Endurheimt Drekkingarhyls í Almannagjá

Þriðjudaginn 29. janúar 2002, kl. 19:04:15 (3760)

2002-01-29 19:04:15# 127. lþ. 62.22 fundur 405. mál: #A endurheimt Drekkingarhyls í Almannagjá# þál., KVM
[prenta uppsett í dálka] 62. fundur, 127. lþ.

[19:04]

Karl V. Matthíasson:

Herra forseti. Hér liggur fyrir þessi till. til þál. um endurheimt Drekkingarhyls í Almannagjá sem ég er flm. að með hv. þm. Merði Árnasyni.

Oft er nauðsyn á því fyrir okkur að líta í söguna okkar, skoða hvernig líf þjóðarinnar hefur verið í gegnum aldirnar. Segja má að nafnið Drekkingarhylur sé eitt af þeim orðum sem fólk hryllir sig við þegar það heyrir því að það fer að hugsa um söguna og þá atburði sem gerðust við og í þessum hyl. Það væri góð áminning fyrir okkur þegar við göngum um Þingvelli og Almannagjá að við fengjum að sjá þennan hyl, hvernig hann var eða sem næst því, til að minna okkur á hvernig sagan var og þann aldarhátt sem ríkti, og þá grimmd. Það er náttúrlega ekki síst til þess að við vitum hvernig saga okkar var og líf í landinu heldur einnig til að vita hvernig líf okkar á að vera í dag og hvernig líf við viljum að sé í þessu landi, að réttarfarið sé ekki grimmt og ljótt eins og er reyndar enn þá til í þessum heimi, og við sjáum dæmi um hvernig oft er farið illa með fanga. Við sjáum í fréttum illa meðferð á fólki, og jafnvel er það réttlætt með því að þeir séu glæpamenn og þá sé allt í lagi að koma illa fram við þá.

Ég tek heils hugar undir þáltill. enda er ég meðflm. að henni, og vona að hún fái góða umfjöllun í umhvn. og að brautargengi hennar verði mikið í þinginu.