[prenta uppsett í dálka] 80. fundur, 127. lþ.
Flm. (Össur Skarphéðinsson):
Herra forseti. Ég ætla ekki að lengja þessa umræðu. Mig langar aðeins að þakka hv. þm. Guðjóni A. Kristjánssyni fyrir töluna sem hann flutti. Hv. þm. hefur áður sýnt það og sannað að af reynslu sinni sem sjómaður hefur hann yfirburðaþekkingu á þessu sviði. Hann mælti hér ákaflega fagurlega og vel um þá ályktunartillögu sem ég hef lagt fram ásamt nokkrum öðrum þingmönnum úr mínum flokki. Mér þykir vænt um það, herra forseti, og vænti þess að hv. þm. leggi þessu máli lið í sjútvn. þar sem hann situr og það endi aftur í þessum sölum með góðum meðmælum.