[prenta uppsett í dálka] 78. fundur, 127. lþ.
Drífa Hjartardóttir (andsvar):
Herra forseti. Það er auðvelt að svara þessu. Varðandi Gullfoss þykir mér ekki koma til greina að hann verði virkjaður og ekki Dettifoss heldur en það má virkja meira í Þjórsá og á teikniborðinu er Urriðafossvirkjun sem ég held að muni verða góður kostur fyrir okkur.