Verslun með áfengi og tóbak

Mánudaginn 04. febrúar 2002, kl. 18:41:05 (3955)

2002-02-04 18:41:05# 127. lþ. 68.11 fundur 135. mál: #A verslun með áfengi og tóbak# (smásöluverslun með áfengi) frv., KF (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 68. fundur, 127. lþ.

[18:41]

Katrín Fjeldsted (andsvar):

Herra forseti. Ég lýsti að vísu stuðningi við efni þessa frv. en ég lýsti engum sérstökum stuðningi við einstök atriði í þessari greinargerð enda er það frv. sem er til umræðu og til atkvæðagreiðslu en ekki greinargerð.