[prenta uppsett í dálka] 79. fundur, 127. lþ.
Ögmundur Jónasson (andsvar):
Það er alveg rétt, herra forseti, að afleiðingar mótmælanna í Genúa og víðar voru skelfilegar. Lögreglan var t.d. sökuð þar um að hafa beitt hroðalegu ofbeldi gegn mótmælendum þannig að það eru að sjálfsögðu tveir sem koma þar að.
Það er ekki rétt hjá hæstv. dómsmrh. að þetta sé ekki á gráu svæði. Það segir beinlínis í grg. og athugasemdum með frv. að bann við því að maður hylji andlit sitt með grímu, hettu eða öðrum aðferðum geti falið í sér skerðingu á persónufrelsi. Síðan er vísað í mannréttindasáttmála Evrópu og að lokum lögð áhersla á að ekki verði gengið lengra í skerðingu réttinda en nauðsyn ber.
Auðvitað ber þetta þess vott að menn telja sig vera á gráu svæði og að við þurfum að fara varlega.
Ég held að við séum hér að stíga of stórt skref í skerðingarátt.