[prenta uppsett í dálka] 77. fundur, 127. lþ.
Drífa Hjartardóttir:
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. samgrh. hve hratt og örugglega hann gekk í Herjólfsmálið. Að mínu mati hefur þar fengist mjög farsæl lausn.
Samgöngumál skipta Vestmanneyinga afar miklu máli og ferðaþjónusta í Vestmannaeyjum á sér mikla möguleika í framtíðinni. Í nýju íþróttahúsi, byggðu af miklum myndarskap, nýteknu í notkun í Vestmannaeyjum, felast miklir möguleikar í framtíðinni til að halda stórmót. Allt kallar þetta á fleiri ferðir með Herjólfi. Hér er um varanlega fjölgun á ferðum að ræða sem skiptir öllu máli. Ég er sannfærð um það að Vestmanneyingar eru ánægðir með lausn þessara mála.