Ferill 735. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.


126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 1264  —  735. mál.




Frumvarp til laga



um breytingu á lögum um Þróunarsjóð sjávarútvegsins, nr. 92 24. maí 1994, með síðari breytingum.

(Lagt fyrir Alþingi á 126. löggjafarþingi 2000–2001.)



1. gr.

    Í stað fjárhæðarinnar „1.230 kr.“ í 2. málsl. 1. mgr. 6. gr. laganna kemur: 1.321 kr.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.


    Með lögum nr. 34/2000, um breytingu á gjaldtökuákvæðum nokkurra laga á sviði sjávarútvegs, voru m.a. lögfestar fjárhæðir sem innheimtar eru við úthlutun aflaheimilda og renna til Þróunarsjóðs sjávarútvegsins. Fram að því hafði fjárhæðinni verið breytt árlega með reglugerð og var miðað við breytingar sem orðið höfðu á vísitölu byggingarkostnaðar á sama tíma, enda voru ákvæði þar að lútandi í þágildandi lögum. Til að halda sömu reglu er hér lagt til að gjald á hvert úthlutað þorskígildistonn hækki úr 1.230 kr. í 1.321 kr. Árið 2000 námu tekjur Þróunarsjóðs sjávarútvegsins af gjaldi á aflaheimildir um 537,7 millj. kr. Verði frumvarp þetta að lögum og úthlutun þorskígilda söm og á síðasta fiskveiðiári má gera ráð fyrir að tekjurnar hækki um 40 millj. kr. og verði um 580 millj. kr. árið 2001.



Fylgiskjal.


Fjármálaráðuneyti,
fjárlagaskrifstofa:


Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum um Þróunarsjóð sjávarútvegsins, nr. 92 24. maí 1994, með síðari breytingum.

    Með frumvarpi þessu er lagt til að gjald sem lagt er á aflaheimildir við úthlutun þeirra og rennur til Þróunarsjóðs sjávarútvegsins verði hækkað úr 1.230 kr. í 1.321 kr. sem er 7,4% hækkun. Verði sama fjölda þorskígilda úthlutað á komandi fiskveiðiári eins og á því sem nú stendur yfir má gera ráð fyrir að gjaldið skili tæplega 580 m.kr. tekjum sem er um 40 m.kr. hækkun.