Verslun með áfengi og tóbak

Mánudaginn 04. febrúar 2002, kl. 18:38:44 (3952)

2002-02-04 18:38:44# 127. lþ. 68.11 fundur 135. mál: #A verslun með áfengi og tóbak# (smásöluverslun með áfengi) frv., MÁ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 68. fundur, 127. lþ.

[18:38]

Mörður Árnason (andsvar):

Virðulegi forseti. Hv. þm. Katrín Fjeldsted segir að áfengisneysla aukist við þetta frv. Það hafa reyndar hv. flutningsmenn sagt. Já, áfengisneysla eykst. Það kom fram hjá hv. flm. og ég sá ekki betur en að hv. þm. Katrín Fjeldsted tæki það sem forsendu í ræðu sinni vegna þess að hún var að tala um að áfengisneysla ykist ... (Gripið fram í.) Nú, þá er ég að misskilja þetta. Hún eykst ekki við þetta frv. Þá kemur Katrín Fjeldsted aftur og útskýrir sérstaklega að hún aukist ekki við þetta frv. því að hv. þm. Ásta Möller sagði í umræðunni um daginn að áfengisneysla ykist við samþykkt þessa frv. og það var auðvitað út frá þeim forsendum sem hér var verið að tala.

Ef það er rétt hjá hv. þm. Katrínu Fjeldsted að í raun og veru sé enginn alkóhólismi nema í genum, er þá nokkur ástæða til þess að vera með þessa fjóra þætti: Verðlagningu, aldurstakmark, auglýsingar og aðgangshindranir? Er þá ekki bara hægt að finna genið sem þegar er kunnugt og banna þeim mönnum að stunda áfengisneyslu alveg eins og hv. þm. ætlar að banna mönnum að stunda box?