Ferill 589. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 1387 — 589. mál.
Breytingartillaga
við frv. til l. um breyt. á l. nr. 93/1997, um Suðurlandsskóga.
Frá Sigríði Jóhannesdóttur og Guðmundi Árna Stefánssyni.
Við bætist ný grein, er verði 2. gr., svohljóðandi:
Við 3. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Landbúnaðarráðherra getur, í samráði við skógræktarstjóra, falið stjórn Suðurlandsskóga umsjón skógræktarverkefna þar sem einstaklingum, sveitarfélögum og félagasamtökum er veittur stuðningur til skógræktar.
Prentað upp.