Verðbréfaviðskipti

Þriðjudaginn 12. febrúar 2002, kl. 13:40:32 (4423)

2002-02-12 13:40:32# 127. lþ. 75.2 fundur 363. mál: #A verðbréfaviðskipti# (innherjaviðskipti) frv., ÖS (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 75. fundur, 127. lþ.

[13:40]

Össur Skarphéðinsson (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir þær skýringar sem hún flytur með þessu frv. en mig langar að spyrja hana að einu: Er það rétt skilið af greinargerð frv. og því sem hæstv. ráðherra segir, að ástæðuna fyrir því að dómur féll með þeim hætti sem hæstv. ráðherra lýsti megi rekja til þeirrar staðreyndar að frv., sem hæstv. viðskrh. lagði upphaflega fram, hafi verið breytt af meiri hluta efh.- og viðskn. og síðar þinginu? Er það rétt skilið hjá mér að hefði sú breyting ekki komið til og frv. hæstv. ráðherra staðið óbreytt þá hefði dómurinn aldrei fallið á þennan veg?