Ferill 729. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.


126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 1417  —  729. mál.




Svar



ráðherra Hagstofu Íslands við fyrirspurn Steingríms J. Sigfússonar um skráningu íslenskra ríkisborgara sem búsettir eru erlendis.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
    Hvað er því til fyrirstöðu að Hagstofa Íslands skrái í þjóðskrá erlent heimilisfang íslenskra ríkisborgara sem búsettir eru erlendis, a.m.k. þeirra sem þess óska?

    Mál þetta hefur oft borið á góma og athugun þess hefur jafnan leitt til þeirrar niðurstöðu að Hagstofan annist ekki skráningu sem þessa. Fyrir því eru ýmsar ástæður og má m.a. nefna eftirfarandi:
     1.      Skráning í þjóðskrá fer eftir lögum um þjóðskrá og almannaskráningu, nr. 54/1962. Þessi lög lúta að skráningu þeirra sem búa hér á landi án tillits til ríkisfangs þeirra. Þau lúta ekki að skráningu íslenskra ríkisborgara sem eru búsettir í útlöndum nema í tilteknum undantekningartilvikum.
     2.      Lögin um þjóðskrá og almannaskráningu mæla fyrir um hvernig staðið skuli að skráningu manna hér á landi, hverjir skuli starfa að eða eiga aðild að skráningunni og hvaða úrræðum skuli beita við hana. Lögin geyma engin fyrirmæli um né gera þau ráð fyrir sérstökum úrræðum vegna skráningar íslenskra ríkisborgara sem eru búsettir í útlöndum.
     3.      Þeim sem flytjast búferlum til útlanda ber engin skylda til að upplýsa Hagstofu Íslands um aðsetur sitt. Reynslan sýnir að margir hafa ekki áhuga á að heimilisfang þeirra verði skráð í þjóðskrá og sumir eru beinlínis andvígir því.
     4.      Íslendingar í útlöndum fara búferlum þar eins og gengur og flytjast enn fremur milli landa. Þá má benda á að mjög margir þeirra sem flytjast héðan til útlanda hafa ekki fengið endanlegt heimilisfang er þeir fara af landi brott. Hagstofan hefur engin tök á að fá upplýsingar um breytingar á heimilisfestu Íslendinga í útlöndum nema frá fólkinu sjálfu. Þjóðskrár eru ekki til nema í fáeinum ríkjum og aðeins í undantekningartilvikum væri unnt að afla opinberra upplýsinga um heimilisföng Íslendinga í þeim ríkjum, hvað þá öðrum.
     5.      Til álita hefur komið að Hagstofan skrái heimilisföng Íslendinga í útlöndum sem óska þess sérstaklega. Þetta hefur þó ekki þótt árennilegt, verkefnið er ekki beinlínis á færi Hagstofunnar og hún yrði að reiða sig á upplýsingar frá fólkinu sjálfu, sem ætla má að yrðu slitróttar þegar fram í sækti. Þá er óljóst hvaða tilgangi slík skráning mundi þjóna. Íslendingar í útlöndum hafa ýmis samskipti við íslensk stjórnvöld, ekki síst skatt- og tryggingamálayfirvöld. Þau og önnur stjórnvöld, sem í hlut eiga, afla sér heimilisfangs viðskiptamanna í útlöndum eftir því sem þörf krefur. Ætla verður að það sé mun beinskeyttara en að Hagstofa Íslands haldi brotakennda skrá án þess að hafa nokkur úrræði til þess að framfylgja slíkri skráningu.
     6.      Þess má að lokum geta að Landssíminn hf. býður nú þá þjónustu að skrá í símaskrá símanúmer, netföng, vefföng og heimilisföng fólks sem býr annars staðar í heiminum. Þessi skráning er án endurgjalds. Skráin er birt á vefnum undir fyrirsögninni Íslendingar erlendis, slóðin er www.simaskra.is/islendingar.