[prenta uppsett í dálka] 68. fundur, 127. lþ.
Hjálmar Árnason (um atkvæðagreiðslu):
Herra forseti. Hér er verið að greiða atkvæði um frv. til laga um breytingu á iðnaðarlögum. Ekki er allt alveg rétt sem kom fram í máli hv. síðasta ræðumanns. Hv. iðnn. hélt aukafund um málið eftir að í raun búið var að taka málið út úr nefnd og bauð öllum þeim hagsmunaaðilum sem óskað höfðu eftir því að koma fyrir nefndina og gera grein fyrir máli sínu. Þar að auki eiga þeir hagsmunaaðilar sem hv. þm. nefndi beinan aðgang að málinu í gegnum iðnráð sem fékk í tvígang að koma fyrir nefndina þannig að engar nýjar upplýsingar hafa komið fram. Þetta er einfaldlega spurning um ákvörðun. Málið hefur verið fullunnið í hv. iðnn. og niðurstöður liggja alveg ljósar fyrir.