Karl V. Matthíasson (andsvar):
Herra forseti. Ég tek heils hugar undir orð hv. þm. Guðrúnar Ögmundsdóttur. Það eru nefnilega margir fletir á þessu máli og þess vegna erum við einmitt að ræða það hérna og benda á öll þessi atriði sem við vonumst til að tekin verði til umfjöllunar í allshn. og að hún taki tillit til þeirrar umræðu sem fram hefur farið í þinginu við 1. umr. málsins.