Aukaþing Alþingis um byggðamál

Þriðjudaginn 29. janúar 2002, kl. 13:46:09 (3662)

2002-01-29 13:46:09# 127. lþ. 62.5 fundur 24. mál: #A aukaþing Alþingis um byggðamál# þál., Flm. ÖJ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 62. fundur, 127. lþ.

[13:46]

Flm. (Ögmundur Jónasson) (andsvar):

Herra forseti. Ég tel velferðarmálin mjög mikilvæg og ekkert síður mikilvæg en byggðamálin í sjálfu sér. Reyndar tel ég þetta tvennt vera mjög samofið. Forsenda byggðar er einmitt traust velferðarþjónusta og ég hef litið svo á og við gerum það í þingflokki Vinstri hreyfingarinnar -- græns framboðs að velferðarmál séu byggðamál. Ég er ekki í nokkrum vafa um að þau kæmu mjög við sögu á slíku byggðaþingi. Þar kæmi einkavæðingin líka við sögu. Það skiptir máli fyrir byggð í landinu að hún og byggðarlögin og fólk sem býr á landsbyggðinni búi við trausta velferðarþjónustu og gott stoðkerfi. Við lítum reyndar svo á að þetta sé forsenda heilbrigðrar og góðrar byggðaþróunar.