kemur helmingur fjármagnstekna til skerðingar á bótum almannatrygginga, en áður komu slíkar tekjur ekki nema í undantekningartilvikum til skerðingar á bótum.

     Breytingar á tekjumyndun
    Ofangreindar breytingar hafa haft í för með sér að tekjumyndun ellilífeyrisþega hefur breyst mjög á undanförnum 5–10 árum. Þeim fjölgar sem fá greiðslur úr lífeyrissjóði en atvinnuþátttaka minnkar.

     Hlutur atvinnutekna minnkar
    Árið 1991 var 41% ellilífeyrisþega með atvinnutekjur og 75% ellilífeyrisþega innan við sjötugt. Hlutfall ellilífeyrisþega með atvinnutekjur lækkaði niður í um 29% árið 1999 og meðal ellilífeyrisþega undir sjötugu var hlutfallið 61%.

     Mikil tekjudreifing
    Tafla 1 sýnir meðal- og miðtekjur ellilífeyrisþega á árinu 1999 á mánuði í þúsundum króna.
    Um miðtekjur gildir að jafnmargir hafa tekjur fyrir ofan þær og neðan. Taflan sýnir einnig að miðtekjur hjóna sem bæði eru lífeyrisþegar eru um 90% af tekjum tveggja einhleypra.

Tafla 1. Meðal- og miðtekjur ellilífeyrisþega 1999
Fjármagnstekjur eru meðtaldar, þús. kr. á mánuði.
    Meðaltekjur Miðtekjur
Breyting, Breyting,
Þús. kr. 1998–99 Þús. kr. 1998–99
Einhleypir
120,9 13,6% 97,3 7,4%
Hjón, bæði lífeyrisþegar
229,4 12,7% 175,6 12,1%
Hjón, annað lífeyrisþegi
290,1 11,0% 230,4 8,5%
Heimild: Þjóðhagsstofnun.

     Tekjudreifing
    Dreifingu tekna ellilífeyrisþega eru gerð skil í myndum 1–3. Mynd 1 sýnir hlutfallslegan fjölda á hverju tekjubili. Af myndinni má greina að 65% einhleypra ellilífeyrisþega eru með árstekjur á bilinu 900–1.400 þús. kr. Samsvarandi liggja árstekjur um 60% hjóna sem bæði eru ellilífeyrisþegar á bilinu 1.500 til 2.500 þús. kr.

     Einhleypir ellilífeyrisþegar
    Í síðari myndunum er lífeyrisþegum skipt í fimm jafna hópa eftir tekjum og litið á meðaltekjur í hverjum hóp. Jafnframt eru tekjurnar greindar í fjóra flokka; atvinnutekjur, greiðslur frá Tryggingastofnun, greiðslur frá lífeyrissjóðum, og fjármagnstekjur. Á mynd 2 er tekjudreifing einhleypra ellilífeyrisþega sýnd. Þar vekur athygli hversu miklu munar á tekjum í efsta hópnum (þ.e. 20% þeirra sem eru með hæstar tekjur) og hinna hópanna. Þannig eru meðaltekjur tekjuhæsta hópsins ríflega tvöfaldar á við næsta hóp og næstum 3,5-faldar tekjur lægsta hópsins. Tekjuhæsti hópurinn er með miklu meiri atvinnutekjur en hinir hóparnir, eða 70 þús. kr. að meðaltali á mánuði samanborið við 4 þús. kr. meðaltal hinna hópanna. Það bendir til að í efsta tekjuhópnum séu yngri lífeyrisþegar. En hann er einnig með meiri tekjur úr lífeyrissjóði og meiri fjármagnstekjur. Hins vegar er lítill munur á tekjum hinna fjögurra hópanna. Meðaltekjur þeirra eru 92 þús. kr. á mánuði.
    Greiðslur almannatrygginga jafna tekjudreifinguna. Greiðslur til manna í efsta tekjuhópnum námu að meðaltali 19 þús. kr. á mánuði, samanborið við 53 þús. kr. að meðaltali í hinum hópunum.

Tafla 2. Samsetning meðaltekna ellilífeyrisþega 1991 og 1999 1)
% af heildartekjum.
1991 1999
Atvinnutekjur
19,6 14,6
Tekjur af eigin atvinnurekstri
4,1 4,0
Greiðslur Tryggingastofnunar
40,0 33,5
Greiðslur lífeyrissjóða
24,5 31,3
Aðrar tekjur
0,6 0,7
Fjármagnstekjur
11,2 16,0
Samtals
100,0 100,0
1) Nær til einhleypra og hjóna þar sem bæði eru lífeyrisþegar.
Heimild: Þjóðhagsstofnun.


Mynd 1. Dreifing heildartekna ellilífeyrisþega 1999
Hlutfall framteljenda, %.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


Heimild: Þjóðhagsstofnun.

Mynd 2. Meðaltekjur einhleypra ellilífeyrisþega og samsetning tekna eftir fimmtungum 1999
Tekjur á mánuði í þúsundum króna.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


Heimild: Þjóðhagsstofnun.

     Hjón bæði lífeyrisþegar
    Á mynd 3 er hjónum sem bæði eru ellilífeyrisþegar skipt, með sama hætti og í fyrri mynd í fimm, í jafnstóra hópa eftir tekjum. Við blasir svipað mynstur og í mynd 2, tekjuhæsti hópurinn er með miklu hærri tekjur en hinir fjórir. Þannig eru meðaltekjur 20% tekjuhæstu hjónanna ríflega tvöfaldar á við næsta og fjórfaldar á við þann lægsta.

Mynd 3. Meðaltekjur hjóna beggja ellilífeyrisþega og samsetning tekna eftir fimmtungum 1999
Tekjur á mánuði í þúsundum króna.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Heimild: Þjóðhagsstofnun.

     Ungir og aldnir ellilífeyrisþega
    Mikill munur er á tekjum ellilífeyrisþega eftir aldri og þar sker aldurshópurinn 67–69 ára sig töluvert úr. Meðal einhleypra í þessum aldurshópi er rúmur helmingur með atvinnutekjur og um 80% þeirra fá greiðslur úr lífeyrissjóði. Til samanburðar má nefna að meðal einhleypra á aldrinum 70–74 ára eru 25% með atvinnutekjur og 94% með greiðslur úr lífeyrissjóði.

2.2     Örorkulífeyrisþegar
    Aðstæður örorkulífeyrisþega eru afar misjafnar, en í stórum dráttum gilda þeir þrír meginþættir sem eiga við um ellilífeyrisþega.

     Aðstæður öryrkja og ellilífeyrisþega
    Fjölskyldugerð og framfærslubyrði öryrkja er með öðrum hætti en meðal ellilífeyrisþega. Hlutfallslega eru mun fleiri öryrkjar einhleypir (58%) en ellilífeyrisþegar (42%). Fátítt er að hjón séu bæði öryrkjar, en algengt að bæði hjón séu ellilífeyrisþegar, það á við um 47% ellilífeyrisþega. Þá eiga um 36% öryrkja maka sem ekki er lífeyrisþegi, en tæp 11% ellilífeyrisþega. Lífeyrisþegar með börn á framfæri eiga rétt á barnalífeyri og fengu alls 2.440 örorkulífeyrisþegar slíkar greiðslur árið 1999.

     Lífeyrisréttindi
    Hlutfallslega mun færri öryrkjar fá greiðslur úr lífeyrissjóðum en ellilífeyrisþegar. Árið 1999 fengu um 60% örorkulífeyrisþega greiðslur úr lífeyrissjóði og aðeins um helmingur einhleypra. Þessi mikli munur sem er á fjölda öryrkja og ellilífeyrisþega sem fá greiðslur úr lífeyrissjóði gerir aðstæður öryrkja mjög frábrugðnar aðstæðum ellilífeyrisþega.
    Undantekningarlaust eru réttindi manna til örorkulífeyris frá lífeyrissjóðum byggð á framreikningi nú. Með framreikningi er þeim stigum bætt við sem reikna má með að viðkomandi hefði öðlast til 67 ára aldurs miðað við greiðslu þriggja síðustu ára. Örorkustig ræður síðan þeim hundraðshluta af framreiknuðum ellilífeyrisréttindum sem öryrkjanum ber í örorkulífeyri.

     Aldur og örorka
    Aldur öryrkja ræður miklu um tekjur þeirra og aðstæður. Þrír fjórðu einhleypra öryrkja sextugra og eldri fengu greiðslur úr lífeyrissjóði, en atvinnuþátttaka í þessum hóp var lítil, aðeins um 23% töldu fram atvinnutekjur. Aðstæður yngstu hópanna 16–24 ára voru með allt öðrum hætti og aðeins rúm 4% þeirra fengu greiðslur úr lífeyrissjóði, en 73% töldu fram atvinnutekjur.

     Atvinnuþátttaka
    Árið 1999 töldu 58% öryrkja fram einhverjar atvinnutekjur, en meðal einhleypra öryrkja var hlutfallið 40%.
    Tafla 3 sýnir meðal- og miðtekjur örorkulífeyrisþega á árinu 1999 á mánuði.

Tafla 3. Meðal- og miðtekjur öryrkja 1999
Fjármagnstekjur eru meðtaldar, þús. kr. á mánuði.
Meðaltekjur Miðtekjur
Breyting, Breyting,
Þús. kr. 1998–99 Þús. kr. 1998–99
Einhleypir 90,2 6,0% 84,0 5,9%
Hjón, bæði lífeyrisþegar 181,9 9,7% 172,5 12,0%
Hjón, annað lífeyrisþegi 255,4 4,5% 228,7 7,1%
Heimild: Þjóðhagsstofnun.

     Tekjudreifing
    Dreifingu tekna öryrkja eru gerð skil í myndum 4 og 5. Mynd 4 sýnir dreifingu meðal einhleypra öryrkja. Þar kemur vel fram að greiðslur úr lífeyrissjóði eru afgerandi þáttur. Meðal þeirra sem eru með hæstar tekjur eru greiðslur úr lífeyrissjóði 30–35% teknanna en aðeins 2–3% meðal þeirra tekjulægstu. Mynd 4 sýnir samsvarandi fyrir hjón þar sem annað er öryrki. Mikill munur er á tekjum og samsetningu tekna þessara hópa. Meðal hjóna þar sem annað er öryrki eru atvinnutekjur (væntanlega fyrst og fremst þess sem býr við fulla orku) yfirgnæfandi stærsti þátturinn í tekjumynduninni.

Mynd 4. Meðaltekjur einhleypra örorkulífeyrisþega og samsetning tekna 1999 eftir fimmtungum
Tekjur á mánuði í þúsundum króna.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


Heimild: Þjóðhagsstofnun.

Mynd 5. Meðaltekjur giftra örorkulífeyrisþega og samsetning tekna 1999
Tekjur á mánuði í þúsundum króna. Annað öryrki.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


Heimild: Þjóðhagsstofnun.

Tafla 4. Samsetning meðaltekna örorkulífeyrisþega 1999
% af heildartekjum.
Hjón Hjón
annað bæði
Einhleypur öryrki öryrkjar
Atvinnutekjur
18,5 66,5 20,4
Greiðslur Tryggingastofnunar
54,2 13,7 44,8
Greiðslur lífeyrissjóða
18,2 12,4 28,7
Aðrar tekjur
4,3 2,1 3,0
Fjármagnstekjur
4,8 5,3 3,1
Samtals
100,0 100,0 100,0
Heimild: Þjóðhagsstofnun.


3. Lífeyriskerfið


     Þriggja stoða lífeyriskerfi
    Meginstoðir lífeyriskerfis þjóðarinnar eru þrjár; lögbundnir lífeyrissjóðir, almannatryggingar og frjáls lífeyrissparnaður. Hver þessara stoða er styrk og í sameiningu ná þær vel flestum þeim markmiðum sem setja má lífeyriskerfi án þess að valda óhóflegum kostnaði. 1 Lífeyrissjóðirnir og hinn frjálsi lífeyrissparnaður standa undir lífeyri sem byggir á iðgjaldagreiðslum hinna tryggðu og stuðla þannig að því að tryggja ævitekjur þeirra. Almannatryggingar eru fyrst og fremst öryggisnet fyrir þá sem eiga lítil lífeyrisréttindi.

     Rammi lífeyrissparnaðar treystur
    Á síðustu árum hefur þessi skipan lífeyrismála verið treyst. Þar skiptir mestu að mótaður hefur verið skýr lagarammi um lífeyrissjóðina og þeir styrkt fjárhagsstöðu sína umtalsvert. Grundvöllur hins frjálsa lífeyrissparnaðar hefur einnig verið treystur með lagasetningu. Í nýgerðum kjarasamningum var samið um mjög aukið mótframlag vinnuveitanda sem vafalaust á eftir að auka til muna frjálsan lífeyrissparnað. Skattalegri meðferð lífeyrissparnaðar hefur einnig verið breytt til þess að örva slíkt sparnaðarform. Þá hefur tekjutenging fest sig í sessi í almannatryggingakerfinu á undanförnum áratugum.

     Skyldutrygging lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða
    Setning laga um starfsemi lífeyrissjóða árið 1997 markaði veruleg tímamót í félagsmálum á Íslandi, því fram að þeim tíma voru engin heildarlög um sjóðina. Meginatriði laganna eru:
     *      skilgreining á skyldutryggingu,
     *      heimild til viðbótartryggingar,
     *      skilgreining lágmarksréttinda,
     *      skilyrði um rekstur og starfsleyfi.
    Rauði þráðurinn í lögunum er að eignir og skuldbindingar sjóðanna skuli standast á. Lögin kveða á um með hvaða hætti eigi að meta skuldbindingar og eignir og jafnframt um þær ráðstafanir sem sjóðir skuli grípa til ef skuldbindingar og eignir standast ekki á. Lífeyrir sjóðfélaga ræðst annars vegar af fyrir fram skilgreindum reglum og hins vegar af því hvernig tekst að ávaxta sjóðina. Lífeyrir tekur almennt mið af neysluverðlagi en góð ávöxtun getur leitt til hækkunar á lífeyri umfram verðlag.
    Ávöxtun sjóðanna hefur verið mjög góð undanfarin ár, á tíu ára tímabili 1991–1999 var meðalávöxtun um 7% umfram verðbólgu, en við tryggingarfræðilegt mat er almennt miðað við 2%–3½% raunávöxtun. Við þessar aðstæður hafa nokkrir stórir sjóðir aukið lífeyrisréttindi. Fjárfestingarstefna sjóðanna hefur breyst á undanförnum árum, m.a. með setningu laga um skyldutryggingu lífeyrisréttinda. Af þessu mun væntanlega leiða hærri ávöxtun þegar til lengdar lætur og þar með enn ríkari lífeyrisréttindi sjóðfélaga. Gera má ráð fyrir fækkun sjóða til þess að draga úr rekstrarkostnaði þeirra og áhættu. Sjóðum hefur fækkað umtalsvert á síðustu árum. Þeir voru nær 100 talsins fyrir allnokkrum árum en í árslok 2000 voru þeir 54, en þar af taka 11 ekki lengur við iðgjöldum.

     Viðbótarlífeyrissparnaður
    Viðbótarlífeyrissparnaður er ólíkur skyldutryggingunni að því leyti að lífeyrir byggist eingöngu á ávöxtun og um séreign er að ræða. Þá er valkvætt með hvaða hætti lífeyrir er tekinn út eftir 60 ára aldur. Hægt er að taka hann út á árabilinu að 67 ára aldri, taka alla eignina út án takmarkana eftir 67 ára aldur, eða breyta inneign í lífeyrisgreiðslur til æviloka. Um þennan lífeyrissparnað gilda sömu skattareglur og skyldutryggingu lífeyrisréttinda, þ.e. heimild er til frádráttar iðgjalds frá skattskyldum tekjum og útgreiðsla er skattlögð sem almennar tekjur.

     Bætur almannatrygginga hafa sætt gagnrýni
    Í öllum megindráttum er sátt í samfélaginu um þessa skipan lífeyrismála. Einstakir þættir hafa þó sætt gagnrýni. Þannig hefur lífeyriskerfi almannatrygginga verið gagnrýnt fyrir að:
     *      vera flókið,
     *      leiða til mikilla jaðaráhrifa sem letur vilja til vinnu og sparnaðar,
     *      veita hjónum lakari lífeyri en einhleypum,
     *      fela í sér óréttláta tengingu við tekjur maka,
     *      lífeyrir sé of lágur,
     *      einstakir hópar sitji eftir,
     *      gliðnun hafi orðið milli launa og lífeyris.
    Hér á eftir verður fjallað um þessi atriði.

     Fjórir meginflokkar bóta
    Lífeyrisbætur eru í grundvallaratriðum greiddar í fjórum flokkum; grunnlífeyrir, tekjutrygging, heimilisuppbót og tekjutryggingarauki. Frekari uppbætur eru greiddar til að mæta sérstökum útgjöldum, svo sem vegna lyfjakaupa. Ekki er þó horft til þeirra í þessari umfjöllun. Í töflu 5 er yfirlit yfir fjölda og fjárhæðir eftir einstökum bótaflokkum árið 1999. Þar kemur fram að heildarlífeyrir til aldraðra og öryrkja nam um 19,8 milljörðum króna. En til samanburðar má áætla að útgjöld lífeyrissjóða vegna elli- og örorkulífeyris hafi numið um 13,3 milljörðum króna árið 1999. Hlutur lífeyrissjóðanna í heildarlífeyrisgreiðslum hefur vaxið hröðum skrefum og þess skammt að bíða að hann verði meiri en almannatrygginga.

     Grunnlífeyrir
    Grunnlífeyrir er hinn upprunalegi lífeyrir almannatrygginga og allt til ársins 1970 eini lífeyririnn. Í ársbyrjun 1992 var tekin upp tekjutenging grunnlífeyris að hluta, en raunar var grunnlífeyrir tengdur tekjum árin 1946 til 1960. Tekjur úr lífeyrissjóði koma ekki til skerðingar á grunnlífeyri og ekki heldur tekjur maka.

     Tekjutrygging
    Tekjutrygging var leidd í lög árið 1971. Markmið hennar var að tryggja lífeyrisþegum lágmarkstekjur. Upphaflega voru öllum lífeyrisþegum, sem höfðu minna en tilgreindar tekjur, tryggðar óskertar bætur, þ.e. skerðing var króna á móti krónu. Þessari skipan var breytt árið 1974 er lífeyrisþegum var gefinn kostur á að hafa ákveðnar tekjur (síðar nefnt frítekjumark) án þess að tekjutrygging skertist og var skerðing lækkuð niður í 50%. Árið 1984 var síðan skerðing lækkuð úr 50% í 45%. Árið 1990 var innleitt í lög sérstakt frítekjumark vegna greiðslna úr lífeyrissjóði.

Tafla 5. Fjöldi lífeyrisþega og lífeyrir aldraðra og öryrkja frá Tryggingastofnun árið 1999*
Greiðslur á ári
Fjöldi milljónir kr.
Ellilífeyrisþegar **
    Ellilífeyrir
24.635 4.639
    Tekjutrygging
20.577 6.218
    Heimilisuppbót
7.616 1.157
    Tekjutryggingarauki
1.211 81
    Uppbætur
6.886 1.082
    Vasapeningar
1.867 217
    Bensínstyrkur
3.401 209
    Bílakaupastyrkur
71 18
    Samtals
… 13.621
Örorkulífeyrisþegar **
    Örorkulífeyrir
8.952 1.771
    Tekjutrygging
7.489 2.413
    Heimilisuppbót
2.532 400
    Tekjutryggingarauki
734 58
    Uppbætur
2.853 274
    Barnalífeyrir vegna örorku foreldra
2.585 688
    Vasapeningar
269 48
    Bensínstyrkur
1.850 118
    Bílakaupastyrkur
255 77
    Samtals
… 5.847
Örorkustyrksþegar
    Örorkustyrkur
1.629 227
    Barnalífeyrir vegna örorku foreldra
248 68
    Bensínstyrkur
70 7
    Samtals
… 302
Heimild: Staðtölur almannatrygginga 1999, Tryggingastofnun ríkisins, 2000.
*        Fjöldatölur miðast við 1. desember 1999.
**    Sjómannalífeyrir er talinn með ellilífeyri og endurhæfingarlífeyrir með örorkulífeyri.

     Breyting tekjutryggingar lífeyrisþega í sambúð
    Við úrskurð tekjutryggingar lífeyrisþega í sambúð er miðað við helming samanlagðra tekna sambýlisfólksins. Styr hefur staðið um þennan framgangsmáta. Til að mæta þeirri gagnrýni hefur frítekjumark öryrkja í sambúð verið hækkað verulega á undanförnum árum. Þetta ágreiningsefni kom til kasta dómstóla og lyktir urðu þær að Hæstiréttur kvað upp dóm 19. desember árið 2000 þar sem rétturinn komst að þeirri niðurstöðu að óheimilt hafi verið að skerða tekjutryggingu öryrkja í sambúð með þeim hætti sem gert hefur verið. Vísað er í dómnum til þess að ef tekjutrygging fellur niður vegna tekna maka fái lífeyrisþeginn aðeins grunnlífeyri, sem nú er 18.424 kr. á mánuði. Að mati dómsins er sú fjárhæð það lág að möguleikar öryrkja til framfærslu fjölskyldu sinnar eru takmarkaðir. Brugðist var við þessum dómi með lagasetningu um tekjutryggingu öryrkja og um tekjutryggingu ellilífeyrisþega. Í þessum lögum fólst sérregla um tekjutryggingu lífeyrisþega í hjúskap, sem lýtur að því að tryggja lífeyrisþeganum ákveðnar lágmarkstekjur óháð tekjum maka. Þannig verður tekjutrygging lífeyrisþega í sambúð aldrei lægri en 25.000 kr. á mánuði. Samkvæmt þessari sérreglu um tekjutryggingu koma sjálfsaflatekjur lífeyrisþegans til skerðingar á þessum 25.000 og er skerðingarhlutfallið 67%. Að viðbættum grunnlífeyri eru lífeyrisþeganum þannig tryggðar 43.424 kr. á mánuði án tillits til tekna maka.

     Heimilisuppbót
    Heimilisuppbót kom til skjalanna árið 1977. Hún stendur þeim lífeyrisþegum til boða sem einir eru um heimilisrekstur án þess að njóta fjárhagslegs hagræðis af sambýli eða samlögum við aðra um húsnæðisaðstöðu eða fæðiskostnað. Heimilisuppbótin er greidd sem uppbót á tekjutryggingu og skerðist hún hlutfallslega við tekjutryggingu. Lífeyrisþegi sem nýtur óskertrar tekjutryggingar fær þannig fulla heimilisuppbót.

     Tekjutryggingarauki
    Tekjutryggingarauka (sérstakri heimilisuppbót) var komið á árið 1987. Sömu skilyrði um heimilisaðstæður lífeyrisþega gilda og um heimilisuppbótina. Skerðing krónu á móti krónu gildir um þennan bótaflokk og er hann án frítekjumarks.

     Frekari uppbætur
    Frekari uppbætur eru heimildarflokkur sem greiða má ef sýnt þykir að lífeyrisþegi komist ekki af án viðbótargreiðslna vegna sérstaks kostnaðar. Einkum er um að ræða sjúkra- og lyfjakostnað, umönnunarkostnað og húsaleigu. Fjárhæð uppbóta miðast við grunnlífeyri og getur numið allt að 140% af grunnlífeyri. Við ákvörðun uppbóta er miðað við allar tekjur lífeyrisþega, jafnt sjálfsaflatekjur sem bætur almannatrygginga.
    Þegar lífeyrisþegi er heimilismaður á dvalarstofnun renna bætur hans til stofnunarinnar, en hann fær vasapeninga. Mismun bóta og dvalarkostnaðar greiðir Tryggingastofnun dvalarheimili sem dvalarheimilisuppbót.

     Áhrif tekjutengingar
    Tekjutenging leiðir til þess að þegar aðrar tekjur aukast lækka lífeyrisgreiðslur. Þetta hefur komið skýrt fram á undanförnum árum. Sem dæmi má nefna að árið 1995 fengu 47,4% ellilífeyrisþega óskerta tekjutryggingu en 40,7% árið 1999. Þannig má að öðru óbreyttu gera ráð fyrir að heldur dragi úr lífeyrisgreiðslum Tryggingastofnunar þegar vel árar og öfugt er kaupmáttur minnkar. Þegar til lengdar er litið hefur tekjutengingin í för með sér að auknar greiðslur úr lífeyrissjóðum munu draga úr útgjöldum Tryggingastofnunar.

     Flókin tekjutenging
    Víðtæk tekjutenging einkennir lífeyriskerfi almannatrygginga. Kostir tekjutengingar eru einkum þeir að með henni má bæta hag þeirra sem verst eru settir án þess kostnaðarauka sem því fylgdi að bætur hinna er betur standa hækki einnig. Hins vegar er tekjutengingin flókin í mörgum tilvikum. Þannig eru frítekjumörk mismunandi eftir því hvort um er að ræða atvinnu-, lífeyris- eða fjármagnstekjur. Þá er gerður greinarmunur á lífeyrisþegum eftir hjúskaparstöðu í veigamiklum atriðum. Tekjuskerðing er mismunandi eftir bótaflokkum. Mynd 6 sýnir samhengið milli einstakra bótaflokka og atvinnutekna fyrir einhleypan ellilífeyrisþega sem á rétt á heimilisuppbót.

Mynd 6. Bætur til einhleyps ellilífeyrisþega með atvinnutekjur
Þúsundir króna á mánuði.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Tafla 6. Yfirlit yfir bótaflokka

Tekjutenging Að fullu skert við*)
Grunnlífeyrir Eigin tekjur af atvinnu,
fjármagnstekjur að hálfu.
Einhl. 162.723 kr./mán.
Hjón 156.583 kr./mán.
hvort um sig
Tekjutrygging Eigin tekjur og maka af atvinnu og lífeyri,
fjármagnstekjur að hálfu.
Einhl. 92.778 kr./mán.
Hjón 92.778 kr./mán.+)
hvort um sig
Lífeyrisþega í sambúð eru tryggðar að
lágmarki 25 þús. kr. á mánuði.
Lífeyrisþegi í sambúð:
37.500 kr./mán.
Heimilisuppbót Sami og tekjutrygging einhleypings.
Einhl. 92.778 kr./mán.
Tekjutryggingarauki Allar tekjur aðrar en bætur
almannatrygginga.
Einhl. 7.409 kr./mán.
*) Miðað er við ellilífeyrisþega. +) Miðað við að bæði séu ellilífeyrisþegar.

     Jaðaráhrif
    Með jaðaráhrifum er átt við samspil skerðingar bóta og skatta, og segir hver hækkun ráðstöfunartekna lífeyrisþegans verður þegar sjálfsaflatekjur hans aukast. Við mat á jaðaráhrifum þarf að hafa í huga að sjálfsaflatekjur til skerðingar bóta eru jafnan miðaðar við skattframtal og taka til tekna fyrra árs. Hins vegar eru bætur sem og aðrar tekjur staðgreiðsluskyldar. Ekki er þó tekið tillit til þessa í mynd 7. Það mundi þó breyta niðurstöðum nokkuð. Ef sjálfsaflatekjur lífeyrisþega hækka milli ára um 10% verða virk jaðaráhrif þess sem nýtur tekjutryggingarauka 94,5% í stað 100%. Virk jaðaráhrif lífeyrisþega sem fær skerta tekjutryggingu eru 75,8% í stað 79,5% og sá er fær skertan grunnlífeyri býr við virka skerðingu er nemur 55,5% í stað 57,1%.
    Mynd 7 sýnir jaðaráhrif vegna skatta og bóta en í myndinni er gert ráð fyrir að allar tekjur lífeyrisþegans séu af atvinnu. Tekjutryggingarauki er skertur krónu fyrir krónu og því eru jaðaráhrifin 100%, sem þýðir að ráðstöfunartekjur lífeyrisþegans aukast ekki þegar tekjur fyrir skatt aukast. Það gefur augaleið að svo mikil skerðing er vinnuletjandi, en hafa verður í huga að þessi skerðing fellur niður þegar tekjur eru orðnar 7.124 kr. á mánuði. Meðan tekjur lífeyrisþega eru lægri en frítekjumark tekjutryggingar er engin tekjutenging bóta virk og jaðaráhrif stafa eingöngu af almennum tekjuskatti. Þegar tekjur eru orðnar hærri en frítekjumarkið kemur skerðing vegna tekjutengingar ofan á tekjuskatta og jaðaráhrifin verða 79,4%. Það þýðir að ef lífeyrisþeginn vinnur sér inn 1.000 kr. tekjur aukalega heldur hann eftir rúmum 200 kr. Þessara áhrifa gætir á alllöngu tekjubili eða allt til þess að tekjutrygging fellur niður. Margir lífeyrisþegar eru með tekjur á þessu bili. Við svipaðar eða litlu hærri tekjur fer grunnlífeyrir að skerðast. Á því tekjubili verða jaðaráhrifin 56,9%, en þá fara saman tekjuskattur og skerðing grunnlífeyris.

Mynd 7. Jaðaráhrif
Einhleypur ellilífeyrisþegi með rétt á heimilisuppbót.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


     Mismunandi meðferð tekna
    Mynd 8 sýnir hversu mismiklar bætur geta orðið eftir því um hvers konar tekjur er að ræða. Hafi maður t.d. 50 þús. kr. á mánuði í sjálfsaflatekjur fær hann 46,9 þús. kr. á mánuði frá Tryggingastofnun ef tekjurnar eru af atvinnu, 53,6 þús. kr. ef um tekjur frá lífeyrissjóði er að ræða og 63,5 þús. kr. ef um fjármagnstekjur er að ræða. Tekjur lífeyrisþega fyrir skatt sem hefur 50 þús. kr. í atvinnutekjur eru þannig 85% af því sem lífeyrisþegi með sömu tekjur af eignum fær. Munurinn er enn meiri þegar tillit hefur verið tekið til skatta.
    Mikill munur er einnig á jaðaráhrifunum og eru þau langminnst ef um fjármagnstekjur er að ræða. Annars vegar er skatthlutfall fjármagnstekna 10% í stað 38,76%, en hins vegar kemur aðeins helmingur fjármagnstekna til skerðingar og því helmingast skerðingarhlutföll. Þannig heldur sá sem hefur 50 þús. kr. í eignatekjur eftir tæpum 696 kr. af 1.000 kr. hækkun fjármagnstekna, samanborið við 205 kr. ef um er að ræða atvinnutekjur eða tekjur úr lífeyrissjóði.

Mynd 8. Greiðslur almannatrygginga og sjálfsaflatekjur
Einhleypur ellilífeyrisþegi með rétt á heimilisuppbót.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


     Fjármagnstekjur að nafni eða raun?
    En ekki er þó allt sem sýnist í þessum efnum. Á það er að líta að til tekna á framtölum koma allar fjármagnstekjur og er þar ekki tekið tillit til áhrifa verðbólgu. Hér er því um að ræða nafnvexti og ekki raunvexti, en ætla má að við skaplega verðbólgu séu raunvextir ekki fjarri því að vera helmingur nafnvaxta. Þá er einnig að líta til þess að í framtöl eru færðar fjármagnstekjur þegar þær koma til greiðslu en ekki á því tímabili sem þær falla til. Þetta hefur m.a. í för með sér að vextir af spariskírteinum færast á framtal þegar skírteinin eru innleyst. Þar getur verið um verulegar fjárhæðir að tefla og dæmi eru af því að lífeyrisþegar hafi misst umtalsverðan rétt til bóta við innlausn spariskírteina.

     Mismunun vegna hjúskaparstöðu
    Lífeyrir hjóna eða sambýlisfólks er mun lægri en svarar til lífeyris tveggja einhleypra. Munurinn felst í nokkrum liðum:
     *      Grunnlífeyrir hvors hjóna er 90% af lífeyri einhleypings.
     *      Sérstakt frítekjumark hvors hjóna um sig vegna greiðslna úr lífeyrissjóði við útreikning á tekjutryggingu er 70% af samsvarandi frítekjumarki einhleypings.
     *      Hjónum stendur hvorki til boða heimilisuppbót né tekjutryggingarauki.
     *      Gerður er greinarmunur við útreikning á lífeyri hjóna hvort bæði eða einungis annað fá lífeyri.
    Á mynd 9 sést hversu munurinn getur verið mikill. Miðað er við að atvinnutekjur hvors hjóna um sig og einhleypingsins séu jafnháar. Bætur hvors hjóna eru bornar saman við bætur einhleypings sem á rétt á heimilisuppbót. Eins og vænta má er munurinn mestur við lágar tekjur. Ef tekjur eru engar fær einhleypur 50% meira en annað hjóna, en hlutfallið lækkar er tekjur hækka. Taka skal fram að ekki eiga allir einhleypir rétt á heimilisuppbótum, þar sem skilyrði þeirra er að maður sé einn um heimilisrekstur.

Mynd 9. Greiðslur almannatrygginga til einhleypra og annars hjóna

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


     Veruleg aukning kaupmáttar bóta
    Kaupmáttur bóta hefur vaxið jafnt og þétt á undanförnum 5–6 árum. Kaupmáttur grunnlífeyris og tekjutryggingar var þannig 12½% meiri árið 2000 en 1994. Kaupmáttur tryggðra lágmarkstekna lífeyrisþega var 18½% meiri. Við þennan samanburð þarf að hafa í huga að á móti mikilli hækkun heimilisuppbótar árið 1997 var niðurfelling fastagjalds síma og áskriftar RÚV aflögð.

     Bætur, laun og verðlag
    Lög um almannatryggingar kveða á um að bætur almannatrygginga skuli breytast árlega í samræmi við fjárlög hverju sinni. Ákvörðunin skal taka mið af launaþróun, þó þannig að bætur hækki aldrei minna en verðlag samkvæmt vísitölu neysluverðs. Ef kaupmáttur launa dregst saman er kaupmáttur bóta varinn þótt almennt sé gert ráð fyrir að bæturnar fylgi almennum taxtahækkunum. Til grundvallar þessari stefnu liggur það viðhorf að almannatryggingar séu öryggisnet, komi til viðbótar greiðslum úr lífeyrissjóðum og að bætur taki mið af framfærslu.

     Kaupmáttur bóta varinn 1990–1994
    Íslenskt þjóðarbú hreppti mótvind á fyrri hluti tíunda áratugarins. Atvinnuleysi jókst og kaupmáttur launa lækkaði. Á þeim tíma var kaupmáttur bóta almannatrygginga hins vegar tiltölulega stöðugur, eins og sést á mynd 10.

Mynd 10. Kaupmáttur bóta
Vísitölur 1990=100.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


     Bætur halda í við laun á almennum markaði 1995–2000
    Í þeirri uppsveiflu sem þjóðarbúið hefur notið undanfarin ár hefur kaupmáttur launa vaxið hröðum skrefum. Mannekla á ýmsum sviðum hefur leitt til umtalsverðs launaskriðs, þ.e. hækkunar launa umfram hækkun samningsbundinna kauptaxta. Þá hefur verið gerð grundvallarbreyting á kjaramálum opinberra starfsmanna. Þessir þættir hafa haft í för með sér að launavísitalan í heild hefur hækkað umfram taxta og kaupmáttur launa hefur batnað á undanförnum fimm árum um rúm 20%. Vegna fyrrnefndrar skipulagsbreytingar í kjaramálum opinberra starfsmanna er eðlilegra að miða við almenna markaðinn en þar hefur kaupmáttur vaxið um rúm 15% á sama tíma. Kaupmáttur bóta hefur haldið í við kaupmátt á almennum vinnumarkaði og raunar hefur kaupmáttur tryggðra lágmarkstekna aukist ívið meira.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Mynd 11. Laun, bætur og verðlag 1990–2000
Vísitölur 1990=100.

4. Tillögur


     Stefnumörkun
    Starfshópurinn hefur farið ítarlega yfir lífeyristryggingar almannatrygginga og leggur fram hugmyndir grundvallaðar á þeim athugunum. Þá er og horft til eftirfarandi stefnumörkunar:
     *      Lífeyrissjóðirnir munu bera uppi lífeyri landsmanna er fram í sækir í enn ríkari mæli en nú. Taka þarf tillit til þessarar stefnumörkunar við allar breytingar á lífeyri almannatrygginga.
     *      Lífeyrir almannatrygginga gegnir fyrst og fremst hlutverki öryggisnets.
     *      Þessi framtíðarsýn kallar á áframhaldandi tekjutengingu.

     Starf vinnuhópsins
    Með vísan til erindisbréfs fólst vinna hópsins framan af einkum í því að leita leiða til þess að einfalda lífeyristryggingar almannatrygginga og bæta stöðu þeirra sem lakast eru settir.

     Einföldun ekki markmið í sjálfu sér
    Núverandi tilhögun bóta almannatrygginga er afar flókin. Vinnuhópurinn hafði sett fram hugmyndir um einföldun á kerfinu sem fólust einkum í því að steypa grunnlífeyri og tekjutryggingu saman í einn bótaflokk. Í þeim fólst allróttæk uppstokkun á kerfi almannatrygginga. Eins og lýst er nánar hér að framan er kerfið í dag mjög flókið og einföldun hlýtur að leiða til þess að sumir komi betur út en aðrir. Það er niðurstaða vinnuhópsins að þegar til kastanna kemur leiði einfaldanir á kerfinu til tilfærslna á milli einstakra hópa lífeyrisþega og því sé erfitt að tryggja hækkun bóta til þeirra er við knöppust kjör búa umfram aðra, án þess að útgjöld aukist mjög mikið. Hópurinn telur því að markmiði um verulega einföldun verði ekki náð þannig að meginmarkmið kerfisins séu í heiðri höfð, jafnframt því að útgjöldum sé haldið í skefjum.

     Sameining grunnlífeyris og tekjutryggingar?
    Með því að sameina grunnlífeyri og tekjutryggingu sem eru tekjutengdar bætur, þótt mismunandi reglur gildi um skerðingu þeirra, næðist umtalsverð einföldun á lífeyriskerfinu. Við þetta mundi meginbótaflokkum fækka úr fjórum í þrjá og fyrir allstóran hóp lífeyrisþega stæði aðeins einn bótaflokkur eftir. Þessi bótaflokkur væri tekjutengdur með sama hætti og nú gildir um tekjutryggingu, skerðingarhlutfall 45% og frítekjumörk þau sömu.

     Hækkun óskertra bóta er dýr
    Önnur leið til einföldunar væri sú að hækka bætur verulega og afnema alla tekjutengingu. Þessi leið er ófær og má í því sambandi benda á að kostnaður við hækkun grunnlífeyris um 1.000 kr. á mánuði er um 450 milljónir kr. á ári og hækkun tekjutryggingar um sömu fjárhæð kostar 415 milljónir kr. á ári. Minnkun skerðingar tekjutryggingar um 5% kostar um 280 milljónir kr. á ári.

     Dómur Hæstaréttar
    Margvíslegar forsendur breyttust með dómi Hæstarréttar í máli Öryrkjabandalags Íslands gegn Tryggingarstofnun ríkisins er gekk 19. desember síðastliðinn. Breytingar á lögum er samþykkt voru á Alþingi leiddu til þess að kerfi lífeyristrygginga varð umtalsvert flóknara en áður. Þau sjónarmið sem fram koma í dómnum og í lögunum fólu í sér aðrar áherslur en í tillögum er vinnuhópurinn hafði mótað.
    
     Meginmarkmið
    Helstu markmið þeirrar tillögu sem hér er lögð fram eru:
     *      Bæta kjör þeirra sem verst eru settir og minnka jaðaráhrif þeirra.
     *      Jafna kjör hjóna og einhleypra lífeyrisþega.
     *      Hvetja öryrkja til atvinnuþátttöku.
     *      Auka sveigjanleika lífeyristrygginga.

     Breyting tekjutryggingarauka
    Tekjutryggingarauki verður hækkaður úr 7.409 kr. á mánuði í 14.062 kr., sem er hækkun um tæplega 90%. Þá verður skerðing tekjutryggingarauka minnkuð úr 100% í 67%.
    Tekjutryggingarauki stendur í dag eingöngu einhleypum til boða og eiga þeir einir rétt á honum sem eru einir um heimilisrekstur án þess að njóta fjárhagslegs hagræðis af sambýli við aðra. Vinnuhópurinn leggur til að tekjutryggingarauki standi öllum lífeyrisþegum til boða óháð hjúskaparstöðu og heimilisaðstæðum öðrum og taki þannig eingöngu tillit til tekna. Hópurinn gerir tillögu um að óskertur tekjutryggingarauki hjóna eða þeirra annarra sem eru í sambýli við aðra verði 10.548 kr. á mánuði á hvort hjóna sem eru lífeyrisþegar. Ef einungis annað hjóna er lífeyrisþegi er sama fjárhæð greidd. Til skerðingar á tekjutryggingarauka reiknast helmingur samanlagðra tekna hjóna eða sambýlisfólks.

     Hækkun grunnlífeyris hjóna
    Grunnlífeyrir hjóna, sem bæði eru lífeyrisþegar, er í dag 90% af grunnlífeyri einhleypings. Vinnuhópurinn telur slíka mismunun óeðlilega og leggur til að grunnlífeyrir hjóna verði hækkaður úr 16.582 kr. á mánuði í 18.424 kr.

     Hækkun frítekjumarks ellilífeyrisþega vegna launa
    Sérstakt frítekjumark vegna tekjutryggingar ellilífeyrisþega hefur verið í gildi gagnvart greiðslum úr lífeyrissjóði. Árið 1995 var þetta frítekjumark lagt niður við útreikning tekjutryggingar örorkulífeyrisþega, en almennt frítekjumark hækkað sem því nam. Vinnuhópurinn leggur til að sami háttur verði hafður á við úrskurð tekjutryggingar ellilífeyrisþega. Samkvæmt tillögunni hækkar frítekjumark tekjutryggingar ellilífeyrisþega úr 22.380 kr. á mánuði í 32.512 kr. Sérstakt frítekjumark hjóna vegna lífeyrissjóðs er í dag 7.093 kr. á hvort þeirra. Til þess að gæta samræmis felur tillagan í sér að almennt frítekjumark þeirra hækki um meira en því nemur eða um 10 þús. kr.

     Hluti atvinnutekna öryrkja undanþeginn skerðingu bóta
    Vinnuhópurinn hefur lagt áherslu á að koma til móts við öryrkja og minnka þau jaðaráhrif sem margir þeirra setja fyrir sig gagnvart þátttöku í atvinnulífinu. Niðurstaða hópsins er sú að þessu markmiði verði best náð með því að hluti atvinnutekna öryrkja komi ekki til skerðingar tekjutryggingar og heimilisuppbótar og leggur til að það hlutfall verði 40%. Við þessa breytingu nýtur einhleypur öryrki óskertrar tekjutryggingar þar til launatekjur hans eru orðnar tæplega 56 þús. kr. á mánuði í stað 33.570 kr. í dag. Öryrki í sambúð mun einnig njóta þessara breytinga og sama hlutfall launatekna hans verða undaskilið skerðingu.

     Heimild til frestunar á töku lífeyris
    Vinnuhópurinn leggur til að heimilt verði að fresta töku lífeyris til allt að 72 ára aldurs gegn hækkun grunnlífeyris, tekjutryggingar og heimilisuppbótar er gæti numið allt að ½% á mánuði. Frestun á töku lífeyris til 72 ára aldurs gæti þannig falið í sér allt að 30% hækkun lífeyris og tryggt einhleypum ellilífeyrisþega 99 þús. kr. á mánuði. Þetta er til þess að gera starfslok sveigjanlegri og tekur enn fremur mið af reglum flestra lífeyrissjóða sem bjóða upp á töku lífeyris á aldrinum 65–70 ára. Einnig er horft til reglna um viðbótarlífeyrissparnað. Um langt skeið var heimild í lögum til frestunar á töku ellilífeyris allt til 72 ára aldurs gegn hækkun greiðslu sem var byggð á tryggingarfræðilegu mati. Fáir nýttu sér þetta, enda kom hækkunin eingöngu á grunnlífeyri. Með tillögunni opnast raunhæfari möguleikar til frestunar gegn hækkun. Margt mælir með þessari tillögu. Nefna má að reglur um viðbótarlífeyrissparnað kveða á um að hann geti orðið til ráðstöfunar samkvæmt ákveðnum reglum þegar einstaklingur nær 60 ára aldri. Athugun á vegum vinnuhópsins sýnir að ekki þarf að vera um aukningu að ræða fyrir ríkissjóð. Huga þarf nánar að útfærslu þessa þáttar á tryggingafræðilegan hátt.

     Hækkun frekari uppbótar
    Samhliða þessum breytingum er nauðsynlegt að hækka tekjumörk vegna frekari uppbótar. Þessu veldur að við ákvörðun frekari uppbótar er tekið tillit til annarra bóta almannatrygginga og tekjumörk í dag eru 105.347 kr. á mánuði. Til samræmis þarf að hækka þessi mörk í 112.000 kr. á mánuði.

     Samræming frítekjumarks grunnlífeyris
    Við ákvörðun frítekjumarks grunnlífeyris hefur verið lagt til grundvallar að þess sé gætt að grunnlífeyrir skerðist ekki fyrr en tekjutrygging er að fullu uppurin. Hefur þetta haft í för með sér að frítekjumarkið er mismunandi frá einum hópi til annars. Nú er hins vegar lagt til að frítekjumark allra verði 105.930 kr. á mánuði og hefur það í för með sér nokkra hækkun fyrir flesta hópa.

     Hækkun óskertra bóta
    Samkvæmt þessum tillögum hækka tryggðar lágmarkstekjur einhleypra lífeyrisþega um 6.653 kr. á mánuði vegna hækkunar tekjutryggingarauka, sem er um 9% hækkun. Hámarksbætur einhleyps ellilífeyrisþega eru í dag 72.659 kr. á mánuði en yrðu samkvæmt tillögunum 79.312 kr. á mánuði. Tekjutrygging öryrkja er ívið hærri en ellilífeyrisþega og tryggðar lágmarkstekjur einhleyps öryrkja eru 73.546 kr. á mánuði í dag, en yrðu 80.199 kr. á mánuði samkvæmt tillögunni. Margir einhleypir eiga ekki kost á heimilisuppbót og tekjutryggingarauka en öðlast rétt til síðarnefnda bótaflokksins með þessum tillögum. Tryggðar lágmarkstekjur þessa hóps munu hækka um 10.548 kr. á mánuði sem er um 21% hækkun.

     Staða hjóna
    Staða giftra lífeyrisþega mun batna umtalsvert eftir þessum tillögum. Í dag nema tryggðar tekjur hjóna sem bæði eru ellilífeyrisþegar 96.522 kr. á mánuði en mundu hækka í 121.302 kr. á mánuði samkvæmt tillögunni og er hækkunin 25,7%. Hvort hjóna fær í dag að hámarki 67% af tryggðum lágmarkstekjum einhleyps ellilífeyrisþega og felur tillagan í sér að hlutfallið hækkar í 76,5%.

     Samantekt
    Í töflu 7 er tekið saman yfirlit yfir fjárhæð bóta í dag og samkvæmt þessum tillögum.

Tafla 7. Bótafjárhæðir í nýju kerfi
Einhleypur ellilífeyrisþegi Einhleypur örorkulífeyrisþegi
Var Verður Var Verður
Tryggðar lágmarkstekjur 72.659 79.312 Tryggðar lágmarkstekjur 73.546 80.199
Grunnlífeyrir 18.424 18.424 Grunnlífeyrir 18.424 18.424
Tekjutrygging 31.679 31.679 Tekjutrygging 32.566 32.566
Heimilisuppbót 15.147 15.147 Heimilisuppbót 15.147 15.147
Tekjutryggingarauki 7.409 14.062 Tekjutryggingarauki 7.409 14.062
Frítekjumörk Frítekjumörk
Frítekjumark grunnlífeyris 101.310 105.939 Frítekjumark grunnlífeyris 105.939 105.939
Frítekjumark tekjutryggingar 22.380 32.512 Frítekjumark tekjutryggingar 33.570 33.570
- Viðbót vegna gr. úr lífeyrissjóði 10.132 0 - Viðbót vegna gr. úr lífeyrissjóði 0 0
Skerðing Skerðing
Grunnlífeyrir 30% 30% Grunnlífeyrir 25% 25%
Tekjutrygging 45% 45% Tekjutrygging 45% 45%
Tekjutryggingarauki 100% 67% Tekjutryggingarauki 100% 67%
Hjón bæði ellilífeyrisþegar Hjón, annað ellilífeyrisþegi
Var Verður Var Verður
Tryggðar lágmarkstekjur 48.261 60.651 Tryggðar lágmarkstekjur 50.103 60.651
Grunnlífeyrir 16.582 18.424 Grunnlífeyrir 18.424 18.424
Tekjutrygging 31.679 31.679 Tekjutrygging 31.679 31.679
Tekjutryggingarauki 0 10.548 Tekjutryggingarauki 0 10.548
Lágmarkstekjutrygging annars hjóna 25.000 25.000 Lágmarkstekjutrygging annars hjóna 25.000 25.000
Frítekjumörk Frítekjumörk
Frítekjumark grunnlífeyris 101.310 105.939 Frítekjumark grunnlífeyris 101.310 105.939
Frítekjumark tekjutryggingar 22.380 32.512 Frítekjumark tekjutryggingar 44.760 54.892
- Viðbót vegna gr. úr lífeyrissjóði 7.093 0 - Viðbót vegna gr. úr lífeyrissjóði 10.132 0
Skerðing Skerðing
Grunnlífeyrir 30% 30% Grunnlífeyrir 30% 30%
Tekjutrygging 45% 45% Tekjutrygging 45% 45%
Lágmarkstekjutrygging annars hjóna 67% 67% Lágmarkstekjutrygging annars hjóna 67% 67%
Tekjutryggingarauki 67% Tekjutryggingarauki 67%
Hjón, bæði örorkulífeyrisþegar Hjón, annað örorkulífeyrisþegi
Var Verður Var Verður
Tryggðar lágmarkstekjur 49.148 61.538 Tryggðar lágmarkstekjur 50.990 61.538
Grunnlífeyrir 16.582 18.424 Grunnlífeyrir 18.424 18.424
Tekjutrygging 32.566 32.566 Tekjutrygging 32.566 32.566
Tekjutryggingarauki 0 10.548 Tekjutryggingarauki 0 10.548
Lágmarkstekjutrygging annars hjóna 25.000 25.000 Lágmarkstekjutrygging annars hjóna 25.000 25.000
Frítekjumörk Frítekjumörk
Frítekjumark grunnlífeyris 103.245 105.939 Frítekjumark grunnlífeyris 103.245 105.939
Frítekjumark tekjutryggingar 33.570 33.570 Frítekjumark tekjutryggingar 67.140 67.140
Skerðing Skerðing
Grunnlífeyrir 25% 25% Grunnlífeyrir 25% 25%
Tekjutrygging 45% 45% Tekjutrygging 45% 45%
Lágmarkstekjutrygging annars hjóna 67% 67% Lágmarkstekjutrygging annars hjóna 67% 67%
Tekjutryggingarauki 67% Tekjutryggingarauki 67%

5. Samanburður við núverandi kerfi


     Einhleypur ellilífeyrisþegi með atvinnutekjur
    Á mynd 12 er gerður samanburður á greiðslum til einhleypra lífeyrisþega í dag og samkvæmt tillögu vinnuhópsins. Gert er ráð fyrir að þeir eigi rétt á heimilisuppbótum og séu með atvinnutekjur allt að 170 þús. kr. á mánuði. Samanburður leiðir í ljós að greiðslur til lífeyrisþega með lágar tekjur hækka mest, bæði vegna hækkunar á tekjutryggingarauka og vegna minni skerðingar á honum. Hækkun almenns frítekjumarks vegna tekjutryggingar og heimilisuppbótar kemur og þeim til góða sem eru með hærri atvinnutekjur.

Mynd 12. Samanburður á greiðslum almannatrygginga
Einhleypur ellilífeyrisþegi með rétt á heimilisuppbót.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


     Einhleypur ellilífeyrisþegi með greiðslur úr lífeyrissjóði
    Í mynd 13 er gert ráð fyrir að viðkomandi fái eingöngu tekjur úr lífeyrissjóði. Þar sem hið sérstaka frítekjumark tekjutryggingar vegna lífeyrissjóðstekna er fellt inn í hið almenna frítekjumark breytist tekjutrygging ekki.

Mynd 13. Samanburður á greiðslum almannatrygginga
Einhleypur ellilífeyrisþegi með gr. úr lífeyrissjóði.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


     Hjón bæði ellilífeyrisþegar
    Mynd 14 tekur mið af hjónum sem bæði eru lífeyrisþegar. Þau fá ekki greiðslur úr lífeyrissjóði, annað aflar atvinnutekna og hitt er án tekna. Kjör lífeyrisþega sem við þessar aðstæður búa batna mjög eins og myndin sýnir. Við lágar tekjur skiptir tekjutryggingaraukinn mestu, sem og hækkun grunnlífeyris. Hækkun frítekjumarks gagnvart atvinnutekjum bætir kjör þeirra sem eru með meiri tekjur. Á myndinni er einnig dreginn ferill er sýnir hvernig samhengi tekna og bóta var háttað fyrir breytingu á lagaákvæðum um tekjutryggingu lífeyrisþega í sambúð. Þær breytingar komu einkum þeim lífeyrisþegum til góða er eiga maka er afla sæmilegra tekna.

Mynd 14. Samanburður á greiðslum almannatrygginga
Hjón bæði ellilífeyrisþegar. Annað með atvinnutekjur, hitt án tekna.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



     Hjón bæði ellilífeyrisþegar
    Mynd 15 tekur mið af hjónum sem eru ellilífeyrisþegar og eins er ástatt um og í fyrri mynd, nema í stað atvinnutekna koma greiðslur úr lífeyrissjóði. Þar sem frítekjumark gagnvart tekjum úr lífeyrissjóði breytist ekki er hækkun bóta ekki eins mikil og fram kom í mynd 11.

Mynd 15. Samanburður á greiðslum almannatrygginga
Hjón bæði ellilífeyrisþegar. Annað með tekjur úr lífeyrissjóði, hitt án tekna.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


     Einhleypur öryrki
    Verulega er komið til móts við öryrkja í þessum tillögum. Hækkun og breikkun tekjutryggingaraukans bæta hag einhleypra öryrkja með lágar tekjur. Hlutföllun á atvinnutekjum við útreikning tekjutryggingar leiðir einnig til umtalsverðrar hækkunar bóta til þeirra sem hafa nokkrar atvinnutekjur og dregur stórlega úr jaðaráhrifum sem hafa verið mörgum öryrkjum þröskuldur á leið út á vinnumarkaðinn. Mynd 16 sýnir að bætur öryrkja með atvinnutekjur hækka verulega með þessari tillögu.

Mynd 16. Samanburður á greiðslum almannatrygginga
Einhleypur örorkulífeyrisþegi með rétt á heimilisuppbót.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


     Hjón, annað tekjulaus öryrki
    Mynd 17 dregur upp samhengi milli tekna og bóta hjóna þar sem annað er tekjulaus öryrki og hitt aflar atvinnutekna. Hækkun bóta felst aðeins í tekjutryggingaraukanum. Myndin sýnir einnig þá miklu hækkun bóta til öryrkja í sambúð sem fólst í lagabreytingu í kjölfar dóms Hæstaréttar um tekjutryggingu öryrkja.

Mynd 17. Samanburður á greiðslum almannatrygginga
Hjón, annað tekjulaus örorkulífeyrisþegi.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


     Hjón, annað öryrki
    Mynd 18 dregur upp samhengi milli tekna og bóta hjóna þar sem annað er öryrki og aflar atvinnutekna, en atvinnutekjur makans eru 150 þús. kr. á mánuði. Myndin sýnir vel þann hvata sem tillagan færir öryrkjanum til þess að afla atvinnutekna því bætur hækka verulega og hækkunin er því meiri sem tekjur eru hærri.

Mynd 18. Samanburður á greiðslum almannatrygginga
Hjón, annað öryrki með atvinnutekjur, maki með 150 þús. kr. laun.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


     Jaðaráhrif einhleyps ellilífeyrisþega
    Lífeyrisþegi sem fær tekjutryggingarauka sætir skerðingu sem er 100% í dag, að vísu á stuttu tekjubili. Með lækkun skerðingar á tekjutryggingarauka niður í 67% lækka jaðaráhrifin niður í tæp 80%. Þetta er sýnt á mynd 19.

Mynd 19. Samanburður á jaðaráhrifum miðað við núverandi kerfi og tillögu
Einhleypur ellilífeyrisþegi með heimilisuppbót.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


     Jaðaráhrif einhleyps öryrkja
    Eins og mynd 20 sýnir hefur tillagan í för með sér verulega lækkun á jaðaráhrifum öryrkja með allt fram að rúmlega 100 þús. kr. atvinnutekjum. Jaðaráhrifin eru tæplega 80% á löngu tekjubili í dag en samkvæmt tillögunni lækka þessi áhrif niður í rúm 60% gagnvart launatekjum. Við hærri tekjur aukast jaðaráhrifin á ný upp í 80%.

Mynd 20. Samanburður á jaðaráhrifum miðað við núverandi kerfi og tillögu
Einhleypur öryrki með heimilisuppbót.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


Dæmi 1. Einhleypur ellilífeyrisþegi, með rétt á heimilisuppbót
Atvinnutekjur Lífeyristekjur
Gr. almannatrygginga Gr. almannatrygginga
Tekjur á mán. Breyting Breyting
Þús. kr. Í dag Tillaga tekna alls Í dag Tillaga tekna alls
    0 72659 79.312 9,2% 72.659 79.312 9,2%
    10 65.250 72.645 9,8% 65.250 72.645 9,8%
    20 65.250 65.979 0,9% 65.250 65.979 0,9%
    30 60.181 65.250 5,6% 65.250 65.250 0,0%
    40 53.530 60.269 7,2% 60,269 60.269 0,0%
    50 46.878 53.618 7,0% 53,618 53.618 0,0%
    100 18.424 20.359 1,6% 20,359 20.359 0,0%

Dæmi 2. Hjón bæði ellilífeyrisþegar
Atvinnutekjur 1) Lífeyristekjur 1)
    Gr. almannatrygginga Gr. almannatrygginga
Tekjur á mán. Fyrir lög Breyting Breyting
Þús. kr. í des. 2000 Í dag Tillaga tekna alls Í dag Tillaga tekna alls
    0 96522 96.522 121302 25,7% 96522 121302 25,7%
    10 96.522 96.522 114635 17,0% 96522 114635 17,0%
    25 96.522 96.522 104635 6,7% 96522 104635 6,7%
    50 94.164 94.164 100206 4,2% 96522 100206 2,5%
    100 71.664 77414 85657 4,6% 80605 85.657 2,8%
    150 34.557 51557 61189 4,8% 69355 74.407 2,3%
1) Gert ráð fyrir að annað hjóna sé án tekna.

Dæmi 3. Einhleypur örorkulífeyrisþegi
Með rétt á heimilisuppbót Ekki með rétt á heimilisuppbót
Atvinnutekjur Atvinnutekjur
Gr. almannatrygginga Gr. almannatrygginga
Tekjur á mán. Breyting Breyting
Þús. kr. Í dag Tillaga tekna alls Í dag Tillaga tekna alls
    0 73546 80.199 9 ,0% 50990 61.538 20,7%
    10 66137 73532 9 ,7% 50990 54871 6,4%
    20 66.137 66866 0 ,8% 50.990 50990 0,0%
    30 66.137 66137 0 ,0% 50.990 50990 0,0%
    40 61.898 66137 4 ,2% 48.097 50990 3,3%
    50 55.305 66137 10 ,3% 43.597 50990 7,9%
    100 22.340 48712 21 ,6% 21.097 39097 14,9%

Dæmi 4. Hjón, annað örorkulífeyrisþegi
    Atvinnutekjur
Gr. almannatrygginga
Tekjur á mán. þús. kr. Fyrir lög Breyting
Lífeyrisþegi Maki í des. 2000 Í dag Tillaga tekna alls
    0 100 50.990 50.990 50.990 0 ,0%
    10 100 50.990 50.990 50.990 0 ,0%
    20 100 50.990 50.990 50.990 0 ,0%
    30 100 50.990 50.990 50.990 0 ,0%
    40 100 49.703 49.703 50.990 2 ,6%
    50 100 47.453 47.453 50.990 7 ,5%
    60 100 45.203 45.203 50.603 11 ,9%
    70 100 42.953 42.953 49.253 14 ,/%


6. Tekjur lífeyrisþega og útgjöld almannatrygginga


     Kostnaður í heild
    Athuganir benda til að þessar tillögur feli í sér að útgjöld Tryggingastofnunar muni hækka um 1.350 milljónir króna. Hér er um verulega aukningu útgjalda að ræða eða sem nemur um 7% af heildarútgjöldum til þessa málaflokks. Þyngst vegur hækkun tekjutryggingarauka og þeirra breytinga á henni sem hér eru lagðar fram. Þau útgjöld eru metin 675 milljónir krónur á ári.

     Áhrif á einstaka tekjuhópa
    Lífeyrislíkan Þjóðhagsstofnunar sem tekur mið af skattframtölum lífeyrisþega var notað til að meta kostnað af þessari tillögu og jafnframt til að kanna áhrif tillagnanna á einstaka tekjuhópa. Til þess að sýna breytingar á ráðstöfunartekjum lífeyrisþega eftir tekjum þeirra er litið á tíunduhópa. Í því felst að lífeyrisþegum er raðað eftir tekjum frá þeim tekjulægstu til þeirra hæstu. Þeim er síðan skipt í tíu jafnfjölmenna hópa. Í efsta hópnum eru þannig þau 10% lífeyrisþega sem hafa hæstu tekjurnar.

6.1     Ellilífeyrisþegar
     Fjöldi ellilífeyrisþega sem fá hærri bætur
    Áætlað er að bætur um 18.000–18.500 ellilífeyrisþega hækki við þessar tillögur eða 70% þeirra. Tekjutryggingarauki um 4.000 einhleypra ellilífeyrisþega mun hækka og 800–850 hjón, sem bæði eru ellilífeyrisþegar, munu fá tekjutryggingarauka og um 100 hjón þar sem annað er ellilífeyrisþegi.

     Einhleypir
    Tilgangur tillagnanna er að bæta kjör þeirra sem eru með lægstar tekjur. Mynd 21 sýnir að sá tilgangur næst, því ráðstöfunartekjur allra einhleypra ellilífeyrisþega í tveimur lægstu hópunum hækka, og níu af hverjum tíu í þeim næsta. Í hverjum hóp eru um 1.200 manns.

Mynd 21. Hlutfall einhleypra ellilífeyrisþega sem verða fyrir breytingu á ráðstöfunartekjum

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


Heimild: Þjóðhagsstofnun.

    Myndir 22 og 23 sýna að hækkun ráðstöfunartekna er mest hjá þeim sem eru með minnstar tekjur eða um 9%, rúmlega 5% hjá næsta hóp og um 2% á þriðja hópinn. Hækkanir til þeirra sem eru með hærri tekjur eru litlar og ganga til þeirra sem fá lítið úr lífeyrissjóði.

Mynd 22. Hlutfallsleg breyting ráðstöfunartekna einhleypra ellilífeyrisþega

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


     Áhrif á hjón
    Hækkun grunnlífeyris hjóna hefur í för með sér að hagur nær allra þeirra vænkast eins og mynd 23 sýnir. Til viðbótar kemur hækkun almenna frítekjumarksins gagnvart atvinnutekjum. Ástæða þess að ráðstöfunartekjur nokkurra í efsta tekjuhópnum breytast ekki er að tekjur þeirra eru það háar að þau fá ekki greiðslur frá Tryggingastofnun.

Mynd 23. Hlutfall giftra ellilífeyrisþega sem verða fyrir breytingu á ráðstöfunartekjum, bæði lífeyrisþegar

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


    Í tillögunni felst að ráðstöfunartekjur flestra hjóna aukast. Tekjuhækkunin er tæplega 12% hjá þeim sem eru með lægstar tekjur eins og mynd 24 sýnir, þar gætir áhrifa tekjutryggingarauka hvað mest. Ráðstöfunartekjur flestra tekjuhópa hækka um 2% og minnst á tekjuhæstu hópunum.

Mynd 24. Hlutfallsleg breyting ráðstöfunartekna giftra ellilífeyrisþega, bæði lífeyrisþegar

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


6.2     Öryrkjar
     Fjöldi öryrkja sem fá hærri bætur
    Áætlanir benda til að bætur 5.000–5.500 örykja hækki samkvæmt þessum tillögum, þ.a. um 3.500 einhleypir öryrkjar. Breytingar á tekjutryggingarauka vegur þar þungt og um 2.600 öryrkjar fá hækkun á þeim bótaflokki.

     Einhleypir
    Hækkun tekjutryggingarauka kemur einhleypum öryrkjum mjög til góða enda tekjur margra þeirra lágar. Þetta kemur skýrt fram í því að tillaga að breytingum á tekjutryggingarauka hækkar ráðstöfunartekjur þriggja tekjulægstu hópanna verulega eða um 13–18% og tekjur fjórða lægsta hópsins um rúm 5%.

Mynd 25. Hlutfall einhleypra örorkulífeyrisþega sem verða fyrir breytingu á ráðstöfunartekjum

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


Mynd 26. Hlutfallsleg breyting ráðstöfunartekna einhleypra örorkulífeyrisþega

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


     Giftir öryrkjar
    Tenging bóta við tekjur maka hefur verið bitbein. Að undanförnu hafa verið stigin mikilvæg skref til að draga úr tengingu við tekjur maka við útreikning tekjutryggingar. Í haust var frítekjumark giftra öryrkja hækkað verulega eða upp í rúm 67 þús. kr. Í kjölfar dóms Hæstaréttar í desember sl. var lögum um tekjutryggingu öryrkja í sambúð breytt sem fól í sér hækkun lágmarkstekna öryrkja um 135%, úr 18.424 kr. á mánuði í 43.424 kr. Þótt þessi lagabreyting gildi bæði um elli- og örorkulífeyrisþega hefur hún mun meiri áhrif á afkomu hinna síðarnefndu enda tíðara að öryrkjar eigi maka sem eru á vinnumarkaði.
    Tillaga starfshópsins bætir verulega hag þeirra sem verst standa í þessum hóp og kemur þar einkum til hækkun tekjutryggingaraukans og minnkun skerðingar. Breyting tekjutryggingar vegna atvinnutekna hefur enn fremur töluverð áhrif. Mynd 27 sýnir að ráðstöfunartekjur þriggja af hverjum fjórum í tekjulægsta hópnum hækka og samkvæmt mynd 28 er meðalhækkun hópsins um 11%.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Mynd 27. Hjón, annað öryrki
Hlutfall þeirra sem verða fyrir breytingu á ráðstöfunartekjum.















Heimild: Þjóðhagsstofnun.

Mynd 28. Hjón, annað öryrki
Breyting á ráðstöfunartekjum.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


Heimild: Þjóðhagsstofnun.


7. Tekjur og eignir lífeyrisþega


    Frumheimildir um tekjur lífeyrisþega í þessari umfjöllun eru skattframtöl þeirra. Ýmis vandkvæði koma upp þegar skattframtölin eru skoðuð. Mestu skiptir að í ljós kemur að tekjur margra lífeyrisþega eru óeðlilega lágar og er þá til samanburðar litið á ýmsa þætti eins og bótakerfi almannatrygginga. Einnig er óvissa um hvernig fara eigi með uppgefnar tekjur þeirra sem eru á dvalarheimilum.
    Helstu ástæðurnar fyrir því hversu margir eru með óeðlilega lágar tekjur eru eftirfarandi:
     *      Framteljandi hefur látist á tekjuárinu og því ná framtaldar tekjur einungis til hluta ársins. Framtöl flestra þessara framteljenda eru sérmerkt. Eitthvað er þó um að þessa merkingu vanti og því eru lágar tekjur oft eina vísbendingin um að framtal sé óeðlilegt. Einnig er eitthvað um að ekki sé skilað inn framtali fyrir þessa framteljendur og eru tekjur þeirra þá áætlaðar af skattstjórum.
     *      Réttur til bóta frá Tryggingastofnun fellur niður dvelji lífeyrisþegi langdvölum á sjúkrastofnun. Ef viðkomandi hefur engar eða mjög lágar tekjur á hann rétt á vasapeningum frá Tryggingastofnun.
     *      Eitthvað er um lífeyrisþega sem búsettir eru erlendis en eiga eignir hér á landi. Á framtölum þessara aðila koma einungis fram upplýsingar um eignir en tekjurnar eru taldar fram í því landi þar sem viðkomandi er búsettur.
    Greiðslur Tryggingastofnunar vegna dvalarkostnaðar þeirra sem á dvalarheimilum búa eru taldar fram með tekjum lífeyrisþegans þótt hann fái greiðslurnar aldrei sjálfur. Þessar greiðslur eru hins vegar skattfrjálsar þannig að tekjur hans og enn frekar ráðstöfunartekjur eru mun hærri en þær eru í raun og veru. Skattframtöl þeirra er þetta á við um eru sérmerkt.
    Til þess að gefa sem gleggsta mynd af kjörum lífeyrisþega var ákveðið að sleppa úr úrvinnslunni þeim sem eru með áætlaða álagningu eða framtölum sem eru sérmerkt. Þá er þeim sleppt sem eru með tekjur undir ákveðnum viðmiðunarmörkum en með því detta flestir lífeyrisþegar sem dvelja á stofnunum út. Rökin fyrir því að sleppa lífeyrisþegum sem dvelja á stofnunum eru þau að tekjur þeirra gefa ekki rétta mynd af lífskjörum þeirra nema að litlu leyti. Er þetta í hátt við það sem gert er víða erlendis, en þar eru stofnanaheimili einatt ekki með í tekjukönnunum.

Yfirlit yfir töflur

Tafla 1        Heildartekjur eftir fjölskyldugerð 1999
Tafla 2        Samsetning tekna lífeyrisþega 1999
Tafla 3        Samsetning tekna lífeyrisþega 1999 eftir fimmtungum
Tafla 4.1    Heildartekjur og ráðstöfunartekjur lífeyrisþega eftir fimmtungum 1999. Meðaltekjur, þús. kr.
Tafla 4.2    Heildartekjur og ráðstöfunartekjur lífeyrisþega eftir fimmtungum 1999. Hlutfallsleg skipting.
Tafla 5.1    Samsetning tekna lífeyrisþega eftir aldri. Meðaltekjur, þús. kr.
Tafla 5.2    Samsetning tekna lífeyrisþega eftir aldri. Fjöldi, hlutfallsleg skipting.
Tafla 6        Heildartekjur og ráðstöfunartekjur eftir aldri 1999.
Tafla 7.1    Eignir og skuldir 1999. Fjárhæðir, þús. kr.
Tafla 7.2    Eignir og skuldir 1999. Hlutföll.
Tafla 8.1    Eignir og skuldir eftir aldri 1999. Fjárhæðir, þús. kr.
Tafla 8.2    Eignir og skuldir eftir aldri 1999. Hlutföll.
Tafla 9.1    Eignir og skuldir eftir fimmtungum.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.




Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.




Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


Fylgiskjal II.


Reglugerð um (2.) breytingu á reglugerð nr. 808/1998 um tekjutryggingu
samkvæmt lögum um almannatryggingar nr. 117/1993.


1. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 2. gr. reglugerðarinnar:
     a.      Í 1. málsl. 1. mgr. komi í stað fjárhæðarinnar „268.560“ fjárhæðin „390.144“ og í stað fjárhæðarinnar „365.352“ komi fjárhæðin „380.148“.
     b.      Í 2. málsl. 1. mgr. komi í stað fjárhæðarinnar „268.560“ fjárhæðin „390.144“.
     c.      Í 1. málsl. 2. mgr. komi í stað fjárhæðarinnar „1.074.240“ fjárhæðin „1.317.408“ og í stað fjárhæðarinnar „365.352“ komi fjárhæðin „380.148“.
     d.      Í 2. málsl. 2. mgr. komi í stað fjárhæðarinnar „1.074.240“ fjárhæðin „1.317.408“.
     e.      Í 1. málsl. 3. mgr. komi í stað fjárhæðarinnar „537.120“ fjárhæðin „780.288“.
     f.      Í 2. málsl. 3. mgr. komi í stað fjárhæðarinnar „537.120“ fjárhæðin „780.288“.

2. gr.

    5. gr. reglugerðarinnar orðast svo:
    Um tekjur úr lífeyrissjóðum gilda sömu reglur og um aðrar tekjur.

3. gr

    Við 6. gr. reglugerðarinnar bætist ný málsgrein sem verður 3. mgr.:
    Tekjur öryrkja af atvinnu skulu metnar að 60 hundraðshlutum við ákvörðun tekjugrundvallar.

4. gr.

    Reglugerð þessi er sett með stoð í 66. gr., sbr. 17. og 18. gr. laga nr. 117/1993, með síðari breytingum, og öðlast gildi 1. júlí 2001.

Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu, 8. maí 2001.





Fylgiskjal III.


Reglugerð um (2.) breytingu á reglugerð nr. 595/1997 um heimilisuppbót,
sérstaka heimilisuppbót og frekari uppbætur samkvæmt 9. og 10. gr.
laga nr. 118/1993, um félagslega aðstoð.


1. gr.

    Eftirfarandi breyting verður á heiti reglugerðarinnar:
     a.      Orðin „sérstök heimilisuppbót“ falla brott.
     b.      Í stað orðanna „samkvæmt 9. og 10. gr.“ komi orðin „samkvæmt 10. gr.“.

2. gr.

    7. gr. reglugerðarinnar fellur brott.

3. gr.

    Í 3. málsl. 8. gr. komi í stað fjárhæðarinnar „96.230“ fjárhæðin „112.000“.

4. gr.

    Reglugerð þessi er sett með stoð í 13. gr. laga nr. 118/1993, um félagslega aðstoð, með síðari breytingum, og öðlast gildi 1. júlí 2001.

Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu, 8. maí 2001.




Fylgiskjal IV.


Fjármálaráðuneyti,
fjárlagaskrifstofa:


Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum um almannatryggingar
og lögum um félagslega aðstoð.

    Frumvarp þetta er lagt fram á grundvelli álits vinnuhóps sem skipaður var til að endurskoða almannatryggingakerfið og samspil þess við skattkerfið og lífeyrissjóði. Megintilgangur frumvarpsins er að bæta kjör þeirra sem eru með lægstar tekjur, hækka bætur til hjóna og breyta meðferð atvinnutekna öryrkja.
    Frumvarpið gerir ráð fyrir að við ákvörðun tekjugrundvallar skuli aðeins 60% af tekjum öryrkja af atvinnu koma til skerðingar við útreikning á tekjutryggingu. Enn fremur er lagt til að grunnlífeyrir hjóna hækki og skuli vera jafnhár lífeyri tveggja einstaklinga í stað 90% eins og nú er.
    Jafnframt er gerð tillaga um að tekinn verði upp tekjutryggingarauki í stað sérstakrar heimilisuppbótar sem aðeins er veitt einhleypingum. Lagt er til að skilyrði til að njóta þessa bótaflokks verði rýmkuð frá því sem nú er og nái einnig til hjóna eftir því sem við á að öðru leyti. Þá er lagt til að skerðing tekjutryggingarauka vegna tekna lífeyrisþega lækki úr 100% í 67%.
    Frumvarpinu fylgja drög að reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 808/1998, um tekjutryggingu samkvæmt lögum um almannatryggingar nr. 117/1993, þar sem lagt er til að frítekjumark tekjutryggingar til ellilífeyrisþega hækki og að sérstakt frítekjumark vegna greiðslna úr lífeyrissjóðum verði lagt niður. Einnig fylgja drög að reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 595/1997, um heimilisuppbót, sérstaka heimilisuppbót og frekari uppbætur samkvæmt 9. og 10. gr. laga nr. 118/1993, um félagslega aðstoð, þar sem m.a. er lagt til að frítekjumörk frekari uppbóta hækki.
    Samkvæmt athugunum Þjóðhagsstofnunar er gert ráð fyrir að framangreindar tillögur feli í sér aukin útgjöld Tryggingastofnunar ríkisins sem nemur 1.350 m.kr. á ári verði frumvarpið að lögum. Þar vegur þyngst rýmkun bótaréttar og hækkun tekjutryggingarauka og eru þau útgjöld metin 675 m.kr. á ári.
Neðanmálsgrein: 1
    1 Sjá t.d. OECD Economic Surveys Iceland 1999, OECD 2000, Stefán Ólafsson. Íslenska leiðin, Tryggingastofnun ríkisins, 1999. Már Guðmundsson, Íslenska lífeyriskerfið, Landssamtök lífeyrissjóða, 2000.