Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 1428, 126. löggjafarþing 626. mál: sala kristfjárjarðanna Arnheiðarstaða og Droplaugarstaða.
Lög nr. 53 26. maí 2001.
Verð jarðanna, mannvirkja og ræktunar á þeim fer eftir því sem um semst, en ella skal það ákveðið af dómkvöddum matsmönnum.
Andvirði jarðanna skal varið til félagslegra framkvæmda í hreppnum. Ráðstöfun söluandvirðis skal háð samþykki félagsmálaráðuneytisins og vera samræmanleg hinum forna tilgangi kristfjárgjafa.
Þingskjal 1428, 126. löggjafarþing 626. mál: sala kristfjárjarðanna Arnheiðarstaða og Droplaugarstaða.
Lög nr. 53 26. maí 2001.
Lög um sölu kristfjárjarðanna Arnheiðarstaða og Droplaugarstaða í Fljótsdalshreppi.
1. gr.
Hreppsnefnd Fljótsdalshrepps er heimilt að selja ábúendum kristfjárjarðirnar Arnheiðarstaði og Droplaugarstaði í Fljótsdalshreppi.Verð jarðanna, mannvirkja og ræktunar á þeim fer eftir því sem um semst, en ella skal það ákveðið af dómkvöddum matsmönnum.
Andvirði jarðanna skal varið til félagslegra framkvæmda í hreppnum. Ráðstöfun söluandvirðis skal háð samþykki félagsmálaráðuneytisins og vera samræmanleg hinum forna tilgangi kristfjárgjafa.
2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 18. maí 2001.