Ferill 410. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.


126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 1293  —  410. mál.




Frumvarp til laga



um breytingu á hjúskaparlögum, nr. 31 14. apríl 1993.

(Eftir 2. umr., 11. maí.)



1. gr.

    Í stað orðsins „Vígslumaður“ í 2. málsl. 3. mgr. 13. gr. laganna kemur: Könnunarmaður.

2. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 14. gr. laganna:
     a.      Á eftir 1. málsl. 1. mgr. kemur nýr málsliður, svohljóðandi: Sýslumenn og löglærðir fulltrúar þeirra skulu þó ávallt annast könnun á hjónavígsluskilyrðum ef annað hjónaefna eða bæði eiga ekki lögheimili hér á landi.
     b.      Í stað orðsins „hún“ í 2. málsl. 1. mgr. kemur: könnunin.
     c.      Við 1. mgr. bætist nýr málsliður er verður 3. málsl., svohljóðandi: Nú eiga ákvæði 9. gr. lögheimilislaga, nr. 21/1990, við um hagi hjónaefnis og telst það þá ekki hafa glatað lögheimili hér á landi þótt það hafi tilkynnt flutning samkvæmt Norðurlandasamningi um almannaskráningu.
     d.      Við 1. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Ekki skal taka gjald fyrir útgáfu könnunarvottorðs.
     e.      Í stað orðanna „vígslumaður“ og „vígslumanns“ í 2. mgr. kemur: könnunarmaður, og: könnunarmanns.

3. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 15. gr. laganna:
     a.      Í stað orðsins „vígslumanns“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: könnunarmanns.
     b.      Í stað orðanna „fjögurra mánaða“ í 2. málsl. 1. mgr. kemur: 30 daga.

4. gr.

    Lög þessi öðlast gildi 1. október 2001.