[prenta uppsett í dálka] 79. fundur, 127. lþ.
Ögmundur Jónasson (andsvar):
Herra forseti. Nei, ég er andvígur því að setja slíkt bann í lög. Reyndar finnst mér þetta allt saman vera nokkuð vanhugsað. Halda menn að hægt hefði verið að koma í veg fyrir mótmælin í Genúa með því einu að lögreglan hefði farið inn í hópinn og sagt við þá sem þar höfðu stillt sér upp, þær þúsundir manna, tugþúsundir, og innan um einhverjir grímuklæddir: Viljið þið gjöra svo vel að taka niður grímurnar?
Þetta finnst mér talsvert vanhugsað. Ég er andvígur því að þetta verði sett í íslensk lög og hvet til þess að við skoðum þetta frv. og önnur frv. sem liggja fyrir þinginu sem að mínum dómi takmarka rétt borgarans og auka vald lögreglunnar. Þótt ég sé hlynntur íslensku lögreglunni og beri fullt traust til hennar held ég að ekki sé hollt að fela henni of mikið vald í hendur. Þarna þarf að vera jafnvægi á milli réttinda einstaklinganna og samfélagsins og þess valds sem er sett í hendur lögreglunnar. Ég held að innan lögreglunnar séu einnig margir á því máli að slíkt sé eðlilegt og rétt.