Þingsköp Alþingis

Fimmtudaginn 07. febrúar 2002, kl. 15:05:28 (4263)

2002-02-07 15:05:28# 127. lþ. 73.8 fundur 119. mál: #A þingsköp Alþingis# (rannsóknarvald þingnefnda) frv., ÖS (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 73. fundur, 127. lþ.

[15:05]

Össur Skarphéðinsson (andsvar):

Herra forseti. Ég tek ábendingum hv. þm. Guðjóns Guðmundssonar um fjarvist hæstv. forseta vel og ætla ekki að fjalla frekar efnislega um það tiltekna mál. Ég hygg hins vegar að þessi umræða sem á sér hér stað milli okkar tveggja sýni fram á nauðsyn þess að þingið ræði þessi mál með einhverjum hætti.

Nú er það einfaldlega svo að í þessu tiltekna máli var, eins og hv. þm. staðfestir, farið langt fram úr fjárlögum af hálfu þingsins. Hvað þýðir það, herra forseti? Það þýðir að þingið braut lög. Það er svo einfalt.

Hvernig gerðist það? Það liggur ekki ljóst fyrir. Ég hef aðra skoðun á því en ýmsir aðrir þingmenn, m.a. hv. þm. Guðjón Guðmundsson, og við því er ekkert að gera. En hvernig mundum við reyna að útkljá það hvor okkar hefur rétt fyrir sér? Væntanlega með því að rannsaka þetta mál.

Hvað gerðum við þingmenn stjórnarandstöðunnar í því máli þegar skýrsla Ríkisendurskoðunar lá fyrir, með heldur þungum áfellisdómum í einstökum tilvikum? Við óskuðum eftir því að málið yrði tekið upp í fjárln. Meiri hluti fjárln. samþykkti það. Hvað varð um þá rannsókn? Herra forseti. Meiri hlutinn hér í þinginu sópaði því máli undir teppi. Þeirri rannsókn var aldrei lokið, eins og þeir hv. þm. í fjárln. sem hér eru staddir geta staðfest.

Að því er varðar framtíð hv. þm. Guðjóns Guðmundssonar er það einfaldlega þannig, eins og hann veit af samskiptum okkar í gegnum 11 ár, að ég hef ævinlega verið talsvert framsýnni en hann sjálfur hvað varðar hans pólitísku framtíð. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem ég hef spáð honum langlífi í pólitík langt umfram þær væntingar sem stundum hafa birst hjá honum sjálfum.