Iðnaðarráðherra (Valgerður Sverrisdóttir) (andsvar):
Hæstv. forseti. Ég held mig við það sem ég sagði áður. Ég tel að það rúmist innan svæðisskipulags miðhálendisins að fara í þessar framkvæmdir eins og lagt er til í frv. og það tel ég að sé mjög mikilvægt.