Ferill 748. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 1446 — 748. mál.
Breytingartillaga
við till. til þál. um samþykki til frestunar á fundum Alþingis samkvæmt 1. mgr. 23. gr. stjórnarskrárinnar.
Frá Steingrími J. Sigfússyni.
Tillögugreinin orðist svo:
Alþingi ályktar að veita samþykki til þess að fundum þingsins verði frestað frá 19. maí 2001 eða síðar, ef nauðsyn krefur, enda verði það kvatt saman á ný eigi síðar en 2. júlí 2001 til sérstaks fundar um byggðamál, aukaþings um byggðamál.