Ferjusiglingar Herjólfs milli Vestmannaeyja og Þorlákshafnar

Miðvikudaginn 13. febrúar 2002, kl. 18:49:16 (4564)

2002-02-13 18:49:16# 127. lþ. 77.16 fundur 409. mál: #A ferjusiglingar Herjólfs milli Vestmannaeyja og Þorlákshafnar# fsp. (til munnl.) frá samgrh., Fyrirspyrjandi KPál
[prenta uppsett í dálka] 77. fundur, 127. lþ.

[18:49]

Fyrirspyrjandi (Kristján Pálsson):

Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. samgrh. fyrir svörin sem mér fundust vera skýr. Þó vantar að sjálfsögðu eitthvað upp á að það komi fram sem beðið var um. Mér skilst að mér sé óhætt að spyrja um það síðar og að þá muni koma svar við því.

Ég get vel skilið að taka þurfi skrefin í þessu máli í áföngum og að ekki verði hægt að fjölga ferðum Herjólfs í einum áfanga upp í tvær ferðir á dag. Þess vegna held ég að þetta samkomulag við bæjarstjórnina hafi verið mjög skynsamlegt og farsælt og á ég ekki von á öðru en að fólk almennt verði ánægt með það.

Ég lít svo á að í framtíðinni hljóti samt að þurfa að fjölga þessum ferðum enn meira og að að því verði unnið í þinginu í samvinnu við bæjarstjórn og ferðafulltrúa og aðra aðila sem hagsmuna eiga að gæta í Vestmannaeyjum. Ég held að allir hljóti að líta svo á að rekstur Herjólfs milli lands og Eyja sé álíka mikilvægt mál og að reka þjóðveg 1 fyrir landsmenn. Það er því ekki hægt að hugsa þetta allt út frá arðsemi og farþegafjölda í þessu tilliti heldur því að þarna er um eyju að ræða og því engir aðrir möguleikar en siglingar sem við getum treyst að séu öruggir allt árið um kring.

Samkvæmt samningi sem er í gildi við Samskip kosta aukaferðir í dag um 355 þús. kr. Ef tvær ferðir yrðu á dag allt árið um kring þá mundi það kosta 100 millj. samkvæmt þeim samningi. En auðvitað er rétt að hugsanlega þyrfti að fjölga í áhöfn og við það mundi kostnaður aukast. Allt þetta mun skýrast síðar. Ég ítreka þakkir til ráðherra.